Morgunblaðið - 25.02.2017, Síða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
T E X T I 15.9 - 16.4.2017
Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur
VALTÝR PÉTURSSON 24.9 - 26.3.2017
JOAN JONAS Reanimation Detail 2010/2012 26.10 - 26.02 2017
Leiðsögn með safnstjóra, sunnudaginn 28. febrúar kl. 14
VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9. - 17.09. 2017
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 7.5.2017
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Þriðjudaginn 28. febrúar: Hádegisfyrirlestur:
Hrun og búferlaflutningar: Reynsla Íslendinga í Noregi
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Steinholt-saga af uppruna nafna í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Grímsey á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudaginn 26. febrúar kl. 14:
Leiðsögn með sérfræðingi Landsbókasafns Íslands
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi,
opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Tónlist eftir Mozart er guðdómlega
falleg og lyftir manni upp á annað
plan. Um helgina gefst einstakt
tækifæri til að heyra öll þessi meist-
araverk í samhengi á tvennum tón-
leikum,“ segir Ásdís Valdimarsdótt-
ir víóluleikari sem ásamt þýska
strengjakvartettinum Auryn Quar-
tet flytur alla sex strengjakvintetta
W.A. Mozart á tvennum tónleikum í
Norðurljósum Hörpu í dag og á
morgun kl. 17 báða daga. Með þess-
um lokatónleikunum starfsársins
fagnar Kammermúsíkklúbburinn 60
ára starfsafmæli sínu.
Í dag, laugardag, eru leiknir
strengjakvintettar nr. 1 í B-dúr, K
174; nr. 5 í D-dúr, K 593 og nr. 3 í g-
moll, K 516. Á morgun, sunnudag,
hljóma strengjakvintettar nr. 4 í c-
moll, K 406 (516b); nr. 6 í Es-dúr, K
614 og nr. 2 í C-dúr, K 515.
Meistaraverk í samhengi
„Mozart var aðeins 17 ára árið
1773 þegar hann samdi fyrsta kvin-
tettinn,“ segir Ásdís og bendir á að
síðasta kvintettinn hafi Mozart sam-
ið skömmu fyrir andlát sitt 1791.
„Það hefur mikið verið skrifað fyrir
strengjakvartettinn í gegnum tíðina,
en þegar bætt hefur verið við auka
víólu verður blærinn allur dekkri og
hýrri. Mozart brillerar í þessu tón-
listarformi. Það gerir þetta enginn
betur en hann,“ segir Ásdís og
bendir á að Mozart hafi sjálfur leik-
ið á bæði fiðlu og víólu sem skili sér
með áþreifanlegum hætti inn í verk-
in.
„Það er alltaf gaman að geta
sökkt sér ofan í eitt tónskáld og
spennandi fyrir áhorfendur að
heyra öll þessi meistaraverk í sam-
hengi,“ segir Ásdís og tekur fram að
hún hafi ung heillast af kvintettum
Mozart, en á æskuheimilinu hennar
var til plata með flutningi Amadeus
kvartettsins og víóluleikarans Cecil
Aronowitz á kvintetti nr. 3 í g-moll
sem hún hlustaði á.
Reynir að spila heima árlega
Auryn kvartettinn skipa fiðluleik-
ararnir Matthias Lingenfelder og
Jens Oppermann, víóluleikarinn
Stewart Eaton og sellóleikarinn
Andreas Arndt. „Ég kynntist Auryn
kvartettinum fyrst sumarið 1985
þegar ég var 24 ára og nýbúin í
skóla. Þá spilaði ég með þeim Mend-
elssohn oktettinn,“ segir Ásdís sem
lauk meistaragráðu frá Juilliard-
skólanum í New York og síðar ein-
leikaraprófi frá Tónlistarháskól-
anum í Detmold í Þýskalandi. Á ferli
sínum hefur Ásdís leikið í mörgum
frægustu tónlistarsölum heims, m.a.
