Morgunblaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
✝ Sigrún Guð-veigsdóttir
fæddist í Hafn-
arfirði 1. janúar
1939. Hún and-
aðist á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands, Selfossi, 19.
janúar 2017.
Foreldrar henn-
ar voru Guðveigur
Þorláksson, sjó-
maður í Reykjavík,
f. í A.-Skaft. 17. ágúst 1906, d.
10. nóvember 1979, og kona
hans Sigurlaug Sigurðardóttir,
f. í Reykjavík 26. nóvember
1913, d. 2. nóvember 1982. Þau
skildu árið 1973. Sigrún var
ein af 11 systkinum, en þau
eru; Drengur óskírður, f. og d.
1934, Ingibergur, f. 1935, d.
2016, Guðmundur, f. 1939, d.
2008, Marín, f. 1941, Kolbrún,
f. 1944, Sæmundur, 1946,
Sjöfn, f. 1948, Guðlaug, f. 1950,
Hafdís, f. 1951, d. 2008, og
Guðlaugur Birkir, fæddur 1955
sem lést á fyrsta aldursári.
Sigrún bjó á höfuðborg-
einnig naut hún samvista með
félögum í líknar- og vinafélag-
inu Bergmáli.
Börn Sigrúnar og Skafta
eru: 1) Sigurður Jóhann Ragn-
arsson, f. 22.11. 1958, atvinnu-
bílstjóri á Selfossi. Börn hans
eru: Sigurvin Ragnar, móðir
Hafdís Berg Sigurðardóttir,
Jóna Bergþóra, móðir Ingi-
björg Hrefna Guðmundsdóttir.
Sigurður kvæntist Þóreyju
Daníelsdóttur, en þau slitu
samvistum. Börn þeirra eru
Sigrún Lára, f. 1.7. 1987, d.
30.1.1988, Lena Ósk og Kristín
Lára. Sigurður er kvæntur
Öglu Björk Ólafsdóttur. 2) Páll
Skaftason, f. 13.5. 1963, verk-
stjóri Færeyjum, Laugalandi í
Holtum. Páll er kvæntur Ingv-
eldi Eiríksdóttur. Börn þeirra
eru Ragnheiður og Aðalsteinn.
3) Sigurlaug Gréta, f. 20.3.
1968, ræstitæknir á Selfossi.
Gréta er gift Helga Jónssyni.
Börn þeirra eru Ágústa Íris,
Eyþór og Óskar Ingi. 4) Einar,
verkfræðingur í Reykjavík.
Sambýliskona hans er Halldóra
Alexandersdóttir. Dóttir þeirra
er Andrea Rún. Barnabarna-
börn þeirra Skafta og Sigrún-
ar eru orðin tíu.
Útför Sigrúnar fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 25. febrúar
2017, klukkan 15.
arsvæðinu til 7 ára
aldurs en þaðan
fer hún á barna-
heimilið Kumb-
aravog og dvelur
þar fram til ferm-
ingar en flytur þá í
foreldrahús á
Reykjanesinu og
býr þar skamma
hríð. Ung að árum
fer hún í vist í
Reykjavík.
Snemma hefur hún búskap
með Sigurbirni Ragnari Jó-
hannssyni og eignast með hon-
um einn son. Þau slíta sam-
vistum og leið Sigrúnar liggur
austur fyrir fjall sem kaupa-
kona, fyrst á Selfoss og þaðan í
Ölfusið þar sem hún kynnist
eiginmanni sínum, Skafta Ein-
arssyni, f. 13.10. 1929, d. 24.1.
2017. Þau giftust 31.12. 1960.
Lengstum bjuggu þau hjón á
Selfossi. Sigrún vann lengi við
hótelstörf hjá Steinunni Haf-
stað og síðan við kjöt og fisk-
vinnslustörf. Sigrún var í
Kvenfélagi Selfosskirkju og
Móðir mín var kjarnakona bú-
in mörgum kostum. Haustið 1993
vann ég með henni sláturvertíð-
ina í Sláturhúsi SS og varð þá
vitni að því hversu dugleg til
vinnu hún var og vel liðin.
Í uppeldinu sá ég hvernig hún
rak heimilið með myndarbrag.
Verkaskiptingin á heimilinu var
mjög skýr, pabbi sá um garðinn
en hún um allt hitt.
Seinna meir þegar pabbi hætti
á sjónum fékk hann aðeins
stærra hlutverk í eldhúsinu.
