Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 12

Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 12
AFP Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Á Vesturlöndum hefur Lolita kynferðislega skírskotun vegna sam- nefndrar og afar um- deildrar skáldsögu Vla- dimirs Nabokovs frá árinu 1955. Sagan fjallar um miðaldra prófessor í bókmenntum, sem fær kynferð- islegar langanir til tólf ára stjúpdótt- ur sinnar. Svokölluð Lolitu-tíska sem greip um sig sem hálfgert æði í Japan á tíunda áratug liðinnar aldar er á allt annarri blaðsíðu í allt annarri bók. Hún hefur enga tengingu við Lolitu hans Nabokovs eftir því sem næst verður komist. Lolitu-tískan mun þvert á móti eiga rætur í dálæti Japana á Hello Kitty, krúttlegri, lítilli kisu í teikni- myndasögu, sem kom fram á sjón- arsviðið árið 1974 og er núna heims- þekkt vörumerki. Í japanskri menningu vísar Lolita til þess sem er krúttlegt, glæsilegt og lítillátt en ekki tælandi á neinn hátt. Brúðulegar Lolitur í grasagarði Lolita er í Japan tengd ímynd þess krúttlega. Hello Kitty, lítil, sæt kisa í teiknimyndasögu varð innblástur tísku sem ekkert á sameiginlegt með þeirri Lolitu sem þekkist á Vesturlöndum. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is ALDE hitabúnaður, gólfhiti, aukin burðargeta (max 2000kg), 12V kerfi, TFT stjórnskjár, sjónvarps- armur. Thulemarkísa (4x2,5m). Raðnúmer 256198 KOMDUOG SJÁÐU! BY 560 CFE PREMIUM Glæsilegt nýtt hjólhýsi af flottustu gerð! Besta verðið! 5.490.000 Tvíeykið Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason ásamt hljóm- sveit halda stórtónleika kl. 20.30 annað kvöld, laugardag 20. maí, í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Hljómsveit- arstjóri er Börkur Hrafn Birgisson. Á dagskránni verður samantekt af bestu lögum þeirra, en þeir eiga ara- grúa laga sem lifað hafa með þjóð- inni í flutningi þeirra sem og annarra listamanna. Í ár eru 45 ár síðan fyrsta plata þeirra Magnúsar og Jó- hanns kom út. Leiðir þeirra lágu fyrst saman í hljómsveitinni Nesmenn, en þegar sveitin gafst upp 1968 héldu þeir félagar samstarfinu áfram. Seinna varð hljómsveitin Change til og undir hennar merkjum störf- uðu þeir að mestu á árunum 1973- 1975. Stórtónleikar í Bæjarbíói í Hafnarfirði Lög sem lifað hafa með þjóðinni Morgunblaðið/RAX Dægurlagasaga Fjölmörg lög liggja eftir þá Magnús og Jóhann og eru þau stór hluti af íslenskri dægurlagasögu, t.d. Ást, Dag sem dimma nátt og Yakety Yak. Það verður sannkölluð dansveisla í anda Þúsund og einnar nætur í Tjarn- arbíói kl. 20, annað kvöld, laugardag 20. maí. Flottustu magadansmeyjar Íslands í litríkum klæðum ætla að mjaðmahnykkja inn sumrinu með miklum tilþrifum – og aðeins á þess- ari einu sýningu. Áhugasamir ættu því ekki að láta tækifærið úr greipum sér ganga Magadans hefur verið iðkaður í fjölda dansstúdíóa á Íslandi síðan fyrsta magadansnámskeiðið var haldið hér snemma á tíunda áratugn- um. Gróskan er mikil og stílarnir og dansararnir fjölbreyttir. Nú koma hóparnir á höfuðborgarsvæðinu sam- an í Tjarnarbíói og búa til sýningu, sannkallaða dansveislu, sem allir ættu að hafa gaman af. Auk maga- dansins verða mergjuð gestaatriði þar sem salsa, burlesque og Bollywo- od koma við sögu. Að lokinni sýningu breytist danssviðið í austurlenskt diskótek þar sem gestir og dansarar láta gamminn geisa. Löng hefð er fyrir magadansi í Mið- Austurlöndum, en áreiðanlegar heim- ildir um upprunann eru samt nokkuð á reiki. Engu að síður er þar löng hefð fyrir magadansi sem þjóðdansi sem og listrænu tjáningarformi. 1001 nótt – dansveisla í Tjarnarbíói Magadans Dansmeyjarnar ætla að laða fram seiðandi stemningu. Mjaðmahnykkja inn sumrinu Hið árlega reiðhjólauppboð Lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu verður haldið kl. 11 til 13 á morgun, laugar- daginn 20. maí. Efalítið verður þar gnótt nothæfra farartækja og hægt að gera kjarakaup. Að minnsta kosti ætti ekki að saka að koma við í Skútuvogi 8 og líta á gripina. Endilega … … bjóðið í reiðhjól Kjarakaup Oft er þröng á þingi á reiðhjólauppboði lögreglunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.