Morgunblaðið - 22.04.2017, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 22.04.2017, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017 Meðal kjörgripa sem boðnir verða upp má nefna fyrstu útgáfu Jónasar Hallgrímssonar, Passíusálma Hallgríms á kínversku, elstu útgáfur af Hómerskviðum á íslensku, fyrsta útgáfa Kristjáns fjallaskálds, Wausenhúsbiblían frá 1747, mikið úrval ferðabóka frá 19. öld og fornritaútgáfur frá fyrri öldum. En einnig forvitnileg myndasögublöð frá 20. öld s.s. Ástríkur, Hrói höttur, Tarzan, Hringadróttinssaga. Áritaðar 20. aldar bækur. Skrá yfir uppboðsgripi, verðmat þeirra og lágmarksboð verður birt á netverslun okkar, netbokabud.is á þriðja í páskum Bókauppboð í Reykjavík Bókauppboð verður haldið í Safnaðarheimili Grensáskirkju við Háaleitisbraut 66 laugard. 22. apríl kl. 14 – húsið opnað kl. 12 Uppboðshaldari er Bjarni Harðarson bóksali en regluvörður Ingibjörg Benediktsdóttir fyrrv. hæstaréttardómari. Aðstoðarmaður uppboðshaldara er Valdimar Tómasson ljóðskáld. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Sérsveitarmenn þýsku lögreglunnar handtóku í gær mann af þýskum og rússneskum ættum, sem grunaður er um að hafa staðið að baki sprengjutilræðinu á liðsrútu þýska knattspyrnuliðsins Borussia Dort- mund á þriðjudaginn í síðustu viku. Saksóknarar í Þýskalandi sögðu að þeir teldu að maðurinn hefði ætl- að sér að hagnast á árásinni með því að skortselja hlutabréf í félaginu. Hinn grunaði er 28 ára gamall og vildi lögreglan einungis kalla hann Sergej W. í tilkynningu sinni. Hann mun hafa gist á sama hóteli og leik- menn liðsins og fylgst með út um glugga herbergis síns þegar rútan sem liðið var í lagði af stað. Skömmu síðar sprungu þrjár sprengjur með þeim afleiðingum að rúður brotnuðu og spænski lands- liðsmaðurinn Marc Bartra úlnliðs- brotnaði. Í fyrstu var talið að um hryðju- verk íslamista hefði verið að ræða, þar sem skilaboð þess eðlis fundust við rútuna. Var þrítugur Íraki með tengsl við íslömsk öfgasamtök handtekinn fljótlega í kjölfarið, áður en böndin beindust að Sergej W. Fékk sér nautasteik Hinn grunaði hafði tryggt sér 15.000 hluti í félaginu með þeim hætti að ef hlutabréf í því hefðu fall- ið hefði hann getað grætt töluverða fjármuni á þeim, eða sem nemur um fjórum milljónum evra. Telja sak- sóknarar að markmið mannsins hafi verið að valda alvarlegu manntjóni eða jafnvel mannsláti þannig að hlutabréfin myndu örugglega falla í verði. Að sögn þýska blaðsins Bild hafði maðurinn vakið grunsemdir þar sem hann krafðist þess að fá her- bergi á efstu hæð með útsýni yfir framhlið þess. Þá þótti einnig ein- kennilegt að í kjölfar árásarinnar þegar ringulreið ríkti allt um kring gekk hinn grunaði í rólegheitum að veitingastað hótelsins og pantaði sér nautasteik. Lét stjórnast af græðgi  Þýsk-rússnesk-ættaður maður handtekinn vegna árásarinnar á liðsrútu Borussia Dortmund  Ætlaði að skortselja hlutabréf í félaginu eftir árásina Elísabet II. Englandsdrottning fagnaði í gær 91 árs af- mæli sínu. Af því tilefni var hleypt af 41 fallbyssuskoti henni til heiðurs í Hyde Park. Drottningin hefur nú ríkt lengst allra núlifandi þjóð- höfðingja, en fyrr á árinu var þess minnst að 65 ár voru liðin frá því að hún varð drottning. AFP Fallbyssuskot til heiðurs Elísabetu Rússnesk yfir- völd tilkynntu í gær að þau hefðu svipt Akbarjon Djalilov ríkis- borgararétti að honum látnum. Djalilov er grun- aður um að hafa framið sjálfsvígs- árásina í St. Pét- ursborg fyrr í mánuðinum. Þá hefur faðir Djalilovs einnig verið sviptur ríkisborgararétti, þar sem hann mun hafa logið til á eyðu- blöðum þegar hann sótti um sinn ríkisborgararétt. Enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð sinni á hryðjuverkunum í St. Pétursborg, en rússnesk yf- irvöld hafa sagst vera að kanna tengsl Djalilovs við Ríki íslams eða öfgamenn tengda þeim samtökum. Ein kona sem varð fyrir árásinni lést í gær á sjúkrahúsi. Fjöldi lát- inna er nú kominn upp í fimmtán. 