Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.05.2017, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2017 ✝ Stella ÞórdísGuðjónsdóttir fæddist í Reykjavík 15. apríl 1928. Hún andaðist á hjarta- deild Landspítalans 2. maí 2017. Foreldrar Stellu voru Guðjón Ingvar Eiríksson, f. 12. des- ember 1902, d. 22. ágúst 1989, og Guð- finna Magnúsdóttir, f. 23. mars 1892, d. 6. janúar 1976. Eiginmaður Stellu var Sig- urður Hafsteinn Konráðsson, f. 14. janúar 1929, d. 24. mars 2013. Þau giftu sig þann 14. júní 1952. Foreldrar Sigurðar Hafsteins voru Jónína Guðrún Sólbjarts- dóttir, f. 11. september 1907, d. 16. október 1965, og Jón Þórður Þorsteinsson. Kjörfaðir var Kon- ráð Ingimundarson, f. 26. júní 1886, d. 6. júlí 1957. Börn Stellu og Sigurðar Haf- steins eru þrjú: 1) Ómar, f. 10. apríl 1953, kvæntur Sigurbjörgu Karlsdóttur, f. 8. desember 1956. Börn þeirra: Orri, f. 31. janúar 1981, sambýliskona Hrefna Hlöð- versdóttir, f. 6. febrúar 1995. Dóttir þeirra er Birta Sól, f. 21. júní 2014. Arna, f. 26. júní 1985, sambýlismaður Jóhannes Helgi þaðan á Óðinsgötu og um 8 ára aldur á Barónsstíg 3a þar sem hún bjó sín uppvaxtarár og fyrstu hjúskaparárin. Um 1959 fluttist hún að Sólheimum 32 og bjó þar til dauðadags. Stella nam við Miðbæjarskól- ann í Reykjavík. Síðan tók hún kvöldnámskeið við Versl- unarskóla Íslands og Námsflokka Reykjavíkur. Stella hóf störf hjá Smjörhús- inu Irmu á fermingarárinu sínu. Henni var boðin þessi staða eftir að hafa borið út blöð hjá Dag- blaðinu Vísi í 2 mánuði. Eftir það vann hún í Vefnaðarvöruverslun Guðrúnar Þórðardóttur á Vest- urgötunni og síðan í búðinni Hjá Sóleyju. Stella sinnti börnum og búi eftir að börnin fæddust en eft- ir að börnin uxu upp byrjaði hún að vinna fyrir Rauða krossinn í sjálfboðavinnu, bæði á Landkoti og síðan í sjoppunni á Landspít- alanum. Eftir nokkur ár í sjálf- boðavinnu fór hún aftur að vinna í verslunum. Fyrst í Skóbúð Guð- mundar Gunnlaugssonar að Laugavegi 100 og síðan í Bóka- horninu í sama húsi. Vann hún þar þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Útför Stellu Þórdísar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 19. maí 2017, klukkan 13. Guðjónsson, f. 20. ágúst 1971, dóttir hennar og Kristjáns Grétarssonar er Karítas Lea, f. 3. febrúar 2010. Goði, f. 2. apríl 1991. Kær- asta Sara Andrea Ólafsdóttir, f. 16. desember 1994. 2) Bára, f. 29. janúar 1956, gift Kristjáni O. Þorgeirssyni, f. 9. maí 1955. Börn þeirra: Atli, f. 7. mars 1978, kvæntur Díönu Hilm- arsdóttur, f. 15. febrúar 1978, börn þeirra: Ísabella, f. 9. október 1998, og Hilmar Andri, f. 10. apríl 2009. Stella Rún, f. 6. júlí 1981, gift Einari Birgi Bjarkasyni, f. 17. maí 1979, börn þeirra Guðjón Leifur, f. 23. maí 2009, og Ólavía Karen, f. 14. nóvember 2010. Haf- steinn Dan, f. 14. desember 1984, sambýliskona Gerður Guðmunds- dóttir, f. 7. apríl 1988. Sandra Dís, f. 20. október 1990. 