Mamma var ráðdeildarsöm og
ákveðin en sanngjörn. Hún hélt
utan um fjármál heimilisins og
þrátt fyrir að oft væri lítið til ráð-
stöfunar tókst henni að stýra því
þannig að við fyndum sem minnst
fyrir því.
Við nutum góðs af útsjónar-
semi hennar og komumst tvisvar
til útlanda en það var ekki eins al-
gengt í þá daga og er í dag.
Mamma var mikil félagsvera.
Henni fannst gaman að vera í
góðra vina hópi og sérstaklega
þegar var verið að spila og
syngja.
Margar af mínum fyrstu minn-
ingum eru af bílferðum með
mömmu. Það verður að segjast
eins og er að hún var svolítill
glanni við aksturinn og oftar en
ekki var hraðamælirinn bilaður
að hennar sögn enda stóð vísirinn
yfirleitt í 130 km/klst. þegar hún
var í dreifbýli.
Alltaf þegar akstursskilyrði
voru léleg róaði það hana niður að
syngja og oftast varð fyrir valinu
lagið Ég vil fara upp í sveit:
Ég vil fara, upp í sveit,
þar í sumar vil ég vinna
veit ég þar er margt að finna.
Ég vil reyna eitthvað nýtt
því ég veit að allir elska kaupakonur.
(Jón Sigurðsson)
Mamma var kaupakona um
það leyti sem hún kynntist pabba.
Fyrir mér voru þau afar ólíkir
einstaklingar sem bættu hvort
annað svo vel upp. Á síðustu ár-
um þegar heilsu mömmu fór
hrakandi þurfti hún mikla
umönnun. Henni sinnti pabbi að
mestu og sú umhyggja sem hann
sýndi henni var einstök. Það að
þau kveðji okkur með aðeins tæp-
lega fjögurra vikna millibili lýsir
hjónabandi þeirra vel því þau
voru mjög samstíga í öllu sem
þau gerðu.
Ég verð ævinlega þakklátur
fyrir allar góðu minningarnar
sem mamma skapaði okkur og
það góða veganesti út í lífið sem
sem hún gaf okkur.
Einar og Halldóra.
Í dag kveð ég heiðurshjónin
Sigrúnu Guðveigsdóttur er lést
19. febrúar og Skafta Einarsson
er lést 24. janúar síðastliðinn
hinstu kveðju og vil þakka þeim
fyrir okkar kynni.
Þau voru tengdaforeldrar mín-
ir í 28 ár eða þangað til leiðir okk-
ar Sigurðar skildi fyrir um fimm
árum.
Margar minningar rifjast upp
fyrir mér á þessari stundu, allar
sumarbústaðaferðirnar okkar
saman eru ógleymanlegar, allar
athafnir sem haldnar voru og
margur kaffisopinn var drukkinn
í eldhúsinu mínu þar sem Sigrún
fór oft á kostum.
Þegar við eignuðumst elstu
dóttur okkar kom aldrei neitt
annað til greina en hún fengi nafn
ömmu sinnar, en grimm örlögin
höguðu því þannig að við misst-
um hana úr vöggudauða þá sjö
mánaða gamla er við dvöldum yf-
ir helgi hjá þeim Skafta í Úthaga
9. Það var okkar sameiginlega
sorg. Sigrún og Skafti voru mér
oftast góð og oft réttu þau okkur
hjálparhönd þegar illa áraði, fyrir
það er ég þeim ævinlega þakklát.
Eftir að við Sigurður fluttum
austur á Selfoss varð samgang-
urinn nánast daglegur og margt
brallað saman.
Börnin mín, Daníel Karl, Lena
Ósk og Kristín Lára minnast nú
ömmu sinnar og afa en þá stend-
ur hæst árlega jólaboðið þeirra
þar sem hefð var fyrir því að
amma og afi dönsuðu við barna-
börnin í kringum jólatréð.
Einnig minnist Kristín Lára
ömmu sinnar þegar hún var í fjöl-
brautaskólanum og á þriðjudög-
um var bakstur, þá beið Sigrún
amma heima eftir að hún kæmi til
að fá smakk af bakstrinum.
Læt ég nú staðar numið, með
þökk í hjarta til Sigrúnar og
Skafta.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Innilegar samúðarkveðjur til
Sigga, Palla, Grétu, Einars og
fjölskyldna þeirra sem og ann-
arra aðstandenda.
Guð blessi ykkur öll.
Þórey Daníelsdóttir.