Carnegie Hall í New York, Concert-
gebouw í Amsterdam og Wigmore
Hall í London, og unnið með tónlist-
armönnum á borð við Claudio Ab-
bado, Gidon Kremer, Gary Hoff-
mann og Philippe Graffin. Hún var
einn af stofnfélögum Miami-
strengjakvartettsins og var með-
limur Chilingirian-strengjakvar-
tettsins á árunum 1995-2003. „En ég
reyni að koma heim til að spila alla-
vega árlega,“ segir Ásdís sem nú er
búsett í Amsterdam.
Mikill fengur fyrir Íslendinga
Að sögn Ásdísar hefur hún fylgst
vel með Auryn kvartettinum í gegn-
um tíðina. „Fyrir nokkru leysti ég
víóluleikara kvartettsins af vegna
veikinda og í framhaldi af því báðu
þeir mig að leika kvintetta Mozarts
með sér, sem ég gerði á tónlistar-
hátíð á Ítalíu,“ segir Ásdís og tekur
fram að sér finnist mikill fengur að
því að leyfa íslenskum áheyrendum
að njóta fagmennsku Auryn kvart-
ettsins.
„Þeir hafa spilað saman síðan
1981 og skapað sér nafn sem einn af
virtustu og eftirsóttustu strengja-
kvartettum heims,“ segir Ásdís og
bendir á að kvartettinn sé enn skip-
aður stofnfélögunum fjórum. „Það
er alltaf mjög gaman að spila með
þeim,“ segir Ásdís.
Allar nánari upplýsingar má finna
á vefnum kammer.is.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listamenn Matthias Lingenfelder, Jens Oppermann, Stewart Eaton, Ásdís Valdimarsdóttir og Andreas Arndt.
„Upp á annað plan“
Auryn kvartettinn og Ásdís Valdimarsdóttir flytja alla
strengjakvintetta Mozart á tvennum tónleikum í Hörpu
„Guðmundur W. Vilhjálmsson lögfræðingur stofnaði
klúbbinn ásamt mági sínum, Magnúsi Magnússyni pró-
fessor, á sínum tíma. Þeir höfðu verið í Bandaríkjunum
og kynnst þar flutningi á kammertónlist og langaði til
að koma einhverju slíku á laggirnar hérlendis. Þeir nutu
mikils stuðnings Björns Ólafssonar fiðluleikara og Árna
Kristjánssonar píanóleikara, sem voru burðarásinn í
tónleikaflutningi klúbbsins því þeir spiluðu sjálfir og
útveguðu meðleikara,“ segir Helgi Hafliðason um
stofnun Kammermúsíkklúbbsins. Helgi hefur setið í
stjórn klúbbsins frá 1992 og tók við stjórnarfor-
mennsku af Guðmundi fyrir um þremur árum
Fyrstu tónleikar Kammermúsíkklúbbsins voru haldn-
ir 7. febrúar 1957 í samkomusal Melaskólans. Á efnis-
skránni voru Erkihertogatríó Beethovens og Silunga-
kvintett Schuberts og flytjendur voru þeir Árni, Björn,
Einar Vigfússon, Jón Sen og Ervin Köppen. „Mér eru
þessir tónleikar enn í fersku minni, en seinka þurfti
þeim um einn dag vegna þess hversu slæmt veðrið var.
Ég var þá tæplega sextán ára og þá þegar heillaður af
þessari músík. Það skapast einhver galdur á tónleikum
sem ekki skilar sér þegar hlustað er á upptökur í stof-
unni heima þótt það geti líka verið gott.
