Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.03.2017, Side 45
5.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
SJÓNVARP Breski leikarinn Idris Elba, sem geirnegldi
hlutverk breyska rannsóknarlögreglumannsins Luthers
í samnefndum þáttum um árið, mun birtast á ný á skján-
um í næsta mánuði í nýrri smáseríu í sex hlutum, sem
hlotið hefur nafnið Guerilla. „Ef þú ert svartur og
breskur er líf þitt stöðug barátta,“ segir í kynningu en
Elba leikur mann sem setið hefur í fangelsi í Bretlandi
snemma á áttunda áratugnum vegna pólitískra skoðana
sinna og er frelsaður af ungum aðgerðasinnum. Í kjöl-
farið setja þau á laggirnar róttæka andófssellu en
ástandið í bresku samfélagi var af ýmsum ástæðum afar
eldfimt á þessum tíma. Meðal annarra leikara eru
Freida Pinto og Babou Ceesay en fyrirhuguð frumsýn-
ing á Sky Atlantic í Bretlandi er 13. apríl.
Eldfimur Elba
Idris Elba í hlutverki sínu í Guerilla.
Sky Atlantic
KVIKMYNDIR Klúðrið á Óskarsverðlauna-
hátíðinni um liðna helgi, þegar röng mynd
var sögð hafa unnið, á sér enga hliðstæðu í
sögunni. Margt klúður hefur þó verið rifjað
upp í vikunni, meðal annars þegar rangur
leikstjóri spratt á fætur á hátíðinni 1933.
Nafnarnir Frank Capra og Lloyd voru til-
nefndir og þegar gall í kynninum, „Frank,
komdu og náðu í verðlaunin þín!“ var Capra
eitthvað annars hugar og rauk á fætur. Sama
gerði Lloyd, sem hafði sannarlega unnið Ósk-
arinn. „Ég vildi að ég hefði getað skriðið
undir teppið eins og hver annar ömurlegur
ánamaðkur,“ sagði Capra seinna.
Hefði viljað skríða undir teppið
Frank Capra var eitthvað utan gátta árið 1933.
Djöfull finn ég til með Warrengamla Beatty. Handaskolinundir lok Óskarsverðlauna-
hátíðarinnar um liðna helgi eru með
miklum ólíkindum og óþarfi að fjöl-
yrða um þá vitleysu hér; henni mun
enginn nokkurn tíma gleyma og
aumingja Beatty var fyrir hreina til-
viljun í brennipunktinum. Heilu kyn-
slóðirnar munu bara þekkja hann
sem „karlinn sem dró ranga kanínu
upp úr hattinum“. Auðvitað kom
Faye Dunaway líka að glæpnum en
hún hafði alltént vit á því að hverfa í
bakgrunninn á eftir; Beatty karlinn
stóð bara þarna áfram bláeygur og
botnaði augsýnilega hvorki upp né
niður í því sem átt hafði sér stað.
Kannski var þetta fíaskó samt lýs-
andi fyrir myndvalið í ár og spyrja
má sig hvort einhver af þeim mynd-
um sem tilnefndar voru hafi í raun
og veru átt skilið að vinna?
Moonlight er svo sem prýðileg lítil
mynd um miklar mannraunir en
þegar ég sá hana flaug mér ekki
Óskar í hug. La La Land hef ég ekki
séð og hef engin áform þar um; mér
leiðast einfaldlega dans- og söngva-
myndir. Aðrar myndir voru ekki af
neinni alvöru í umræðunni en Man-
chester By the Sea hefði alveg mátt
vinna eins og Moonlight. Fín mynd
en varla verðlaunaverk með hliðsjón
af þeim myndum sem unnið hafa
gegnum tíðina. En allt er það aka-
demískt nú; Warren Beatty tryggði
að ómerkilegt kvikmyndaár í Holly-
wood varð að ógleymanlegu kvik-
myndaári í Hollywood.
