Morgunblaðið - 25.02.2017, Page 52
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 56. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.77 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Nafn konunnar sem lést
2. „Manns saknað í Keflavík“
3. „Ég hef sjaldan upplifað verri …“
4. Farþegi í bíl sem ekið var á …
Hreinn Friðfinnsson er einn þeirra
35 þekktu myndlistarmanna sem
munu eiga verk á hinum virta
skúlptúrtíæringi í borginni Münster í
Þýskalandi í sumar. Hátíðin, sem
haldin er á tíu ára fresti, stendur yfir
frá 10. júní til 1. október með fjöl-
breytilegum sýningum í söfnum og
víða um borgina.
Morgunblaðið/Þorkell
Verk Hreins
á skúlptúrtíæringi
Hljómsveitin
Amabadama kem-
ur fram með Sin-
fóníuhljómsveit
Norðurlands á
tónleikum í Eld-
borgarsal Hörpu í
kvöld. Dagskráin
var frumflutt fyrir
húsfylli í Hofi á
Akureyri í byrjun mánaðarins.
Amabadama og sin-
fóníusveit í Hörpu
Kastljósið beinist að söngverkum
eftir Karólínu Eiríksdóttur á síðdeg-
istónleikum í dag kl. 16 í Safnahúsinu
við Hverfisgötu. Á tónleikunum koma
fram þau Ásgerður Júníusdóttir
mezzósópran, Tinna Þorsteinsdóttir
píanóleikari, Guðrún
Hrund Harðardóttir
víóluleikari og Matt-
hías Nardeau óbóleik-
ari. Þá mun Hjálmar
H. Ragnarsson tón-
skáld ræða við Kar-
ólínu um tilurð verk-
anna sem flutt verða.
Flytja söngverk Kar-
ólínu í Safnahúsinu
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Áfram él, en léttir til fyrir austan. Heldur hægari seinni
hluta dags og frystir víða.
Á sunnudag Austan 8-15 m/s með slyddu eða snjókomu, en lægir og styttir
upp með stöku éljum S- og V-lands fyrir hádegi. Dregur úr vindi og úrkomu
NA-til er á líður. Hiti í kringum frostmark, en fer kólnandi síðdegis.
Á mánudag Gengur í norðaustan 10-20 m/s, hvassast austast.
„Ef Dagný og Hallbera kysu að fara til
Kína í dag væri það ekki vegna þess
að þær teldu sig eiga auðveldara með
að bæta sig þar. Þær væru þá að fara
til þess að fá betri aðbúnað eða hærri
tekjur, sem mér þætti reyndar alveg
eðlileg ástæða því það getur verið
gott að eiga peninga,“ segir Sindri
Sverrisson í viðhorfsgrein um „stóra
Kínamálið“. »4
Ef Dagný og Hallbera
kysu að fara til Kína
Afturelding leikur til úrslita
í Coca Cola-bikarnum í
handknattleik við Val í
Laugardalshöll í dag. Eftir
ævintýralegan viðsnúning
vann Afturelding Íslands-
meistara Hauka með eins
marks mun eftir framleng-
ingu. Mosfellingar voru sjö
mörkum undir í hálfleik.
Valur vann FH, í spennu-
leik, í hinni viðureign
undanúrslita. »2-3
Ævintýralegur
viðsnúningur
„Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem
stórmót fer fram á Akureyri. Það er
frábært að spila hérna, enda erum
við svo margar héðan. Mætingin
verður eflaust góð á leikina, því að
Akureyringar hafa áhuga á íshokkí og
mæta til að styðja okkur,“ segir Anna
Sonja Ágústsdóttir,
landsliðskona í ís-
hokkí, en Ísland mæt-
ir Rúmeníu í fyrsta
leik heimsmeistara-
mótsins á Akureyri
á mánudagskvöld.