3) Erla, f. 15. júní 1962, gift Jóni Arnari Sverrissyni, f. 28. maí 1955. Börn þeirra: Sigurður Hafsteinn, f. 21. ágúst 1990, Rakel Ragnheiður og tvíburasystir hennar Íris Þórdís, f. 22. maí 1999. Óskírð dóttir Ír- isar, f. 29. apríl 2017. Stella bjó í Reykjavík alla tíð. Fæddist á Ránargötunni. Fluttist Með þessum orðum kveð ég þig mamma mín. Í byrjun voru fjárráð ekki mikil, en þið pabbi, með hjálp ættingja og vina, náðuð að byggja ykkur íbúð eins og al- gengt var á þeim tíma. Mér, 5 ára polla, þótti þá merkilegt að fylgja pabba og afa í þá vinnu. Þú gerðir þessa íbúð að fallegu heimili sem ykkur pabba þótti vænt um og náðuð þið bæði að dvelja þar fram á ykkar síðasta, enda vildir þú hvergi annars staðar vera. Heimahverfið var þá dálítið út úr kjarna borgarinnar og man ég ferðir með þér í strætó þar sem vagnstjórinn kallaði upp nöfn stoppistöðva á leiðinni, oftast nöfn á bæjum sem þar voru eða höfðu verið. Þér var mjög annt um að við systkinin gengjum menntaveginn og varst mjög stolt af okkur þeg- ar áfangar unnust á þeirri braut. Sjálf hafðir þú horfið frá námi eft- ir fyrsta árið í Verslunarskólan- um en vildir aldrei tilgreina ástæðuna fyrir því. Þú hafðir gaman af ferðalögum og saman fóruð þið pabbi til margra landa. Ekki varstu sjó- hraust en fórst þó nokkrar ferðir með Gullfossi og sögur um mis- munandi líðan ykkar urðu til. Einnig var ferðast innanlands og voru farnar ferðir þar sem þið, afi og amma og við tvö elstu systk- inin fórum í litlum bíl á milli landshluta. Ekki þótti þá óeðlilegt þó gera þyrfti við dekk einu sinni til tvisvar á leiðinni til Akureyrar. Þó þú hefðir yndi af ferðalögum og dýrum vildir þú ekki óhreinka þig og varst ávallt með teppi til að sitja á þar sem stoppað var fyrir hressingu. Þú lagðir alltaf áherslu á að vera vel til höfð. Þú varst ánægð með líf þitt og glöð þegar þið pabbi, bæði ein- birni, fóruð að eignast barnabörn og hvað þá barnabarnabörn. Gleði þín og hamingja skein þá af andliti þínu þegar þú fékkst nýjan einstakling í fang þitt. Þið voruð barngóð og hændust ömmu- og afabörnin að ykkur. Þú vildir ávallt láta gott af þér leiða og starfaðir sem sjálfboðaliði fyrir Rauða krossinn á sjúkrahúsum borgarinnar um skeið. Einnig styrktir þú barnahjálp í öðrum löndum. Þegar ellin sótti að fór minni þitt að bresta sem síðar var greint sem alzheimer. Það bar þó lítið á því framan af því þú tamdir þér þannig tilsvör. Þú varst heppin að halda getu til að búa á heimili þínu með hjálp góðs fólks eins og þú óskaðir þér. En þótt minnið brygðist var gleði þín óskipt í heimsóknum, sérstaklega þegar eitthvað af smáfólkinu kom. Ég kveð þig, mamma mín, um leið og ég minnist samverustunda okkar. Ég veit að það er vel tekið á móti þér og þú munt lifa áfram í hug- um barnaskarans sem kominn er. Ómar Sigurðsson. Elsku yndislega mamma mín hefur nú kvatt okkur og er farin til pabba. Nafnið hennar Stella þýðir stjarna og hún var leiðar- ljósið mitt í lífinu. Ég þurfti helst að tala við hana daglega. Segja henni fréttir og spyrja hana ráða. Hvern tala ég nú við? Í gegnum tíðina hefur hún verið mér og fjöl- skyldu minni ómetanleg stoð og stytta. Hjálpað þegar á þurfti að halda og passað barnabörnin. Ég vona að ég hafi getað gefið henni brot af þessari hjálp til baka í seinni tíð þegar hún þurfti á hjálp að halda, en mömmu fannst sjálf- sagt að hjálpa öðrum en þakkaði endalaust fyrir þá hjálp sem hún fékk. Mamma elskaði börn og dýr. Smáfuglar himingeimsins vissu að þeir gátu fengið mat hjá henni á köldum vetrum og kettir hverf- isins að þeir gætu gengið að ný- soðinni ýsu við dyrnar hjá henni og ekki fannst þeim verra þegar hún gaf þeim harðfisk. Hundar í fjölskyldunni gengu líka á lagið og vissu að hjá henni gátu þeir endalaust fengið góðgæti. Þeir þurftu ekki annað en ýta við henni með fætinum og mamma var stokkin á fætur að færa þeim