Í dag kveðjum við í hinsta sinn
Sigrúnu tengdamóður mína sem
lést aðeins tæpum mánuði á eftir
Skafta, eiginmanni sínum til 57
ára.
Það hefði svo sem ekki átt að
koma á óvart að aðskilnaður
þeirra hjóna yrði ekki lengri, svo
háð hvort öðru sem þau voru síð-
ustu árin, enda bæði orðin veik-
burða. En saman voru þau sterk
og héldu sitt heimili allt fram á
síðasta mánuð.
Þegar ég kom inn í fjölskyld-
una fyrir rúmum 30 árum kynnt-
ist ég konu sem mér fannst eig-
inlega hálfgert ofurmenni. Hún
vann langan vinnudag í erfiðri
vinnu auk heimilisstarfanna og
lét sig ekki muna um að skella sér
upp á þak að mála ef svo bar und-
ir. Hún gat verið hamhleypa til
verka og ég skildi stundum ekki
hvernig hún fór að. Sérstaklega
eru mér minnisstæð fyrstu jólin
mín á heimili fjölskyldunnar.
Klukkan 4 á aðfangadag var
hreint allt úti um allt að mér
fannst og ég var þess fullviss að
jólahátíðin væri bara ekkert á
næsta leiti, þegar ég skrapp út til
að fara með pakka til míns fólks,
en þegar ég kom aftur rétt fyrir
klukkan 6 var allt í röð og reglu,
frúin komin í sparikjólinn og beið
eftir jólunum.
Jólin voru alveg sérstakur tími
hjá þeim hjónum. Alla tíð meðan
heilsa og kraftar entust kom fjöl-
skyldan saman heima hjá þeim á
jóladag og helst á nýársdag líka,
á afmælisdegi Sigrúnar. Þessi
jóla- og nýársboð voru þeim mik-
ils virði, því fátt fannst þeim mik-
ilvægara en að hafa gott sam-
band við börnin sín, ekki bara á
hátíðum heldur vildu þau helst
alltaf vita hvar börnin voru stödd
hverju sinni, jafnvel þó að þau
væru komin á fullorðinsár og
löngu flutt að heiman. Ótrúlega
oft gerðist það áður en farsím-
arnir komu til sögu að ef við
brugðum okkur af bæ, að ekki
leið klukkutími frá því við komum
heim þar til síminn hringdi, og þá
var það annaðhvort þeirra hjóna
bara að tékka á hvort ekki hefði
allt gengið vel. Eins eftir að far-
símarnir tóku við var alltaf fylgst
vel með og hringt reglulega. Þau
voru dugleg við að heimsækja
okkur, hvort sem um stuttan veg
var að fara eða langan, við bjugg-
um á Blönduósi um 10 mánaða
skeið og hún lét sig ekki muna um
það að keyra norður a.m.k. 4
sinnum á því tímabili, hún keyrði
alltaf því Skafti hafði ekki bílpróf.
Hún vílaði ekki heldur fyrir sér
að keyra langar leiðir á ferðalög-
um innanlands í samfloti við okk-
ur unga fólkið sem máttum
stundum hafa okkur öll við að
fylgja henni eftir, jafnvel þó að
hún segðist alltaf vera skíthrædd
að keyra leiðir sem hún þekkti
ekki. Hvalfjarðargöngin ætlaði
hún t.d. aldrei að keyra, en eftir
að hafa farið eina ferð í samfloti
við mig fannst henni það ekkert
mál.
Í útilegum og sumarbústaða-
ferðum naut Sigrún sín best. Sér-
staklega ef Palli sonur hennar og
gítarinn hans voru með í ferð. Þá
var oft setið löngum stundum og
sungið og trallað. Hún hafði mik-
ið dálæti á Elly og Vilhjálmi, átti
örugglega alla geisladiska sem
gefnir voru út með lögum þeirra,
kunni flesta textana og bað Palla
oft um að spila eitthvað með
þeim. Þessar stundir geymum við
sem nutum um leið og við biðjum
Guð að blessa minningu Sigrúnar
Guðveigsdóttur.
Helgi Jónsson.
Sigrún
Guðveigsdóttir
HINSTA KVEÐJA
TIL ÖMMU
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
HINSTA KVEÐJA TIL AFA
Nú sefur þú í kyrrð og værð
og hjá englunum þú nú ert.
Umönnun og hlýju þú færð
og veit ég að ánægður þú sért.
