Morgunblaðið - 29.04.2017, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017
Einstakur möguleiki á að fá einkafund með talsmanni EBK, Anders Ingemann Jensen, um
uppsetningu á EBK sumarhúsum á Íslandi. Á fundinum verður farið yfir byggingarferlið, kost-
naðaráætlanir og allt það sem viðkemur því, að fá nýtt EBK sumarhús byggt á íslandi.
Föstudaginn 5. maí og laugardaginn 6. maí 2017 – Báða dagana frá kl. 10-17
Fundarstaður og stund: Stepp ehf., Ármúla 32, 108 Reykjavík
Nauðsynlegt er að panta fundartíma gegnum netfangið aj@ebk.dk, í síma +45 4020 3238 eða
á vefnum ebk-hus.is. Anders talar dönsku og ensku.
Komið og upplifið hið stórkostlega SØHOLM Hús
V-Gata 16, Miðfelli, Þingvallasveit, 801 Selfoss
Frekari upplýsingar um staðsetningu er hægt af nálgast í síma 696-9899
Bókið fund með EBK í Reykjavík, sérsniðin að ykkar óskum
OPIÐ HÚS Sunnudaginn 7. maí kl. 13-16
EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse
Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk
17
23
2
Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús?
WWW.EBK-HUS.IS
DÖNSK HÖNNUN
OG ARKITEKTÚR
Borgarráð hefur samþykkt tillögu
Dags B. Eggertssonar borgarstjóra
um að tekið verði upp menningar- og
heilsukort eldri borgara í Reykjavík
frá og með haustinu 2017.
Kortið á að nýtast öllum Reykvík-
ingum sem hafa náð 67 ára aldri til að
fá endurgjaldslausan aðgang að
sundlaugum og menningarstofnun-
um sem reknar eru af Reykjavíkur-
borg.
Vissu ekki um fríðindin
„Þessir afslættir hafa þegar verið
innleiddir í fjárhagsáætlun ársins, en
töluverð brögð eru að því að eldri
borgarar þekki ekki til þessara fríð-
inda eða nýti sér þau ekki til heilsu-
bótar og menningarauka,“ segir í til-
lögu borgarstjóra.
Í greinargerð með tillögu borgar-
stjóra kemur fram að tillaga um „frí-
stundakort eldri borgara“ hafi verið
ein af tillögum sem starfshópur um
heilsueflingu aldraðra vann undir for-
ystu Ellerts B. Schram, núverandi
formanns Félags eldri borgara
(FEB) í Reykjavík.
Með nýju menningar- og heilsu-
korti Reykjavíkurborgar væri tekið
undir áðurnefnda tillögu. Þegar kort-
ið verði orðið að veruleika megi
tengja það frekari fríðindum líkams-
ræktarstöðva eða fyrirtækja sem
veita eldri borgurum afslætti og verði
það útfært og innleitt í samráði við
FEB.
Á borgarráðsfundinum í fyrradag
voru einnig kynnt drög að erindis-
bréfi starfshóps um menningar - og
heilsukort eldri borgara í Reykjavík.
Borgarstjóri verður ábyrgðarmaður
hópsins. Í hópnum verða fulltrúar frá
þremur fastasviðum borgarinnar.
Starfshópurinn á að skila tillögum
sínum fyrir 15. júní 2017. sisi@mbl.is
Nýtt kort fyrir
eldri borgara
Sund og menning verða ókeypis
Kjarvalsstaðir Eldri borgarar þurfa
ekki að greiða fyrir aðgang.
Morgunblaðið/Eggert
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Á mánudaginn tekur gildi nýtt
greiðsluþátttökukerfi vegna heil-
brigðisþjónustu, og einnig tekur gildi
þann dag ný reglugerð um tilvísunar-
kerfi fyrir börn, sem felur það í sér
að börn fái tilvísun á sérfræðing hjá
heilsugæslu eða heimilislækni og við
komu til sérfræðings greiði þau ekk-
ert fyrir komu til
sérgreinalæknis.
