Morgunblaðið - 29.04.2017, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Sérfræðingar á vegum alþjóðlegu
Efnavopnastofnunarinnar, OPCW,
eru að kanna ásakanir um að efna-
vopnum hafi verið beitt 45 sinnum í
sýrlenska borgarastríðinu frá því
síðasta haust.
Ahmet Uzumcu, framkvæmda-
stjóri stofnunarinnar, sagði að list-
inn yfir ásakanirnar væri langur, en
stofnunin hefur með höndum eftirlit
með alþjóðlegu banni á notkun efna-
vopna.
Sagði Uzumcu að á seinni hluta
síðasta árs hefðu 30 ásakanir um
beitingu efnavopna borist inn á hans
borð, og 15 til viðbótar það sem af er
árinu 2017. Þar á meðal er
efnavopnaárásin hinn 4. apríl síðast-
liðinn, þar sem saríngasi var beitt á
þorpið Khan Sheikhun, en 88 manns
hafa látist af völdum hennar.
Sjálfboðaliðar til reiðu
Stofnunin er nú að reyna að und-
irbúa vettvangsferð til þorpsins til
þess að kanna allar aðstæður, en í
síðustu viku lýsti Uzumcu því yfir að
það væri fullsannað að saríngasi eða
svipuðu efni hefði verið beitt í árás-
inni 4. apríl.
Sýrlensk yfirvöld hafa fyrir sitt
leyti sagst vera samþykk þessari
vettvangsferð stofnunarinnar, en
vandinn er sá að rannsóknateymið
myndi þurfa að fara í gegnum land-
svæði sem er á valdi nokkurra mis-
munandi uppreisnarhópa. „Við þurf-
um því að ræða við þá til þess að fá
tímabundið vopnahlé,“ sagði Uz-
umcu og bætti við að hann hefði þeg-
ar fengið sjálfboðaliða á vegum
stofnunarinnar til þess að vera til
taks þegar og ef færið gæfist á að
hefja rannsóknina.
Teymið mun hins vegar ekki hafa
heimild eða umboð til þess að rann-
saka Shayrat-herflugvöllinn, en
hann var skotmark Bandaríkjahers í
kjölfar efnavopnaárásarinnar, þar
sem Bandaríkjastjórn sagði að þotan
sem framkvæmdi árásina hefði verið
staðsett þar. Rússar hafa einnig
krafist þess að rannsakað verði
hvort efnavopn hafi verið geymd þar,
en þeir segja árás Bandaríkjamanna
skýrt brot á alþjóðalögum.
Rannsaka 45 ásakanir um
beitingu efnavopna í Sýrlandi
AFP
Efnavopn Eitt af fórnarlömbum árásarinnar á Khan Sheikhun að jafna sig á sjúkrahúsi fyrr í mánuðinum.
Efnavopnastofnunin er reiðubúin til að rannsaka árásina á Khan Sheikhun
Lögreglan í Bretlandi varaði við
því í gær að hún teldi aukna hættu
á því að hryðjuverk verði framið í
landinu. 27 ára gamall karlmaður,
sem nafngreindur var sem Khalid
Mohammed Omar Ali, var handtek-
inn á fimmtudaginn nálægt breska
þinghúsinu, en hann var með fjölda
hnífa á sér þegar lögreglan hafði
afskipti af honum. Mun breska
leyniþjónustan MI5 hafa fylgst
grannt með Ali síðustu vikurnar, en
talið er að meðlimur fjölskyldu
hans hafi hringt í lögregluna til
þess að vara við honum.
Í fyrrinótt lét síðan lögreglan í
Lundúnaborg til skarar skríða og
handtók sex manns í húsleit. Sú
rannsókn var ekki sögð tengjast
handtökunni á Ali.
Örfáum klukkutímum síðar gerði
lögreglan aðra húsleit, að þessu
sinni í norðurhluta Lundúna, þar
sem lögreglumenn skutu á konu,
sem sögð var hafa verið í búrku-
klæðum. Konan var flutt á sjúkra-
hús þar sem hún er í alvarlegu en
stöðugu ástandi. Sú húsleit er sögð
tengjast þriðja hryðjuverkamálinu.
Sagði talsmaður lögreglunnar að
hún teldi sig hafa komið í veg fyrir
að þessir hópar framkvæmdu áætl-
anir sínar. Hins vegar væri enn
ástæða til þess að vera vel á verði,
þar sem lögreglan hefði orðið vör
við mikla aukningu í starfsemi
hryðjuverkahópa.
Rétt rúmlega mánuður er liðinn
frá því að Khalid Masood ók bíl á
ofsahraða á vegfarendur á West-
minster-brú áður en hann stakk
lögreglumann við breska þinghúsið
til bana. Alls létust fimm manns í
þeirri árás.