eitthvað. Mamma var fyrirtaks húsmóð- ir, allt svo fínt og fágað. Bakaði vikulega meðan hún gat, því það varð að vera hægt að bjóða gest- um upp á heimabakað. Skemmti- legt fannst henni þegar hún sat með vinkonum sínum við kaffi- borðið og spjallaði við þær. Það var í den, en nú eru þær allar farnar og sitja eflaust í því efra og hafa það notalegt. Mamma var mjög hörð af sér. Kvartaði aldrei þó hún væri með daglega verki í baki og fótum hin síðari ár eftir að hafa brotnað. Hún lét verkina ekki stjórna sér heldur var einbeitt að njóta litlu hlutanna og lífsins í kringum sig. Hún naut þess að fá ættingjana í heimsókn og leið aldrei betur heldur en þegar hún var heima og hafði fólkið sitt í kringum sig. Og var hvað glöðust ef við vorum öll systkinin í heimsókn á sama tíma. Mamma hafði mikinn metnað fyrir hönd okkar systkinanna og vildi að við menntuðum okkur vel. Og hún var mjög stolt af barna- börnunum sínum og því námi sem þau tókust á við. Þetta fannst henni mjög brýnt því hún fékk ekki tækifæri til að mennta sig eins og hún hefði sjálf viljað, en vildi að niðjar hennar fengju notið menntunar. Pabbi og mamma náðu rúm- lega 60 ára hjónabandi áður en hann féll frá. Hún saknaði pabba og talaði oft um að hún hefði vilj- að fá að hafa hann lengur hjá sér. En nú hafa þau aftur sameinast og munu sameiginlega fylgjast með eftirlifendum sínum hér á jörðu og halda verndarhendi yfir þeim. Hvíl í friði, elsku mamma. Þín dóttir Bára. Elsku mamma mín hefur kvatt mig í hinsta sinn. Betri mömmu er ekki hægt að óska sér. Mamma var mín helsta fyrirmynd, hún var mín stoð og á hana gat ég alltaf treyst. Ég er henni afar þakklát fyrir allt sem hún hefur gert fyrir mig og fjölskyldu mína og allt sem við höfum gert saman. Mikið sakna ég hennar sárt. Ég talaði við mömmu á hverjum degi og hitti hana nær daglega. Það var alltaf jafn yndislegt að koma til hennar. Alltaf svo hlý, brosmild og jákvæð. Mamma var fyrirmyndarhús- móðir og höfðingi heim að sækja. Heimilið ávallt hreint og snyrti- legt. Alltaf veisluborð með bakk- elsi sem hún bakaði sjálf og svo framreiddi hún heitan mat bæði í hádeginu og á kvöldin. Allir voru velkomnir og urðu að þiggja hjá henni kaffi og með því. Dýrin mín og ókunnug líka „á ég ekki eitt- hvað í ísskápnum til að gefa þeim“ sagði hún. Mamma var börnunum mínum afskaplega góð og þau gátu alltaf leitað til hennar. Hún og pabbi pössuðu þau oft fyrir mig og dýr- in okkar líka. Alltaf var æðislegt að fara til ömmu í kaffi eða mat. Hjá henni bragðaðist allt svo vel. Mestu dýrgripir mömmu voru fjölskylda hennar og heimili. Mik- ið var hún glöð að fá tækifæri til að hitta og tala við nýjasta barna- barnabarnið sitt, sem fæddist að- eins þremur dögum áður en hún kvaddi. Mamma var einstök kona, stolt, alltaf fín og afskaplega gjaf- mild og mátti ekkert aumt sjá. Ég vissi t.d. ekki fyrr en ég var orðin fullorðin að hún hafði styrkt SOS- barnahjálpina í marga áratugi. Fram til síðasta dags hafði hún áhyggjur að hún myndi gleyma að gefa gjafir. Þrátt fyrir Alzheimer- sjúkdóminn gleymdi hún ekki að minna okkur á að sjá til þess að allir fengju sínar jóla- og afmæl- isgjafir. Mamma var líka mikið hörkutól sem kvartaði aldrei og gafst aldrei upp. Þrátt fyrir að brotna tvisvar illa á mjöðm og fæti á síðustu þremur árum, reis hún aftur upp og haltraði áfram. Ég vissi að hún var bæði kvalin í baki og fótum en