Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 23

Morgunblaðið - 19.05.2017, Page 23
Almar Guðmunds- son, framkvæmda- stjóri Samtaka iðn- aðarins, skrifaði grein í Morgunblaðið þann 17. maí, þar sem hann fjallaði um nýja raf- orkustefnu samtak- anna og lýsti þeirri skoðun þeirra að minnka þyrfti mark- aðshlutdeild Lands- virkjunar á íslenskum raforkumarkaði og skapa skilyrði til samkeppni á markaðinum. Því ber að fagna, að Samtök iðn- aðarins láti sig skipan raforkumála varða. Almennt er hægt að taka und- ir með Almari, þegar hann segir að „samkeppni [sé] eitt besta tækið til að draga fram það besta og hag- kvæmasta í atvinnustarfsemi. Þann- ig er hag kaupenda og seljenda best borgið og ábati samfélagsins há- markaður.“ Og vissulega er rétt hjá honum að Landsvirkjun framleiðir um 70% af þeirri raforku sem framleidd er á Ís- landi. Það kann að þykja nokkuð hátt hlutfall, en við nánari skoðun kemur í ljós að málið er ekki svo ein- falt og ekki er rétt að túlka þetta hlutfall sem markaðshlutdeild fyrir- tækisins. Raforkumarkaður á Íslandi er tví- skiptur. Annars vegar er markaður fyrir stórnotendur, sem nota um 80% allr- ar orku sem unnin er í landinu. Hins vegar er heildsölumarkaður, þar sem orka er seld til sölufyrirtækja raf- magns – sem síðan selja orku til almennra fyrirtækja og heimila í landinu. Stórnotendamark- aður – alþjóðlegur samkeppnismark- aður Stórnotendamarkaður er sam- keppnismarkaður. Þar er um að ræða fyrirtæki sem geta ráðið því hvar í veröldinni þau hafa starfsemi sína og þar eru orkuverð og öryggi orkusölusamninga ráðandi þættir. Landsvirkjun er bara smáfyrirtæki á þeim markaði, með hlutdeild upp á brot úr prósenti. Því fer víðsfjarri að Landsvirkjun hafi markaðsráðandi stöðu gagnvart stórnotendum. Það er nánast hlægileg tilhugsun, því í flestum tilfellum er um að ræða stór, alþjóðleg fyrirtæki, sem eru fullfær um að gæta hagsmuna sinna. Enda er oft hart tekist á í samninga- viðræðum, þar sem mikið er undir. Þeir samningar sem undirritaðir hafa verið á undanförnum árum staðfesta að Landsvirkjun býður stórnotendum vel samkeppnishæft verð. Reyndar hefur eftirspurn eftir rafmagni frá Landsvirkjun verið meiri en fyrirtækið hefur getað ann- að, því nokkur fyrirtæki sem tilbúin hafa verið til að greiða uppsett verð hafa ekki getað fengið raforkusamn- inga. Stefna Landsvirkjunar hefur und- anfarin ár verið að hækka verð til stórnotenda, þannig að verð sem þeir greiða sé helst sambærilegt við það sem býðst í nágrannalöndum okkar. Ekki óeðlilega hátt, en ekki heldur óeðlilega lágt. Það er vegna þess að við berum þá skyldu gagn- vart eigendum okkar, íslensku þjóð- inni, að hámarka afraksturinn af þeim orkulindum sem okkur er trú- að fyrir. Okkur hefur gengið vel á þeirri vegferð og erum stolt af því að hafa lækkað skuldir fyrirtækisins um yfir 100 milljarða og fjármagnað fyrir- tækið án ríkisábyrgðar. Nú hillir undir að við höfum svigrúm til að auka arðgreiðslur til muna og búið er að ákveða að stofna Þjóðarsjóð, sem fengi þá fjármuni óskipta. Það er gríðarlegt hagsmunamál íslensku þjóðarinnar. Heildsölumarkaður – verð ekki fylgt almennu verðlagi Heildsölumarkaður með raforku; sala til almennra fyrirtækja og heimila, er annars eðlis. Þar var markaðshlutdeild Landsvirkjunar vissulega rúm 60% á síðasta ári, en hafa