Morgunblaðið - 25.02.2017, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Undanfarið hefur
borið á neikvæðum um-
fjöllunum og skrifum
um sorpkvarnir í eld-
húsvaska. „Stað-
reyndum“ kastað fram
og umræðan einsleit,
neikvæð og ómál-
efnaleg að mínu mati.
Sorpkvarnir hafa árum
saman verið notaðar
með góðum árangri í
löndum um allan heim.
Innan Reykjavíkurborgar heyrast
einhverjar raddir sem vilja banna
sorpkvarnir.
Mig langar að benda á að það hefur
enginn haft samband við okkur, sem
höfum selt sorpkvarnir í 20 ár, til að
athuga hvort við liggjum á ein-
hverjum upplýsingum eða könnunum
varðandi notkun sorpkvarna og áhrif
þeirra. Já, við liggjum á ýmsum upp-
lýsingum og könnunum sem gerðar
hafa verið.
Til er vefsíða þar sem framleið-
endur sorpkvarna hafa safnað saman
upplýsingum um óháðar kannanir
sem hafa verið gerðar, meðal annars í
nágrannaríkjum okkar sem við horf-
um oft til og berum okkur saman við.
Sem dæmi má nefna Svíþjóð, Þýska-
land, Danmörku, England, Holland,
Ítalíu, sem og Japan, Ástralíu og
fleiri. Mig langar sérstaklega að
benda á könnun sem gerð var í bæn-
um Surahammar í Svíþjóð þar sem
fylgst var með áhrifum af notkun
sorpkvarna á 10 ára tímabili. Á þessu
tímabili voru sorpkvarnir í notkun á
allt að 50% heimila bæj-
arins. Ekki reyndist
verða nein aukning í
vatnsnotkun, stíflu-
myndun, uppsöfnun
fitu, né tæringu í frá-
veitukerfum.
Við hvetjum áhuga-
sama og einkum þá sem
vilja banna sorpkvarnir,
að kynna sér þessar
kannanir betur. Not-
færið ykkur að aðrir
hafa lagt tíma og pen-
inga í rannsóknir. Hér
neðar er vefslóð þar
sem hægt er að finna niðurstöður áð-
ur nefndra rannsókna og annan fróð-
leik.
Þegar við hófum innflutning á
sorpkvörnum fyrir 20 árum fengum
við nema í Tækniskólanum til að
vinna verkefni fyrir okkur. Meðal
annars að athuga með fráveitumál.
Þau ræddu við þáverandi gatna-
málastjóra sem tjáði þeim að frá-
veitukerfið væri vel í stakk búið til að
taka við auknu magni.
Sorpkvarnir hafa verið auðvelt
skotmark vegna vandamála sem
tengjast fráveitukerfum. En við skul-
um ekki hengja bakara fyrir smið.
Mig langar að segja frá hvernig
sorpkvarnir virka til þess að fólk sem
ekki þekkir vélarnar skilji virkni
þeirra.
Sorpkvarnir eru hengdar undir
niðurfallsop eldhúsvaska. Þær eru
tengdar við frárennslislagnir hússins
og hafður er vatnslás á tengingunni.
Við notkun vélarinnar skal skrúfa frá
kalda vatninu, kveikja svo á vélinni og
mata hana jafnt og þétt af mat-
Sorpkvarnir í eld-
húsvaska – innlegg
í umræðuna
Eftir Ingólf Örn
Steingrímsson
Ingólf Örn
Steingrímsson
E-60 Stólar
Klassísk hönnun frá 1960
Hægt að velja um lit og áferð
að eigin vali
Verð frá kr. 28.400
Íslensk hönnun og framleiðsla
Lífstíðarábyrgðá grind og
tréverki
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavík • Sími 553 5200 • solo.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 12 þriðjudaginn 7. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
ÍMARK DAGUR
Af því tilefni gefur Morgunblaðið út sérblað,
tileinkað ÍMARK deginum föstudaginn 10. mars
Íslenski markaðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur
með veglegri ráðstefnu í Hörpu 10. mars.
Þegar við Íslend-
ingar nútímans ræðum
um nauðsyn viðhalds
ríkistungunnar, þá vill
gleymast að hún er
einnig hluti af samevr-
ópskri þjóðarímynd-
ararfleifð sem nær allt
aftur til Grikkja hinna
fornu. En það er sú
hugmynd að íbúar
ákveðinnar heima-
byggðar eigi sér sérstæða tungu
með ritmáli og rithöfundum, sem
tengir þá við atburði langt aftur í
tímann; og styrkir þá þannig einnig
sem þjóðarsál. Einnig blandast inn í
þetta sá goðsögulegi vættaheimur
sem er sérkenni þeirra landsvæðis.
Forn-Grikkir
Þetta gerðist fyrst er Grikkir urðu
fyrsta ritmenningarþjóðin, um 700 f.
Kr. Svo umrituðu þeir í kjölfarið
Hómerskviðurnar til að mynda
staðlaða fortíðarsýn fyrir allt grísku-
mælandi fólk. Síðan bættust einnig
við á næstu öldum n.k. þjóðskáld
sem urðu lýsandi speglar um fortíð-
aráfanga í þjóðarsálinni. Má þar
nefna goðsögulega harmleikjaskáld-
ið Æskilos, í Aþenu á fimmtu öld f.
Kr., og trúspekinginn Platón og
heimspekinginn Aristóteles þar á
fjórðu öld f. Kr.
