Morgunblaðið - 25.02.2017, Qupperneq 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
✝ GunnhildurBjarnadóttir
fæddist 4. apríl
1935 í Vestmanna-
eyjum. Hún lést 15.
febrúar 2017 á
Dvalarheimilinu
Hraunbúðum í
Vestmannaeyjum.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Sig-
urbjörg Einarsdótt-
ir frá Krossi í
A-Landeyjum, f. 1910, d. 1987,
og Bjarni Bjarnason frá Efri-
Hömrum í Holtum, f. 1903, d.
1993. Systkini Gunnhildar voru
Sigríður Ingibjörg Bjarnadóttir,
f. 1931, d. 2016, og Einar Valur
Bjarnason, f. 1932, d. 2014.
Gunnhildur var gift Eiríki
Ágústi Guðnasyni frá Vegamót-
um í Vestmannaeyjum, f. 1933,
d. 1987, syni hjónanna Önnu Ei-
ríksdóttur frá Vegamótum í
Vestmannaeyjum, f. 1902, d.
Þeirra börn eru Ólafur, Edda og
Júlía. 3) Hildur, f. 1993. Gunn-
hildur var fædd og uppalin í
Vestmannaeyjum. Hún gekk þar
í barna- og gagnfræðaskóla, en
lauk gagnfræðaprófi frá Skóga-
skóla og var einn vetur í Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur. Auk
húsmóðurstarfa vann hún ætíð
utan heimilis, lengi við af-
greiðslustörf, en stærstan hluta
starfsævinnar sem skólaritari í
Barnaskóla Vestmannaeyja.
Gunnhildur var félagslynd og
áhugasöm um menn og málefni,
sérstaklega ef þau tengdust
Vestmannaeyjum á einhvern
hátt. Hún var Þórari og stundaði
íþróttir með félaginu á sínum
yngri árum auk þess sem hún
var skáti og virk í skátastarfi.
Ung að árum gekk hún í kirkju-
kór Landakirkju og söng með
honum hátt í 60 ár. Hún átti
margar góðar stundir með kór-
félögunum, meðal annars á
ferðalögum innanlands og utan.
Gunnhildur var lengi í stjórn
Vestmannaeyjadeildar Rauða
krossins.
Útför hennar fer fram frá
Landakirkju í dag, 25. febrúar
2017, og hefst klukkan 11.
1988, og Guðna
Jónssonar frá
Ólafshúsum í Vest-
mannaeyjum, f.
1903, d. 1944. Gunn-
hildur og Eiríkur
byrjuðu búskap
sinn á heimili for-
eldra hennar í
Breiðholti við Vest-
mannabraut, en
fluttu í nýbyggt hús
sitt að Strembugötu
14 árið 1959. Þar var síðan heim-
ili Gunnhildar þangað til hún
flutti á Dvalarheimilið Hraun-
búðir í ársbyrjun 2015. Dóttir
Gunnhildar og Eiríks er Anna
Guðný, f. 1957. Hennar maður er
Egill Jónsson frá Egilsstöðum, f.
1957. Börn þeirra eru: 1) Eirík-
ur, f. 1980, kvæntur Lenu Björk
Kristjánsdóttur. Þeirra börn eru
Eygló Ösp, Harpa, Hekla Líf og
Egill Örn; 2) Helgi, f. 1986, í sam-
búð með Rúnu Thorarensen.
Ég held hann sé að létta til,
sagði Gunnhildur tengdamóðir
mín oft á tíðum þegar hún spáði í
veður fyrir væntanlegt flug eða
siglingu með Herjólfi milli lands
og Eyja. Þessi ummæli hennar
stönguðust þó oft á við veðurspár
þegar krappar vetrarlægðir voru
að sigla upp að landinu sunnan-
verðu. Þessi orð Gunnhildar vitn-
uðu fyrst og fremst um jákvæðni
hennar og staðfasta bjartsýni.
Hún sá ekki ástæðu til að láta
einhverjar svartsýnisspár valda
sér ama og aldrei kvartaði hún
undan neinu, sama hvað á dundi.
Ég man vel þegar ég kom inn á
heimili Eika og Gunnhildar á
unglingsárum er við Anna Guðný
einkabarn þeirra vorum farin að
krunka okkur saman. Þau tóku
mér opnum örmum, nánast eins
og ég væri sonur þeirra. Á seinni
árum þegar ég vildi skjalla
tengdamóður mína sagðist ég
hafa haft val á góðri tengdamóð-
ur að leiðarljósi þegar við Anna
Guðný kynntumst því allir vissu
að erfiðar tengdamæður hefðu
bugað margan tengdasoninn. Að
launum nefndi Gunnhildur mig
jafnan uppáhaldstengdasoninn
en var ekkert að geta þess að ég
var sá eini.
