Morgunblaðið - 01.04.2017, Síða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017
majubud.is
Verið velkomin í glæsilega verslun
Fosshálsi 5-9, 110 Reykjavík
Það er varla neinum blöð-um um það að fletta aðstórveldin meðal þjóðaAsíu eru Kínverjar og
Indverjar. En það hefur ekki allt-
af verið þannig. Anand ruddi
brautina fyrir Indverja á árunum
í kringum 1990 en þá vann hann
sér sæti í áskorendakeppninni.
Kínverjar tefldu fyrst á ólympíu-
móti ári 1978 en fram að þeim
tíma voru Filippseyingar Asíu-
stórveldið í skákinni þökk sé
sterkri skákhefð og Eugenio
Torre sem árið 1974 varð fyrsti
stórmeistari Asíu og hefur teflt í
fleiri ólympíumótum en nokkur
annar. Á því síðasta sem fram fór
í Bakú í Aserbadsjan náði hann
árangri sem lengi verður í minn-
um hafður hann tefldi á 3. borði
fyrir Filppseyinga og hlaut 10
vinninga af 11 mögulegum. Mikl-
ar vonir bundu Filippseyingar við
Torre á uppgangsárunum og
sumarið 1976 vann hann sterkt
skákmót í Manila og lagði þar
sjálfan Karpov heimsmeistara að
velli. Torre var á þessum árum
fenginn til að stjórna sjónvarps-
þætti um skák og tók einnig að
sér hlutverk í kvikmyndum sem
kann að hafa leitt hann á brautir
fjarri hinni einmanalegu göngu til
æðstu metorða skáklistarinnar.
„Heitasti“ skákmaðurinn í dag
er líka frá Filippseyjum; Wesley
So hefur opinberlega lýst því yfir
að hann stefni á að verða heims-
meistari. Hann hefur unnið hvern
sigurinn á fætur öðrum und-
anfarið, nú síðast á stórmótunum í
London og Wijk aan Zee og er
kominn í 2. sæti á stigalista FIDE
með 2822 elo stig. Þar trónir
Magnús Carlsen á toppnum með
með 2838 elo stig. Munurinn er
ekki mikill en áðurnefndur Karpov
lýsti því nýlega yfir að Norðmað-
urinn bæri enn höfuð og herðar yf-
ir kollega sína.
Uppgjör þessarra tveggja eða
einhverskonar reikningskil virðast
liggja í loftinu; það spurðist út um
daginn að í keppni á netinu sem
kallast Pro chess league myndu
þeir mætast í skák með tímamörk-
unum 15 2. So tefldi fyrir sveit
sem nefnist Erkibiskupar St. Lou-
is en Magnús var í brúnni fyrir
Norsku dvergana. Þeir fyrrnefndu
unnu 9:7 þó að Magnús hafi unnið
allar fjórar skákir sínar þ. á m. So.
Í skákinni sem hér fer á eftir tókst
norska heimsmeistaranum að
þröngva stíl sínum upp á So sem
tefldi byrjunin fremur „druslu-
lega,“ skipti vitlaust upp á mið-
borðinu og mátti síðan fylgjast
með Magnúsi bæta stöðu sína
hægt og bítandi. Þegar tíminn tók
að styttast gáði So ekki að sér:
Wesley So – Magnús Carlsen
Bogo-indverskv vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4.
Bd2 a5 5. a3 Bxd2+ 6. Dxd2 b6 7.
Rc3 Bb7 8. g3 O-O 9. Bg2 Re4 10.
Rxe4 Bxe4 11. O-O a4 12. De3 Bb7
13. Dd3 f5 14. Re5 Bxg2 15. Kxg2
d6 16. Rf3 Df6 17. e4 Rc6 18. Hae1
Ha5!
Óvenjulegur staður fyrir hrókinn
sem frá a5 eygir f5-reitinn.
19. d5 fxe4 20. Dxe4?
Og hér var tvímælalaust betra að
taka á e4 með hrók.
20. … exd5 21. cxd5 Re7! 22.
Hd1 Df5! 23. Dxe7 Dxf3+ 24. Kg1
Hc5 25. Hd2 h6 26. He1? Hf5 27.
He3 Hc1+ 28. He1 Hxe1+ 29. Dxe1
He5 30. Dc1 b5 31. h3 Kf8 32. h4
Ke8 33. Kh2 Kd8 34. Dh1 Db3 35.
Dg2 He1 36. Dh3 Df3 37. Dg2 Df5
Svarta staðan er vænleg en vinn-
ingsleiðin liggur ekki fyrir. Ein
áætlunin gæti verið að bæta stöðu
kóngsins ogh sækja að d5-
peðinu. En eins og stundum ger-
ist þegar tíminn styttist leikur
annar aðilinn gróflega af sér.
38. Dh3?? Hh1+!
– drottningin fellur og frekari
barátta er tilgangslaus. So gafst
upp.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Annar á heimslistanum, Wesley So.
Wesley So ætlar að
verða heimsmeistari
Það er öryggi fólgið í því að sam-
göngumálaráðherra sé æsingalaus
og yfirvegaður stjórnandi, líkt og
Jón Gunn-
arsson –
hertur upp
hjá hjálp-
arsveit-
unum og
hefur sýnt
bæði festu
og ábyrgð í
störfum á
Alþingi.
Sam-
göngur eru
ugglaust
mikilvægustu innviðir hvers þjóð-
félags og um leið mælikvarði á
frambærileika í alþjóðlegu um-
hverfi. Framfaramenn hafa jafnan
rutt brautina í þessari tilteknu
sögu okkar fámennu þjóðar í æg-
istóra landinu, mitt í Norður-
Atlantshafinu.
Brýnast er nú að taka til hend-
inni þar sem umferðin er mest.
Þess vegna eru mislægu gatnamót-
in á Reykjanesbraut/Krýsuvík-
urvegi fremst í röðinni.
Hin skynsamlega ákvörðun ráð-
herrans um téð vegamót rekur á
eftir því að lokið verði við breikkun
brautarinnar í heild sinni; um einn
fegursta kaupstað landsins – og
hvað varðar áframhaldandi fram-
kvæmdir til að ljúka lagningu
Reykjanesbrautar alla leið að flug-
stöðinni, teljast vart lengur spurn-
ingar um forgangsröðun heldur
neyðarráðstafanir.
Páll Pálmar Daníelsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100
frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Breikkum
brautina nú