Rómverjar
Arftakar Forn-Grikkja urðu síðan
Rómverjar; menningarlegir spor-
göngumenn þeirra, en með sína eig-
in tungu; latínu. Þeir komu sér upp
þjóðskáldum er ritmál þeirra fór að
blómstra, á fyrstu öld f. Kr. Þar varð
Virgill til að yrkja Eneasarkviðu, er
tengdi uppruna rómversku þjóð-
arinnar við atburði Ilíonskviðu
Hómers. Í leiðinni var goðsögulegur
heimur Rómverja lagaður að hinum
gríska. Einnig bættust
nú við ljóðskáldin Hór-
as og Óvíð. Dugðu þeir
nú sem kjölfestan í
menningarlegri fortíð-
arsýn Rómverja næstu
fimm aldirnar.
Síðan féll Rómaveldi,
en gegnum arfleifð þess
hélt gríska arfleifðin
áfram að móta heims-
myndir Evrópuþjóða:
Var það nú í formi
kristninnar, sem hélt
áfram að miðla gömlu
heimsmyndinni og áðurnefndum
höfundum, gegnum latínukennslu
sína; sem varð svo einnig til eft-
irbreytni með nýjum þjóðtungum, í
fullvalda ríkjum eins og Frakklandi,
Englandi: og loks Íslandi.
Ísland
Ísland fékk fljótt á sig ásýnd slíks
klassísks þjóðveldis: Afmörkuð þjóð,
með afmarkað landsvæði, og nor-
ræna goðafræði sem líktist hinum
grísku og rómversku; þótt kristnin
bættist fljótt efst ofan á; og með eig-
in þjóðtungu er varð íslensk útgáfa
af norrænu. Í stað Hómerskviða
kom skáldskapur Sæmundar-Eddu;
og frændurnir Snorri Sturluson og
Sturla Þórðarson urðu sem okkar
Platón og Aristóteles. Síðar kom
Jónas Hallgrímsson, sem varð okkar
ígildi af Virgli, Grímur Thomsen
sem minnir á Hóras, og loks Halldór
Laxness, sem má skoða sem okkar
Óvíð.
Með þúsund ár í slíku umhverfi,
vantaði Ísland aðeins herslumuninn
til að teljast sem sjálfstæð þjóð. Það
varð svo á fyrri hluta tuttugustu ald-
ar, í kjölfar tveggja heimsstyrjalda, í
bland við stóraukna viðskiptamögu-
leika smáþjóða.
Íslenskan er því ekki bara einhver
tækifærislausn í bland við nítjándu
aldar þjóðernisrómantík og tutt-
ugustu aldar fullveldis- og lýðveld-
isbrölt, heldur er hún hluti af leið-
andi
þjóðríkjahugmyndafræðipakka, sem
nær allt aftur til upphafs evrópskrar
bókmenntaritaldar. Því er hún bara
einn hluti af rótgróinni þjóðarupp-
skrift sem samanstendur af landi,
þjóðtungu, bókmenntum, þjóðtrú og
sögu; mikið til óháð kristni, kyn-
þáttahyggju eða tungumála-
uppruna-fasisma.
Því höfum við að sama skapi minni
rétt eða getu til að skerast úr leik
þegar kemur að verndun tungu okk-
ar í stöðugt ágengari veröld fjöl-
þjóðamenningarinnar!
…
Í lok þessarar greinar minnar um
málefnastöðu íslenskuverndar, vil ég
því vitna í erindi úr nýlegu kvæði
mínu um Virgil áðurnefndan, þar
sem ég nefni tildrög þess er hann
orti Eneasarkviðu til að tengja Róm-
arsögu við Ilíonskviðu Hómers: og
þar með ætt Ágústusar Rómarkeis-
ara við grísku guðina:
…
Hersi núna hugnaðist
hirðskáld sér að færa:
heyrði strák er söng af list,
keypti sér að mæra.
Strákur aftur löndin fékk
lista fyrir smjaður:
guðlegs ættar taldi rekk;
væri goð og maður.
Íslenskan sem hluti af vest-
rænni þjóðasköpunarhefð
Eftir Tryggva V.
Líndal
Tryggvi V Líndal
» Við höfum minni rétt
eða getu til að sker-
ast úr leik þegar kemur
að verndun tungu okkar
í stöðugt ágengari ver-
öld fjölþjóðamenning-
arinnar!
Höfundur er skáld og menningar-
mannfræðingur.
Tilgangslaust er fyr-
ir Steingrím J. og fyrr-
verandi þingmann
Höskuld Þórhallsson
að gefa Seyðfirðingum
fögur loforð um að ráð-
ist verði í Fjarðarheið-
argöng strax að lokn-
um framkvæmdum við
Norðfjarðargöng. Á
fundi austur á Eskifirði
2. október 2015 vísaði
Ólöf Nordal, þáverandi
innanríkisráðherra, þessum rang-
færslum til föðurhús-
anna og ítrekaði sínar
fyrri yfirlýsingar um að
Dýrafjarðargöng væru
næst í röðinni. Hér
stendur ákvörðunin um
þessa gangagerð á Vest-
fjörðum óhögguð. Deil-
urnar milli bæjar-
stjórnar Fjarðabyggðar
og Seyðfirðinga um
hvaða jarðgöng verði
næst í röðinni vekja
spurningar um hvort
Fjarðarheiðar- og Mjóa-
fjarðargöng séu nú orð-
in að pólitísku þrátefli sem skaðar
Hvað kosta Fjarð-
arheiðargöng?
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson