Morgunblaðið - 01.04.2017, Page 1
! "
##! !
L A U G A R D A G U R 1. A P R Í L 2 0 1 7
Stofnað 1913 78. tölublað 105. árgangur
N1 kortið
færir þér
bæði afslátt
og punkta
Sæktu um
N1 kortið
á n1.is
RÝNT Í TÆKNI-
ÞRÓUN OG
EINKALÍF
INNRÁS FRÁ
ÍSLANDI Í
LOS ANGELES
REYKJAVÍKURHÁTÍÐ 57FÍT-VERÐLAUN 12
„Icelandair er búið að ráða til sín
alla þá flugmenn sem félagið þarf í
sumar, en almenn fjölgun er vegna
örs vaxtar í greininni,“ segir Guð-
jón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair. Spurður hvort
stóru flugfélögin Icelandair og
WOW air sæktust eftir flugmönnum
hvort annars segir Guðjón ekki
óeðlilegt að flugmenn nýti sér gott
atvinnuástand og þreifi fyrir sér
hjá öðrum flugfélögum. „Við fáum
t.d. til okkar umsóknir frá flug-
mönnum hjá WOW air.“
Skólastjóri Flugskóla Íslands
segir skort orðinn á flugkennurum,
en þeir eru eftirsóttir starfskraftar
hjá stærri flugfélögum. Hefur flug-
skólinn nú fengið til sín þrjá norska
kennara til starfa. »4
Morgunblaðið/Þórður
Flug Flugmenn eru eftirsóttir í dag og er
farið að verða vart við flugkennaraskort.
Ásókn í flugmenn
skapar skort á
flugkennurum
Vogunarsjóðurinn Och-Ziff Capi-
tal Management Group, sem nú er
skráður fyrir 6,6% hlut í Arion
banka, greiddi í september á síð-
asta ári jafnvirði um 47 milljarða
króna í sekt eftir að verðbréfaeft-
irlitið í Bandaríkjunum varpaði
ljósi á mútugreiðslur dótturfélags
sjóðsins til hátt settra embættis-
manna í fimm ríkjum Afríku. Sekt-
irnar eru sagðar þær hæstu sem
vogunarsjóður hefur greitt vegna
mútumáls í Bandaríkjunum.
„Það er óhætt að fullyrða að
fréttir af þessu máli skipta máli við
matið. En við þurfum að afla okkur
nánari upplýsinga um þetta til-
tekna mál til að geta tekið afstöðu
til þess hvaða áhrif það hefur,“ seg-
ir Jón Þór Sturluson, aðstoðar-
forstjóri FME. »24 og Sunnudagur
Greiddi metsektir
fyrir mútur
framkvæmdastjóri Rannsókna og
greiningar, um þá miklu athygli
sem árangur Íslendinga við að
draga úr áfengis- og fíkniefnanotk-
un ungmenna hefur fengið utan-
lands. Jón segir að fyrir tveimur
áratugum hafi verið miklar umræð-
ur hér á landi um unglingadrykkju
og var ákveðið að beita forvarnar-
aðferðum sem miðuðu að því að
Árangur Íslands í forvörnum hefur
vakið verðskuldaða athygli utan
landsteinanna. Fréttastofa AFP
birti í gær ítarlega frásögn af verk-
efninu og stutt er síðan breska rík-
isútvarpið, BBC, fjallaði um málið.
„Síminn hefur ekki stoppað hjá
okkur eftir að fréttir af þessu verk-
efni fóru að birtast í erlendum fjöl-
miðlum,“ segir Jón Sigfússon,
fræða ungmenni um skaðsemi
vímuefnaneyslu.
Samspil rannsókna og stefnumót-
unar á sviði áfengis- og vímuefna-
mála ungs fólks „íslenska módelið“
er þegar orðið útflutningsvara og
hefur fjöldi borga í Evrópu unnið
eftir aðferðafræði „íslenska mód-
elsins“. Evrópska vímuefnarann-
sóknin (ESPAD) sýndi í fyrra að
48% evrópska ungmenna neyttu
áfengis síðustu 30 daga í saman-
burði við einungis 9% íslenskra
ungmenna. »4
„Íslenska módelið“ vekur athygli víða
Morgunblaðið/Eva Björk
Forvörn Skipulagt íþróttastarf er
talið besta forvörnin fyrir börn.
Fjöldi erlendra miðla fjallar um
góðan árangur Íslands í forvörnum
Útilit er fyrir þokkalegt útivistarveður í dag, þó
heldur svalara en í gær. Á morgun má búast við
slyddu og síðan talsverðri rigningu um stóran
hluta lands. Veðrið ætti þó ekki að koma í veg
fyrir það að vel klætt hjólreiðafólk geti brunað
eftir göngustígnum við Fossvogskirkjugarð.
Veturinn er þó ekki alveg búinn að sleppa takinu
miðað við veðurspá því spáð er snjókomu og
hvassvirði víða á landinu í byrjun næstu viku.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hjólreiðafólkið mætist á mismunandi hraða
Agnes Bragadóttir
Magnús Heimir Jónasson
Ómar Friðriksson
Að mati sérfræðinga fjármála- og
efnahagsráðuneytisins mun hækkun
virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna
hafa áhrif á verðlag.
Þetta kemur fram í skýrslu ráðu-
neytisins þar sem áætlað er að verð á
gistingu, farþegaflutningum, ferða-
skrifstofum og baðstöðum hækki um
10,4%. Þjónustan sem þar um ræðir
er 39% af heildarneyslu erlendra
ferðamanna á Íslandi 2015. Því má
áætla að breyting hækki heildar-
kostnað dæmigerðs ferðamanns í
kringum 4%, að öllu öðru óbreyttu.
Ari Skúlason hagfræðingur segir,
spurður hvort fyrirtækjum í ferða-
þjónustu muni fækka í kjölfar hækk-
unarinnar, að líklegt sé að hækkun
virðisaukaskatts og styrking krón-
unnar hreyfi við ferðaþjónustunni í
átt að stærri og færri einingum.
„Ferðaþjónustan hér á landi er til-
tölulega ný atvinnugrein sem hefur
vaxið mjög hratt og bara þess vegna
er ekki ólíklegt að slíkar hreyfingar
fari af stað og þá sérstaklega þegar
þrengist að. Þá sjá menn hag í því að
búa til stærri einingar.“
Hann segir jafnframt að ferða-
mönnum sé ekki að fækka og vöxt-
urinn sé ekki að minnka. Kínverskir
ferðamenn eru nú fjölmennasti hóp-
ur ferðamanna í heiminum, tvöfalt
fleiri en Bandaríkjamenn sem eru í
öðru sæti. Kínverjar eru einnig sá
hópur ferðafólks sem eyðir mest.
Verðlag mun taka kipp
Áform stjórnvalda um að færa ferðaþjónustuna í efra þrep VSK mun leiða til verð-
breytinga Áætla 10,4% hækkun á gistingu, farþegaflutningum og baðstöðum
Hvað hækkar?
» Gistiþjónusta, s.s. útleiga
gistirýma og tjaldstæða
» Fólksflutningar í afþreying-
arskyni, s.s. rútuferðir
» Baðaðstaða og heilsulindir
» Þjónusta ferðaskrifstofa,
ferðaskipuleggjenda og ferða-
félaga
MFerðamenn á Íslandi »6 og 28