Morgunblaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 35
þannig að tilboð mitt frá 2006 var
engin tilviljun. Hann er náfrændi
dætra minna, vinur og samstarfs-
félagi í senn. Ótímabært fráfall
hans hans er þyngra en tárum
taki.
Fjölskyldan var honum allt.
Berglind er mikil hetja í þessu
veikindaferli og börnin þrjú hvert
öðru yndislegra sömuleiðis. Hann
átti líka ástríki foreldra - þaðan
sem hann fékk sína miklu réttlæt-
iskennd og listamannshæfileika -
og bræðrahópurinn er einstakur.
Ég votta þeim öllum innilega sam-
úð mína.
Leikurinn á Akureyri endaði
með jafntefli - það var ekki mér að
þakka, liðsfélagarnir sáu um þá
ábyrgð. Nú leika bæði liðin okkar í
efstu deild og Freddi var afar
stoltur af því. Faðmlagið í leikslok
var ógleymanlegt. Þau urðu sem
betur fer langtum fleiri.
Það er óásættanleg tilhugsun
að fá ekki að upplifa ógleymanleg-
asta hlátur sem til er. Hann hafði
alltaf þau áhrif með nærveru sinni
að manni leið betur og það er
margs að minnast. Ég trúi því að
við munum leika einhvern tíma
saman á iðjagrænum völlum með
bros á vör. Guð blessi minningu
Friðfinns Hermannssonar.
Hákon Gunnarsson.
Hvíldu hjarta.
Húmblíð nóttin hefur fold í faðmi
sveipt,
mildir geislar mánans hafa
munarslæðum dalinn reift.
Bládögg vafin blómin hvíla,
blundar fugl á kvisti vær.
Sofðu einnig, órótt hjarta,
allt er þögult fjær og nær.
Hvíldu, hjarta, hvíldu.
Hvíldu, hjarta.
Sjá hve fljótið silfurlygna sveimar
hljótt
út í hafið ógnardjúpa
er því vaggar hægt og rótt.
Lát þú einnig, ljúfa hjarta,
ljósa drauma bera þig
burt frá sorg og burt frá kvíða,
burt frá vöku þyrnistig.
Hvíldu, hjarta, hvíldu.
(Hulda)
Í dag kveðjum við kæran vin og
samferðamann, Friðfinn Her-
mannsson, Fredda.
Hann var jafnaldri okkar og
skólabróðir á Akureyri og við nut-
um samvista við hann í skáta-
starfi, íþróttum, félagslífi og dýr-
mætri vináttu í áranna rás. Með
tímanum og árunum fækkaði sam-
verustundum eins og gengur en
alltaf áttum við góðar stundir
saman af og til og þá var eins og
tíminn hefði staðið í stað. Freddi
var máttarstólpi í öllu því sem var
skemmtilegt, hann mætti fyrstur
með gítarinn og fór yfirleitt síð-
astur heim, - honum þótti einfald-
lega svo gaman að vera til. Nú er
höggvið stórt skarð í okkar hóp
því sá sem var glaðastur og svo oft
miðdepillinn í hópnum er ekki
lengur með okkur.
Það er óraunverulegt að hugsa
til þess að slíkur lífskraftur sem
hann bjó yfir sé ekki ósigrandi, en
ljósið hans Fredda lifir sannarlega
áfram í minningum allra sem
þekktu hann og elskuðu. Allar
samverustundirnar, fjörið, gleðin
og söngurinn en líka djúpar og al-
varlegar samræður um lífið og til-
veruna, allt þetta var Freddi. Ég
veit ég mæli fyrir hönd gömlu fé-
laganna fyrir norðan þegar ég
kveð Fredda í djúpri virðingu og
þökk fyrir allt það sem hann gaf
okkur, hann var einstakur maður.
Elsku Berglind, börnin ykkar,
foreldrar og fjölskyldan öll, mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Inga Dagný Eydal.
