Morgunblaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 29.04.2017, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2017 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS T E X T I 15.9 - 16.4.2017 Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019 Valin verk úr safneign STEINA - ELDRÚNIR (PYROGLYPHS) 4.3. - 20.8.2017 VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 17.09.2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti. SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 14.9.2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Steinholt-saga af uppruna nafna í Myndasal Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal Grímsey á Vegg Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi. Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið alla daga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið alla daga frá 10-17. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er alltaf gott að koma heim að syngja. Íslendingar eru svo kraft- miklir og drífandi í öllu tónleika- haldi. Orkan sem hér ríkir er öðru- vísi en annars staðar,“ segir Oddur Arnþór Jónsson barítón sem ásamt Gissuri Páli Gissurarsyni tenór syngur einsöng á vortónleikum Kórs Langholtskirkju í Langholtskirkju annað kvöld, sunnudag, kl. 20. Á efn- isskránni eru Messa di Gloria og Re- quiem eftir Puccini. Með kórnum leikur 30 manna hljómsveit undir stjórn Garðars Cortes. „Við Gissur höfum sungið mikið saman síðan við unnum fyrst saman í uppfærslu Íslensku óperunnar á Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini árið 2015. Hann er einn af uppá- haldskollegum mínum, því þó við séum mjög ólíkir þá hljómum við vel saman,“ segir Oddur sem söng nokkrum sinnum í nemendaupp- færslum undir stjórn Garðars Cort- es meðan hann nam við Söngskólann í Reykjavík þar sem Garðar er skólastjóri. Oddur hefur sterk tengsl við Langholtskirkju, því hann söng með Kór Langholtskirkju þegar hann var 20-25 ára, en hætti þegar hann hélt utan í söngnám. „Það ættu allir að syngja í kór því maður lærir ótrú- lega mikið á því, bæði félagslega og músíkalskt auk þess sem það er gott fyrir líkamann að syngja. Jónsi [Jón Stefánsson] veitti mér fyrstu sóló- tækifærin með kórnum sem var dýr- mæt reynsla. Mér finnst mjög mik- ilvægt að tónlistarlífið í Langholts- kirkju haldi áfram og vona að einhver taki við keflinu sem Jónsi skildi eftir sig og hugsi jafn vel um tónlistarstarfið og hann gerði.“ Vel skrifað fyrir raddir Aðspurður lýsir Oddur Messu di Gloria sem fallegu og áhrifaríku verki. „Puccini var aðeins 21 ára þegar hann lauk við að semja það ár- ið 1880,“ segir Oddur og rifjar upp að þremur árum áður hafi Puccini samið Credo-kafla verksins en talið er að tónskáldið hafi fengið inn- blástur að tónsmíðinni árið 1876 þegar hann sá Aidu eftir Verdi. „Puccini nam á þessum tíma kirkju- tónlist, en Messa di Gloria var síð- asta kirkjuverkið sem hann samdi áður en hann sneri sér alfarið að óp- erutónlistinni,“ segir Oddur og tek- ur fram að einstaklega gott sé alltaf að syngja Puccini. „Þessi ítölsku tónskáld skrifuðu svo vel fyrir raddir. Það virkar hreinlega eins og þeir hafi sjálfir sungið línurnar sem þeir skrifuðu og fundið hvað virkaði. Það er því alltaf gott að syngja þessa tónlist. Það er eins og laglínurnar séu endalausar í samspili hinna ólíku radda, þar sem ein rödd tekur við af annarri.