Freyr - 01.10.2005, Qupperneq 26
STEINSMÍÐ
I
Steinsmíði
Unnt er að nota náttúrulega steina
víða sem kantsteina og í stoðveggi.
Hleðslumenn hafa þar mikið svig-
rúm til að skipuleggja og úthugsa
góðar lausnir og vanda til þess sem
vel á að standa. Það er sem fyrr
norski blaðamaðurinn Helge Haug-
en sem skrifar um steinsmíðina en
viðmælandi hans er Erik T. Skrett-
ing, fyrrverandi bóndi.
Mikilvægt er að nýta steina úr nágrenninu
en það styrkir heildaráhrif verksins í um-
hverfi sínu. Gott er að byrja á að safna sam-
an sem mestu af steinum og dreifa þeim
um vinnusvæðið, þannig að auðvelt sé að
velja rétta steina eftir því sem vinnunni vind-
ur fram.
KANTSTEINAR
Eðlilegt er að afmarka hlöð og heimreiðar á
bæjum með kantsteinaröð. Framhlið kant-
steinanna á að vera 35-50 sm há og helst
einn metri eða meira á lengd.
Fyrst er grafin renna þar sem kanturinn á
að liggja. Lausa efnið er fjarlægt og botninn
jafnaður. Lag af púkki eða möl í rennunni
auðveldar að koma steinunum fyrir. Þar sem
kantsteinarnir eru lagðir í halla er hag-
kvæmt að leggja drenlögn á bak við þá til
að koma í veg fyrir úrrennsli og frosthreyf-
ingar. Drenlögnin stuðlar einnig að því að
halda umferðarsvæðinu þurru.
Hæð kantsins fer eftir aðstæðum en
hann verður að vera það hár að enginn
freistist til að aka upp á hann. Til að gegna
Steinunum hnikað á sinn stað. Það er mikil-
vægt að fyrirfram ákveðinni línu sé haldið.
- Kantsteinar og
þessu hlutverki þurfa steinarnir að vera
grafnir 15-20 sm íjörðu.
Eftir að steinarnir eru komnir á staðinn og
dreift hefur verið úr þeim velur hleðslumað-
urinn steina sem falla vel saman, e.t.v. með
því að höggva þá svolítið til. Þar sem sveig-
ur er á veggnum er gott að nota sér eðlilega
sveigju á steinunum eða þá að þar eru not-
aðir styttri steinar. Steinar sem einungis
passa á sérstökum stað eru lagðir fyrst. Því
næst eru valdir steinar sem falla eðlilega að
framhaldinu. Neðsta steinaröðin þarf ekki
að vera endanleg í fyrstu og hleðslumaður-
inn þarf að vera viðbúinn því að flytja þar til
steina. Orðtakið segir að það þurfi að flytja
stein sjö sinnum áður en hann er kominn á
réttan stað.
Sléttasta og fallegasta hliðin á steinunum
er látin snúa fram þannig að sem minnst
þurfi að fínhöggva. Minna máli skiptir hvort
hliðin sem snýr inn sé ólöguleg, hún hverf-
ur.
Óklofnir steinar úr náttúrunni eru oft
mjög breytilegir að stærð og lögun. Það
getur því verið erfitt að hlaða áferðarfalleg-
an vegg úr þessu efni. Steinarnir þurfa að
vera sem einsleitastir, en að öðru leyti er
verkið hið sama og úr tilhöggnu grjóti.
Gæta þarf þess að fylgja þeirri línu, sem val-
in hefur verið, bæði framhlið og að ofan.
STOÐVEGGUR
Þetta er veggur sem byggður er í halla til að
fá láréttan flöt. Ef veggurinn er hár þarf að
vanda til hans sérstaklega vel og þá einkum
ef þung umferð er ofan á honum. Traustir
stoðveggir verða að þola þunga umferð og
titring frá henni.
Við innkeyrsluna eru steinarnir lagðir í sveig.
Þar er gott að nota steina með bogalínu.
stoðveggir 3. þáttur
Tilgangurinn með stoðvegg er, auk þess
að móta framhliðina, að stækka lárétta flöt-
inn frá veggnum og inn á við. f reynd er því
veggurinn hafður brattari en hallinn sem
hann stendur við. Af því leiðir að töluvert
meira efni fer í það að fylla upp á bak við
vegginn en í fljótu bragði er séð.
Ef stoðveggur á að vera frambærilegur er
gott að nota klofinn stein í hann. Þar sem
skriðjöklar hafa farið um er þó oft unnt að
finna flata náttúrulega steina sem eru góð-
ir í svona hleðslu.
Byrjað er á að fjarlægja alla mold þar sem
veggurinn á að standa og helst grafa niður
fyrir frost. Botninn er síðan jafnaður með
smásteinum eða púkki. Fyrsta steinaröðin á
að liggja minnst 15-20 sm undir yfirborð-
inu. Undir eða bak við botnröðina er mælt
með því að leggja drenlögn. Stærstu undir-
stöðusteinarnir eru alltaf lagðir með lang-
hliðina inn í vegginn. Gæta þarf þess að
grunnur hleðslunnar sé hornréttur á úthlið
veggjarins, til þess að koma I veg fyrir að
hann skríði fram (hlaupi).
Þrýstingur á yfirborðið bak við stoðvegg
getur orðið afar mikill.
Ef veggurinn á að þola umferð verður að
„binda" hann. Það gerist með því að hluti
steinanna er látinn ná langt inn í uppfylling-
una aftan við vegginn. Hversu margir stein-
ar það eru fer eftir aðstæðum en þeir verða
vart of margir. Ef það er ber klettaveggur á
bak við eða óstöðugt lausaefni, þarf að
huga sérstaklega að þvf að leggja steina og
fylliefni þannig að það skríði ekki á undir-
laginu og þrýsti múrnum fram. Til að
tryggja sig er unnt að bora holur fyrir
steypustyrktarjárn eða sprengja burt pláss
fyrir stóra hleðslusteina. Gætið þess að ekki
séu settir steinar (uppfyllinguna sem mynda
Við blómabeð er gott að nota steina með
20x20 sm þversnið.
□ FREYR 10 2005