Hann var einstakur og hvers
manns hugljúfi. Þetta eru þau orð
sem koma upp í hugann og lýsa
kannski best vini mínum og sam-
starfsfélaga, Friðfinni Her-
mannssyni. Upphaflega lágu okk-
ar leiðir saman fyrir allmörgum
árum þegar Friðfinnur hóf störf
sem framkvæmdastjóri á Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga. Það
var haldin ráðstefna á Akureyri
og við forstöðumenn sjúkrahúsa
gistum í sumarbústöðum í
Kjarnaskógi. Um kvöldið var
haldin kvöldvaka og þá dró þessi
ungi maður upp gítar og það var
byrjað að spila og syngja. Kvöld
þetta varð mjög eftirminnilegt og
rétt upphafið að mörgum ánægju-
legum samverustundum á þess-
um vettvangi. Það er einnig sterkt
í minningunni þegar þau hjónin
voru samferða okkur í bíl í árlegri
jeppaferð félags forstöðumanna á
Strandirnar, alla leið í Ófeigs-
fjörð. Þetta styrkti með okkur
ágætan vinskap sem hefur varað
síðan. Oft áttum við góð samtöl
saman þar sem heilbrigðismálin
voru rædd og kom fljótt í ljós hvað
áhugi Friðfinns var mikill á verk-
efninu. Hann var með miklar hug-
myndir um að auka afköst í heil-
brigðisþjónustu á svæðinu og
varð honum tíðrætt um forvarnir
og gildi þeirra. Einnig bar á góma
samstarf á milli sjúkrahúsa og þá
sérstaklega með sérfræðiþjón-
ustu í huga, en hann vildi gjarnan
fá lækna til þess að koma norður
og sinna ákveðinni sérfræðiþjón-
ustu sem ekki hafði verið til stað-
ar á Húsavík. Friðfinnur starfaði í
12 ár á þessum vettvangi og alltaf
var hann hrókur alls fagnaðar
þegar við framkvæmdastjórarnir
komum saman.
Eftir þessi 12 ár fór Friðfinnur
að vinna við ráðgjafastörf hjá
Capacent og fjölskyldan flutti
suður. Hann kom mikið að ráð-
gjafaþjónustu innan heilbrigðis-
kerfisins, bæði hjá heilbrigðis-
ráðuneytinu sjálfu og hjá einstaka
stofnunum. Hugmyndaauðgi
hans kom að góðum notum og er
óhætt að segja að honum hafi tek-
ist vel upp í hópavinnu að virkja
hugarafl þátttakenda til góðrar
niðurstöðu í hverju verkefni.
Fyrir nokkrum árum lágu leið-
ir okkar aftur saman þegar ég
settist í stjórn Alzheimersamtak-
anna. Friðfinnur hafði unnið
stefnumótunarvinnu með stjórn
samtakanna ári áður og varð það
til þess að leitað var til hans með
stjórnarsetu í samtökunum. Hon-
um var málið skylt, þar sem
tengdamóðir hans hafði greinst
með alzheimer. Samtökin standa í
mikilli þakkarskuld við Friðfinn
fyrir hans góðu vinnu við að efla
þjónustu við skjólstæðinga sína.
Samstarf okkar innan stjórnar
Alzheimersamtakanna leiddi síð-
an til þess að við fórum að vinna
saman við ráðgjafastörf undir
nafni fyrirtækis hans NOLTA,
sem hann stofnaði með vini sínum
Sigurjóni Þórðarsyni. Það er sárt
að sjá á eftir jafn gefandi og hæfi-
leikaríkum einstaklingi og Frið-
finni og verður hans sárt saknað.
Við hjónin vottum Berglindi, Ara,
Frey og Sólveigu Birnu okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Minningin um góðan vin mun lifa.
Árni Sverrisson.
Friðfinnur Hermannsson var
fæddur frumkvöðull, en hafði líka
þá ómetanlegu eiginleika sem
stjórnandi að skapa vaxtaskilyrði
fyrir það starfsfólk sem hann tók
að sér að leiða og þá starfsemi
sem hann trúði á.
Friðfinnur var hugaður yfir-
maður sem þorði að fara nýjar
leiðir og standa vörð um vaxtar-
brodda nýjunga í heilbrigðismál-
um sem og á öðrum sviðum.
Það var sama þó veðurskilyrði
nýræktarinnar væru á tíðum um-
hleypingasöm. Ef Friðfinnur
trúði á verkefnið þá skapaði hann
það gróðurhús sem gerði nýgræð-
lingnum kleift að vaxa og dafna.
Þegar ég bar það upp við hann
fyrir allmörgum árum að Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga tæki
að sér að þróa „Reyksíma“ sem
þjóna myndi landinu öllu, sá hann
það strax að Húsavík væri að
sjálfsögðu kjörinn staður fyrir
slíka þjónustu við lýðheilsu Ís-
lendinga.
Hann tók talsverða fjárhags-
lega áhættu sem stjórnandi til að
koma þjónustunni í gang, enda á
þeim tíma ekkert eyrnamerkt
fjármagn til slíks. Nú, um 17 ár-
um síðar, er Friðfinnur dáinn
langt fyrir aldur fram. Reyksím-
inn lifir hinsvegar áfram og í dag
er þjónustan fjármögnuð af yfir-
völdum heilbrigðismála og númer-
ið á öllum tóbaksafurðum sem
gjaldfrjáls stuðningur við þá sem
vilja fá aðstoð við að hætta tóbaks-
notkun.