»1
Akureyringar munu
mæta og styðja okkur
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta byrjaði allt með því að ég
fór í myndlistarskóla á sínum tíma
svo ég yrði betri í að teikna á töfl-
una,“ segir Marta Ólafsdóttir,
myndlistarkona og fyrrverandi líf-
fræðikennari, en þegar blaðamað-
ur náði tali af henni var hún önn-
um kafin við að undirbúa opnun
sýningar í Hannesarholti í miðbæ
Reykjavíkur.
Marta lauk BS-prófi í líffræði
frá Háskóla Íslands árið 1974 og
síðar prófi í kennslu- og mennt-
unarfræðum frá Háskólanum í
Uppsölum í Svíþjóð auk þess að
bæta við sig námi í vatnalíffræði.
Þegar Marta sneri aftur hingað til
lands árið 1983 hóf hún að kenna
við Kennaraháskóla Íslands.
„Ég er hins vegar hætt að
kenna núna – á að baki 40 ára
starfsferil sem kennari,“ segir
hún, en auk þess að vinna í Kenn-
araháskólanum kenndi Marta
nemendum í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ og Menntaskólanum við
Hamrahlíð.
Spurð hvort hún sakni kennslu-
áranna kveður Marta nei við. „Ég
hætti á hárréttum tíma, en mér
fannst hins vegar afar gaman að
kenna. Svo var ég allt í einu orðin
65 ára og þá var orðið ágætt að
hætta.“
Listin hefur fylgt Mörtu lengi
Marta hóf nám í teikningu í
kvöldskóla Myndlistarskóla
Reykjavíkur árið 2005, en vatnslit-
irnir fönguðu hug hennar stuttu
síðar er hún var við nám í Mynd-
listarskóla Kópavogs. Hún segir
þó listina hafa fylgt sér allt tíð.
„Móðir mín var mikil listakona svo
að ég var alin upp í slíku um-
hverfi,“ segir hún.
Aðspurð segist Marta einna
helst horfa til náttúrunnar eftir
innblæstri. „Ég hef verið að glíma
við allt mögulegt í myndlistinni en
ég enda alltaf í einhverju sem
tengist náttúrunni – kannski er
það vegna þess að ég er líffræð-
ingur að mennt,“ segir hún og
bætir við að hún eigi nokkra uppá-
haldsstaði til að mála. „Ég bý við
Elliðavatn og hef því fallegt útsýni
þar yfir og í átt að Bláfjöllum. Svo
hef ég málað mikið á Snæfellsnesi,
enda lengi í sveit þar á sínum
tíma, en einnig finnst mér mjög
gaman að mála á Þingvöllum á
haustin.“
Hekla gaus í lokin
Þá hefur eldfjallið Hekla átt
hug Mörtu að undanförnu. „Ég
var á námskeiði hjá breskum mál-
ara sem skildi ekki af hverju fólk
væri að mála Heklu því henni
fannst fjallið ekki fallegt og erfitt
að mála það. Ég ákvað því að mála
Heklu frá ýmsum sjónarhornum
og svo endaði hún með því að
gjósa hjá mér,“ segir Marta og
hlær við.
Úr kennslustofunni í listina
Marta opnar
fyrstu myndlistar-
sýningu sína
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hannesarholt Marta Ólafsdóttir, myndlistarkona og fyrrverandi kennari, sýnir verk sín um helgina, en hún segist
einkum sækja innblástur til náttúrunnar. „Ég enda alltaf í einhverju sem tengist náttúrunni,“ segir hún.
Fyrsta sýning Mörtu Ólafsdóttur, sem ber heitið Töfrar náttúrunnar, er
haldin í Hannesarholti í miðbæ Reykjavíkur. Opnun hennar fer fram í
dag, laugardaginn 25. febrúar, frá klukkan 15 til 17. Á sýningunni, sem
stendur til 22. mars næstkomandi, gefst gestum og gangandi færi á að
virða fyrir sér fjölbreyttar vatnslitamyndir, sem sýna meðal annars
Þingvelli, eldstöðina Heklu og Snæfellsnes.
Töfrar náttúrunnar
SÝNINGAROPNUN Í HANNESARHOLTI Í DAG