Eiki og Gunnhildur voru afar
samrýmd og unnu reyndar
lengstum á sama stað í Barna-
skóla Vestmannaeyja, hann sem
kennari og síðar skólastjóri en
hún skólaritari. Ljúfmennska var
þeim hjónum báðum í blóð borin
en Gunnhildur gat verið föst fyrir
og þrjósk ef svo bar undir. Hún
sagðist hafa erft þann eiginleika
frá föður sínum, Bjarna dýra-
lækni í Breiðholti, og kallaði
Breiðholtsþrjóskuna. Jafnaðar-
mennsku erfði Gunnhildur úr
sama ranni og sagðist vera alvöru
krati en ekki samfylkingarmann-
eskja. Þegar henni mislíkaði mál-
flutningur þingmanna eða banka-
manna átti hún til að segja: „Ég
vorkenni bara karlagreyjunum.“
Það voru hennar sterkustu
hnjóðsyrði.
Það var Gunnhildi og fjöl-
skyldunni allri mikið áfall þegar
Eiki féll óvænt og skyndilega frá
1987, aðeins 54 ára að aldri. Hún
bar harm sinn í hljóði enda ekki
tíðrætt um tilfinningar sínar og
kaus að víkja talinu að veðrinu ef
maður spurði of náið um líðan
hennar. Eftir því sem árin liðu
gerði ég mér betri grein fyrir því
að hún varð í raun aldrei söm eft-
ir þennan missi.
Eftir að hún varð ein ferðaðist
amma Gunn mikið með fjölskyldu
okkur um landið og vart hægt að
hugsa sér þægilegri og betri
ferðafélaga. Amma Gunn naut
þess alla tíð að ferðast og kallaði
það að fara á skæling.
Síðustu tvö árin dvaldi Gunn-
hildur á dvalarheimilinu Hraun-
búðum í Eyjum. Ég vil þakka
starfsfólki þar fyrir góða umönn-
un svo og Hólmfríði Ólafsdóttur
fyrir tryggð hennar og umhyggju
fyrir tengdamóður minni.
Blessuð sé minning Gunnhild-
ar Bjarnadóttur.
Egill Jónsson.
Ég man hvað ég gladdist á að-
ventunni þegar ég sá „Silfureld-
inguna“ – gamla Lancerinn henn-
ar ömmu Gunn – í hlaðinu heima.
Þá vissi maður að jólin væru á
leiðinni. Það var heill bílfarmur af
kruðiríi í skottinu – allskyns kök-
ur sem maður fékk bara hjá
ömmu og voru ómissandi hluti af
öllu helgihaldi. Þá vissi maður
líka að maður væri á leiðinni í
Kolaportið með ömmu og þar
keypti hún handa okkur krökk-
unum kókosbollur og slikkerí, en
söl handa sér og mömmu. Það var
reyndar einfaldara þegar
mamma var ekki með, því þá
þurftu þær mæðgur ekki að rífast
um hvor fengi að borga.
Það var allt í fastri rútínu hjá
ömmu og maður vissi yfirleitt að
hverju maður gekk þegar maður
hitti hana. Það skemmtilegasta
sem hún gerði var að fara í bíltúr.
Hún var til í að þvælast enda-
laust, hvort sem það voru ótelj-
andi rúntar um Heimaey, að
kíkja á garða með mömmu og
pabba á höfuðborgarsvæðinu eða
ferðalög um landið. Við sátum
saman í aftursætinu í lengstu bíl-
túrunum, þegar við keyrðum
austur á Egilsstaði. Þar tók hún
að sér það hlutverk að stilla til
friðar milli okkar bræðra og sá til
þess að það væri stoppað mátu-
lega oft á leiðinni til að svala ís-
þörfinni.
Bíltúrarnir urðu síst leiðin-
legri undir það síðasta. Við rænd-
um henni af elliheimilinu, hjálp-
uðum henni upp í bíl og keyrðum
hring eftir hring um eyjuna.
Sama hvað heilsunni hrakaði þá
lét kímnigáfan ekkert á sjá og
hún kom manni sífellt á óvart
með lúmsku gríni. Hún gat nafn-
greint hvern einasta stein á
Heimaey og bent á nánast hvert
einasta hús á eyjunni líka og sagt
hverjir bjuggu þar þá stundina
og hverjir hefðu búið þar áður.
