Freyr - 01.10.2005, Qupperneq 30
FERÐAÞJÓNUSTA
Náttúrutengd
ferðaþjónusta
Náttúrutengd ferðaþjónusta tengist
hvers konar náttúruskoðun, þar sem
náttúran er ávallt í miðdepli. Sem
dæmi um slíka tegund ferðaþjón-
ustu má nefna gönguferð, skíðaferð,
kajaksiglingu eða hestaferð en einn-
ig ferðir á vélknúnum farartækjum
eins og bátum og bílum. Farartækið
er þó aðeins tæki til að komast á
áfangastað og megináherslan er
alltaf á þá upplifun sem tengist nátt-
úrunni. Mikilvægur þáttur í náttúru-
tengdri ferðaþjónustu er áhersla á
að umgangast bæði náttúru og sam-
félagið af virðingu og er lögð mikil
áhersla á sjálfbæra auðlindanýtingu
í daglegum rekstri fyrirtækja. í þess-
ari grein verður sagt frá verkefni um
náttúrutengda ferðaþjónustu á Vest-
fjörðum og hvernig þessi tegund
ferðaþjónustu nýtist almennt ís-
lenskum ferðaþjónustufyrirtækjum.
NÁTTÚRUTENGD FERÐAÞJÓNUSTU-
VERKEFNI Á VESTFJÖRÐUM
Árið 2004 hófst 3ja ára verkefni sem miðar
að því að gera fyrirtækjum kleift að þróa
vöru sem byggir á náttúrutengdri afþrey-
ingu. Fyrirtæki á Vestfjörðum, í Norður-Nor-
egi, Norður-Svíþjóð og frá eyjum og hálendi
Skotlands eru þátttakendur. Hér heima er
það Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða sem
tekur þátt í verkefninu og er Hólaskóli sam-
vinnuaðili þeirra. Fræðast má um tilgang og
markmið verkefnisins á www.holar.is/nbt
og www.naturebasedtourism.net
Markmið verkefnisins er þríþætt: (fyrsta
lagi að þróa leiðir til að auka markaðsþekk-
ingu á náttúrutengdri ferðaþjónustu. Þann-
ig megi bæta vöruþróun og markaðssetn-
ingu sem hæfir slíkri ferðaþjónustu. ( öðru
lagi að styrkja gæða- og umhverfisþætti
náttúrutengdrar ferðaþjónustu á norðlæg-
um slóðum og þar með stuðla að sjálfbærri
vöruþróun. ( þriðja lagi að efla þekkingu og
byggja upp tengslanet. Hvetja til nýsköpun-
ar, nýta bestu aðferðir, stuðla að viðskipta-
þróun og notkun siðareglna sjálfbærrar
þróunar í náttúrutengdri ferðaþjónustu.
Verkefnið gefur tækifæri á að ýta undir
vöruþróun í náttúrutengdri ferðaþjónustu.
Flestöll fyrirtækin sem taka þátt eru lítil (eins
og flest íslensk og norræn fyrirtæki) og með
verkefninu næst væntanlega árangur sem
nýst getur öðrum fyrirtækjum á íslandi.
Miðað er við að fyrirtækin stundi vöruþróun
á grundvelli eftirfarandi grunnatriða:
GRUNNÞÆTTIR í NÁTTÚRUTENGDRI
FERÐAÞJÓNUSTU
• Umgangast bæði náttúru og samfélagið
af virðingu.
• Áhersla á sjálfbæra auðlindanýtingu í
daglegum rekstri fyrirtækja; umhverfis-
stjórnun.
• Náttúruskoðun sem inniheldur um-
hverfistúlkun.
• Fara eftir siðareglum um sjálfbæra ferða-
þjónustu, t.d. reglum WWF um ferða-
mennsku á norðurskautssvæðinu. (Sjá:
http://www.panda.org/about_vvwf/where
_we_work/arctic/what_we_do/tourism
/tourism_tips.cfm )
• Heimamenn hafi ávinning af ferðaþjón-
ustu og taki þátt í ákvörðunum.
• Skapa fyrirtæki sérstöðu.
• Áhersla á gæðavöru.
Námskeið eru haldin tvisvar á ári og þar
fræðast fyrirtækin um sambærileg fyrirtæki
og vinna að því að skilgreina sín séreinkenni
sérstaklega út frá náttúrufari. Þau rýna í
umhverfis- og gæðastjórnun sem hæfir fyr-
IEftir Kjartan Bollason,
M.A., umhverfisfræðing
og verkefnisstjóra við
Ferðamáladeild
Hólaskóla -
Háskólann á Hólum
irtækjum af þeirra stærð. Námskeiðin eru
haldin hjá fyrirtækjunum sjálfum, sem flest-
öll bjóða upp á gistingu og þar er farið í
gönguferð um svæðið. Þar á eftir eru
möguleikar skoðaðir og íhugað hvað er sér-
stakt hjá hverju fyrirtæki. Einnig er tekin fyr-
ir markaðssetning og þá sérstaklega hvern-
ig hægt er að nota heimasíður og rýnt í
bæklinga. Samvinna fyrirtækja á hverjum
áfangastað er einnig lykilatriði, þar sem það
styrkir framboð á afþreyingu á áfanga-
staðnum og gerir hann áhugaverðari og lík-
legri til að lokka til sín ferðamenn.
AÐ MARKA SÉR SÉRSTÖÐU
Öll ferðaþjónusta þarf að marka sér sér-
stöðu til að laða að ferðamenn. Þetta á að
sjálfsögðu einnig við um náttúrutengda
ferðaþjónustu en þar gildir að byggja á
þeirri sérstöðu sem náttúra hvers svæðis
hefur upp á að bjóða. Að auki þarf að mat-
reiða vöruna miðað við þá grunnþætti sem
áður eru nefndir. Ef slíkt er ekki gert er
hætta á að sú auðlind sem náttúran er og
það sem ferðamaðurinn sækist eftir skaðist.
Þegar mörkuð er sérstaða er mikilvægt að
Lykiltala Mælieining / -aðferð Markmiðssetning Leiðbeiningar - útskýringar
Náttúruvernd og fræðsla • Upplýsingabæklingar um náttúruna. • Leiðsögn byggð á umhverfistúlkun. • Verndun svæða, bæði tfmabundið eins og t.d. um varp- tíma og um langtíma m.a. vegna hægs vaxtartíma plantna á norðurslóð Að vernda og hlúa að þeim stöðum sem ferðaþjónustan nýtir sér. Gera sér grein fyrir þolmörkum vistkerfis og haga ferðaþjónustu samkvæmt þeirri þekk- ingu Bjóða upp á áhuga- verðar og skemmtilegar upplýsingar um náttúr- una, sem vekja áhuga gesta á að vita meira og um leið að bera virðingu fyrir náttúrunni og þar með hlúa að henni. Opinberar stofnanir eins og Umhverfisstofnun, náttúrustofur í hverjum landshluta og ferðamála- samtök geta aðstoðað fyr- irtæki við að afla sér upp- lýsinga um sérstöðu nátt- úru á hverju svæði. Þar með fær fyrirtæki mikil- væga þekkingu til að fara eftir við val á t.d. göngu- leiðum og áfangastöðum fyrir ferðamenn almennt. Um leið fær fyrirtæki að- gang að þekkingu um náttúruna sem vekur áhuga ferðamanna.
Dæmi um hvernig fyrirtæki geta sett sér markmið út frá ákveðnum grunnþáttum náttúru-
tengdrar ferðaþjónustu og fylgst með hver árangurinn er.
m FREYR 10 2005