Ég kvaddi þig í hinsta sinn
Ég kveð þig nú í hinsta sinn.
(Þursi 1981.)
Við hugsum til ykkar og
takk fyrir allt.
Samúðarkveðjur til
allra.
Lena Ósk, Kristín Lára
og Daníel Karl.
✝ Hreiðar Krist-inn Sigfússon
fæddist á Arn-
arhóli 13. nóv-
ember 1928 en
fluttist að Ytra-
Hóli í Kaupvangs-
sveit árið 1931.
Hann lést á dval-
arheimilinu Hlíð
18. febrúar 2017.
Foreldrar
Hreiðars voru
hjónin Sigurlína Sigmunds-
dóttir, fædd 21. mars 1904, dá-
in 16. ágúst 1951, og Sigfús
Helgi Hallgrímsson, fæddur 2.
október 1898, dáinn 21. nóv-
ember 1987. Sigurlína og Sig-
Hlíð sumarið 2014. Ragna lést
15. nóvember 2014. Hreiðar og
Ragna eignuðust sex börn: 1)
Hrefna, f. 3. ágúst 1948, gift
Ólafi H. Theódórssyni. Þeirra
börn eru sex, þar af 5 á lífi og
barnabörnin eru átta. 2) Sig-
urlína, f. 23. maí 1951, gift
Magnúsi Oddssyni. Þeirra börn
eru sex og barnabörnin eru
þrettán. 3) Sigfús, f. 11. júní
1957, giftur Fanneyju Harðar-
dóttur. Þau eiga tvö börn og
eitt barnabarn. 4) Frosti, f. 6.
júní 1962. Hann á þrjú börn og
eitt barnabarn. 5) Hreiðar, f.
12. desember 1965, giftur
Heiðu Hrönn Theódórsdóttur.
Þau eiga þrjú börn og tvö
barnabörn. 6) Bára, fædd 23.
júní 1967, sambýlismaður
hennar er John Miller.
Útför Hreiðars fer fram frá
Munkaþverárkirkju í Eyja-
fjarðarsveit í dag, 25. febrúar
2017, klukkan 13.30.
fús eignuðust sex
börn. Elstur var
Kristján, d. 16.
janúar 2017,
Hreiðar, Hreinn,
d. 22. nóvember
1970, Hermann,
búsettur í Þorláks-
höfn, Margrét,
Þórustöðum 2,
Eyjafjarðarsveit,
og Helgi, búsettur
á Akureyri. Hreið-
ar giftist Rögnu Iðunni Björns-
dóttur frá Syðra-Laugalandi í
Eyjafirði 13. nóvember 1955.
Þau hófu búskap á Ytra-Hóli II
árið 1966 og bjuggu þar uns
þau fluttu á dvalarheimilið
Mig langar hér með örfáum
orðum að minnast afa míns,
Hreiðars, sem nú hefur kvatt
þetta líf. Það má með sanni
segja að ekki hafi verið mikil
læti í kringum hann afa, hann
var rólegur maður með góða
nærveru og laus við alla sýnd-
armennsku. Þegar ég var í sveit
hjá honum og Rögnu ömmu
lærði maður að vinna, halda
áfram með verkin og klára þau.
Afi hafði gott skopskyn og
voru þau ófá skiptin sem hann
lék bændurna í sveitinni með
látbragði, þannig að viðstaddir
veltust um af hlátri.
Það lék allt í höndunum á
honum afa, hann gat gert við
allar vélar sjálfur og komu
sveitungar hans gjarnan til
hans til að fá aðstoð við að gera
við. Hann spilaði á harmonikku
og greip í hana stundum ef
gestir komu í heimsókn og var
þá glatt á hjalla. Þessi tími á
Ytra-Hóli hjá afa og ömmu er
mér afskaplega kær og hugsa
ég með hlýju til baka til þeirra
stunda.
Alltaf þegar við hittumst nú í
seinni tíð ræddum við um veið-
ar og sagði afi mér sögur þegar
hann gekk til rjúpna og fjölgaði
alltaf rjúpunum sem hann fékk í
einu skoti í hvert skipti sem
hann sagði söguna.
Takk, afi, fyrir allar stund-
irnar sem við fengum með þér.
Ég er þakklátur fyrir að strák-
arnir mínir fengu að kynnast
þér, sem er ómetanlegt. Minn-
ing þín mun lifa í hjörtum okk-
ar alla tíð. Ég veit að amma
tekur vel á móti þér.
Elsku afi, hvíl í friði.
