Morgunblaðið - 22.04.2017, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2017
Veit á vandaða lausn
MERITENE fæst í apótekum og fjölmörgum verslunum,
s.s. Hagkaupum, Fjarðarkaupum, Samkaupum og Netto.
fastus.is
MERITENE ER ENDURBÆTT ÚTGÁFA AF BUILD-UP DRYKKNUM
OG NÝTIST VEL Í TENGSLUM VIÐ:
• Þyngdartap
• Minnkaða matarlyst
• Uppbyggingu eftir veikindi
• Þreytu og þrekleysi vegna næringarskorts
PRÓTEINRÍKUR
NÆRINGARDRYKKUR
INNIHELDUR
VÍTAMÍNOG STEINEFNI
19
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ættingi þinn kallar á athygli þína en
þú ert of önnum kafinn við aðra hluti. Láttu
eftir þér að dóla aðeins svo þú verðir í meira
stuði.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt hlutirnir líti vel út á pappírnum er
ekki þar með sagt að þeir séu borðleggjandi
gróði. Reyndu að vinna meira í einrúmi eftir
því sem líða tekur á daginn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Taktu ekki að þér fleiri verkefni, fyrr
en þú hefur lokið við þau sem þú fæst við.
Sinntu því sem þér ber og þá muntu fá þín
tækifæri þegar þar að kemur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Forðastu hina athyglissjúku. Í þínu til-
felli er það ekki einbeiting, heldur víðsýni sem
eykur afköst. Með það á hreinu ættu allir
framtíðarvegir að vera þér færir. Fáðu útrás
með hreyfingu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ákveðni þín í að leiða hlutina til lykta,
vekur athygli yfirmanna þinna og þú munt
hljóta umbun erfiðis þíns. Hafðu hugfast að
allt á sér sinn stað og sína stund.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Enginn getur vitað allt, en reynsla þín
er að minnsta kosti víðtæk. Ekki þarf alltaf að
vera ástæða til þess að maður láti gott af sér
leiða.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að gefa sjálfum þér tíma þessa
dagana. Það fellur ekk að áætlunum annarra
sem krefja þig um bæði orð og gerðir. Vertu
samt líka þolinmóður og gefðu hverjum og
einum þann tíma sem hann þarf.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt þú eigir ekki að brjóta á
rétti þínum skaltu teygja þig langt til þess að
halda friðinn í dag. Ekki velja að vinna bara og
eiga ekkert einkalíf.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Náinn vinur eða maki gæti fundið
til öfundar gagnvart þér. Ekki hafa áhyggjur,
það mun skína í gegn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Rétta lausnin er ekki endilega sú
sem liggur í augum uppi. Hafðu jafnan vara-
áætlun til taks til að komast hjá stöðnun.
Rannsóknir ganga einstaklega vel.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það eru margar leiðir til að finna
rétta svarið; líttu á allar hindranir sem tæki-
færi. Láttu ekkert verða til að æsa þig upp.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Forðastu að taka ákvarðanir að óyf-
irveguðu ráði. Dragðu andann og láttu þinn
göfugasta ásetning í ljós – fyrst innra með
þér og svo við aðra.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Drótt fær hún laðað í draumavé.
Dóttir jötuns nefnd í goðafræði.
Leikkonu heiti hygg ég að sé.
Hryssa í skáldsins verðlaunakvæði.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Nóttin draumadúrinn veitir.
Dóttir jötuns Nótt var.
Lilja Nótt leikkonan heitir.
Léttstíg heitið Nótt bar.
Sigrúnu á Sjónarhóli leysir gát-
una þannig:
Draumagyðju nafn er Nótt,
Njörvadóttir herma fræði.
Lilja Nótt hlaut frama fljótt,
Fræg er Nótt í skáldsins kvæði.
Helgi R. Einarsson svarar:
Hún er slóttug, hefur þrótt,
í hana þótt er varið,
ekki skjótt, er eftirsótt.
Ætli NÓTT sé svarið?
Árni Blöndal á þessa lausn:
Að mér sótti óðar svarið
og það birtist fljótt,
þessu er nú þannig varið,
þetta er bara nótt.
Helgi Seljan svarar:
Að nóttu sækja draumar drótt,
dóttir Njörva sögð hún er,
söng hér fyrrum Sylvía Nótt
sagt um hryssu í kvæði hér.
Þannig skýrir Guðmundur gát-
una:
Nótt laðar þreytta drótt í draumavé.
Dóttir jötuns Nótt er í goðafræði.
