Morgunblaðið - 22.04.2017, Síða 6

Morgunblaðið - 22.04.2017, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017 LLA-308 PRO álstigi 3x8 þrep 2,27-5,05 m 18.990 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Tröppur og stigar LFD 90AL70x33x100 cm 9.990 LLA-211 PRO álstigi/trappa 2x11 þrep 16.990 Áltrappa 4 þrep 4.940 5 þrep 6.390 Áltrappa 3 þrep 3.990 Í ÖLLUMSTÆRÐUMOG GERÐUM Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is „Það er svo sem fínt ástand á gras- inu. Völlurinn lítur betur út en fyrri ár ,“ segir Svavar Geir Svavarsson, markaðs- og skrifstofustjóri Golf- klúbbsins Odds, um ástand Urriða- vallarins. Hann segir að veðrið næstu vikuna skipti gríðarlega miklu máli. „Þetta fer allt eftir því hvernig næsta vika verður. Það þarf alltaf að hafa völlinn góðan í nokkra daga áð- ur en hægt er að vinna í honum. Við setjum markmiðið á opnun 7. maí,“ segir Sævar. Hólmar Freyr Christiansson, vall- arstjóri Korpu hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, tekur í sama streng. Hann segir að grasið á vellinum líti vel út og að veðurfar næstu daga skipti miklu máli. „Þetta var ágætur vetur, 50 cm snjórinn spilaði auðvit- að smá inn í en annars er völlurinn í góðu standi,“ segir Hólmar. Guð- mundur Árni Gunnarsson, vallar- stjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, segir að vellir félagsins komi vel undan vetri og lítið frost í jörðu skipti þar höfuðmáli. Einn leikur færður hjá KSÍ Einn leikur í Pepsi-deild karla og kvenna hefur verið færður vegna ástands vallar, að sögn Birkis Sveinssonar, mótastjóra Knatt- spyrnusambands Íslands (KSÍ). „Leikur Þórs/KA gegn Val verður ekki spilaður á Þórsvellinum,“ segir Birkir. Leikurinn mun fara fram í Boganum sem er yfirbyggt knatt- spyrnuhús Þórs á Akureyri. „Við er- um að vonast til þess að grasvöllur- inn verði klár 13. maí,“ segir Valdimar Pétursson, framkvæmda- stjóri Þórs. Að sögn Birkis liggur ákvörðunin hjá félögunum um hvort leikið er á heimavöllum þeirra eða ekki. „Við komum að málunum ef þau ákveða að spila ekki á heimavöll- um sínum, þá þarf samþykki KSÍ fyrir öðrum ráðstöfunum.“ Hann segir að KSÍ fari bráðlega að heyra í félögunum og athuga hvernig staðan á völlunum sé. Eysteinn Pétur Lárusson, fram- kvæmdastjóri Breiðabliks, segir Kópavogsvöll vera grænan og í góðu ásigkomulagi fyrir fyrstu umferðina. Norðurálsvöllurinn hjá Íþrótta- bandalagi Akraness er í góðu lagi að sögn Huldu Birnu Baldursdóttur, framkvæmdastjóra Knattspyrnu- deildar ÍA. „Staðan er góð, ef það frystir ekki næstu daga,“ segir Hulda. Þá er óvíst að Floridanavöll- ur Fylkis nái fyrstu umferð, en að sögn talsmanns félagsins gæti þurft að færa bikarleik karla í næstu viku á gervigrasvöll félagsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grænn „Völlurinn er grænni á þessum tíma en undanfarin ár,“ segir Svavar Geir um golfvöll Golfklúbbsins Odds. Vellirnir koma ágæt- lega undan vetri í ár  Knattspyrnu- og golfvellir grænni en oft áður eftir vetur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kópavogsvöllur Grasið er tilbúið fyrir 1. umferð Pepsi-deildarinnar. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Þessi tilkynning landlæknis breytir engu fyrir okkar stöðu. Þetta er bara hans greining á málinu,“ segir Hjálmar Þorsteinsson læknir, fram- kvæmdastjóri Klíníkurinnar Ár- múla, um yfirlýsingu um einkarekst- ur í heilbrigðiskerfinu sem Birgir Jakobsson, landlæknir, birti á vef embættisins í vikunni. „Landlæknir heyrir undir velferð- arráðuneytið og það hefur úrskurð- að í málinu og sá úrskurður gildir,“ segir Hjálmar. Heilbrigðisáðherra hafi ákveðið að þrátt fyrir að Klíník- in væri með legudeild skyldi hún skilgreind sem „starfsstofa heil- brigðisstarfsmanna“ samkvæmt lög- um um heilbrigðisþjónustu en ekki „sérhæfð heilbrigðisþjónusta“ sam- kvæmt sömu lögum. Orðalag lag- anna gefi þó tilefni til hártogana því í 7. grein þeirra segir að á „starfs- stofum heilbrigðisstarfsmanna er veitt sérhæfð heilbrigðisþjónusta“. Í tilkynningu landlæknis kemur fram að hann taki ekki afstöðu með eða móti rekstri Klíníkurinnar Ár- múla eða annarra sambærilegra stofnana í sérhæfðri heilbrigðisþjón- ustu, en telji að óviðunandi staða sé komin upp vegna lagatúlkunar ráðu- neytisins. Heilbrigðisstofnanir þurfi samkvæmt henni ekki sérstakt leyfi ráðherra til að reka sérhæfða heil- brigðisþjónustu/sjúkrahúsþjónustu í formi fimm daga deildar, einungis staðfestingu frá embætti landlæknis um að þær uppfylli faglegar kröfur til rekstrarins. Þær geti fjármagnað rekstur sinn með gildandi samningi Sjúkratrygginga Íslands og Lækna- félags Reykjavíkur. Hjálmar Þorsteinsson segir að samningar sérfræðilækna við Sjúkratryggingar snúi eingöngu að hefðbundnum stofurekstri, þ.e. mót- töku og greiningu þar sem sjúkling- ur leggst ekki inn. Klíníkin hafi boð- ist til að taka þátt í átaki ráðuneytisins til að fækka sjúkling- um á biðlistum eftir liðskiptaaðgerð- um, en því boði hafi ekki verið tekið. Á vef Klíníkurinnar kemur fram að þar er boðið upp á liðskiptaað- gerðir án kostnaðarþátttöku Sjúkra- trygginga og kosta liðskipti rúma eina milljón króna. Auk bæklunarlækninga sinnir Klíníkin lýtalækningum, meðferð brjóstkrabbameins, meðferð vegna offitu og æðaskurðlækningum. Breytir engu fyrir Klíníkina  Telst ekki vera „sérhæfð heilbrigð- isþjónusta“ samkvæmt lögum Morgunblaðið/Eggert Klíníkin Staðan gagnvart ríkinu er óbreytt, segir Hjámar Þorsteinsson. Ekki hefur náðst í Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra þrátt fyrir ítrekuð skilaboð frá Morgunblaðinu, en hann sagði í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar tvö í gær að agaleysi gagnvart einkarekstri hefði ríkt í íslenska heilbrigðiskerfinu síðustu áratugi. Hann sagði að ekki væri til skoðunar að segja upp samningi Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna, eins og landlæknir hefur kallað eftir, en hann verði endurskoðaður á næsta ári. Hyggur á endurskoðun ÓTTARR PROPPÉ HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Óttarr Proppé Heildstæður svipur er nú að komast á bensínstöð Costco sem er við Kauptún í Garðabæ. Þá er verið að gera vöruhús verslunarinnar klárt en hún verður opnuð að morgni þriðjudagsins 23. maí. Allar fram- kvæmdir ganga samkvæmt áætlun, bæði við vöruhús og bensínstöðina sem er með sjálfsafgreiðslu. Haft hefur verið eftir forsvars- mönnum Costco að þeim þyki við- tökur Íslendinga vera góðar, sam- anber fjölda umsókna um viðskipta- kort en handhafar þeirra hafa einir rétt til innkaupa hjá fyrirtækinu. Allt þykir þetta til vitnis um lifandi markað en verðlækkanir hjá ýms- um fyrirtækjum að undanförnu má að mati kunnugra meðal annars rekja til væntanlegrar samkeppni við Costco. Styttist í opnun Costco við Kauptún Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.