Freyr - 01.10.2005, Síða 32
HROSSARÆKT
Skýrsluhald í
hrossarækt
ÞATTTAKA OG UMFANG
Sífellt fleiri gera sér grein fyrir mikilvægi
þess að vera þátttakendur í búfjárskýrslu-
haldi. Samkvæmt nýjustu tölum úr World-
Feng eru nú skráð þar nærri 235.000
hross, af þeim eru rúm 79% fædd á íslandi
en rúm 65% eru staðsett á (slandi, rúm-
lega 134.000 hrossanna eru skráð lifandi.
Skráðum hrossum hefur fjölgað um rúm
20.000 nú á einu ári og er það svipuð
fjölgun skráðra hrossa og milli áranna
2003 og 2004. Skýrsluhaldsfulltrúi Bænda-
samtakanna í hrossarækt er Linda B. Jó-
hannsdóttir.
( töflu 1 má sjá helstu fæðingarlönd
skráðra hrossa og hvað er mikið af hrossum
staðsett og á lífi í þeim löndum.
Tafla 1. Helstu fæðingar- og
staðsetningarlönd skráðra hrossa
Land Fædd í iandinu Staðsett í landinu
Island 186.256 76.559
Danmörk 21.135 16.777
Svíþjóð 10.126 14.946
Holland 4.806 5.683
Þýskaland 4.394 5.736
Noregur 2.751 4.101
Bandaríkin 1.268 2.312
Sviss 928 1.389
Austurríki 850 1.111
Belgía 828 797
Finnland 632 1.496
Bretland 421 660
(töflu 2 sést hvað mikið er skráð af ásett-
um folöldum fæddum á íslandi úr árgangi
2004 á hverju skráningarsvæði og til sam-
anburðar árið 2003. Einnig kemur fram
hvað mikið er A-vottað og hve hátt hlutfall
það er á hverju svæði.
Svo sem sjá má eru folöldin 4.684 sem
er 208 folöldum fleira en úr árgangi 2003,
en sambærilegar tölur fyrir árin 2001 og
2002 voru 4.090 og 4.347. Aukningin er
umtalsverð. Bæði virðist ásetningur vera
að aukast og einnig hitt að sífellt fleiri taka
þátt í skýrsluhaldinu. Góðu heilli kemur nú
greinilega fram að gæði skýrsluhaldsins,
hjá þeim sem það stunda, fara vaxandi.
Folöldum sem eru A-vottuð fjölgar nærri
um sex prósent og eru nú 33,9% á lands-
vísu en best standa sig Borgfirðingar
(47,4%), Snæfellingar (42,5%), A-Hún-
vetningar (44,4%) og Sunnmýlingar
(46,8%). Nærri 40% folaldanna eru upp-
runnin á Suðurlandi en á mynd 1 er folöld-
unum skipt eftir hrossaræktarsambands-
svæðum og sjást þar greinilega yfirburðir
Hrossaræktarsambands Suðurlands en
44% folaldanna eru upprunnin á starfs-
svæði þess.
ÚTFLUTNINGUR HROSSA
Eitt af því sem haldið er utan um í World-
Feng er útflutningur hrossa en útflutnings-
fulltrúi bændasamtakanna er Hallveig
Fróðadóttir. ( töflu 3 má sjá fjölda og
helstu útflutningslönd frá 1995 og fram í
miðjan október nú i ár.
Útflutningurinn hefur farið minnkandi
allan áratuginn, þó með undantekningu
upp á við 2004. Ekki er nú fyrirséð hvað
verður í ár en vonandi næst að halda í
horfinu. Alls hafa rúm 21.000 hross verið
flutt út á árabilinu og berlega sést að
Þýskaland og Svíþjóð hafa borið uppi fjöld-
ann og eru með meira en helminginn af
heildarfjöldanum.
IEftir Guðlaug V.
Antonsson, landsráðu-
naut í hrossaraekt,
Bændasamtökum
íslands
MERKINGAR HROSSA
Enn og aftur skal á það minnt hér að sam-
kvæmt reglugerð um búfjármerkingar ber
hrossaeigendum að láta einstaklingsmerkja
öll folöld fyrir 10 mánaða aldur. Jafngilt er
hvort heldur örmerki eða frostmerki. Und-
antekning eru folöld sem felld eru á fyrsta
ári. Besta leiðin er að samhliða merkingu sé
gengið til liðs við skýrsluhald bændasam-
takanna ef ræktendur eru ekki þátttakend-
ur í því nú þegar.
LITIR
( WorldFeng er hægt að nálgast upplýsing-
ar um litaskiptingu hrossa. (töflu 4 kemur
fram litaskipting á folöldum fæddum 2000,
2003 og 2004 og til samanburðar litir í ís-
lenska hrossastofninum 1930. Litlar breyt-
ingar er að sjá nú á síðustu árum en alltaf
eru þó einhverjar prósentuhreyfingar til og
frá. Helst má segja að við þurfum að vera á
varðbergi gagnvart Ijósu litunum, leirljósum
og moldóttum, því sérstaklega moldóttu
folöldunum virðist vera að fækka. Að sjálf-
sögðu er litförótti liturinn einnig tæpur en
Mynd 1. Hlutfallslegur fjöldi skráðra folalda 2004 eftir
hrossaræktarsamböndum
2% 1 %
16%
10%
44%
10%
□ Hrs.
□ Hrs.
□ Hrs.
□ Hrs.
■ Hrs.
□ Hrs.
■ Hrs.
□ Hrs.
■ Hrs.
Suðurlands
Vesturlands
Dalamanna
V-Húnvetninga
A-Húnvetninga
Skagfirðinga
Eyfirð. og Þing.
Austurlands
A-Skaftfellinga
FREYR 10 2005