Þjónustan ennþá rekin af Heil-
brigðisstofnun Norðurlands með
aðsetur á Húsavík, þrátt fyrir all-
ar hrakspár um að það væri ekki
hægt að tryggja slíkri þjónustu
vaxtarskilyrði utan stærri þétt-
býliskjarna. Okkur hefði aldrei
tekist að koma þessari þjónustu í
varanlegan farveg ef Friðfinns
hefði ekki notið við. Hafi hann
þökk fyrir það.
Við áttum saman notalega
stund í stofunni hans í Kópavogi
þegar ljóst var orðið stutt væri
eftir. Fjölskyldu hans sendi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Ásgeir R. Helgason.
Það er með mikilli sorg í hjarta
sem við kveðjum hann Fredda
sem hefur reynst okkur bræðrum
svo vel frá því við munum eftir
okkur. Það var alltaf mikil gleði í
kringum Fredda og munum við
eftir ófáum skiptum þar sem mik-
ið var hlegið, án þess að vita endi-
lega af hverju. Einstaki hláturinn
sem var svo smitandi, gleðin sem
geislaði af honum og þægilega
nærvera hans gerði alla daga
betri.
Við vorum svo lánsamir að
kynnast Fredda þegar við vorum
ungir á Húsavík í gegnum syni
hans og vini okkar, þá Frey og
Ara.
Það var mjög erfitt að horfa á
eftir fjölskyldunni í Árholtinu
flytja suður þegar við vorum ungir
en við erum mjög þakklátir fyrir
það að fjölskyldur okkar héldu
góðu sambandi þrátt fyrir að ekki
væri lengur hægt að ganga á nátt-
fötunum einum á milli húsa.
Freddi og Berglind sáu til þess að
við bræður vorum alltaf velkomnir
á heimili þeirra í Hjallabrekkunni
og er óhætt að segja að við höfum
heldur betur nýtt okkur það í
gegnum árin.
Freddi var stórkostlegur kokk-
ur og var alltaf jafnánægjulegt að
vera boðið í mat til þeirra hjóna.
Oftast var okkur reyndar ekkert
boðið heldur mættum við bara og
var það alltaf í besta lagi. Grilluðu
samlokurnar með bökuðum baun-
um, Freddapítsan í Árholtinu á
föstudögum og allar þær kvöld-
stundir sem við höfum átt við
veisluborðið í Hjallabrekkunni
skilja eftir einstaklega góðar
minningar.
Þegar við lítum til baka og
hugsum um þennan yndislega
mann er ekki annað hægt en að
brosa, því þannig var Freddi í
okkar augum. Alltaf brosandi, í
góðu skapi og alltaf til í að aðstoða
okkur við í rauninni hvað sem er.
Hvort sem það var ákvörðunar-
taka um leiklistarnám í New
York, ferilskrárgerð eða texta-
smíði fyrir fimmtugsafmæli
mömmu, Freddi var sérfræðingur
á öllum þessum sviðum enda gríð-
arlega fjölhæfur maður.
Það er því óhætt að segja að
Freddi var ekki bara pabbi vina
okkar bræðra, heldur miklu meira
en það og getum við sennilega
aldrei þakkað nægilega vel fyrir
allt sem hann og Berglind hafa
gert fyrir okkur.
Minning þín lifir, elsku Freddi.
Ármann Örn og Patrekur.
Ættarmót fjölskyldunnar frá
Strandseljum við Djúp var haldið í
júní á síðasta ári. Afi minn, Frið-
finnur Ólafsson, var þaðan og
nafni hans Friðfinnur Her-
mannsson flutti ræðu fyrir hönd
síns ættleggs. Salurinn engdist af
hlátri þegar Freddi, sem erfði
sagnagáfu afa, sagði sögur honum
tengdar. Svo greip hann gítarinn
og við sungum. Ég gleymi aldrei
þegar hann lagði til lagið Lífið er
lotterí – og stýrði af krafti. Hann
var þá mitt í harðri baráttu við
krabbamein. Þó að nokkrar vonir
væru bundnar við nýtt lyf sem
reyna átti um haustið sagði hann
að auðvitað liti þetta ekki sérstak-
lega vel út. En hann naut verunn-
ar fyrir vestan og gaf af sér með
gleði, söng og sögum af því örlæti
sem alltaf einkenndi hann í mann-
legum samskiptum.
Friðfinnur átti alltaf sérstakan
sess í huga mér. Við vorum jafn-
gömul og ég var meðvituð um
þennan frænda frá því að ég man
eftir mér. Og þó að við byggjum
aldrei í sama bæ sem börn – né
stærstan hluta fullorðinsáranna –
fór alltaf vel á með okkur þegar
við hittumst. Það var hægt að tala
við Friðfinn um allt – gaman og al-
vöru. Hann hafði svo skemmtilega
opna sýn á tilveruna. Og svo þorði
hann að vera hann sjálfur, líka
þegar hann var unglingur.
