Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.03.2017, Blaðsíða 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.3. 2017
AF ÝMSU Eftir að hafa starfað í Hollywood í áratugi er
arfleifð Warren Beatty mikil. Nafn hans ber á góma í
dagbókum Andy Warhol, hann kemur fyrir í ævisög-
um helstu stjarna Hollywood og þótt mörg ár líði milli
mynda hans í seinni tíð þykja þær alltaf viðburður í
menningarlífinu. Warren Beatty hefur í áratugi verið
opinber stuðningsmaður demókrata og árið 1972 var
hann í innsta hring George McGovern og vann ötullega
að forsetaframboði hans gegn Richard Nixon.
Beatty þykir af þeim sem þekkja hann jarðbundinn
og réttsýnn, léttur og reifur og finnst gaman að spjalla
við fólk. Fyrrverandi kærasta hans, Joan Collins, sagði
að einn af stærstu göllum hans hefði verið að hann
svaraði alltaf í símann, líka þegar hann ætti alls ekki að
gera það heldur vera að hugsa um annað. Engu að síð-
ur er Beatty þekktur fyrir að vera annt um einkalíf sitt
og að vernda það, sérstaklega eftir að hann giftist og
eignaðist börn. Sumir blaðamenn hafa þannig sagt að í
viðtölum þurfi aðeins að hafa fyrir því að vinna sér inn
traust hans.
Warren Beatty er traustur vinur og vann ötullega að for-
setaframboði George McGovern, sem lést fyrir fimm árum.
Skrafhreifinn og
jarðbundinn
WARREN BEATTY var þátttakandi í einni sögulegustu stund Óskarsverð-
launanna fyrr og síðar þegar hann og Faye Dunaway fengu afhent rangt um-
slag þegar kom að því að tilkynna verðlaun fyrir bestu mynd hátíðarinnar.
Ekki var við Beatty að sakast heldur endurskoðendafyrirtækið sem braut
formfastar starfsreglur sem leiddu til þess að La La Land var í fyrstu sögð
vinningshafinn í stað Moonlight.
Beatty er þaulvanur Óskarsverðlaunahátíðum, en hann hefur verið til-
nefndur til 14 Óskarsverðlauna; fjórum sinnum sem besti leikari í aðal-
hlutverki, fjórum sinnum fyrir bestu myndina, tvisvar sinnum sem leikstjóri,
þrisvar fyrir besta frumsamda handrit og einu sinni fyrir besta handrit byggt á
áður útgefnu efni. Hann hefur einu sinni unnið þau, fyrir bestu leikstjórn árið
1981 fyrir myndina Reds.
Beatty hefur hlotið æðstu heiðursverðlaun Óskarsakademíunnar, Irving G.
Thalberg-verðlaunin árið 1999, og hann er fyrsti og eini ein-
staklingurinn í sögu verðlaunanna til að vera tvisvar tilnefndur
fyrir að leika í, leikstýra, skrifa og framleiða sömu mynd; fyrst
Heaven Can Wait árið 1978 og svo Reds þremur árum síðar.
Beatty hefur 18 sinnum verið tilnefndur til Golden Globe-
verðlaunanna og unnið sex. Auk fyrrnefnda mynda eru þekktustu
myndir hans Splendor in the Grass, Bonnie and Clyde, Shampoo,
Dick Tracy, Bugsy og Bulworth. Þá fékk hann Golden Globe-
tilnefningu fyrir nýjustu mynd sína, Rules Don’t Apply, sem var
frumsýnd á síðasta ári.
