Morgunblaðið - 25.02.2017, Síða 43
lenskum fjármálamarkaði.“ Svan-
hildur lauk BSc-prófi frá HÍ 1999,
varð sérfræðingur á sviði gjaldeyr-
isviðskipta og ráðgjafar við stýringu
á erlendri gjaldeyrisáhættu fyr-
irtækja hjá Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins, síðar forstöðumaður
netviðskipta Íslandsbanka-FBA og
kom að stefnumótun í samþættingu
netviðskipta bankans. Samhliða
starfi lauk hún prófi í löggiltri verð-
bréfamiðlun og stundaði MS-nám í
alþjóðaviðskiptum og markaðs-
fræðum við HÍ. Á vorönn 2002 fór
hún til Kaupmannahafnar og tók
hluta af áföngum til meistaraprófs
við Copenhagen Business School.
Heim komin hóf Svanhildur störf hjá
Búnaðarbanka Íslands sem stuttu
síðar sameinaðist Kaupþingi. Þar
var hún forstöðumaður fjármögn-
unar og kom að uppbyggingu á fjár-
mögnunarprógrammi bankans, þró-
aði tengslanet við erlenda banka og
fjárfesta og samskipti við lánshæf-
isfyrirtæki bankans.
Árið 2005 varð Svanhildur fram-
kvæmdastjóri fjárstýringar hjá
Straumi fjárfestingarbanka, tók þátt
í breytingu Straums úr fjárfesting-
arfélagi í fjárfestingarbanka og vann
að innleiðingum á verkferlum og
áhætturamma. Vorið 2008 flutti fjöl-
skyldan til Danmerkur og þau hjón-
in sneru sér að eigin fjárfestingum
og ráðgjafastörfum. Meðal fjárfest-
inga þeirra var stór eignarhlutur í
Skeljungi hf., gamalgrónu félagi sem
hafði staðið völtum fótum. Saman
unnu þau að endurbótum og breyt-
ingum á félaginu og seldu það síðan
árið 2014.
„Á mínum yngri árum áttu fim-
leikar hug minn allan. Ég stundaði
æfingar hjá Fimleikafélaginu Björk
undir leiðsögn Hlínar Árnadóttur og
eignaðist þar margar vinkonur.
Það þætti ekki boðlegt í dag að
láta 8-12 ára stelpur bera öll áhöldin
fram í sal í byrjun æfinga, taka síðan
allt saman í lokin og skúra síðan all-
an salinn. Þetta lögðum við á okkur.
Fimleikar eru krefjandi og reyna
mikið á, andlega sem líkamlega. Það
er því ekki tilviljun að margar af
þeim stelpum sem ég æfði með hafi
skarað fram úr á öðrum sviðum.
Seinna fór ég að stunda crossfit,
fyrst sem almenna líkamsrækt en
síðan sem keppnisgrein.
Fyrir rúmum fjórum árum tók ég
þátt í stofnun CrossFit XY í Garða-
bæ. Nú er þetta orðin nokkurs konar
félagsmiðstöð fullorðinna, þó með-
alaldurinn fari söðugt lækkandi.
Ég er stolt af því að á síðasta ári
náði CrossFit XY þeim frábæra ár-
angri að vera ein af fjörutíu Cross-
Fit-stöðvum í heiminum, úr hópi
14.000 stöðva, til að koma liði inn á
Heimsleikana í crossfit.
Á veturna fer fjölskyldan á snjó-
bretti, innan lands og utan, en á
sumrin sækjum við oft hjólagarð í
Whistler í Kanada, þar sem farið er
upp með skíðalyftum og síðan hjólað
niður miserfiðar leiðir. Loks gríp ég
stundum í golfkylfuna og veiðistöng-
ina yfir sumarið í góðum félagskap.“
Fjölskylda
Eiginmaður Svanhildar er Guð-
mundur Örn Þórðarson, f. 10.3. 1972,
viðskiptafræðingur og fjárfestir.
Foreldrar hans eru Þórður Guð-
mundsson, f. 28.8.1943, versl-
unarmaður í Reykjavík, og Erla
Gunnarsdóttir, f. 7.10.1945, bókari.
Synir Svanhildar og Guðmundar
Arnar eru Kristófer Orri, f. 11.7.
2003, nemi í Garðaskóla, og Bene-
dikt Máni, f. 20.4.2005, nemi í Hofs-
staðaskóla. Stjúpdóttir Svanhildar
er Brynja Sól, f. 25.07.1995, við-
skiptafræðinemi við HA.
Hálfbróðir Svanhildar, sam-
mæðra, er Kári Tristan Helgason, f.
12.9. 1992, húgbúnaðarverkfræð-
ingur hjá Google Inc., í Stokkhólmi.
Hálfsystir Svanhildar, samfeðra, er
Aðalheiður María, f. 17.8.1982, véla-
verkfræðingur hjá Samskipum.
Stjúpbróðir Svanhildar er Burkni
Maack Helgason, f. 2.12.1978, iðn-
aðarverkfræðingur hjá CreditInfo.