Gjarnan útskýrði hún síðan
hvernig ég væri skyldur fólkinu í
húsinu. Bíltúrunum lauk á því að
hún teygði sig ofan í veskið sitt
með skjálfandi hendi og sótti
aura fyrir ís.
Þó það hafi alltaf verið jafn
gaman að hitta ömmu, var leið-
inlegt hvað var langt á milli okkar
og hvað maður hitti hana sjaldan.
Við þrýstum stundum á hana að
flytja upp á land, en hún tók það
aldrei í mál. Valið virtist einfalt:
Heimaey var hennar land og
„Lífið í Eyjum“ var alla tíð henn-
ar líf.
Blessuð sé minning ömmu
Gunn.
Helgi Egilsson.
Frá því ég man eftir mér kom
amma Gunn upp á land í heim-
sókn mjög reglulega. Árleg heim-
sókn hennar yfir jólahátíðarnar
var þó alltaf í uppáhaldi. Þegar
hún keyrði inn götuna á gamla
Lancernum sínum með randalín-
ur og marga dunka fulla af smá-
kökum í skottinu þá voru jólin
komin. Hún hjálpaði mér við jóla-
hreingerninguna og við að pakka
inn gjöfunum. Hún fékk mig svo
yfirleitt með sér að kaupa jóla-
gjöfina handa mömmu, við fórum
á skæling eins og hún kallaði það.
Amma var alltaf með okkur á jól-
unum og það var ótrúlega skrítið
þegar við vorum án hennar í
fyrsta skiptið þegar hún treysti
sér ekki upp á land. Jólin voru
ekki eins án ömmu.
Amma kom líka alltaf í heim-
sókn yfir sumartímann. Við fór-
um árlega austur á Eiða þar sem
amma fékk leigðan sumarbústað.
Þá var yfirleitt mikið keppnismál
hjá okkur systkinunum að vera
ekki með ömmu í herbergi.
Ástæðan var sú að sú gamla
hraut svo rosalega hátt. Það féll
þó oft í minn hlut að gista með
ömmu. Ég lærði það með tíman-
um, enda svaf hún yfirleitt í rúm-
inu mínu heima og ég á dýnu á
gólfinu, að lykilatriðið til að ná
góðum nætursvefni í herbergi
með henni var að hverfa inn í
draumalandið áður en hroturnar
gerðu vart við sig.
Við fjölskyldan fórum líka í
heimsóknir til Eyja. Við gistum
þá öll í Strembunni og þar stjan-
aði amma við okkur. Maður gat
treyst á að fá gott nammi í
nammiskálinni inni í stofu og allt-
af lumaði amma á bláu Extra-
tyggjói uppi í skáp. Hún var mjög
góður kokkur, það var alltaf nóg
til frammi og veisla á kvistinum.
Ísrúnturinn var einnig mikilvæg-
ur þáttur í heimsóknum til Eyja.
Þá skruppum við í sjoppu og
keyrðum svo hringinn um
Heimaey.
Ég mun sakna þess að fá
ömmu í heimsókn, að koma heim
og sjá hana dottandi í stól með
dagblaðið í fanginu, útvarpið í
hæstu stillingu og sjónvarpið í
bakgrunni. Ég mun sakna þess
að sjá hana krulla á sér hárið með
geimrúllunum. Ég mun sakna
þess að hlusta á hana syngja með
í jólamessunni. Ég mun sakna
þess að spjalla við hana um allt og
ekkert.
Það er erfitt að hugsa til þess
að amma komi ekki í fleiri heim-
sóknir upp á land og að við fjöl-
skyldan fáum ekki fleiri stundir
með henni.
Blessuð sé minning ömmu
Gunn.
Hildur.
Elsku amma Gunn.
Nú þegar þú ert horfin á braut
sest ég hérna niður og rifja upp,
með bros á vör, allar þær minn-
ingar sem ég á um þig, elsku
amma mín. Þú varst og ert mér
afar kær enda vorum við mjög
náin alla tíð og náðum vel saman.
Það má með sanni segja að sam-
band okkar hafi verið einstakt og
ég sakna þín alveg gríðarlega. Þú
varst ein af uppáhaldsmanneskj-
unum í mínu lífi.
Ég veit hins vegar að þú ert
komin á góðan stað núna þannig
að ég er ekki hryggur. Þú munt
alltaf eiga fastan stað í hjarta
mér.
