Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.03.2017, Blaðsíða 26
MATUR Gott ráð þegar þú ert að skera ferskar kryddjurtir er aðstrá smá salti á brettið fyrst. Það kemur í veg fyrir að
kryddjurtirnar spýtist í allar áttir.
Salt á brettið
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.3. 2017
Sjö þúsund fylgjast með „Fiskinum“
Rögnvaldur Þorgrímsson er ungur maður með ástríðu fyrir mat og matargerð.
Hann er vinsæll matarsnappari og sýnir taktana undir nafninu Fiskurinn. Sjö
þúsund manns fylgjast með honum kokka, aðallega fisk, sem er í uppáhaldi.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Matarboðið tókst fullkomlega,“ segir þessi ungiáhugakokkur sem galdraði fram matarboð fyrirnokkra vini sína úr menntaskóla. Rögnvaldur var
með bankabygg í forrétt, keilu í aðalrétt og ljúffengar perur
með súkkulaði í eftirrétt. „Ég hef leikið mér mikið með banka-
bygg og gert alls konar kúnstir með það. Nú setti ég í það
rækjur og refasmára, smá hunang og fleira. Það kom mjög vel
út. Í aðalrétt var ég með keilu, steikta upp úr hunangi. Ég
setti mikinn metnað í eftirréttinn, var með tvíbakaða peru.
Þetta er réttur eftir mig sjálfan en ég er búinn að gera til-
raunir með þetta. Það voru allir sælir og glaðir!“ segir hann.
Gerir tilraunir í eldhúsinu á kvöldin
Rögnvaldur hefur unnið í fiski síðan hann var polli, eins og
hann orðar það. Hann vann í frystihúsi í Þorlákshöfn öll sumur
þegar hann var unglingur og einnig að loknu stúdentsprófi.
„Ég hætti þar fyrir fjórum mánuðum, mig langaði að fara að
gera eitthvað skemmtilegra og einbeita mér frekar að því að
prófa mig áfram með mat. Núna starfa ég við garðyrkju frá
átta til fimm og hef þá tíma á kvöldin til að kokka,“ segir Rögn-
valdur, sem segist alltaf hafa haft áhuga á eldamennsku, þó
mest í seinni tíð. „Áhuginn spratt almennilega upp fyrir þrem-
ur, fjórum árum en ég hef sérstakan áhuga á að elda fisk og
reyni að nota íslensk hráefni eins mikið og hægt er.“ Rögnvald-
ur segist elda þrisvar til fimm sinnum í viku. „Ég og vinur
minn Konni erum stundum að gera tilraunir í eldhúsinu frá
kannski níu til ellefu á kvöldin, að leika okkur. Fiskur er í
uppáhaldi!“
Eyðir öllum peningum í matarástríðuna
Draumur Rögnvaldar er að gera matargerðina að aðalstarfi.
„Mig langar að taka Cordon Bleu-gráðuna, en það kostar mik-
inn pening,“ segir hann og nefnir að hann gæti alveg hugsað sér
að verða sjónvarpskokkur einn daginn.
Ertu ekki búinn að safna í sjóð eftir öll árin í frystihúsinu?
„Nei, veistu, ég er svo svakalega mikil eyðslukló. Ef ég á pening
þá reyni ég helst að fara til Ítalíu á pastanámskeið eða vínsmökk-
unarnámskeið, þannig að allur aukapeningur fer í góð frí. Ég er
búinn að ferðast um alla Toskana og læra á litlum matreiðslunám-
skeiðum, læra að gera pasta, brauð og fleira. Svo er ég líka að upp-
lifa stemninguna í kringum þetta, ég er að sanka að mér trixum.
Maturinn á Ítalíu er himneskur og þar er talað mikið um mat.“
Toppurinn að snappa matargerðinni
Rögnvaldur ákvað að nota samfélagsmiðilinn Snapchat til að ná
til fólks og sýna því hvað í honum býr. Hann snappar undir
nafninu Fiskurinn og er nú þegar með sjö þúsund fylgjendur.
„Mér hefur þótt það vera toppurinn á öllu því sem ég hef verið
að gera, það hefur gengið rosa vel og vaxið jafnt og þétt. Ég er
með ágætis fylgjendafjölda,“ segir hann.
„Þegar ég byrjaði á snapchattinu í desemberbyrjun gerði ég
samning við mömmu og pabba að ég fengi að elda alla 24 dag-
ana fram að jólum. Svo fékk ég að senda þau út úr húsi tvisvar í
viku, annaðhvort í bíó eða leikhús, og þá fékk ég eldhúsið alveg
fyrir sjálfan mig og gat boðið vinum mínum í mat. Mamma og
pabbi voru orðin uppiskroppa með leikrit í restina og voru farin
að fara í sund,“ segir hann og hlær.
Rögnvaldur Þorgrímsson hefur
brennandi áhuga á matargerð. Hann
segist eyða öllum peningum sínum í
ferðir tengdar mat og matreiðlsu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fanney Birna og Sandra Ýr voru spenntar að smakka.
Jóhanna Ösp og Sigrún Sunna hjálpuðu til við eldamennskuna.