Freyr - 01.10.2005, Qupperneq 12
HROSSARÆKT
tölt, brokk, skeíð, stökk, fegurð í reið og
fet.
Fjörgyn frá Kjarnholtum I og Daníel
Jónsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson).
Þriðja í elsta flokki varð Álfrún
IS1998225296 frá Reykjavík (B:8,24
H:8,52 A:8,41). Eigandi Álfrúnar er Sig-
urður Ragnarsson og knapi var Steingrim-
ur Sigurðsson. Faðir Álfrúnar er Oddur frá
Selfossi og móðir Álfadís frá Kópavogi.
Álfrún er vel byggð með jafnan og góðan
dóm hæstu einkunnir eru 8,5 fyrir höfuð,
bak og lend, samræmi og fótagerð. (
hæfileikunum er hún jafnvíg og góð á öll-
um gangi hæstu einkunnir 9,0 fyrir vilja
og geðslag og 8,5 fyrir tölt, brokk, stökk,
fegurð í reið og hægt stökk.
Álfrún frá Reykjavík og Steingrímur
Sigurðsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson).
HRYSSUR6 VETRA
( sex vetra flokki stendur efst eftir árið
snillingurinn Maístjarna IS1999276212 frá
Útnyrðingsstöðum (B:7,96 H:8,77
A:8,45). Eigandi Kvistir ehf. en knapi
Þórður Þorgeirsson. Faðir Maístjörnu er
Gustur frá Hóli, ff. Gáski frá Hofsstöðum,
fm. Abba frá Gili. Móðir Maístjörnu er
Glóð frá Útnyrðingsstöðum, mf. Blakkur
frá Jaðri, mm. Rauðka frá Brekkugerði.
Mafstjarna er rétt undir 8,00 í sköpulagi
en þó hvergi lág, hæst er fótagerðin 8,5.
Hvað hæfileikana varðar er Mafstjarna
hreinn gæðingur með allar gangtegundir
góðar hæst 9,0 fyrir tölt, skeið og vilja og
geðslag og 8,5 fyrir brokk, fegurð í reið
og fet. Maístjarna var fulltrúi okkar (slend-
inga í þessum flokki á HM og stóð þar
efst.
Maístjarna frá Útnyrðingsstöðum og Þórður
Þorgeirsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson).
Önnur í þessum flokki varð Lyfting
IS1999255267 frá Síðu (B:8,03 H:8,70
A:8,43). Eigandi Bára Elíasdóttir og knapi
Sigurður Óli Kristinsson. Faðir Lyftingar er
Hrannar frá Kýrholti og móðir Saga frá
Syðra-Langholti. Lyfting er rétt yfir átta í
byggingu, nokkuð er þar um ójafnar ein-
kunnir því hæst er 9,0 fyrir bak og lend en
aðeins 7,0 fyrir höfuð og 6,5 fyrir prúð-
leika, sem hvort tveggja er í lægri mörk-
um. Hvað hæfileikana varðar er Lyfting;
viljugur, rúmur og gripamikill alhliða gæð-
ingur þó klárgangurinn sé bestur. Hæst er
hún með 9,5 fyrir vilja og geðslag, 9,0 fyr-
ir tölt og stökk og 8,5 fyrir brokk, fegurð í
reið og hægt tölt.
Lyfting frá Síðu og Atli Guðmundsson.
(Ljósm. Eiríkur Jónsson).
Þriðja í sex vetra flokknum varð Þruma
IS1999287759 frá Hólshúsum (B:8,46
H:8,36 A:8,40). Eigendur eru Helgi Jón
Harðarson, Hannes Sigurjónsson og Er-
lingur Erlingsson. Knapi var Erlingur Er-
lingsson. Faðir Þrumu er Þorri frá Þúfu og
móðir Blika frá Hólshúsum. Þruma er með
feikngóða byggingareinkunn þar sem
hæst ber 9,5 fyrir hófa, 9,0 fyrir samræmi
og 8,5 fyrir háls og herðar. Hvað varðar
hæfileikana er Þruma úrvals klárhryssa
með 9,5 fyrir tölt, 9,0 fyrir vilja og geðs-
lag, fegurð í reið og hægt tölt og 8,5 fyr-
ir brokk.
Þruma frá Hólshúsum og Erlingur
Erlingsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson).
HRYSSUR5 VETRA
Á árinu varð efst í fimm vetra flokknum
Sefja IS2000282210 frá Úlfljótsvatni (B:8,00
H:8,78 A:8,47). Eigendur eru Lilja Pálma-
dóttir og Baltasar Kormákur, knapi Erlingur
Erlingsson. Faðir er Gusturfrá Hóli og móð-
ir er Sokka frá Úlfljótsvatni, mf. Mósi frá Úl-
fljótsvatni og mm. Katla frá Úlfljótsvatni.
Sefja er með slétta 8,00 í byggingu þar sem
hæst ber 8,5 fyrir samræmi og hófa en
lægst er 6,5 fyrir prúðleika. Sefja er gædd
miklum hæfileikum af fimm vetra tryppi að
vera, fljúgandi alhliðageng, hágeng og
rúm, hæstu einkunnir 9,0 fyrir brokk, skeið,
vilja og geðslag og fegurð í reið og 8,5 fyr-
ir tölt, stökk og hægt tölt.
iifÁm A Ai ■rlíPi pgriLjg
Sefja frá Úlfljótsvatni og Erlingur Erlingsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson).
( öðru sæti í þessum flokki varð Örk
IS2000235006 frá Akranesi (B:8,22 H:8,44
A:8,35). Eigandi Smári Njálsson og knapi
Jakob Sigurðsson. Faðir Arkar er Markús frá
Langholtsparti og móðir Ösp frá Lágafelli.
Örk er bæði með háa byggingareinkunn og
hæfileikaeinkunn sem gæðingi sæmir. (
byggingunni ber hæst 9,0 fyrir bak og lend
og 8,5 fyrir háls og herðar og samræmi. (
hæfileikunum er hæst 9,0 fyrir vilja og
geðslag og 8,5 fyrir brokk, skeið, stökk og
fegurð I reið.
FREYR 10 2005