Morgunblaðið - 22.04.2017, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017
Ársfundur
Byggðastofnunar
Ársfundur Byggðastofnunar 2017
verður haldinn þriðjudaginn 25. apríl
í Miðgarði í Skagafirði kl. 13.00
Dagskrá ársfundar:
Kl. 13.00 Setning fundarins –Herdís Á Sæmundardóttir
Kl. 13.05 Ávarp ráðherra – JónGunnarsson, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra
Kl. 13.15 Ræða formanns stjórnar Byggðastofnunar
–Herdís Á Sæmundardóttir
Kl. 13.30 Starfsemi Byggðastofnunar
– Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri
Kl. 13.45 Afhending Landstólpans, samfélagsviður-
kenningar Byggðastofnunar
Nemendur Varmahlíðarskóla flytja tónlistaratriði
Kl. 14.00 Samfélagsleg nýsköpun í dreifbýli –Hjördís Rut
Sigurjónsdóttir, sérfræðingur hjá Nordregio
Kl. 14.30 Staða útlendinga áNorðurlandi, samanburður
milli Akureyrar, Dalvíkur ogHúsavíkur
– Lars Gunnar Lundsten, forseti félagsvísindasviðs
Háskólans á Akureyri
Kl. 14.45 Úr starfi Byggðastofnunar:
• Fjöldi ríkisstarfa eftir landssvæðum31.12. 2015
og breyting frá 31.12. 2013 – Anna LeaGestsdóttir,
sérfræðingur á þróunarsviði
• Atvinnutekjur eftir atvinnugreinumog svæðum
2008 til 2015 – Sigurður Árnason, sérfræðingur
á þróunarsviði
• Nýir lánaflokkar hjá Byggðastofnun
– landbúnaðarlán, lán til stuðnings við atvinnu-
rekstur kvenna og nýsköpunarlán – Arnar Már
Elíasson, forstöðumaður fyrirtækjasviðs
Kl. 15.15 Veiting styrkja úr Byggðarannsóknarsjóði
–Herdís Á Sæmundardóttir formaður
stjórnar Byggðastofnunar
Allir velkomnir
ÚR BÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal
Mýrdalurinn er að verða einn af
helstu ferðamannastöðum landsins.
Lítill munur er orðinn á sumri og
vetri í þeim efnum, hér var fólks-
fjölgun um 7% á síðasta ári og
skýrist það af mestu leyti af auk-
inni þjónustu við ferðamenn. Mikil
uppbygging til viðbótar er í far-
vatninu, sumt farið af stað og ann-
að styttra komið, og kalla allar
þessar framkvæmdir á enn fleira
fólk til starfa.
Opna á 3.800 fermetra
verslunarmiðstöð við Icewear í
Vík í byrjun júní. Byrjað er að
byggja nýtt þjónustuhús við tjald-
stæði og verið er að endurbyggja
Höttinn sem stendur við tjald-
stæðið. Búið er að úthluta lóðum
fyrir tvö ný hótel, annað 60 her-
bergja og hitt 80 herbergja. Þá er
einnig fyrihuguð bygging Reiðhall-
ar/hesthúss fyrir fjölþætta starf-
semi Íslenska hestsins. Olís hyggst
byggja 600 fermetra versl-
unarhúsnæði og eldsneyt-
isafgreiðslu. Byggja á nýja spenni-
stöð Rarik og nýjan sjóvarnargarð.
Þá er farið af stað með byggingu á
íbúðarhúsnæði og búið að úthluta
töluvert mörgum lóðum fyrir fleiri.
Einnig eru töluverðar fram-
kvæmdir í dreifbýlinu. Á Norður-
Fossi er verið að byggja 1.000 fer-
metra gististað, Volcano hótel er að
byggja starfsmannaaðstöðu og
þvottahús í Þórisholti og hjá Hótel
Dyrhólaey er 350 fermetra starfs-
mannahús í byggingu. Þetta er
tæplega tæmandi upptalning á
framkvæmdagleði Mýrdælinga.
Og allir þessir ferðamenn
nota vegina okkar. Á páskadag ók
3.081 bíll um Reynisfjall, en það er
svipaður fjöldi og ók upp að Gull-
fossi, 3.043, á meðan fóru 2.587
bílar um Holtavörðuheiði og 2.537
bílar um Grindavíkurveg. Ann-
arsstaðar var umferð töluvert
minni, samkvæmt tölum frá Vega-
gerðinni. Það er því tímabært að
þeir ráðamenn samgöngu- og um-
ferðisöryggismála fari að átta sig á
því að hér er orðin veruleg þörf á
endurbótum vegakerfisins.