ber í huga að fyrirtækið ræður ekki eitt hlutdeild sinni á þessum markaði. Henni er einnig stjórnað af sölufyrirtækjum rafmagns, sem eru flest líka með sína eigin raforku- vinnslu, sem þau meta á hverjum tíma hvort nýtt er til sölu til stórnot- enda eða í smásölu til heimila og fyr- irtækja. Landsvirkjun er eina orku- fyrirtækið á Íslandi sem ekki rekur sitt eigið sölufyrirtæki. Ef vilji væri til þess að minnka markaðshlutdeild Landsvirkjunar á þessum markaði niður fyrir 50% þyrftu sölufyrir- tækin eingöngu að nýta um 40 mega- vött af sinni eigin vinnslu til smá- sölu. Til samanburðar má nefna að Búðarhálsvirkjun, sem er síðasta virkjun sem Landsvirkjun tók í rekstur, er 95 megavött. Verð Landsvirkjunar til sölufyrir- tækja rafmagns hefur ekki fylgt verðlagi á síðustu árum. Því er vand- séð að aðstæður á þessum hluta markaðarins þurfi að vera áhyggju- efni Samtaka iðnaðarins; hvort sem litið er til markaðshlutdeildar Landsvirkjunar eða verðþróunar að undanförnu. Hagsmunir íslensku þjóðarinnar Landsvirkjun var stofnuð fyrir rúmlega 50 árum til þess að vera öfl- ugur viðsemjandi við stórnotendur, með það markmið að skapa sem mest verðmæti fyrir íslensku þjóð- ina. Þá var samningsstaðan ekki sterk, en með tímanum hefur hún styrkst til muna og gert fyrirtækinu kleift að gæta hagsmuna eigenda sinna, íslensku þjóðarinnar, af sí- auknum krafti. Með því að skipta fyrirtækinu upp í smærri einingar væri verið að taka stórt skref aftur- ábak í þeim efnum og veikja samn- ingsstöðu Landsvirkjunar á stórum, alþjóðlegum samkeppnismarkaði. Allri málefnalegri umræðu um skipan raforkumála ber að fagna. Við fyrstu sýn virðist þó þessi stefna Samtaka iðnaðarins, eins og hún er nú sett fram, að mestu snúast um að vinna gegn þeirri þróun sem er að verða um þessar mundir á sölu til stórnotenda, þar sem raforkuverð hefur farið hækkandi og færst nær því verði sem sömu fyrirtæki greiða í nágrannalöndum okkar. Við skul- um vona að það sé misskilningur og oftúlkun, enda hafa Samtök iðnaðar- ins unnið gott starf í gegnum tíðina að ýmsum þjóðþrifamálum. Er Landsvirkjun of stór? Eftir Hörð Arnarson » Þeir samningar sem undirritaðir hafa verið á undan- förnum árum staðfesta að Landsvirkjun býður stórnotendum vel sam- keppnishæft verð. Hörður Arnarson Höfundur er forstjóri Landsvirkjunar. 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 Þeim fjölgar enn sem sækja um hæli á Íslandi eða alþjóðlega vernd eins og það heit- ir nú að lögum. Fjöldi umsókna á fyrstu fjór- um mánuðum þessa árs var samanlagt 287 eða næstum helmingi meiri en á sama tíma á síðasta ári (179). Árið 2014 sóttu 169 manns um hæli í landinu, árið 2015 voru þeir 354 og 2016 sóttu 1.133 um alþjóðlega vernd. Nú telur Þor- steinn Gunnarsson, sviðsstjóri hjá Útlendingastofnun, að í ár verði þessir umsækjendur á bilinu 1.700 til 2.000. Nú fjölgar í hópi Pakistana sem hingað sækja en Albanir og Makedóníumenn eru enn sem fyrr fjölmennasti hópurinn. Albanía, Makedónía og Pakistan eru „örugg lönd“. Þeir sem þaðan koma leita sér ekki verndar hér vegna stríðsátaka eða upplausnar í heimalöndum sínum. Áhlaup á landamærin Sigríður Á. Andersen dómsmála- ráðherra flutti erindi á fundi Varð- bergs fimmtudaginn 4. maí undir heitinu: Borgaraleg öryggisgæsla. Þar fjallaði hún um hlut stofnana á vegum nýendurreista