Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.03.2017, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.03.2017, Blaðsíða 15
komin út á rúmsjó í huganum því það er auð- velt að gleyma sér í sögunum hjá Unni, hún hefur svo ríka frásagnargáfu. „Hann kláraði bæði skáldsögu þarna fyrir vestan og leikritið Son skóarans og dóttir bak- arans sem var sett upp í Þjóðleikhúsinu vorið ’78. Hann dó úr hjartaáfalli þegar verið var að æfa leikritið. En vissulega hafði lífernið hans tekið sinn toll og eftir á hugsar maður hvað hann afkastaði miklu þrátt fyrir það að hann var mikill alkóhólisti. Hann hafði skrifað mik- ið, mörg leikrit og útvarpsþætti, og átti fimm börn.“ Áfengi var eins og rússnesk rúlletta Þú hefur ekki fengið þau gen frá honum, alkó- hólistagenin? „Jú, jú, ég fékk þau líka. Ég hætti alfarið að drekka 1998. Ég fór í meðferð og það var mikið gæfuspor. Áfengi var eins og rússnesk rúlletta fyrir mig, stundum gekk það ágætlega og stundum gekk það alls ekki vel. Þannig það var alltaf kvíði og áfengi truflaði mig. Mér finnst það æðislegt að hægt sé að fara í meðferð og fá aðstoð við þetta,“ segir Unnur. Hún segist hafa fallið einu sinni og tók það hana ár að ná sér aftur á strik. „Það var lær- dómur í því. Það var rosalega erfið reynsla. Það tók ár og þá gat ég hvorki verið þar né hinum megin. Það varð til þess að ég fann að það var engin leið til baka, ég yrði að sleppa þessu. Og þá hætti ég aftur, að eilífu, einn dag í einu,“ segir hún og hlær. Þegar þarna var komið kviknaði hugmynd hjá Unni að ættleiða barn, en sú hugmynd var ekki alveg ný af nálinni. „Ég hafði íhugað ætt- leiðingu áður en ég skildi en það varð ekkert af því. Ég hafði gert upp þessi mál og hafði alveg sætt mig við að vera barnlaus. Það var djúpur þunglyndispakki en ég kom sterk út úr honum. En svo barst það mér til eyrna að nú mættu einstæðir sækja um að ættleiða. Mér fannst ég vera í góðri aðstöðu til að gera það. Ég hafði ekki langan tíma af því að ég var að falla á aldri og gaf mér viku til að hugsa um þetta,“ segir hún en hún var þá orðin 45 ára. „Ég sótti um barn frá Kína og svo þurfti ég að bíða í tvö ár.“ Það besta sem ég hef gert Unnur hafði áður komið til Kína á ferð sinni um heiminn með Þorbirni og segir það hafa verið mikið ævintýri. Þau hafi „týnst“ í kerfinu og ferðuðust óáreitt um landið sem þá var nýbúið að opna fyrir ferðamönnum, en reglan var sú að hver ferðamaður væri vaktaður af leiðsögumanni. „Við ferðuðumst um í þrjár vikur upp á eigin spýtur. Þá heimsótti ég nokkra leikskóla og skóla. Ég gat ekki hugsað mér neitt dásamlegra en kínversk börn. Þann- ig að ég hlakkaði til að eignast barn þaðan,“ segir Unnur sem fékk Öldu Áslaugu í hend- urnar einn septemberdag árið 2003. „Það var það besta sem ég hef gert um æv- ina, að ættleiða þessa stúlku. Ég er ein- staklega heppin með hana en þetta eru allt dásamleg börn sem ég þekki þaðan. Hún er fjórtán ára í dag og ákaflega skemmtileg og vel gerð stúlka,“ segir Unnur en Alda var ell- efu mánaða þegar móðir hennar sótti hana til Kína. Árni kom gangandi inn í líf okkar Þegar Alda var tveggja og hálfs árs kynntist Unnur manni sínum, líffræðingnum Árna Ein- arssyni. „Hann kom gangandi inn í líf okkar. Hann var þá fráskilinn og átti fjögur börn sem voru nánast uppkomin. Við höfðum vitað af hvort öðru