Nafn á leikkonu Nótt ég hygg að sé.
Nótt er hryssa í verðlaunuðu kvæði.
Þá er limra:
Vífin þó vart megi þoĺann,
er Valdi samt iðinn við kolann,
hann þeysa mun skjótt
þegar í nótt,
því Valdi á viljugan folann.
Síðan kemur laugardagsgátan
með þeirri orðskýringu Guð-
mundar, að hann styðst jafnan við
orðabók:
Vetur enn að völdum er,
vorið er seint á ferðinni,
en hér er gáta handa þér
af hræódýrri gerðinni:
Halur mikils háttar er.
Hollustuna veitir.
Af bestu lyst hann borðum vér.
Blómagarðinn skreytir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Nefið rekið í nóttina
Í klípu
„KLUKKAN ER ORÐIN MARGT. VIÐ ÆTTUM
AÐ BÚA OKKUR NÆTURSTAÐ HÉR OG
LEGGJA AFTUR AF STAÐ Á MORGUN.“
GARÐYRKJUBÚÐIN
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„TEKURÐU BÍKINÍIÐ ÞITT MEÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að elska hann,
sérstaklega þegar hann
er nývaknaður.
Hluturinn er nú í
innkaupakörfunni þinni.
Viltu borga núna?
Nýr viðskiptavinur?
Búðu til aðgang og
lykilorð
KLIKK
ÞARF ÉG LYKILORÐ TIL
ÞESS AÐ KAUPA EINN OST?
ÞÚ MÁTT
NOTA MITT
PABBI, HVERNIG
VEIT ÉG AÐ ÉG
ER ORÐINN AÐ
MANNI? EINS OG
TIL DÆMIS?
ÞÚ MUNT HUGSA
ÖÐRUVÍSI…
ÞÚ MUNT
VILJA FARA
OG LEGGJA
ÞIG!
Sáralítil umferð, snjólítið, fínt veð-ur og öryggar upplýsingar á net-
inu um færð og horfur. Víkverji var á
ferðinni í vikunni, kom með Norrænu
frá Færeyjum til Seyðisfjarðar í být-
ið og hafði daginn til að koma sér í
bæinn. Fjarðarheiði var engin fyr-
irstaða og tékk á Egilsstöðum sagði
að óhætt væri að fara norður um, það
er um Háreksstaðaleið og Mývatns-
öræfi. Sá vegur var því valinn og
ferðin alla leið til Reykjavíkur gekk
eins og í sögu.
x x x
Á Íslandi er þjóðaríþrótt aðskamma Vegagerðina. Hófstilltir
gagnrýnendur hafa oft heilmikið til
síns máls, en svo allrar sanngirni sé
gætt er frumlag aðfinnsluefna þeirra
jafnan að ekki sé nægum fjármunum
varið til samgöngumála, rétt eins og
annarra mikilvægra verkefna. En
þegar allt kemur til alls hafa gletti-
lega stórir áfangar náðst í vega-
málum á undanförnum áratugum.
Víkverja, sem hefur lengi verið á
ferðalögum um landið um langt
skeið, finnst þegar hann lítur til baka
í raun mega tala um byltingu.
x x x
Gefum okkur að árið sé 1990, viðstödd á Egilsstöðum og ætlum
suður á bóginn. Þá var malarvegur
stóran hluta leiðar og Möðrudals-
öræfin með vegum yfir hryggi og
hæðir voru oft fyrirstaða. Holur og
hristingur og rykið smaug inn í bíl-
ana sem voru bókstaflega lélegir,
bornir saman við ökutæki dagsins í
dag. Fyrir 27 árum var líka oft tals-
verður veltingur að komast yfir
Öxnadalsheiðina og einbreiðu brýrn-
ar á allri leiðinni stórlega varasamar.
Og nefnum ekki Hvalfjörðinn ógrát-
andi. Þá var vegaþjónusta á vegunum
líka allt önnur og lakari en nú.
x x x
Glímt við þjóðveginn,/gegnum dalanna skaut,“
sungu Brimkló og Björgvin. Þetta er
svo sem engin glíma, en að komast
frá Seyðisfirði til Reykjavíkur á ell-
efu klukkustundum, og það með
stoppi bæði á Akureyri og í Stað-
arskála, er ansi gott. Sú er skoðun
hins víðförla Víkverja sem biður fyrir
kveðju í Vegagerðina. vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er nálægur þeim sem hafa
sundurmarið hjarta, hann hjálpar
þeim sem hafa sundurkraminn anda.
(Sálm. 34:19)
mbl.is