Foreldrar Svanhildar: Keneva
Kunz, f. 28.6. 1953, löggiltur þýðandi
og dómtúlkur í Reykjavík, og Vigfús
Geirdal, f. 20.4. 1948, d. 14.12. 2016,
sagnfræðingur. Stjúpfaðir Svanhild-
ar er Helgi Skúli Kjartansson, f. 1.2.
1949, sagnfræðingur.
Úr frændgarði Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur
Svanhildur
Nanna
Vigfúsdóttir
Guðbjörg Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Vigfús Sigurðsson
Grænlandsfari, trésmiður í Rvík
Svanhildur Vigfúsdóttir
húsfr. og húsvörður í Rvík
Ingólfur G. Geirdal
kennari í Rvík
Vigfús Geirdal
sagnfr. og kennari
Vilhelmína Steina
Pétursdóttir
húsfr. á Ísafirði
Guðmundur Eyjólfsson Geirdal
kennari, skáld og hafnargjaldk.
á Ísafirði, af ættum Bjarna Páls-
sonar landlæknis og Skúla fógeta
Ragnar Geirdal
bifvélavirki í
Reykjavík
Steinólfur Geirdal
skólastj. og útgerðarm. í Grímsey
Halla Eyjólfsdóttir
skáld á Laugabóli
Freyja Geirdal
húsfr. í Keflavík
Sigurður
Geirdal
bæjarstj. í
Kópavogi
Sigurjón
Birgir (Sjón)
skáld og
rithöfundur
Ingó Geirdal
tónlistarm. í hljómsveitinni Dimmu
Silli Geirdal
tónlistarm. í hljómsveitinni Dimmu
Hilda Plunkett
Russell Chatfield
Corinne Hilda Chatfield Hughes
húsfreyja í Winnipeg
Kenneth Edward Kunz
flugvirki, flugm. og
fjárfestir í Winnipeg
Keneva Ann Kunz
PhD. löggiltur þýðandi
og dómtúlkur
Eva DorothyWoods
Henry Edward Kunz
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Björn Pálsson fæddist áSnæringsstöðum í Svínadal25.2. 1905. Foreldrar hans
voru Páll Hannesson, bóndi á Snær-
ingsstöðum og síðar á Guðlaugs-
stöðum, og k.h., Guðrún Björns-
dóttir húsfreyja.
Meðal bræðra Páls voru Guð-
mundur læknaprófessor og Jón á
Brún, langafi Guðrúnar Agnars-
dóttur læknis og Ástríðar Thor-
arensen hjúkrunarfræðings. Guðrún
Björnsdóttir var hálfsystir Sigur-
geirs, föður Þorbjarnar prófessors,
og hálfsystir Þorsteins, frumbýlings
á Hellu, föður Björns sagnfræðipró-
fessors.
Guðrún var dóttir Björns Ey-
steinssonar, bónda í Grímstungu,
bróður Ingibjargar, langömmu Frið-
riks Sophussonar, fyrrv. ráðherra.
Meðal systkina Björns voru
Hannes bóndi á Undirfelli, afi Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar pró-
fessors, Hulda, húsfreyja á Höllu-
stöðum, móðir Páls Péturssonar,
fyrrv. alþm. og ráðherra, og Halldór
búnaðarmálastjóri.
Eiginkona Björns var Ólöf Guð-
mundsdóttir frá Flatey á Skjálfanda
og eignuðust þau 10 börn.
Björn varð búfræðingur frá Hól-
um 1923. Hann stundaði nám í Sam-
vinnuskólanum 1925 og nám í lýðhá-
skóla í Noregi og ferðaðist um
Noreg og Danmörku 1927. Þá ferð-
aðist hann umhverfis hnöttinn og
dvaldi á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu
1928-29 til þess að kynna sér kjöt-
markaði og meðferð á kjöti.
Björn var bóndi á Ytri-Löngumýri
í rúma sex áratugi, frá 1930 til
dauðadags. Hann var oddviti Svína-
vatnshrepps 1934-58, sat í sýslu-
nefnd um skeið, var kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Skagstrendinga frá
1955-59, stofnaði útgerðarfélagið
Húnvetning hf. 1957 og Húna hf.
1962 og rak útgerð í allmörg ár.
Hann var alþm. Framsóknar-
flokksins fyrir Austur-Húnavatns-
sýslu sumarþingið 1959 og þing-
maður fyrir Norðurlandskjördæmi
vestra á árunum 1959-1974.
Björn lést 11.4. 1996.