Börn sem sæki
þjónustu sér-
greinalæknis án
tilvísunar þurfi að
greiða þriðjung af
því sem sjúkra-
tryggðir almennt
greiða. Börn
yngri en tveggja
ára þurfa ekki til-
vísun.
Valtýr Stefánsson Thors, barna-
læknir, er formaður Félags barna-
lækna. Hann gagnrýnir nýja tilvís-
unarkerfið harðlega, og segir að
álagið á bráðadeild Barnaspítalans
eigi eftir að stóraukast.
„Við höfum lýst því yfir, bæði í fjöl-
miðlum og í greinargerð til ráðherra,
að okkur þykir þetta vera vanhugsað
skref, og þar vísa ég bæði til nýs
greiðsluþátttökukerfis og tilvís-
unarkerfisins,“ sagði Valtýr í samtali
við Morgunblaðið í gær.
„Eins og þetta birtist okkur; er
eins og þetta frumvarp hafi farið í
gegnum Alþingi undir radarnum, en
verið selt alþingismönnum með þeim
hætti að það ætti að tryggja börnum
ókeypis heilbrigðisþjónustu, því það
var það sem menn kepptust um að
lofa fyrir kosningar,“ sagði Valtýr.
Þjónustan ekki ókeypis
Hann segir að í ljós komi, þegar
lögin eru skoðuð, að heilbrigðisþjón-
usta fyrir börn verði langt frá því að
vera ókeypis. Fólk muni átta sig á því
þegar nýja kerfið verði tekið upp eft-
ir helgi, að það verði í raun og veru
enginn sem eigi eftir að njóta góðs af
því.
„Hugmyndin er að fólk leiti fyrst
til heimilislæknis, sem er í sjálfu sér
góð og gild hugsun í löndum sem eru
með sterka heilsugæslu. Heilsugæsl-
an hér á landi er ekki í stakk búin til
þess að takast á við þann mikla
fjölda, sem hefur verið sinnt af
barnalæknum hingað til. Það sem
mun gerast eftir helgi, þegar fólk átt-
ar sig á því að það þarf að borga fjór-
falt eða fimmfalt meira fyrir komuna
til barnalæknis, ef það hefur ekki
fengið tilvísun hjá heilsugæslulækni,
er að hér verði til tvöfalt heilbrigðis-
kerfi,“ sagði Valtýr.
Hann segir að annars vegar verði
til kerfi fyrir þá sem hafa nóg á milli
handanna og láta sig ekki muna um
að borga barnalækninum, án þess að
hafa fyrst fengið tilvísun og hins veg-
ar þá sem hafi ekki ráð á öðru en að
fara fyrst á heilsugæsluna, og bíða
svo eftir tíma hjá sérfræðingnum í
einhverjar vikur.
„Þeir sem alls ekki geta beðið,
munu leita á bráðamóttöku barna á
Barnaspítalanum, sem er nú þegar
yfirfull og fólk á þönum að sinna
veikustu börnunum. Þá skapast þetta
ástand, sem við höfum mestar
áhyggjur af. Núna eru á milli 15 og
16 þúsund komur á ári á Barnaspít-
alann og við teljum að nýja tilvís-
unarkerfið muni fjölga komum um
25% til 30% á ári,“ sagði Valtýr.
Hann segir að veikustu sjúkling-
unum verði þannig hætta búin og
fólk sem hafi minna á milli handanna
geti ekki leitað þeirrar þjónustu sem
það þurfi á að halda, fyrir börn sín.
Hann segir að hvorki barnalæknar
né heimilislæknar fagni hinu nýja til-
vísunarkerfi, enda feli það í sér tví-
verknað.
„Ég held því miður að þetta sé hin
margumtalaða íslenska leið. Það er
einhver sem fær hugmynd, sem er
svo keyrð í gegn, hvað sem gagnrýni
og mótbárum þeirra sem eru að
vinna á gólfinu líður. Það er verið að
horfa til fyrirmynda í Svíþjóð og
Noregi, en það gleymist að við búum
í allt öðru vísi þjóðfélagi en Svíar og
Norðmenn. Við erum miklu minni og
erum alls ekki með jafn sterka
heilsugæslu og þeir. Það þarf að
byrja á því að efla heilsugæsluna og
gera hana að meira aðlaðandi starfs-
vettvangi fyrir lækna,“ sagði Valtýr
jafnframt.