lengi og hittumst á kaffihúsi. Svo er hann fuglafræðingur og var hér á göngu að skoða fugla þegar ég hitti hann næst. Ég bauð honum í kaffi og það varð ekkert aftur snúið,“ segir Unnur en Árni gekk Öldu fljótt í föð- urstað. „Alda var fyrst viss um að hann væri pabbi Línu Langsokks, svona sjóræningja- legur,“ segir hún og hlær. „Mér fannst svo dásamlegt að eignast pabba fyrir hana, og dýrmætt fyrir hana, kannski af því að ég ólst upp föðurlaus. Svo var hann fljótt eins og hver annar pabbi, að dást að framförum hennar með mér og tala um alla litlu sigrana í daglega lífinu. Það er svo gott að upplifa það með honum,“ segir hún. Litla fjölskyldan býr við Elliðavatn á vet- urna og á Mývatni á sumrin þar sem þau vinna bæði, hann sem líffræðingur og hún sem starfsmaður hjá Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn, auk ritstarfanna. Árni er þar með litla rannsóknarstöð þar sem hann rannsakar „allt mögulegt varðandi lífríkið,“ eins og Unn- ur orðar það. Hefði viljað hömlur á túrisma Unnur segist njóta þess að flytja sig um set á hverju vori. „Mér finnst það æðislegt. Ég fæ útrás fyrir tilbreytingarþörfina sem ég virðist hafa.“ Hún nýtur náttúrunnar við Mývatn en hefur áhyggjur af ferðamannastraumnum. „Mér finnst það vandamál hvað ferðamenn- irnir eru orðnir margir þar, við finnum mikið fyrir því. Þetta er álag á samfélagið. Mér finnst lífríkið þar svo dýrmætt að ég hefði vilj- að sjá hömlur á túrismanum. Ég hef draum- sýn um að hótelin væru annars staðar og um- ferðin mjög takmörkuð. Það væri komið með ferðamenn á rafknúnum faratækjum sem menguðu ekkert. Þeir myndu upplifa hæga ferðamennsku, gætu skoðað undur lífríkisins og jarðfræðina. En þá er akkúrat verið að gera það gagnstæða. Það er verið að reisa stór hótel með öllu sem því fylgir. Það hryggir mig mjög. Ég hef áhyggjur af þessu einstaka líf- ríki, en þetta er að gerast alls staðar. Ég hef áhyggjur af náttúru Íslands og áhyggjur af hnettinum. Hvað verður um komandi kyn- slóðir?“ spyr hún og það er fátt um svör hjá blaðamanni. Bók um Mývatn fyrir almenning Nýjasta bók Unnar, Undur Mývatns, fjallar um lífríkið við Mývatn og kemur út innan skamms. Vinnan í Náttúrurannsóknastöðinni kveikti áhuga hjá Unni og rithöfundurinn í henni fann þörf á að miðla því áfram. „Mér fannst svo áhugavert allt það sem Árni og samstarfsfólk hans veit um; æviferill húsand- arinnar, örverurnar í vatninu sem ég fékk að skoða í smásjá og svo eru oft svo upp- byggilegar og skemmtilegar samræður á með- al vísindamannanna sem dvelja þarna. Mig langaði að opna þetta fyrir öðrum,“ segir hún en bókin er hugsuð fyrir almenna lesendur. „Það er svo mikill fróðleikur sem er áhuga- verður og skemmtilegur sem er oft falinn inn í fræðigreinum sem fáir lesa,“ útskýrir Unnur. Í bókinni eru engar ljósmyndir heldur vatnslitamyndir, flestar eftir Árna, mest fugla- myndir. Þú virðist, í gegnum lífið, sækja í friðsæld. Hvað veldur? „Það er mér mjög mikilvægt að vera í frið- sæld og náttúru. Ég elska að ganga hér í Heið- mörkinni, helst með hundi af því það er góður félagsskapur. Góður hundur kennir manni að vera í núinu. Hann þefar af þúfu og horfir á nærumhverfið og hann er ekki að tapa sér í áhyggjum eða hugsunum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg 5.3. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.