Allt frá stofnun hefur klúbburinn staðið fyrir reglu-
legu tónleikahaldi í Reykjavík þar sem hið besta og
áhugaverðasta úr heimi kammertónlistar hefur hljóm-
að í flutningi fremstu hljóðfæraleikara þjóðarinnar og
valinna erlendra listamanna. Þegar klúbburinn var
stofnaður var reglulegt tónleika-
hald aðeins á vegum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands og Tónlist-
arfélagsins. Þótt tónlistarlífið
hafi blómstrað hérlendis og flór-
an orðið fjölbreyttari erum við
enn eini hópurinn sem gerir
kammertónlist skil með skipu-
lögðum hætti. Í upphafi var meg-
ináherslan á verkum frá klassísk-
rómantíska tímabili tónlistarsög-
unnar, en á síðari árum hefur
fjölbreytnin aukist og mikið hefur verið flutt frá síð-
ustu öld og einnig hafa nokkur verk íslenskra tónskálda
verið frumflutt á vegum klúbbsins. Stjórnarmenn
Kammermúsíkklúbbsins hafa alla tíð unnið sjálfboða-
starf. Við viljum geta greitt tónlistarfólkinu sæmilega
fyrir spilamennskuna.
Árgjöldum 200 tryggra félagsmanna eru grundvöllur
rekstursins, en við höfum einnig notið stuðnings frá
ríki og Reykjavíkurborg auk nokkurra fyrirtækja,“ segir
Helgi. Lengst af voru tónleikar Kammermúsíkklúbbsins
haldnir í Bústaðakirkju en síðustu ár hefur Harpa verið
heimavöllur klúbbsins. Þess má að lokum geta að dag-
skrá næsta vetrar er nánast fullmótuð með sex tón-
leikum og stjórn klúbbsins er þegar farin að leggja drög
að starfsárinu 2018-19 og eru þá einnig ráðgerðir sex
tónleikar yfir veturinn.
„Einhver galdur á tónleikum“
60 ÁR ERU LIÐIN FRÁ FYRSTU TÓNLEIKUM KAMMERMÚSÍKKLÚBBSINS
Helgi Hafliðason
Listsýning myndlistarmannsins
Jóns B.K. Ransu, Hilma stúdíur:
Svanir, verður opnuð á morgun, 26.
febrúar, kl. 12.15, í Hallgrímskirkju.
Sýningin er í forkirkjunni og verður
opnunin við messulok.
Jón hefur rýnt í verk sænsku lista-
konunnar Hilmu af Klint (1862-1944)
og heimfært tilraunir hennar yfir í
eigið myndmál, en Hilma einbeitti
sér að túlkun og myndgervingu á
samruna tveggja heima stóran hluta
listferils síns, að því er fram kemur í
tilkynningu. „Hilma af Klint var
meðal fyrstu abstraktlistamanna
Evrópu þótt verk hennar hafi ekki
komið fyrir sjónir almennings fyrr
en árið 1986. Hilma var undir mikl-
um áhrifum frá esóterisma og dulvís-
indum og sagði að málverk sín væru
skilaboð frá annarri vídd. Hún túlk-
aði sýnir og hugmyndir sínar um
tengsl efnis og anda í málverkum
sínum. Hilma vann ætíð í myndaröð-
um og sýnir ein þeirra umbreyting-
arferli svana frá hlutbundinni til
óhlutbundinnar táknmyndar,“ segir í
tilkynningunni. Sýning Jóns er óður
til þessara verka Hilmu af Klint og
tilraun til að horfa í verk listakonu
sem gat túlkað tvo heima í senn.
Jón lauk myndlistarnámi frá Hol-
landi árið 1995 og hefur starfað sem
myndlistarmaður, kennari, gagnrýn-
andi og sýningarstjóri síðan. Hann
er deildarstjóri við Listmálaradeild
Myndlistaskólans í Reykjavík. Sýn-
ingin er haldin á vegum Listvina-
félags Hallgrímskirkju og er opin kl.
9-17 alla daga.
Tveir heimar Sýning Jóns B.K. Ransu, Hilma stúdíur: Svanir, er sögð til-
raun til að horfa í verk listakonu sem gat túlkað tvo heima í senn.
Óður til verka Hilmu