dómsmála- ráðuneytisins við að gæta öryggis borgaranna. Allt eru þetta borgara- legar stofnanir en ekki hernaðar- legar og sinna því borgaralegri ör- yggisgæslu. Í máli sínu vék dómsmálaráð- herra sérstaklega að landamæra- vörslunni og mikilvægi hennar. Vitnaði hún meðal annars í áhættu- mat vegna landamæravörslu sem unnið var á vegum greiningar- deildar ríkislögreglustjóra og dag- sett er 21. febrúar 2017. Þar er farið í saumana á breytingunum miklu sem orðið hafa á þessu sviði á örfá- um árum. Vegna breytinganna hefur orðið bylting í borgaralegri öryggisgæslu. Ráðherrann sagði Ísland hafa orðið fyrir „áhlaupi“ með stórfjölgun hæl- isleitenda frá Albaníu og Makedón- íu. Er augljóst að íslensk stjórnvöld hafa ekki enn náð vopnum sínum vegna þessa áhlaups. „Nú er svo komið að álag við landamæra- vörslu á Keflavíkur- flugvelli er svo mikið að það ógnar getu lög- reglunnar til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Brugðist hefur verið við með auknum fjárveitingum, fjölgun starfsfólks, stofnun stoðdeildar ríkislög- reglustjóra vegna brottflutnings þeirra sem synjað er um alþjóðlega vernd, hraðari málsmeðferð í til- vikum þeirra sem óska alþjóðlegrar verndar og endurskoðun laga og reglugerða. Í ráði er að setja upp nýjan búnað til að auka skilvirkni svo sem sjálfvirk landamærahlið. Þrátt fyrir þetta er ljóst að enn frekari viðbragða er þörf,“ segir í áhættumati greiningardeildarinnar. Stefna stjórnvalda Sé ekki gripið til aðgerða sem duga eykst vandinn innan lands. Fólki fjölgar sem bíður hér eftir brottflutningi til heimalands síns, oft við erfiðar aðstæður. Allt leggst þetta einnig með miklum þunga á ís- lenska skattgreiðendur. „Hvert mál er þó skoðað sér- staklega á eigin forsendum með til- liti til viðeigandi upplýsinga á hverj- um tíma og það eitt að hælisleitandi sé frá ríki á listanum getur aldrei leitt til þess að Útlendingastofnun taki mál hans ekki til skoðunar eða synji umsókn hans án undangeng- innar rannsóknar“ segir á vefsíðu Útlendingastofnunar um umsóknir fólks frá öruggum ríkjum. Stjórnvöld í Makedóníu tregðast við að taka við ríkisborgurum sínum sé þeim vísað brott. Er brýnt að afmá þann þröskuld með samningi. Greiningardeildin bendir á að álag á landamærum haldist í hendur við þá stefnu sem stjórnvöld móta og fylgja hverju sinni. Í skýrslu deildarinnar er fjallað um það sem kallað er „aðdráttarafl“ fyrir hæl- isleitendur. Meðal slíkra þátta eru atvinnutækifæri, frelsi, skipulag vel- ferðarmála og almennar væntingar um betri möguleika í nýjum heim- kynnum auk þess sem vel er þekkt að reynsla og velgengni þeirra sem á undan hafa farið skiptir miklu. Framkvæmd stefnu íslenskra stjórnvalda hefur á undanliðnum misserum aukið „aðdráttarafl“ Ís- lands sem áfangastaðar fyrir far- andfólk frá Evrópu í leit að betri lífskjörum, segir greiningardeildin. Hún telur einnig að langur meðferð- artími útlendingamála á Íslandi virki sem aðdráttarafl. Hér á þessum vettvangi hefur hvað eftir annað verið vakin athygli á muninum á því hvernig íslenskir stjórnmálamenn fjalla um útlend- ingamál og umræðum um þau á stjórnmálavettvangi nágrannaland- anna. Engu er líkara en íslenskir stjórnmálamenn geri sér ekki grein fyrir að orð þeirra hafa áhrif langt út fyrir landamæri Íslands. Vegna skorts á samhljómi við sjónarmið annars