þegar hún var spurð hvernig henni liði svaraði hún „ég hef það ágætt af gömlu hrói að vera“. Svo var hún enda- laust þakklát fyrir allt. Bara t.d. fyrir það að hún var heimsótt og ef eitthvert smáviðvik var gert bauð hún ávallt greiðslu, fannst hún ekki geta þakkað nóg. Mömmu fannst gaman að lesa og á sínum yngri árum að sauma út. Einnig að ferðast og skoða nýja staði. Hún og pabbi ferðuð- ust stundum til útlanda, m.a. til Brasilíu og Egyptalands. Henni fannst líka gaman að sinna versl- unarstörfum. Mamma var trúuð, fór með bænirnar sínar og bað fyrir fjölskyldunni. Hennar orð væru: Þótt ég sé látin, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvel- ur, þótt látin mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, lyft- ist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látin sé, tek þátt í gleði ykk- ar yfir lífinu. (Höf.ók.) Elsku mamma, ég kveð þig með sárum söknuði. Góða ferð og skilaðu ástarkveðju til pabba. Við hittumst öll aftur síðar. Þín dóttir Erla. Hún var hávaxin, hárið svart, bláu augun tindruðu og brosið var breitt. Þetta er fyrsta minning mín um Stellu frá því ég hitti hana fyrst í maí 1978. Ég var yfir mig ástfangin af syni hennar en við festum ráð okkar þetta sama ár. Þannig að í 39 ár átti ég því láni að fagna að eiga hana sem tengda- móður og er ég afar þakklát fyrir þann tíma. Hún reyndist mér vel og var ávallt boðin og búin að rétta hjálparhönd. Stella var mikill dýravinur og fóðraði fugla og ketti í nágrenn- inu. Hún spjallaði við aðalvininn, köttinn Púka. Fékk hann oftast soðinn fisk en ef hann var ekki til bað hún köttinn afsökunar á því og gaf honum skinkusneið. Húm- orinn hennar tengdó var skemmtilegur, hún gerði grín að sjálfri sér og atvikum úr daglega lífnu og hló með okkur. Stella var skemmtileg í sam- skiptum og skapgóð, en ef henni líkaði ekki eitthvað þá sagði hún það umbúðarlaust. Hún var hreinskiptin og heiðarleg. Hvort tveggja eiginleikar sem ein- kenndu Stellu. Stella var myndarleg húsmóð- ir, bakaði góðar kökur og lagði sig fram um að öllum liði vel sem hjá henni voru. Tengdamamma var vel greind og fannst fátt skemmtilegra en að lesa góða bók. Það var því við hæfi þegar hún fór aftur á vinnumarkað að hún starfaði lengst af í bókabúð þar sem hún sinnti sínu starfi af metnaði og alúð. Tengdamamma var stolt af af- komendum sínum og fylgdist ætíð vel með hvað börn, barnabörn og barnabarnabörn voru að gera á hverjum tíma, hún var hvetjandi og studdi krakkana af mikilli ein- lægni. Hún var umhyggjusöm amma og hafði raunverulegan áhuga á sínu fólki. Stella hafði glímt við veikindi síðustu árin, hún tók veikindum af æðruleysi og hló að gleymsku sinni. Hún hélt í sinn meðfædda glæsileika alla tíð, var ung í anda og leit alltaf vel út með nýlagt hárið og fallegan varalit. Þó þú sért farin í Sumarlandið munu minningar um elsku þína sem og umhyggju og rausnarskap Stella Þórdís Guðjónsdóttir Kæri vinur. Þú kvaddir þennan heim 8. janúar 2017. Það var þín hinsta ósk að útför þín yrði látlaus og í kyrrþey. Hinn 23. janúar var haldin falleg athöfn í kapellu Fossvogskirkju. Með þér er genginn góður og tryggur vinur sem ég mun sakna mikið um ókomin ár. Þegar ég var 17 ára gömul og fór til sjós hjá Eim- skipafélagi Íslands þá var Elli fyrsti maður til að kynna sig fyrir mér og frá þeirri stundu var ég undir hans verndarvæng og þáði mörg og góð ráð um lífið og