Beatty er Bandaríkjamaður af kanadískum uppruna, fædd-
ur árið 1939 í Virginíu, og verður 78 ára 30. mars næstkom-
andi. Móðir hans er frá Nýja-Skotlandi í Kanada og starfaði
sem kennari en faðir hans var sálfræðingur að mennt og starf-
aði innan bandaríska skólakerfisins. Þá voru föður- og móð-
urforeldrar einnig starfandi innan menntakerfisins. Faðir
hans var drykkfelldur og hefur eldri systir Beatty, leikkonan
og rithöfundurinn Shirley MacLaine, sagt frá því að Beatty
hafi lokað sig tilfinningalega frá föður sínum og orðið bóka-
ormur og farið með henni í bíó. Hann hafi einnig notað húmor
til að taka á tilfinningalegum vandamálum. Á milli þeirra eru
þrjú ár, en þau eru afar náin og hafði hún mikil áhrif á að hann
valdi sér leiklistina sem aðalstarf. Það að hann vilji einnig vera
fyrir aftan tökuvélina og leikstýra uppfyllir ríka þörf hans fyr-
ir að hafa stjórn á aðstæðum. julia@mbl.is
ÁSTAMÁL Áður en Warren Beatty gift-
ist leikkonunni Annette Bening 1992 voru
ástamál hans eitt vinsælasta umræðuefn-
ið í Hollywood og fylgdust fjölmiðlar vel
með því hvaða konu hann var að hitta
hverju sinni. Meðal þeirra sem hann átti
vingott við voru Julie Christie, Barbara
Streisand, Cher, Madonna, Joan Collins
og tónlistarkonan Carly Simon, en fyrir
tveimur árum sagði hún að lag hennar;
You’re So Vain, fjallaði um Beatty. Árið
1978 sagði svo í íslensku dagblaði: „Vin-
sælasti piparsveinn í Hollywood, leikarinn
Warren Beatty, sást ekki alls fyrir löngu í
fylgd með enn einni nýrri vinkonu. Sú
heitir Diane Keaton, en ekki fylgir sög-
unni hvað hún starfar, blessunin.“
Giftist eftir
piparsveinalíf
AFP
Beatty og Bening hafa verið gift í 25 ár og eiga fjögur börn. Ástamál
leikarans fyrir það hjónaband voru gjarnan í brennidepli fjölmiðla.
BÖRNIN Ástin kviknaði strax og Warr-
en Beatty og Annette Bening kynntust
við tökur á Bugsy árið 1991. Þau hafa
eignast fjögur börn síðan þá; Stephen,
25 ára, Benjamin, 23 ára, Isabel, 20 ára,
og Ellu sem er 17 ára. Í viðtali sem birt-
ist við Beatty í Vanity Fair í fyrra sagði
leikarinn að hann væri afar náinn börn-
um sínum og ræddi sérstaklega elsta
son sinn, Stephen, sem er rithöfundur
og transmaður og afar virkur í réttinda-
baráttu transfólks. Beatty sagðist afar
stoltur af Stephen, hann væri hetjan sín
og snillingur, eins og öll börnin hans
væru, og kallaði Stephen byltingar-
mann. „Að eignast börnin mín er það
mikilfenglegasta sem hefur hent mig,“
sagði Beatty í viðtalinu.
Beatty, Bening og börnin þeirra fjögur að-
eins yngri. Árið 2006 kom Stephen, lengst
til hægri, út úr skápnum sem transmaður.
AFP
Náinn
börnunum
Reynslubolti
Hollywood
AFP
Warren Beatty framleiddi, leikstýrði og lék eitt aðalhlutverkanna í rómantísku kvikmyndinni
Shampoo frá árinu 1975 og kom sér um leið á kortið sem eitt af helstu kyntáknum Hollywood.
’Faðir hans var drykk-felldur og hefur eldri systir Beatty, leikkonan ogrithöfundurinn Shirley Mac-
Laine, sagt frá því að Beatty
hafi lokað sig tilfinninga-
lega frá föður sínum.
Warren Beatty og Faye Dunaway áttu
stórleik í Bonnie and Clyde.
Warren Beatty
er reynslubolti
í Óskarsverð-
launahátíðum
og áttaði sig á
að eitthvað
undarlegt
væri á seyði
aðfararnótt
mánudags.
Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Opið kl. 11-18 virka daga
Með einföldum aðgerðum
er hægt að breyta stærð
og lögun sköfunnar
• Tímasparnaður
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Umhverfisvænt
• Vinnuvistvænt
Skínandi hreinir gluggar
Komið í
verslun okkar eða fáið
upplýsingar í síma
555 1515.
Einnig mögulegt að
fá ráðgjafa heim.