23 til viðbótar eru enn á sjúkrahúsi, fjórir þeirra í alvarlegu ástandi. Tilræðismaðurinn sviptur þegnrétti Akbaron Djalilov RÚSSLAND Að minnsta kosti átta afganskir hermenn féllu í árás talíbana í gær, sem gerðu harða hríð að herstöð í nágrenni borgarinnar Mazar-e- Sharif. Að sögn varnarmálaráðu- neytis Afganistans voru talíb- anarnir klæddir í einkennisbúninga hersins þegar þeir hófu árás sína, og lá því ekki ljóst fyrir hversu margir árásarmenn hefðu verið á ferðinni. Að minnsta kosti einn árásarmannanna sprengdi sjálfan sig í loft upp, en annar var handtek- inn. Talíbanar hafa lýst yfir ábyrgð sinni á árásinni. Ástandið í Afganistan er enn ótryggt, og nokkuð um árásir á lög- reglu og herlið landsins. Einungis er um mánuður liðinn frá því að ráðist var á helsta hersjúkrahúsið í Kabúl, en þá létust á bilinu 50-100 manns í árás sem stóð yfir í marga klukkutíma. Ríki íslams lýsti þá yfir ábyrgð sinni. Átta hermenn felldir í árás talíbana AFGANISTAN Óvíst er hvaða áhrif árásin í París á fimmtudagskvöld, þegar lögreglu- maður var skotinn til bana á Champs Elysees, mun hafa á fyrri umferð frönsku forsetakosninganna, sem fram fer á morgun. Árásarmaðurinn, sem var felldur af lögreglu, reyndist vera með miða á sér, þar sem hann lýsti yfir stuðn- ingi við Ríki íslams. Samtökin lýstu þegar í stað árásinni á hendur sér. Hryðjuverk og íslamismi voru í kjöl- farið efst á baugi baráttunnar í gær, síðasta virka daginn fyrir kosning- arnar. Samkvæmt skoðanakönnunum er lítill munur á fjórum efstu frambjóð- endum en þeir sem hafna í tveimur efstu sætunum munu verða aftur í kjöri í seinni umferð kosninganna, sem fram fer í maí. Hafði verið yfirheyrður Yfirvöld nafngreindu árásar- manninn í gær sem hinn 39 ára gamla Karim Cheurfi. Í ljós kom að hann hafði verið handtekinn og yf- irheyrður af frönsku lögreglunni í febrúar síðastliðnum þar sem grun- ur léki á að hann ætlaði sér að myrða lögreglumenn. Honum var hins veg- ar sleppt vegna skorts á sönnunar- gögnum. Marine Le Pen, forsetaframbjóð- andi Þjóðfylkingarinnar, kallaði eftir því í kjölfarið að öllum þeim sem væru á lista lögreglunnar vegna gruns um stuðning við hryðjuverk yrði vísað tafarlaust úr landi. Emm- anuel Macron, sem af mörgum þykir sigurstranglegastur, biðlaði hins vegar til Frakka um að „láta ekki undan óttanum“. Frá árinu 2015 hafa 239 manns fallið í Frakklandi af völdum hryðjuverkamanna. Óvíst um áhrif árásarinnar  Hryðjuverk set- ur frönsku kosn- ingarnar í uppnám AFP París Ung kona leggur blóm á stað- inn þar sem árásin var gerð í París. Embættismenn í Venesúela til- kynntu í gær að ellefu manns hefðu fallið í mótmælum gegn Nicolás Maduro, forseta landsins, sem fram fóru í fyrrinótt. Um tuttugu manns hafa nú látist í mótmælahrinunni, sem staðið hefur yfir í þrjár vikur. Óeirðalögregla beitti táragasi til þess að leysa upp mótmæli sem spruttu upp víðsvegar um höf- uðborgina Caracas. Lýstu sjón- arvottar ástandinu á þann veg að barátta lögreglu við mótmælendur minnti helst á stríðsátök, þar sem flöskum og Molotov-kokteilum væri kastað í lögregluna. Stjórnarandstaðan í Venesúela, sem staðið hefur á bak við mótmæl- in, sakar ríkisstjórn Maduros um að hafa sigað á sig hópum vopnaðra rustamenna. Tiltölulega kyrrlátt var í Caracas í gær eftir fimmtudaginn, en boðað hefur verið til frekari mótmæla gegn Maduró í dag og á mánudaginn. Ellefu felldir í fyrrinótt  Fjöldamótmæli áfram í Venesúela

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.