Freyr

Volume

Freyr - 01.10.2005, Page 29

Freyr - 01.10.2005, Page 29
VIÐTAL skattgreiðslum sem reiknuðust af tekjum ársins á undan. Ég átti því tiltölulega auð- velt með að hætta. Ég vissi um aðra sem færðu sig til innan fagsins, sinntu t.d. sér- sviði eins og sæðingum og flutningum fóst- urvísa. Þeir voru áfram þátttakendur í þess- um sama „sirkus" en í vissri fjarlægð frá sínu sérsviði. Annað sem mér Kkaði ekki var viss gjá sem ríkti milli bóndans og dýralækn- isins. Maður hafði oft á tilfinningunni þegar bóndinn hringdi að hann væri ekki ánægð- ur með að þurfa á dýralækninum að halda. Hann var kannski búinn að nota lyf sem leg- ið höfðu á hillu inni í fjósi síðan síðast, dá- lítið af fúkkalyfjum, örlítið bólgueyðandi, til þess að spara, því læknisþjónusta er dýr þar eins og annars staðar. En dýralækninum var ekki alltaf sagt hreinskilnislega frá því sem gert hafði verið á búinu. I stuttu máli hætti ég vegna þess að ég áttaði mig á að til þess að fá einhverju ágengt ( faginu þyrfti að kafa dýpra en í mínu valdi var. Grundvallarspurningin er um „að vera eða að eiga". Árátta okkar að ásælast meira og meira leiðir okkur til að missa virðinguna fyrir dýrunum." Kom ekki til greina að fara frá húsdýr- um yfir í gæludýr? „Ég sinnti reyndar oft gæludýrum í lok vinnudags, síðustu einn eða tvo tímana. ( rauninni var oft meiri þörf á því að lækna eig- andann en sjálf dýrin! ( stað þess að vera hreinskilinn um ástand dýranna þurfti að setja á svið leikrit fyrir eigendurna en það átti ekki við mig. Skömmu áður en ég hætti gerði ég tilraunir með akúpúnktúr (innsk. blm.: nála- stungur) og hómópatíu á smáu dýrin. Það skilaði stundum ágætum árangri en til þess þarf eigandinn að þekkja dýrið sitt vel, venjur þess og hagi, en það var ekki alltaf tilfellið." SÖÐLAÐI UM - DJASS OG RUDOLF STEINER „Það eru komin fimmtán ár núna síðan ég hætti í dýralækningunum. Ýmsir voru hissa á mér að hætta eftir allt þetta nám en fjöl- skyldan skildi mig. Mig langaði að snúa mér að listum en mér finnst þær leið til að finna aftur virðingu fyrir lífinu og náttúrunni, og þá er ég ekki að tala um að standa í andakt fyrir framan Picasso heldur taka sér pensil í hönd og mála t.d. blóm. Fyrsta árið var ég í því að mála og hafði af því mikla skemmt- un. Svo gekk ég til liðs við leikhóp með nokkrum félögum og það fór líka ár í það. Þriðja árið sökkti ég mér í djass og lék á saxófón með hljómsveit. Við áformuðum að ferðast um landið, spila og selja kasettur þegar það var einn dag að kunningi minn sagði mér frá Rudolf Steiner og kenningum hans. Það væri eitthvað fyrir mig. Ég fór á námskeið um Steiner, las bækur hans og sá að ég gat tengt listsköpunina við hans hug- myndir, málaralistina, leiklist og tónlist, þó ekki kannski djass." Hvernig kom það svo til að þú settist að á íslandi? „Á námskeiði á Englandi kynntist ég svo ís- lenskri konu og þannig kom ég til íslands. Mín fyrsta vinna var (listasmiðjunni í Sólheim- um í Grímsnesi. Ég hef svo ílengst hér. Það slitnaði upp úr sambandinu en ég á dóttur hér á landi. Núna vinn ég í Waldorfleikskólan- um Sólstöfum og uni hag mínum vel. Wal- dorfskólarnir byggja á kenningum Rudolfs Steiners. Þar er umhyggja fyrir náttúrunni höfð í hávegum og við notum t.d. lífrænt ræktað grænmeti eftir föngum ( hádegismat handa börnunum. Það hefur ekki freistað mín að koma aftur að landbúnaði eða dýralækn- ingum. fslendingar eiga hreint og fagurt land en mér virðist sem sama framleiðslustefnan hafi rutt sér til rúms hér, allavega er borið á túnin grimmt á ári hverju án þess að menn endilega þurfi á því að halda. Bændur ættu að spyrja sig að því hvort þeir séu að stefna í rétta átt. Menn þurfa að horfa fyrst og fremst á gæði en ekki einblína á magn þegar um framleiðslu á landbúnaðarvörum er að ræða. Bændur þurfa því að gera upp við sig hvort þeir vilji „vera eða eiga" og bera virðingu fyr- ir landinu og dýrunum sem þeir hafa í sinni umsjá," segir Benjamin Allemand, franski dýralæknirinn sem starfar á íslenskum leik- skóla. /ÓB & TB FREYR 10 2005

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.