Ég á svo ótal margar góðar
minningar um þig að ég veit eig-
inlega ekki hvar ég á að byrja.
Þú varst alltaf svo jákvæð,
bros- og hláturmild. Þú varst
með einstaklega létta lund. Við
áttum margar góðar stundir sam-
an í Strembugötunni og mörg
minnisstæð samtöl langt fram
eftir nóttu. Það sem þú elskaðir
að „fara á skæling“ eins og þú
kallaðir það. Þá rúntuðum við um
alla Eyjuna og nutum þess ein-
faldlega að vera til. Þú áttir þína
uppáhaldsstaði, eins og höfnina,
dalinn, hraunið og Stórhöfða. Oft
enduðum við „skælinga“ okkar
með því að leggja niður á höfn og
horfa á Herjólf sigla inn, hvort
með sinn ísinn í hendi.
Þegar þú komst suður til okk-
ar fórum við iðulega í Kolaportið
þar sem þú grínaðist með að þú
vildir hitta „hitt skrýtna fólkið“.
Við komum ávallt út með harð-
fisk og kókosbollur. Það var okk-
ar fullkomna blanda.
Ég er þakklátur fyrir öll sam-
tölin sem við áttum í sólhúsinu í
Eyjum. Þú í ruggustólnum og við
Denni sem óðir drengir að
kveikja upp í kamínunni þinni svo
kolsvartur reykjarmökkurinn
stóð um alla Strembuna. Ekki er
ég viss um að kamínuframleið-
andinn myndi skrifa upp á þessa
notkun okkar á græjunni.
Þú varst Eyjamaður fram í
fingurgóma og hafðir sterka
tengingu við Eyjuna og vildir
ekki heyra minnst á það að koma
suður á „ellihæli“ eins og við köll-
uðum það. Oft stóð manni ekki á
sama að vita af þér einni að
kúldrast í Strembunni hin síðari
ár, þar sem neyðarhnappurinn
frá Securitas var iðulega geymd-
ur á náttborðinu í staðinn fyrir að
hanga utan um hálsinn eins og til
var ætlast. Oft hefði ég viljað
Gunnhildur
Bjarnadóttir
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIRÍÐUR HELGA LEIFSDÓTTIR,
áður til heimilis að Grandavegi 47,
lést á Hjúkrunarheimilinu Droplaugar-
stöðum laugardaginn 18. febrúar.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ingimundur Jónsson Kristín Andrésdóttir
Helga Jónsdóttir Hallgrímur T. Sveinsson
Leifur Jónsson Anna Arndís Árnadóttir
Fríða Björg Aðalsteinsdóttir Guðmundur S. Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
STEFÁN JÓHANN KRISTINSSON,
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ,
lést á Hrafnistu, Reykjanesbæ, mánudaginn
20. febrúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 28. febrúar
klukkan 13.
Barði Jónsson Lena Jónsson
Ragnhildur Stefánsdóttir Sigurgeir Þórarinsson
Inga Sif Stefánsdóttir Kjartan Þór Eiríksson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn,
KURT SCHANDORFF,
lést á heimili okkar í Kr. Sonnerup að morgni 15. febrúar.
Minningarathöfn hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hrafnhildur Kristinsdóttir
Ástkær móðir mín og amma okkar,
KRISTÍN HELGADÓTTIR,
Eskihlíð 8a,
lést á Landspítalanum 10. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar
ósk.
Erling Smári Jónsson
Hafþór Úlfar Erlingsson
Kristín Helga Erlingsdóttir
Elsku móðir mín og tengdamóðir, systir
okkar og amma,
ÞÓRA STEINGRÍMSDÓTTIR
tónlistarmaður,
lést 22. febrúar á heimili sínu í Vikmans-
hyttan í Svíþjóð.
Steingrímur Þorbjarnarson Rumyana Björg Ívansdóttir
Laufey Steingrímsdóttir
Sigrún Steingrímsdóttir
og barnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA STEFÁNSDÓTTIR,
Kjartansgötu 16, Borgarnesi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 24. febrúar.
Þorsteinn Auðunsson
Ingibjörg Þorsteinsdóttir Arilíus D. Sigurðsson
Stefán Þorsteinsson Guðríður Guðjónsdóttir
Vigdís Þorsteinsdóttir Ólafur Sigurðsson
Guðrún Þorsteinsdóttir Jóhann Ó. Jóhannsson
Auður Ásta Þorsteinsdóttir Ólafur Þorgeirsson
ömmu- og langömmubörn