Morgunblaðið - 25.02.2017, Page 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Þorsteinn Eggertssonvar í miðri kennsluþegar blaðamaður
náði tali af honum, en
Þorsteinn á 75 ára afmæli
í dag. „Ég er að kenna á
námskeiðum um alþýðu-
tónlist í Geysi í Skipholti,
er búinn að gera þetta í
nokkur ár. Þetta er mikið
til tónlist beggja vegna
Atlantsála, evrópsk, ís-
lensk og amerísk.“
Þorsteinn er lands-
þekktur dægurlagatexta-
höfundur en hann á um
átta hundruð texta á plöt-
um hinna ýmsu flytjenda,
fleiri dægurlagatexta en
nokkur annar Íslendingur,
þar á meðal texta við mik-
inn fjölda vinsælustu dæg-
urlaga í gegnum tíðina,
s.s. Gvendur á Eyrinni, Það blanda allir landa upp til stranda og Er
ég kem heim í Búðardal og Harðsnúna Hanna. Fyrsti söngtexti
Þorsteins var Ást í meinum sem hann samdi fyrir Savanna tríóið.
Hann samdi einnig fjölmarga texta fyrir Hljóma og má þar nefna
Ég elska alla sem Shady Owens söng.
„Þótt ég sé orðinn gamall þá er ég ennþá að semja. Ég var í vik-
unni að semja texta fyrir Gunnar Þórðarson og annan fyrir Helgu
Möller.“
Söngtextar hafa alls ekki verið það eina sem Þorsteinn hefur
komið nálægt í tónlistinni. Hann var söngvari hjá KK sextettinum
og fleiri hljómsveitum, hann hefur samið söngleiki, leikstýrt og
sungið í þeim auk þess að hafa skrifað og annast dagskrárgerð um
tónlist.
Þorsteinn er einnig drátthagur, stundaði myndlistarnám hér
heima og í Kaupmannahöfn, kenndi tækniteiknun með hléum í yfir
30 ár og var myndmenntakennari við Námsflokka Reykjavíkur í
meira en tíu ár. Hann hefur haldið myndlistarsýningar og mynd-
skreytt bækur, m.a. fyrir Vöku-Helgafell. Hann hefur einnig starf-
að sem blaðamaður og ritstjóri og gaf út Samúel.
Eiginkona Þorsteins er Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, fyrrverandi
lektor. Dætur Þorsteins eru Valgerður og Soffía.
„Í tilefni dagsins ætla ég að bjóða örfáum í kaffi og með því
heima og svo förum við hjónin utan í vor til Danmerkur og Prag.“
Textasmiðurinn Þorsteinn Eggertsson.
Hefur samið meira
en 800 söngtexta
Þorsteinn Eggertsson er 75 ára í dag
S
vanhildur Nanna Vigfús-
dóttir fæddist í Reykja-
vík 25.2. 1977 en ólst upp
í Hafnarfirði lengst af
þar sem hún var í Öldu-
túnsskóla.
Árið 1985 flutti hún með móður
sinni til Winnipeg, var þar í grunn-
skóla og síðar í Kaupmannahöfn frá
1990, er móðir hennar var í dokt-
orsnámi. Hún var í sveit nokkur
sumur á Fellsási í Breiðdal hjá hjón-
unum Erlendi Björgvinssyni og
Friðbjörgu Midjord: „Það var æv-
intýri og dýrmæt reynsla fyrir unga
stelpu að vera hjá þessari harð-
duglegu og kærleiksríku fjölskyldu.“
Svanhildur var ung þegar for-
eldrar hennar skildu: „Þau voru
miklir herstöðvaandstæðingar og
baráttufólk fyrir jafnrétti og velferð.
Ég fór reglulega í skrúðgöngur en
áttaði mig svo á því að þetta voru
kröfugöngur, enda kenndu foreldrar
mínir mér að vilji maður breyta hlut-
unum þarf að berjast fyrir því.“
Svanhildur lauk stúdentsprófi frá
MR 1996 og lærði viðskiptafræði við
HÍ: „Þar kynntist ég manninum
mínum, Guðmundi Þórðarsyni. Við
vorum bæði í viðskiptafræði, hófum
ung sambúð og tókum bæði þátt í
spennandi uppvaxtartímum á ís-
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir fjárfestir – 40 ára
Í toppformi Svanhildur með félögum sínum í Crossfit XY sem var valið til að keppa á Heimsleikunum í crossfit.
Úr Keflavíkurgöngum
í fjármálabransann
Alsæl Brúðhjónin með Benedikt Mána, Kristófer Orra og Brynju Sól.
Akureyri Frank Berg-
ur S. Axelsson fædd-
ist 25. febrúar 2016
kl. 21.07 á Akureyri.
Hann á því eins árs
afmæli í dag. Frank
Bergur vó 3.350 g og
var 51 cm að lengd
við fæðingu. Foreldrar
hans eru Axel Ax-
elsson og Bergrún
Ósk Ólafsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isBankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
Lagerhreinsun
Fossil 20-40%
Skagen 20-50%
Henry London 40%
DKNY 30-50%
OBAKU 40%
Orient 40%
Hugo Boss 30%
Daniel Wellington 20%
Flik Flak 20%
CAI skartgripir 30%
Ýmsir skartgripir 20-50% afsláttur