til- veruna. Við áttum einlægan og einstak- an vinskap í 45 ár sem aldrei bar skugga á þó leiðir mínar lægu til Los Angeles þar sem ég giftist og eignaðist soninn Jonathan. Elli vinur minn fylgdist með uppvexti hans og drengnum mínum þótti vænt um hann eins og mér og kallaði hann ávallt Ella frænda. Við skrifuðumst alltaf á og fengum þannig fréttir af lífi hvort annars. Seinni ár hef ég hringt tvisvar í viku til að fá fréttir og spjalla um heima og geima. Ég hef komið heim árlega síðustu tíu ár og alltaf er fyrsta verk að kíkja til Ella míns. Við áttum oft góðar stundir þar sem ég eldaði uppá- halds matinn hans og við gátum endalaust spjallað og hlegið sam- an. Er við hittumst síðast í apríl 2016 tók ég eftir að sjónin var far- in að daprast en þú kvartaðir ekki og lífsgleðin skein í gegn. Síðasta samtal okkar áttum við á aðfanga- Erlendur Árnason ✝ ErlendurÁrnason fædd- ist 12. maí 1920. Hann lést 8. janúar 2017. Útför hans fór fram í kyrrþey 23. janúar 2017. dag 2016 þá var ég að fara til Tókýó að heimsækja son minn og fjölskyldu, Ella mínum var mikið í mun að ég skilaði kærri kveðju til litlu fjölskyldunnar í Japan og tók loforð af mér að vera í sam- bandi þegar ég kæmi til baka. Ég stóð auðvitað við það en ekkert svar, þá grunaði mig að ekki væri allt með felldu og hringdi í vinkonur okkar þær Ingibjörgu og Hrafnhildi sem oft litu inn til hans. Þá fékk ég slæm- ar fréttir, minn kæri vinur var orðinn mikið lasinn. Ég er þakklát vinkonum okkar fyrir að hafa gef- ið sér tíma til að fylgjast með og líta til hans. Guðbjartur og fjöl- skylda voru líka umhyggjusöm og margar skemmtilegar samveru- stundir áttum við sem ég er svo þakklát fyrir, alltaf var mér boðið með ef ég var heima á Íslandi. Elsku Elli minn, ég kem nú aft- ur til Íslands til að fylgja þér síð- ustu skrefin eins og þú lagðir mikla áherslu á við mig síðustu ár. Þú varst löngu búinn að ákveða að hvílustaður þinn skyldi verða á Patreksfirði við hlið Ólafs bróður þíns sem lést árið 2011. Þangað mun ég fara með duftkerið þitt og kveðja þig í hinsta sinn. Ég vona að þú sért jafn þakklátur og ég fyrir vinskap okkar og að vera kominn á þann stað sem þú óskað- ir þér, elsku vinur. Blessuð sé minning þín, við hittumst aftur. Drottinn guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina. (Úr Davíðssálmum) Þín vinkona, Katrín Gunnarsdóttir Johnson (Fabbiano). Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR M. GUÐMUNDSSON, fv. aðstoðaryfirlögregluþjónn, Bláskógum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum 16. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 24. maí klukkan 13. Guðrún Jónsdóttir Magnús Fjalar Guðmundsson Bryndís Friðriksdóttir Fjölnir Guðmundsson Trine Houmøller Erna Guðmundsdóttir Halldór Magnússon og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT RAKEL TÓMASDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Grund þriðju- daginn 16. maí. Útför hennar fer fram frá Neskirkju föstudaginn 26. maí klukkan 13. Már Guðmundsson Elsa S. Þorkelsdóttir Snorri Guðmundsson Ingibjörg Geirsdóttir Magnús Tumi Guðmundsson Anna G. Líndal Elísabet Vala Guðmundsd. Sigurður Þór Baldvinsson barnabörn og barnabarnabörn JÓNA SÍMONARDÓTTIR SIGURÐSSON lést í Denver, Colorado, 3. apríl. Jarðað verður í Hrepphólakirkju föstudaginn 7. júlí klukkan 16. Aðstandendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.