Morgunblaðið - 25.02.2017, Síða 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
í Háholt 13-15
Mosfellsbæ eða
Háaleitisbraut 58-60
Reykjavík.
Opið í dag frá 8.00-16.00
www.mosfellsbakari.is
sími 566 6145
MOSFELLSBAKARÍ
Vertu
velkomin
til okkar
Langar þig í rjómabollu?
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er svo mikið af hlátri og gleði í
kringum þig að þú getur ekki að því gert hvað
þú ert léttur. Leggðu spilin á borðið og láttu
fólk vita hvað þú vilt.
20. apríl - 20. maí
Naut Það færi best á því að þú sýndir hlut-
leysi í deilu vina þinna. Einhver sem þú þekkir
gæti líka gengið fram af þér á einhvern hátt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú mátt hreint ekki skeyta skapi
þínu á þeim sem standa þér næst. Farðu í
langa göngu, eða jaskaðu þér út í ræktinni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Viðbrögð fólks birtast ekki hvað síst í
svipbrigðum og öðru sem ekki liggur í augum
uppi. Að klæðast og innrétta er ekki duttl-
ungar í þínum augum heldur ábyrgðarhluti.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gefðu þér tíma til að sinna heimilinu og
lyfta því upp með því að mála eða breyta til.
Taktu því bara eins og hverju öðru hundsbiti
og láttu ekki slettast upp á vinskapinn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú mátt eiga von á miklum erli í dag
og skalt því búa þig undir talsvert stress. Þú-
dregur að fjölda fólks.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að nota daginn til að velta fyrir
þér sambandi þínu við eigur þínar. Hafðu þitt
á hreinu og talaðu skýrt svo enginn geti ætl-
að þér annað en það sem er.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það skiptir ekki máli þótt þú vitir
ekki hvernig þú eigir að komast þangað sem
þú vilt, þú finnur út úr því eins og venjulega.
En stundum hefur maður líka unnið til þess
sem gott er.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Lexían er þessi: Ekki taka neinu
sem gefnu. Einvera er stundum uppspretta
nýrra uppgötvana, það er eins og þær hafi
marað í hálfu kafi. Ef þér líkar ekki eitthvað,
segir þú strax nei.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að venja þig af þessum
stöðugu áhyggjum sem þú hefur af öllum
sköpuðum hlutum. Allt sem viðkemur hinu
opinbera og stórum stofnunum gengur að
óskum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú er góður tími til þess að leggja
síðustu hönd á rannsóknir sem þú hefur lagt
stund á að undanförnu. Allt sem þú kemst
ekki lagalega inn í hentar þér ekki – punktur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú verður hissa þegar þú kemst að því
hversu langt þú getur gengið gagnvart sjálf-
um þér. Með réttu lagi tekst þér að sigla milli
skers og báru.
Vísnagátan er sem endranær eft-ir Guðmund Arnfinnsson:
Kallaði forðum á faðirinn.
Fer að rétta úr drengsnáðinn.
Kunn er flík úr kindar ull.
Kallast blaðra af lofti full.
Helgi R. Einarsson nýkominn
heim frá Tenerife segir að þar hafi
þessar tvær lausnir á vísnagátunni
komið upp í hugann:
Ekki eru konurnar
okkar niðurlútar.
Fögnuðu er fundu svar.
Fannst hér passa kútar.
Ei skuggalegir skútar,
skarlatsrauðir klútar
né hyrndir sæðishrútar.
Hér er lausnin: Kútar.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Faðir minn kútinn kallar.
Úr kútnum strekkist á guttum.
Kútar kalbjarga puttum.
Með kút við fljótum sko allar.
Árni Blöndal á þessa lausn:
Kölluðu bræður kútinn á
kútnum úr snáðinn rétti
sjóvettlinga upp setja má
sundnámið kútur létti.
Helgi Seljan leysir gátuna þannig:
Faðirinn kallaði kútinn sinn á
úr kútnum drengurinn rétta fer
í kútinn áður menn klæddust þá
við kennslu í sundi nýtur er.
Pétur Friðrik Þórðarson svarar:
Faðir vor kallar kútinn á.