staðar eru þau beinlínis vatn á myllu þeirra sem hagnast á því að hvetja fólk til að ferðast hingað og verða byrði fyrir íslenska skatt- greiðendur á meðan yfirvöld fara yf- ir ástæðulausa hælisumsókn. Skipulögð glæpastarfsemi Í áhættumatinu kemur fram að skipulögð glæpastarfsemi sé „ein mesta ógnin sem stafar að landa- mæravörslu og reyndar að öryggi samfélagsins í heild“. Líta megi á landamæravörslu sem fyrstu varnir samfélagsins gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Alþjóðavæðing glæpastarfsemi hefur kallað á aukið alþjóðlegt lög- reglusamstarf. Hefur þátttaka ís- lenskra löggæslustofnana í Evrópu- og Norðurlandasamstarfi reynst mikilvæg í þeirri baráttu sem fram fer hér á landi gegn skipulagðri brotastarfsemi. Greiningardeildin segir að hafa beri í huga að skipulögð glæpastarf- semi sé í auknum mæli reist á óformlegu og sveigjanlegu neti hópa sem starfa saman þvert á þjóðerni, kynþætti og menningu. Aukinn hreyfanleiki með aukinni tæknivæð- ingu, tíðari ferðum og fleiri áfanga- stöðum flugvéla auðveldi glæpahóp- um að efna til samstarfs og skipuleggja starfsemina þvert á landamæri. Sérstök úrlausnarefni Bandarískum ferðamönnum hefur fjölgað mjög hér, lætur nærri að fjórði hver ferðamaður á Íslandi hafi komið frá Bandaríkjunum árið 2016. Bretar eru næstfjölmennastir, þá koma Þjóðverjar, Frakkar, Kan- adamenn og Kínverjar. Þegar horft er til ríkja utan Schengen kemur í ljós að þaðan komu rúmlega 900.000 ferðamenn, rúmur helmingur heild- arfjöldans. Nú stendur fyrir dyrum að taka upp beint flug milli Ísraels og Ís- lands sem kallar á sérstakar örygg- isráðstafanir eins og öllum er ljóst sem ferðast hafa til og frá Ísrael. Bandarísk yfirvöld vöruðu nýlega Bandaríkjamenn við að ferðast til Evrópu af ótta við hryðjuverk. Dregur þetta úr fjölda ferðamanna á flugleiðum yfir N-Atlantshaf? Fækkar Bandaríkjamönnum sem hingað koma? Þessum spurningum verður ekki svarað hér og ekki held- ur því hvaða áhrif það hefur ef Bandaríkjastjórn krefst þess að far- tölvur verði bannaðar í farþegarým- um allra flugfélaga sem fljúga til Bandaríkjanna. Samhliða aðgerðum vegna sífelld- rar fjölgunar þeirra sem til landsins koma verður íslenska landamæra- varslan að bregðast skjótt og vel við öllum sérstökum úrlausnarefnum til að viðhalda trúverðugleika í örygg- ismálum. Forgangsverkefni Hvernig sem litið er á þróun út- lendingamála hlýtur að vera sam- staða um nauðsyn þess að stytta af- greiðslu- og dvalartíma þeirra sem hingað koma á ólögmætum for- sendum. Árangur á þessu sviði minnkar „aðdráttarafl“ Íslands, styttir óþægindi þeirra sem koma hingað á fölskum forsendum, léttir álagi af stjórnkerfinu og stöðvar fjárstreymi úr vösum skattgreið- enda. Lykilatriði er að efla allt greiningarstarf innan landamæra- vörslunnar til að halda þeim frá landinu sem liggja undir grun um ólögmætan tilgang komu sinnar hingað. Eftir Björn Bjarnason »Dómsmálaráðherra sagði Ísland hafa orðið fyrir „áhlaupi“ með stórfjölgun hælis- leitenda frá Albaníu og Makedóníu. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Áhlaupið á landamæri Íslands Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Öryggisgæsla Sérsveitarmenn við eftirlit í brottfararsal Keflavík- urflugvallar eftir hryðjuverkin í Brussel í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.