“ Að sögn Odds er nóg að gera hjá honum á söngsviðinu. „Ég var að klára að syngja Wolfram í Tann- häuser eftir Wagner í Þýskalandi og í júní syng ég Schaunard í La bohème eftir Puccini í Hollandi,“ segir Oddur sem á leið um Ísland aftur síðar í sumar til tónleikahalds. Fjölmenni Garðar Cortes stjórnar Kór Langholtskirkju ásamt 30 manna hljómsveit á tónleikum annað kvöld. „Gott fyrir líkam- ann að syngja“  Oddur Arnþór Jónsson syngur með Kór Langholtskirkju annað kvöld  Flytja Messu di Gloria og Requiem eftir Puccini Morgunblaðið/Golli Vinsæll Oddur Arnþór Jónsson hef- ur í nógu að snúast á óperusviðinu. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Platan kallast Austfirskirstaksteinar 3 og fylgir íkjölfar platna sem komu út 1996 og svo 2003. Á plötunum hafa Friðjón og hans menn leitast við að varðveita lög og texta eftir austfirska laga- og textahöfunda. Á plötunni nýju er að finna lög og texta eftir sautján höfunda af Austurlandi en Friðjón er Héraðs- maður í húð og hár þó hann geri út frá Akureyri í dag. Þessi söfn- un Friðjóns er stæðileg en 2011 kom út 44 laga safndiskur með fyrri plötum sem hafa verið illfá- anlegar. Austfirskir staksteinar 1 og 2 prýða safnið en einnig platan Við tónanna klið (1997) sem hefur að geyma lög eftir Fáskrúðsfirð- inginn Óðin G. Þór- arinsson. Einnig er þar að finna lög sem komu upprunalega út á hinum ýmsu safnplötum. Í netspjalli við Friðjón upplýsir hann pistilhöf- und um það að „nú eru íslensku lögin sem við höfum gefið út orðin sextíu talsins og fjöldi höfunda á lög og texta, samtals fimmtíu og einn“. Friðjón er rekinn áfram af heillandi hugsjón, hann er með nef (og eyru) safnarans og í upplýs- ingabæklingi safndisksins má finna eftirfarandi stefnuyfirlýs- ingu: „Það er skoðun undirritaðs að verulega vanti á að varðveislu og útgáfu verka alþýðutónlist- armanna og textahöfunda sé sinnt sem skyldi og því miður á mikið af þessu efni eftir að fara for- görðum, en því verður ekki breytt nema með markvissum björgunaraðgerðum.“ Pistilhöfundur tók símaviðtal við Friðjón fyrir blað þetta er Austfirskir staksteinar 2 kom út og ég viðurkenni að áhuginn og eljan sem ég fann fyrir hinum Hin algera alþýðutónlist Friðjón Jóhannsson hefur staðið að virðingarverðu björgunarstarfi hvað íslenska dægur- og alþýðutónlist varðar. Fyrir stuttu kom út þriðja platan sem hefur þetta að markmiði og er hún undir hatti Danshljómsveitar Friðjóns Jóhannssonar sem fyrr. Sýning á nýjum málverkum eftir Þorra Hringsson myndlistarmann verður opnuð í Galleríi Fold í dag, laugardag, klukkan 15. Á sýningunni getur að líta lands- lagsmálverk sem Þorri hefur unnið á síðustu misserum og eru þau flest frá Haga í Aðaldal þar sem hann er með vinnustofu. Í tilkynningu er haft eftir Þorra að hann vilji helst mála landslag sem hann hefur tengingu við og því máli hann ekki Heklu eða Snæfells- jökul þó þetta séu fallegir staðir. „Ég elti ekki uppi náttúru í öðrum landshlutum. Það er þessi þröngi vinkill sem ég vinn í. Það er ekkert mál að mála Heklu og Þingvelli endalaust sem er rosalega þakklátt, en það er bara búið að gera það. Það er nógu erfitt að gera þetta sem ég er að gera en hitt er nánast útilokað að gera af einhverju viti. Því þá lendir maður stöðugt í þess- um samanburði við það sem búið er að gera,“ segir hann. Aðaldalur Eitt hinna nýju málverka úr dalnum fagra sem eru á sýningu Þorra. Sýning á nýjum málverkum eftir Þorra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.