Morgunblaðið - 01.04.2017, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017
KVIKNAR Á PERUNNI?
– í átt að grænni framtíð
Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarformaður Landsnets:
Hreint rafmagn - íslensk orkustefna.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets:
Verða orkuskiptin kastari eða kerti?
Troels Ranis, Dansk Industri:
Future steps in Danish Energy Policy.
Eyþór Eðvarðsson, ráðgjafi: Parísarsamkomulagið;
brettum upp ermar og gyrðum í brók.
Fundarstjóri: Steinunn Þorsteinsdóttir,
upplýsingafulltrúi Landsnets.
Landsnet boðar til árlegs vorfundar þriðjudaginn 4. apríl á Hilton Reykjavík Nordica
kl. 9.00-10.30 undir yfirskriftinni Kviknar á perunni.
Skráning á landsnet.is Hlökkum til að sjá ykkur!
DAGSKRÁ
Boðið verður upp á léttan
morgunverð frá kl. 8.30.
Fundurinn verður sendur út í beinni
útsendingu á www.landsnet.is.
Þar verður hægt að senda inn
fyrirspurnir og athugasemdir með
myllumerkinu #kviknaráperunni.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum
á fimmtudag að gerðir verði sam-
göngusamningar við starfsmenn
Reykjavíkurborgar frá og með 1.
september nk. Samningar við ein-
staka starfsmenn verða annað
hvort 36 þúsund kr. á ári fyrir
starfsmenn í hlutastarfi eða 72 þús-
und fyrir fólk í hálfu eða fullu
starfi. Kostnaður, miðað við 70%
þátttöku starfsmanna gæti orðið
rúmar 340 milljónir króna, 244
milljónir við 50% þátttöku og 146
milljónir ef þriðjungur borgar-
starfsmanna mun nýta sér þessa
styrki.
Markmiðið með samgöngu-
samningum er að auka hlutfall
starfsmanna sem nýta vistvænar
samgöngur vegna ferða til og frá
vinnu eða vegna ferða í þágu vinnu-
veitanda. Í samningunum þarf að
koma fram hvaða skilyrði starfs-
menn ætla að uppfylla, þ.e. hve oft í
viku er ætlast til að þeir noti aðra
samgöngumáta en einkabílinn, s.s.
strætó, reiðhjól eða að fara fót-
gangandi til vinnu sinnar.
Samgöngu-
styrkir í
borginni
Gæti kostað allt að
340 milljónir króna
Morgunblaðið/Kristinn
Samgöngur Borgin vill að sem
flestir starfsmenn hjóli t.d. til vinnu.
Ás styrktarfélag hélt nýverið aðal-
fund sinn. Þar var hin árlega
viðurkenning félagsins, Viljinn í
verki, veitt líkamsræktarstöðinni
World Class. Viðurkenningin er
jafnan veitt þeim fyrirtækjum sem
gefa fötluðu fólki aukin tækifæri
til almennrar þátttöku í samfélag-
inu.
Í tilkynningu frá Ási segir að
gott samstarf hafi verið um árabil
við World Class um að gefa fötl-
uðum einstaklingum tækifæri til
almennrar líkamsræktar með sér-
hæfðri nálgun og dagskrá. Nanna
Guðbergsdóttir hefur haft umsjón
með verkefninu fyrir hönd World
Class.
„Fyrirtækið hefur þannig sýnt
vilja í verki til að gera líkamsrækt
mögulega og aðgengilega fyrir
alla,“ segir í tilkynningu frá Ási,
en félagið hefur verið starfandi
frá árinu 1958, og mun því fagna
60 ára afmæli á næsta ári.
Um er að ræða sjálfseignar-
stofnun sem hefur á undanförnum
árum komið á fót umfangsmiklum
rekstri. Þá hefur félagið notið vel-
vilja einstaklinga, félagasamtaka
og fyrirtækja, sem hafa átt drjúg-
an þátt í að styðja félagið til vaxt-
ar.
Veitir Ás nú á þriðja hundrað
manns þjónustu í formi búsetu,
dagþjónustu, vinnu og virkni.
Starfsmenn félagsins eru um 220 í
nærri 150 stöðugildum. Vinnustof-
ur félagsins á höfuðborgarsvæðinu
eru þrjár og búsetuúrræði á níu
stöðum. Þar búa um 60 manns á
aldrinum 19-79 ára.
Viljinn í verki til World Class
Viðurkenning Nanna Guðbergsdóttir frá World Class, fyrir miðju, ásamt
þeim Einari Sch. Thorsteinssyni og Soffíu Rúnu Jensdóttur hjá Ási.
Ás styrktarfélag afhenti árlega viðurkenningu sína
Forvarnaverkefnið Náum áttum
stendur fyrir morgunverðarfundi á
Grand hóteli nk. miðvikudag, 5. apr-
íl, klukkan 8.15. Yfirskrift fundarins
er Rödd unga fólksins – er hlustað á
skoðanir ungmenna?
Öll erindi verða flutt af ungu fólki
úr ungmennaráðum ýmissa fé-
lagasamtaka. Þetta eru þau Þórdís
Helga Ríkharðsdóttir, Herdís
Ágústa Linnet, Ingibjörg Linnet,
Katrín Guðnadóttir og Aðalbjörn Jó-
hannsson. Þau munu m.a. ræða um
lög og hlutverk ungmenna við laga-
setningu, hvernig ungmenni koma
skoðunum sínum á framfæri, hvern-
ig þau upplifa Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna og hvað ungmenni
eru að gera almennt í dag.
Fundarstjóri verður Bjarkey Ol-
sen Gunnarsdóttir, þingmaður og
talsmaður barna á Alþingi. Fund-
urinn stendur til kl. 10 og er öllum
opinn á meðan húsrúm leyfir, segir í
tilkynningu frá Náum áttum.
Er hlustað á
skoðanir
ungmenna?