En þó að lífið í Mýrdalnum
snúist að mestu leyti í kringum
ferðamenn, og flestir íbúar svæð-
isins hafi einhvern hluta afkomu
sinnar í tengslum við þá, þá má
ekki gleyma því að ennþá eru
nokkrir bændur með sauðfé sem
þarf frið í högunum. Nú styttist í
að ær og lömb fari af húsi, það er
því mjög mikilvægt að þau land-
svæði þar sem sauðfé gengur á yfir
sumarið fái að vera laus að mestu
leyti við umferð gangandi ferða-
manna, sérstaklega þegar ærnar
eru nýkomnar út á vorin með lítil
lömb.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal Stærðarinnar verslunarmiðstöð er risin í bænum, sem opnuð verður í júní nk.
Framkvæmdagleðin í Mýr-
dalnum aldrei verið meiri
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Margir ferðamenn hafa heimsótt
Þjóðgarðinn Snæfellsjökul í vetur,
að sögn Valdimars Kristjánssonar,
sérfræðings hjá þjóðgarðinum.
„Það er búin að vera mikil vetrar-
traffík og stigvaxandi aukning alveg
frá áramótum,“ sagði Valdimar.
„Umferð er að aukast hér eins og
annars staðar. Við finnum vel fyrir
henni.“ Aðallega er um að ræða er-
lenda ferðamenn og kemur stór hluti
þeirra frá Asíu.
„Þeir koma hingað að leita að
norðurljósum, taka ljósmyndir og
njóta útiveru. Þeir kíkja á jökulinn
og nýta sér þá afþreyingu sem er í
boði,“ sagði Valdimar. Hann sagði að
framboð á veitinga- og gistiþjónustu
á Snæfellsnesi hefði aukist og meira
verið opið í vetur en síðustu vetur,
enda ekki verið vanþörf á. Þó voru
ekki allir staðir opnir. Valdimar
sagði að orðin væri full þörf á að hafa
veitinga- og gistiþjónustu opna allt
árið vegna þess hvað ferðamenn eru
orðnir margir allan ársins hring.
Rukkað í Vatnshelli
Þjóðgarðurinn er með gestastofu
við Malarrif. Hún er opin alla virka
daga. Þar er í boði sýning um ver-
menn og náttúruna. Einnig er þar
upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn
og salernisaðstaða.
Valdimar var ekki kunnugt um að
nein áform væru um að hefja gjald-
töku fyrir bílastæði eða aðra þjón-
ustu í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli í
sumar. Vatnshellir er innan þjóð-
garðsins en rekstur hans er leigður
út. Þar þarf að borga aðgangseyri
enda fara gestir um hellinn í skipu-
lögðum ferðum og fá lánaðan búnað,
hjálma og ljós, og njóta leiðsagnar.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
19. apríl eru nú til umsagnar drög að
frumvarpi þar sem m.a. eru lagðar til
breytingar á heimildum til gjaldtöku
í þjóðgarðinum á Þingvöllum og
Vatnajökulsþjóðgarði. Þar er m.a.
rætt um að heimilt verði að taka
gestagjöld fyrir veitta þjónustu og
aðgang. Þau eiga að mæta kostnaði
við þjónustu, uppbyggingu og við-
hald innviða, rekstur og eftirlit með
dvalargestum.
Ekki áform um gjald-
töku á Snæfellsnesi
Margir gestir í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli í vetur
Morgunblaðið/Árni Torfason
Snæfellsjökull Margir ferðamenn hafa komið vestur í vetur. Meirihlutinn
er erlendir ferðamenn og stór hluti þeirra frá Asíu.
Aðalfundur DC-3 Þristavina verður
haldinn fimmtudaginn 27. apríl
næstkomandi á Hótel Reykjavík
Natura og hefst klukkan 17.30.
Fram fara venjuleg aðalfundarstörf,
þ.e. flutt verður skýrsla stjórnar,
ársreikningur kynntur, stjórn kjörin
og boðið upp á almennar umræður
um starfsemi félagsins.
Í fréttatilkynningu frá Þristavin-
um kemur fram að flug DC-3 vél-
arinnar TF-NPK hafi verið með
minnsta móti á síðasta ári og tengd-
ist einkum flugsýningum og þjálfun
og viðhaldi á réttindum flugmanna.
Vonast er til að unnt verði að fljúga
vélinni talsvert á komandi sumri,
m.a. í tengslum við flugdaga á Akur-
eyri og í Reykjavík.
Þá segja Þristavinir ljóst að halda
þurfi námskeið fyrir nýja flugmenn
sem þjálfa þarf til réttinda á vélina.
Þá hafa flugvirkjanemar unnið við
skoðun og viðhald vélarinnar þar
sem hún hefur haft vetursetu í Flug-
safni Íslands á Akureyri, eins og
undanfarin ár.
Þristavinir hvetja félagsmenn til
að sækja fundinn og eru nýir félags-
menn sérstaklega boðnir velkomnir.
Þristurinn fer
vonandi á flug
Þristavinir halda aðalfund sinn
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
DC-3 Þristavinir á góðri stundu við vélina góðu, er hún varð 70 ára.