Einn maður átti samt sannarlega
skilið að vinna Óskar: Casey Affleck
fyrir frammistöðu sína í Manchester
By the Sea. Lágstemmdur leikur
hans smaug undir skinnið og langt
er síðan maður hefur fundið jafn-
innilega til með persónu í kvikmynd;
sér í lagi í ljósi þess að téð persóna
er hreint ekki viðfelldin. Þess utan
er eitthvað skemmtilega óholly-
woodlegt við Casey Affleck, eins og
bróðir hans, Ben, er mikið Holly-
wood. Þið skiljið hvað ég er að fara!
En djöfull eru raddirnar í þeim líkar.
Auðvitað er ég ekki dómbær;
þekki bara frammistöðu þriggja af
fimm leikkonum sem tilnefndar voru
fyrir bestan leik í aðalhlutverki,
Ruth Negga, Isabelle Huppert og
Natalie Portman. Af þeim þremur
hefði sú síðastnefnda verið best að
Óskarnum komin. Túlkun hennar á
Jackie Kennedy er mögnuð í mynd
sem kom þægilega á óvart. Ég hef
enga tölu á því hvað ég hef séð
margar myndir og þætti um forseta-
frúna fyrrverandi en finnst ég sjald-
an hafa komist nær henni en hér.
Þökk sé Natalie Portman. Þær eru
ekki sérlega líkar í útliti (enda ekki
aðalatriðið) en Portman kemst að
einhverjum kjarna sem erfitt er að
festa hönd á. Jackie býr á hinn bóg-
inn að slappasta Bobby Kennedy
sem ég hef nokkru sinni séð.
En það er önnur saga.
„Þú ert ómögulegur,“ sagði Faye Dunaway við aldavin sinn, Warren Beatty,
rétt áður en ósköpin skullu á undir lok Óskarsverðlaunahátíðarinnar.
AFP
EFTIRÓSKARSÞANKAR
Vann einhver?
Verðugur sigurvegari: Casey Affleck.
Á tjaldinu
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
ÁST OG HJÓNABAND Breska dagblaðið The Tele-
graph var með bráðskemmtilega upprifjun á
skondnum ummælum leikara og skemmtikrafta um
ástina, kynlífið og hjónabandið í vikunni og upplagt
að deila broti af henni með lesendum Sunnudags-
blaðs Morgunblaðsins.
„Maðurinn minn er tveggja manna maki,“ sagði
breski grínistinn Jo Brand, „en
því miður eru það Steini og Olli.“
„Mér er alveg sama hversu rík-
ur hann er svo lengi sem hann á
snekkju, sína eigin járnbrautalest
og sitt eigið tannkrem,“ sagði
karakter Marilyn Monroe í Some
Like It Hot.
„Ég færi konunni minni morg-
unteið alltaf í náttfötunum. Kann
hún að meta það? Nei, hún vill
frekar fá það í bolla,“ sagði
breski æringinn Eric heitinn
Morecambe.
„Vitið þið hversu margir mið-
aldra menn skreppa út eftir
mjólk og sjást aldrei aftur?“ spyr
breska leikkonan Jenny Eclair og
svarar sjálf: „Ekki nógu margir!“
„Konan mín tjáði mér að kyn-
lífið væri mikla betra í fríinu,“
viðurkenndi sviðagjamminn Joe
Bor. „Það var ekki skemmtilegt
póstkort að fá.“
„Besta hjónabandið væri milli
blindrar konu og heyrnarlauss
karls,“ sagði heimspekingurinn
Michel de Montaigne á sextándu
öld.
„Ég gifti mig hjá dómara. Ég
hefði átt að biðja um kviðdóm,“
sagði Groucho Marx.
Og látum Rodney heitinn
Dangerfield sauma þetta saman:
„Ég hef ekki talað við konuna
mína árum saman. Ég kann ekki
við að trufla hana!“
Franski heimspekingurinn Michel de Montaigne bjó að
fullkominni formúlu að hjónabandi á sextándu öld.
ORÐHEPPNIR SKEMMTIKRAFTAR
Kynlífið miklu
betra í fríinu
Marilyn
Monroe.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 13. mars.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Fermingarblað Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 17. mars
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins.
Fjallað verður um allt
sem tengist fermingunni.