AFP
Hryðjuverkahætta Lögreglumenn standa vörð um hús í norðurhluta Lund-
únaborgar, þar sem húsleit hafði verið gerð vegna hryðjuverkahættu.
Varað við hryðju-
verkahættu
Kona skotin í húsleit lögreglu
Donald Trump,
forseti Banda-
ríkjanna, segir í
viðtali við frétta-
stofu Reuters, að
það hafi komið
sér á óvart hve
erfitt starfið sé.
„Ég naut míns
fyrra lífs. Það
var svo margt í gangi,“ segir
Trump í viðtalinu, sem tekið var í
tilefni þess að 100 dagar eru liðnir
frá því hann tók við forsetaembætt-
inu. „Það er miklu meiri vinna en
áður. Ég hélt að þetta yrði auðveld-
ara.“
Trump segist vanur því að eiga
lítið einkalíf enda mikið í sviðsljós-
inu þegar hann var umsvifamikill
kaupsýslumaður. En nú keyrði um
þverbak og honum þætti óþægilegt
að þurfa öryggisgæslu allan sólar-
hringinn og bílstjóra. „Mér finnst
gaman að aka. Ég fæ ekki lengur
að aka sjálfur.“
DONALD TRUMP
Hélt að forsetastarfið
yrði auðveldara
Frelsi fjölmiðla í heiminum hefur
ekki verið minna í í þrettán ár, að
mati bandarísku stofnunarinnar
Freedom House. Vísar stofnunin í
nýrri skýrslu m.a. til ítrekaðra
árása Donalds Trumps, Banda-
ríkjaforseta, á fjölmiðla og hertra
aðgerða einræðisríkisstjórna.
Fjallað er um 199 ríki í skýrsl-
unni og fullyrt, að aðeins í 13%
þeirra ríki fjölmiðlafrelsi þar sem
stjórnmálamönnum sé veitt eðli-
legt aðhald, fjölmiðlamenn þurfi
ekki að óttast öryggi sitt og af-
skipti ríkisvalds af fjölmiðlum séu
lítil.
Frelsi fjölmiðla er, að mati stofn-
unarinnar, mest í Noregi, Hollandi,
Svíþjóð, Belgíu, Danmörku, Finn-
landi, Sviss, Lúxemborg, Andorra,
Íslandi, Liechtenstein og Palau.
Áfram dregur úr
frelsi fjölmiðla
Útflutningur matvæla frá Íslandi – staðan í dag
og þróun síðustu ára
Bryndís Eiríksdóttir, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu
Danski smásölumarkaðurinn– tækifæri fyrir
íslenskar vörur, áskoranir í flutningum og dreifileiðir
Gustaf Ólafsson rekur fyrirtækið Möllebakkens í Danmörku
sem sérhæfir sig í sölu á fiski og íslenskummatvælum í Evrópu.
Straumar og stefnur á danska matvælamarkaðinum
frá sjónarhorni kaupanda á fyrirtækjamarkaði
Martin H. Zielke er stjörnukokkur frá Danmörku og eigandi
fyrirtækisins Simply Cooking.
Grand hótel Reykjavík|4. maí | kl. 14-16
Íslandsstofa í samstarfi við Dansk-íslenska viðskipta-
ráðið býður til fundar um danska matvælamarkaðinn
fimmtudaginn 4. maí, kl. 14 á Grand hótel.
Fulltrúar fyrirtækja sem flytja út matvæli til Danmerkur segja
frá reynslu sinni.
Nánari upplýsingar og skráning á vef Íslandsstofu,
www.islandsstofa.is
Rússar vöruðu við því í gær á fundi
öryggisráðsins að hernaðarleg
lausn á kjarnorkuvopnaáætlun
Norður-Kóreumanna yrði „al-
gjörlega óásættanleg“ og að árás á
landið myndi hafa „hræðilegar af-
leiðingar“.
Gennadí Gatilov, aðstoðarut-
anríkisráðherra Rússlands, sótti
fund ráðsins í gær, og sagði að það
þyrfti að skoða betur tillögur sem
Kínverjar hefðu lagt fram, þar sem
reynt yrði að fá Norður-Kóreu-
menn aftur að samningaborðinu.
Hins vegar hefði sýnt sig að refsiað-
gerðir einar og sér myndu ekki
skila neinum árangri.
Gatilov tók fram að hegðun
Norður-Kóreumanna væri óviðeig-
andi. Fundi öryggisráðsins var ætl-
að að samræma viðbrögð við að-
gerðum Norður-Kóreumanna en
þeir hafa haldið áfram tilraunum
sínum með langdrægar eldflaugar,
þrátt fyrir að öryggisráðið hafi
ályktað gegn því.
AFP
Kórea Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna fundaði um Norður-Kóreu.
„Hræði-
legar af-
leiðingar“