Merkir Íslendingar
Björn
Pálsson
Laugardagur
95 ára
Ólína Halldórsdóttir
90 ára
Anna Guðlaug
Sigurjónsdóttir
85 ára
Grímur Ormsson
Haraldur Baldursson
Margrét Árnadóttir
Pétur Guðvarðsson
Rafn Magnússon
Sigrún Júlíusdóttir
80 ára
Andrés Valdimarsson
Bragi Magnússon
Magnús Ásgeir Bjarnason
Unnur Björnsdóttir
75 ára
Erlingur Bótólfsson
Haraldur Sveinbjörn
Gíslason
Sæunn Axelsdóttir
Vilborg Magnúsdóttir
Víkingur S. Antonsson
Þorsteinn Eggertsson
70 ára
Birna Guðrún Bessadóttir
Kristín L. Magnúsdóttir
Marín Elísabet
Samúelsdóttir
Pétur Eyfjörð
Þórgunnarson
Sigurður B. Stefánsson
60 ára
Brynhildur
Sigursteinsdóttir
Einar Helgason
Geir Björnsson
Guðmundur Grétar
Níelsson
Heiðar Gunnarsson
Helgi Jónsson
Ingólfur Ingibergsson
Jarþrúður Jónsdóttir
Matthías Valdimarsson
Óli Þór Ásmundsson
Reynir Katrínarson
Sigrún Halldóra
Arngrímsdóttir
50 ára
Adam Ingvarsson
Aðalheiður Jónsdóttir
Áki Ármann Jónsson
Björg Línberg Runólfsdóttir
Bryndís Ragnarsdóttir
Brynjar Björgvinsson
Ewa Nowowiejska
Margrét J. Þorsteinsdóttir
Michal Piotr Harok
Sverrir Thoroddsen
40 ára
Ásta Friðriksdóttir
Deborah Vargas Tanupan
Guðlaug Arnórsdóttir
Hrafnhildur Lárusdóttir
Hulda Björk Sveinsdóttir
Kristjana Pálsdóttir
Margrét Einarsdóttir
Maríanna Clara
Lúthersdóttir
Monika E. Kowalewska
Rakel Dan Petrudóttir
Snorri Sigurðarson
Sólveig Jónsdóttir
Svanhildur N. Vigfúsdóttir
Thi Binh Tran
Una Björg Einarsdóttir
30 ára
Ben Simon Rehn
Bjarni Malmquist Jónsson
Friðbjörn Steinar Ottósson
Gintare Siniauskaite
Guðlaug Magnúsdóttir
Heimir Gylfason
Jolita Cinskaite
Lolita Kuvike
Signý Þórhallsdóttir
Solene Texier
Sæmundur Heimir
Guðmundsson
Sæunn K. Jakobsdóttir
Sunnudagur
95 ára
Guðríður Jónasdóttir
Sigurlaug A. Stefánsdóttir
90 ára
Jón Halldórsson
Unnur Pétursdóttir
85 ára
Aðalsteinn Aðalsteinsson
Guðrún Ingvarsdóttir
Kristín Ásmundsdóttir
Kristján Steindórsson
Nils Ólafsson
80 ára
Bára Soffía Guðjónsdóttir
Eyþór Gestsson
75 ára
Ármann Gunnlaugsson
Ásrún Ellertsdóttir
Esther Jörundsdóttir
Halldór Skaftason
Jóhann Zoéga
Þórdís Björnsdóttir
70 ára
Guðmundur Ingi
Sigbjörnsson
Jóhann Hinrik Þórarinsson
Júlía Leví G. Björnson
Kristján Rúnar Svansson
Ólína Klara Jóhannsdóttir
Reynir Pálmason
Richard John Simm
Sigríður Þorsteinsdóttir
60 ára
Bjarni Anton Einarsson
Guðrún Ellen Halldórsdóttir
Gunnar Auðunn Gíslason
Jórunn Anna Sigurðardóttir
Karl Pétur Lárusson
Katrín Benjamínsdóttir
Sigurður Arnar Sigurðsson
Soffía A. Jóhannsdóttir
50 ára
Baldur Jóhann Baldursson
Eyþór Kolbeinsson
Guðbjörn Gylfason
Gunnar Þór Guðmundsson
Gyða Hjartardóttir
Halldóra Traustadóttir
Jóna Pálína Grímsdóttir
Manuela Yungco Magno
Óskar Tryggvason
40 ára
Eva Hrund Einarsdóttir
Íris Ólafsdóttir
Janusz Jacunski
Jóhanna Garðarsdóttir
Linda Björk Jónsdóttir
Miroslaw A. Magryta
Peter Madaj
Sif Sigurðardóttir
Steinn Þorkell Steinsson
Sunna Reynisdóttir
Teodor Dudau
Torfi Pálsson
30 ára
Aron Lee Du Teitsson
Davíð Snorri Jónasson
Diana Obolevica
Halldór K. Guðjónsson
Jana Kocábová
Karl Franklín Kristinsson
Katrín Sif Einarsdóttir
Magnús Lárusson
Margrét Gunnarsdóttir
María Kristjánsdóttir
Sindri Freyr Steinsson
Sonja Rut Rögnvaldsdóttir
Sveinn Steinsson
Til hamingju með daginn
DÖMUSKÓR
Skechers Breathe Easy
dömuskór með Memory
Foam innleggi. Léttir
og þægilegir með
breiðu sniði.
Stærðir 36-41.
VERÐ 12.995