Úr kútnum snáðinn réttir.
Klæðast ullarkútum má.
Kútur sundið léttir.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Kallaði faðir á kútinn sinn..
Úr kútnum réttir drengsnáðinn.
Kútur er flík úr kindar ull.
Kútur er blaðra af lofti full.
Þá er limra:
Ef heyrðu menn raula hann Rút svola,
af rommi var full hans kúthola.
Þá dýrindis veig
drakk hann í teyg,
og síðan mátti hann sút þola.
Og síðan kemur Guðmundur með
nýja gátu:
Fara verð ég strax á stjá,
starfið brýnt mig kallar á,
ötull hejast handa má,
hérna kemur gáta smá:
Hann er síst neinn happafengur.
Hann er maður afar smár.
Hann á fjórum fótum gengur.
Í fimleikum hann þykir knár.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Faðir vor kallar kútinn
Í klípu
„TRÚIR ÞÚ Á ÁST VIÐ FYRSTU SÝN?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ER HUNDURINN EKKI SVANGUR?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar það er
eins og vor sé í lofti.
GRETTIR… JÁ, ELÍN? TÚNFISKUR DAÐRARINN
ÞINN!
HRÓLFUR! HVENÆR
ÆTLAR ÞÚ AÐ HÖGGVA
Í ELDIVIÐ?
STORMURINN ER
BÚINN AÐ VERA Í
TVO DAGA!
ÞEGAR
STORMURINN
ER BÚINN…
HELDURÐU
AÐ HANN
VERÐI
BÚINN Á
MORGUN?
ÖRUGGLEGA!
HEPPNIN MÍN ENDIST
EKKI AÐ EILÍFU!
V
ILTU
GIFTAST
MÉR?
Það væri til mikilla bóta ef Íslend-ingar tækju upp vikuskipulag
líkt og frændur okkar Danir og fleiri
Norðurlandabúar. Það er, að notast
við númer viknanna, þegar verið að
skipuleggja viðburði og fleira. Við
erum til að mynda núna að klára
viku átta. Þessar merkingar standa
inni á flestum dagatölum, eins og
þeim sem maður fær frá bankanum,
þó þessar tölur séu ekki almennt
notaðar.
x x x
Það er hagræði að því að hafa hlutialltaf í ákveðnum vikum. Til
dæmis er haustfríið í dönskum skól-
um alltaf í viku 42. Foreldrar geta
gengið að því vísu þegar þeir skipu-
leggja frí, þá jafnvel langt fram í
tímann. Í Reykjavík er snemma
hægt að sjá næsta skólaár og frídaga
en ekki lengra en það. Fæstir skipu-
leggja sig kannski svo langt fram í
tímann en það er gott að geta gengið
að hlutum vísum.
x x x
Danskt samtal: A: „Hvenær ervetrarfríið næsta haust?“ B:
„Nú auðvitað í viku 42.“
Íslenskt samtal: A: „Hvenær er
vetrarfríið næsta haust?“ B: „Í októ-
ber. Einhvern tímann um miðjan
mánuðinn eða eftir miðjan mán-
uðinn. Ég man að í fyrra var frí í
kringum 20. október, held ég.“
x x x
Það er nokkuð ljóst hvort er skýr-ara. Danir geta einnig gengið að
ýmsum viðburðum vísum í tengslum
við haustfríið, menningarnótt þeirra
tengist alltaf þessu fríi.
x x x
Haustfríið danska var eitt sinnkallað kartöflufrí. Þá var frí í
skólunum í viku 42 vegna þess að
börnin þurftu að vinna. Það þurfti
hjálp þeirra við að taka upp kart-
öflur. Núna er fríið ekki til vinnu
heldur til þess að börnin geti fengið
hvíld frá hinu hversdagslega. Margir
nota tækifærið og fara út úr bænum.
Þeir sem eru heima gera eitthvað
annað en venjulega. Börnin eiga
skilið þessa tilbreytingu.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Jesús, ljós heimsins Nú talaði Jesús aft-
ur til þeirra og sagði: „Ég er ljós heims-
ins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í
myrkri heldur hafa ljós lífsins.“
(Jóh.. 8:12)