Morgunblaðið - 22.04.2017, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017
Upplýsingar vegna kosningar
vígslubiskups í Skálholti
Vakin er athygli á því að samkvæmt nýjum starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa, nr.
333/2017 mun nú í fyrsta sinn fara fram forval (tilnefning) áður en kosning vígslubiskups fer fram.
Rétt til tilnefningar hafa eingöngu þeir vígðu menn sem kosningarréttar njóta, skv. 4. gr., sbr. 3. gr. fyrrnefndra
starfsreglna. Heimilt er að tilnefna allt að þrjá einstaklinga sem uppfylla kjörgengisskilyrði skv. 1. gr.
starfsreglnanna.
Tilnefningin mun verða rafræn og standa frá kl. 12:00 þann 23. ágúst 2017 og ljúka kl. 12:00 þann
28. ágúst 2017.
Í 1. mgr. 13. gr. starfsreglna nr. 333/2017 segir:
Þeir þrír einstaklingar sem flestar tilnefningar fá, að teknu tilliti til 3. mgr., eru í kjöri til biskups Íslands eða
vígslubiskups. Ef tveir eða fleiri fá sama fjölda tilnefninga skulu þeir báðir eða allir vera í kjöri. Séu tilnefndir færri
einstaklingar en þrír eru þeir allir í kjöri að teknu tilliti til 3. mgr.
Ákveðið hefur verið að kosning til vígslubiskups í Skálholti fari fram dagana 28. september til og með 9.
október 2017, en um er að ræða póstkosningu.
Um kosningarrétt við kjör vígslubiskups er fjallað í 4., sbr. 3. gr. starfsreglna nr. 333/2017 og eru ákvæðin
svohljóðandi:
3. gr.
Kosningarréttur við kjör biskups Íslands.
A. Kosningarréttur vígðra:
Biskup Íslands og vígslubiskupar eiga kosningarrétt við biskupskjör. Auk þeirra á kosningarrétt hver sá sem
vígslu hefur hlotið og er:
a) Þjónandi prestur eða djákni íslensku þjóðkirkjunnar eða hjá íslenskum söfnuði þjóðkirkjunnar
erlendis og er í föstu og launuðu starfi sem slíkur, eða
b) Þjónandi prestur eða djákni sem lýtur tilsjón biskups Íslands og er í föstu og launuðu starfi
á vegum stofnunar og/eða félagasamtaka hér á landi.
Prestur eða djákni í tímabundnu leyfi, allt að tveimur árum, nýtur kosningarréttar.
Prestur sem settur er til þjónustu tímabundið nýtur ekki kosningarréttar nema í þeim tilfellum þar sem ekki er
skipaður prestur fyrir.
Prestur, sem sinnir aukaþjónustu, nýtur ekki kosningarréttar fyrir það embætti sem hann sinnir aukaþjónustu í.
Djákni skal vera ráðinn til a.m.k. eins árs eða ótímabundið til að njóta kosningarréttar.
Prestur eða djákni sem látið hefur af þjónustu nýtur ekki kosningarréttar.
Kosningarrétt eiga vígðir kennarar í föstu starfi við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands og vígðir
starfsmenn á biskupsstofu sem eru í föstu starfi.
B. Kosningarréttur leikmanna:
a) Kjörmenn prestakalla, sbr. 7. gr. starfsreglna um val og veitingu prestsembætta
nr. 144/2016, með síðari breytingum,
b) Þeir leikmenn sem sæti eiga í kirkjuráði og á kirkjuþingi.
4. gr.
Kosningarréttur við kjör vígslubiskupa.
Kosningarrétt við vígslubiskupskjör eiga þeir sömu og réttinn eiga skv. 3. gr. og tilheyra prófastsdæmi sem er í
því umdæmi vígslubiskups sem kosið er í.
Þjónandi prestur eða djákni hjá íslenskum söfnuði þjóðkirkjunnar erlendis, sbr. a) lið 1. mgr. 3. gr., nýtur
kosningarréttar í umdæmi vígslubiskups í Skálholti.
Þjónandi prestur eða djákni, sbr. b) lið 1. mgr. 3. gr., nýtur kosningarréttar í því umdæmi vígslubiskups sem
viðkomandi starfar.
Kosningarrétt eiga kirkjuþingsmenn, kirkjuráðsmenn, vígðir kennarar í föstu starfi við guðfræði- og
trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands og vígðir starfsmenn á biskupsstofu sem eru í föstu starfi.
Kjörskrá vegna kosningar vígslubiskups í Skálholti verður lögð fram 9. ágúst 2017, kl. 12:00 og skulu
skilyrði kosningarréttar þá hafa verið uppfyllt frá 2. ágúst 2017.
Almennar upplýsingar um fyrirkomulag og framkvæmd tilnefninga og kosninga er í starfsreglum nr. 333/2017,
sem unnt er að nálgast á eftirfarandi vefslóð: https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=a8b0f2cd-
30d4-489c-acf2-2888200169d8
Fyrirkomulag tilnefningarinnar og kosningarinnar mun verða auglýst nánar þegar nær dregur.
Reykjavík, 21. apríl 2017
f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar
Hjördís Stefánsdóttir, formaður
Raðauglýsingar Smáauglýsingar
Smáauglýsingar 569
Húsnæði óskast
Óska eftir að leigja 4.
herbergja íbúð
Fjögurra manna fjölskylda óskar eftir
íbúð í 110 Norðlingholti eða
Selás/Árbæ en hverfi 104,105 og 108
koma til greina. Óskað er eftir
langtímaleigu til að minnsta kosti
þriggja ára, skilvísum greiðslum
heitið og trygging/fyrirframgreiðsla í
boði. Hafið samband í síma: 895
5086 eða email:
kristjanabirgisdottir@hotmail.com.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sumarbústaðalóðir til sölu
í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár,
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864 og á facebook-síðu
okkar vaðnes-lóðir til sölu.
Sumarhúsalóð í Öndverðarnesi
til sölu. Á besta stað, með frábæru
útsýni. Við golfvöllinn, braut 11.
Nánari uppl. í síma 8661712 eða
plommi61@gmail.com
Til sölu
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Sunnudagur 23. apríl
Síðumúli 17 (2. hæð)
kl. 13 - 16
Mynt • Seðlar • Minnispeningar
Barmmerki • Smáprent
Frímerki • Póstkort o.fl.
Sala • Kaup • Skipti
MYNTSAFNARAFÉLAG ÍSLANDS
www.mynt.is
Safnara-
markaður
sunnudagur
23. apríl
Í S L A N D S
•
M
Y
N
T S
A F N
A R A F É
L
A
G
•
Hjólbarðar
Rýmingarsala á vörubíladekkjum
13 R 22.5 kr. 39516 + vsk
1200 R 20 kr. 29840 + vsk
275/70 R 22.5 kr. 39900 + vsk
385/65 R 22.5 kr. 55645 + vsk
1000 – 20 kr. 26613 + vsk
og fleiri stærðir.
kaldasel@islandia.is
Kaldasel ehf s. 5444333 og
8201070
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
Viðhalds-
menn
Tilboð/tímavinna
s. 897 3006
vidhaldsmenn.is
vidhaldsmenn@gmail.com
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
mbl.is
alltaf - allstaðar