Komum fjölgi um 25% til 30%
Valtýr Stefánsson Thors, formaður Félags barnalækna, gagnrýnir nýtt tilvísunarkerfi harðlega
Segir að álag á Barnaspítala Hringsins muni stóraukast með tilkomu tilvísunarkerfisins
Morgunblaðið/Ómar
Tilvísanir Formaður Félags barnalækna telur að nýja kerfið sé vanhugsað.
Valtýr Stefánsson
Thors
Á mánudag, 1. maí, tekur gildi nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna heil-
brigðiþjónustu. Í umfjöllun á heimasíðu Sjúkratrygginga Íslands segir að
markmiðið með nýja kerfinu sé að lækka útgjöld þeirra einstaklinga sem
þurfa mikið á heilbrigðisþjónustu að halda og hafa greitt háar fjárhæðir
fyrir þá þjónustu.
Hámarksgreiðsla á mánuði verði almennt 24.600. Hún verði þó lægri
hjá öldruðum, öryrkjum og börnum eða kr. 16.400.
Greiðslur sjúkratryggðra einstaklinga fyrir þjónustu vegna þjálfunar,
læknishjálpar o.fl. teljist saman upp í hámarksgjald.
Nánar á www.sjukra.is.
Hámark 24.600 krónur
NÝTT GREIÐSLUÞÁTTTÖKUKERFI TEKUR GILDI 1. MAÍ
Arna Guðmundsdóttir, formaður Læknafélags Reykja-
víkur, kveðst telja að nýjar reglur um greiðsluþátttöku
og nýtt tilvísunarkerfi, séu á skjön við stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar.
„Stjórnarsáttmálinn hófst á fögrum fyrirheitum um
jafnt aðgengi allra að öruggri og góðri heilbrigðisþjón-
ustu, óháð efnahag,“ sagði Arna í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Kerfið verður þannig, frá næsta þriðju-
degi, að sjúklingurinn þarf að borga háa upphæð fyrst,
allt að 24.600 krónur. Þetta getur reynst þeim efna-
minni mjög erfitt. Ég nefni sem dæmi skjólstæðinga
geðlækna, sem er jú sá hópur sem ríkisstjórnin ætlaði að vernda sér-
staklega.“
Arna segir að ungt fólk sem alla jafna þurfi sjaldnar að leita til læknis,
muni þurfa að greiða stóran hluta af læknisheimsókn til sérfræðilæknis
úr eigin vasa. „Það er ekki verið að minnka greiðsluþátttöku sjúklinga,
heldur er verið að breyta kostnaðarþátttökunni milli hópa. Vitanlega er
mikil ánægja með það að þak sé sett á kostnaðarþátttöku þeirra sem
greiða mest og þurfa oftast að leita til sérfræðilækna, en að það skuli
vera gert þannig, að þakið sé greitt af öðrum sjúklingum, þeim sem eru
minna veikir, er að mínu mati afar gagnrýnisvert. Af hverju er þessum
kostnaði ekki velt yfir á alla skattgreiðendur, ríkissjóð?“ spyr Arna.
Þá gagnrýnir Arna það harðlega að nýju reglurnar taki gildi strax eftir
helgi, án þess að nokkur kynning hafi farið fram. „Það veit enginn að
þetta er að bresta á næsta þriðjudag. Þeir sem eru fyrir löngu búnir að
panta sér tíma hjá sérfræðingi, hefðu þurft að fara eigi síðar en í dag (í
gær) í heilsugæsluna og fá tilvísun hjá heilsugæslulækni, til þess að
þurfa ekki að borga margfalt fyrir barnið hjá sérfræðingi,“ sagði Arna.
Á skjön við stjórnarsáttmálann
FORMAÐUR LÆKNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
Arna
Guðmundsdóttir