Hreinn Októ Karlsson.
Mágur minn, Hreiðar á Hóli,
er lagður af stað í þá ferð sem
allra bíður, fyrr eða síðar. Eftir
honum man ég fyrst eftir að
þau Ragna systir mín hófu sam-
búð og þá fannst mér hann nán-
ast vera ofurmenni, því að á
þeim dögum datt mér ekkert
það í hug sem ég taldi að Hreið-
ar gæti ekki. Allt lék í höndum
hans, hann gerði við allar vélar,
smíðaði hluti stóra og smáa,
byggði jafnvel hús í sveitinni,
bjó sér til vermireiti við Laug-
arhólinn þar sem hann ræktaði
til sölu allskonar tegundir
grænmetis, hann keppti í frjáls-
um íþróttum og var góður
markmaður, söng og spilaði á
harmonikku, var fengsæll veiði-
maður bæði með byssu og
stöng. Svo var hann bráð-
skemmtilegur, orðheppinn,
sagði sögur og gat hermt eftir
körlum og kerlingum betur en
aðrir menn.
Þannig man ég Hreiðar á
fyrstu árunum, en þó var alvara
lífsins tekin við, hann kominn
með fjölskyldu en æsku- og
unglingsárin að baki, en þau ár
held ég að hafi verið einstak-
lega frjó og skemmtileg, um
það vitnuðu ýmsar sögur, sem
nú eru auðvitað margar horfnar
í gleymskuna, um hin ótrúleg-
ustu uppátæki sem þeir fé-
lagarnir hann og Gestur í
Brekku fundu sér til.
Eitt var það að þeir félagar
höfðu komist yfir slatta af púðri
hjá hermönnum sem aðsetur
höfðu nærsveitis á stríðsárun-
um, og datt þá það snjallræði í
hug að leggja púðurrönd á veg-
inn, dágóðan spöl. Þegar þeir
svo sáu bíl nálgast, og meðan
hann var í öruggri fjarlægð, þá
kveiktu þeir í púðrinu og nutu
þess svo úr einhverju fylgsni að
sjá fát bílstjórans, sem upp-
götvaði eldröndina sem kom
siglandi á móti honum, snar-
hemla og bakka í ofboði, þar til
allt í einu að eldurinn hvarf og
engin ummerki sáust þegar þeir
sem í bílnum voru fóru að gæta
að hver ósköp hefðu hér verið á
ferð. Einn bóndi af Staðar-
byggðinni hafði að mig minnir
tvisvar orðið fyrir þessum yf-
irskilvitlegu náttúruundrum, og
þótti þeim félögum þá sérlega
vel hafa til tekist.
Þá var gerður samanburður
og tilraunir sem snertu flug-
hæfni hænsnanna bæði í
Brekku og á Hóli við litla hrifn-
ingu eigenda. Og blautur striga-
poki hafnaði einhverju sinni of-
an á skorsteininum á næsta bæ
og súrnaði víst heimafólki sjá-
aldur í auga fljótlega eftir að
kveikt hafði verið upp þann
morguninn, en hugmyndaauðgi
þeirra félaga til að krydda til-
veruna, virtust fá takmörk sett.
Það verða á næstunni margar
skemmtilegar sögur rifjaðar
upp, sem vert væri að halda til
haga, en í sögunum, gleðinni,
prakkaraskapnum og hressileg-
um tónum nikkunnar lifir minn-
ing Hreiðars Sigfússonar, enda
alltaf stutt í húmorinn, gleðina
og gamanið, þegar hann var
annarsvegar. Börnum og að-
standendum öllum sendum við
samúðarkveðjur, um leið og
þakkaðar eru fjölmargar
ánægjustundir, sem þó á seinni
árum urðu allt of fáar, við eld-
húsborðið á Hóli hjá þeim
Rögnu.
Blessuð sé minning Hreiðars
Sigfússonar.
Birna og Björn,
Sauðárkróki.
Hreiðar Kristinn
Sigfússon
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
SIGURÞÓRS JÓNSSONAR
vélvirkja og fv. framkvæmdastjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á deild B-7 á Landspítala og
L-4 á Landakotsspítala fyrir þá góðu umönnun sem honum var
veitt af hlýju og virðingu.
Sigurborg Valgerður Jónsdóttir
Garðar Sigurþórsson
Sigrún Sigurþórsdóttir Reynir Guðmundsson
Sigurþór Sigurþórsson
barnabörn og barnabarnabörn