Í veikindunum síðasta vetur
rifjuðum við stundum upp löngu
liðna hluti, eins og þegar við fórum
á Dimmalimm (og hann sagði að
það yrði alltaf besta leikrit sem
hann hefði séð) og fórum í pylsu-
veislu hjá Báru frænku og vorum
vigtuð fyrir og eftir því að við ætl-
uðum að borða svo mikið að við
þyngdumst um kíló. Og við rifj-
uðum upp sögur úr fjölskyldunni,
sem við ætluðum að skrifa niður.
Af því varð aldrei. Kannski eru
þær hvort eð er ekkert skemmti-
legar nema Friðfinnur segi þær.
Það kom vel í ljós í veikindum
Fredda hvað hann er vinamargur
og vinasæll. Þegar kom að því að
hjálpa til og vera hjá honum kom-
ust stundum færri að en vildu. Því
að samvistir við Friðfinn voru gef-
andi og hvar sem hann var stadd-
ur í veikindunum var nærveran
hlý. Missir allra sem hann þekktu
er mikill. Fjölskyldu hans og ást-
vinum votta ég dýpstu samúð um
leið og ég þakka Fredda sam-
fylgdina og bið þess að engill Guðs
leiði hann nú veginn heim til him-
insala.
Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir.
Kveðja frá Knattspyrnu-
félagi Akureyrar
Góður félagi, Friðfinnur Her-
mannsson, eða Freddi, sem lést
hinn 17. apríl síðastliðinn, var KA-
maður af lífi og sál. Heimilislífið
þegar hann var að alast upp hefur
eflaust snúist töluvert um KA en
bræður hans og foreldrar tóku
einnig þátt í leik og starfi fyrir KA
og alltaf gott að leita til þeirra ef á
þurfti að halda.
Freddi var leikmaður meistara-
flokks KA í knattspyrnu til
margra ára og lék m.a. 55 leiki
með meistaraflokki í efstu deild og
fjölda leikja með 2. flokki. Síðar
sat hann einnig í stjórn KA.
Freddi var góður félagi, glaðvær
og hress og einstaklega skemmti-
legur liðsfélagi.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
Eg veit einn
að aldri deyr,
dómur um dauðan hvern.
(Úr Hávamálum)
Góður félagi er fallinn frá langt
fyrir aldur fram. Hans verður
saknað mjög og við minnumst
góðs drengs með þakklæti og virð-
ingu.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Fyrir hönd Knattspyrnufélags
Akureyrar votta ég eiginkonu
Fredda, börnum hans, foreldrum,
bræðrum og öðrum ástvinum
mína innilegustu samúð.
Hrefna Gunnhildur
Torfadóttir,
formaður KA.
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur -
rýmingarsala
50% afsláttur
Kolaportið
Stóri bóksalinn
Þorvaldur
Opið laugardag, sunnu-
dag og mánudag
kl. 11- 17
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Sumarhús í byggingu til sölu
64,1m2 sumarhús / starfsmanna-
aðstaða í byggingu til sölu.
Upplýsingar fást hjá
sveinnskorri@gmail.com
sími 893-0422
Sumarbústaðalóðir til sölu
í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár,
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864 og á facebook-síðu
okkar vaðnes-lóðir til sölu.
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar
í úrvali
Auk gullhringa eigum við m.a. hvíta-
gull, silfur, titanium og tungstenpör á
fínu verði. Demantar og vönduð arm-
bandsúr.
ERNA, Skipholti 3,
s. 5520775, www.erna.is
Óska eftir
Borðstofuhúsgögn
Óska eftir að kaupa borðstofuhús-
gögn úr tekki.
Upplýsingar í síma 861 6363.
Ýmislegt
Trúlofunarhringar
4 mm. 14 k. Verð 52 þúsund.
Eyjólfur Kúld, gullsmiður,
Hjallavegi 25,
sími 553 2104 eða 893 2104
Veiði
Sporhömrum 3
• Reynsla
• Þekking
• Gæði
Grásleppunet
Flotteinar
Blýteinar
og margt fl.
Lækkað verð
Höfummilligöngu
um nálfellingu á
grásleppunetum
S. 555 6090, 892 8655
heimavik.is
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
VIÐHALD
FASTEIGNA
Lítil sem stór verk
Tímavinna eða tilboð
℡
544 4444
777 3600
jaidnadarmenn.is
johann@2b.is
JÁ
Allir iðnaðarmenn
á einum stað
píparar, múrarar, smiðir,
málarar, rafvirkjar
þakmenn og flísarar.
Viðhalds-
menn
Tilboð/tímavinna
s. 897 3006
vidhaldsmenn.is
vidhaldsmenn@gmail.com
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com