Freyr - 01.10.2005, Síða 39
HROSSARÆKT
KYNBÓTASÝNINGAR
Ekkert lát var á þátttöku f kynbótasýningum
árið 2004. Alls voru dæmd 1.774 hross en
að öllum líkindum hafa aldrei verið dæmd
jafnmörg hross á einu sýningarári. Sýnd
hross voru aftur á móti heldur færri en árin
2002 og 2000 eða 1.355. Skýringin á
óvenju miklum mismun þarna er sú að 28%
hrossanna komu til dóms oftar en einu sinni
og er það aðeins árið 2000 sem hærra hlut-
fall hefur komið til endursýningar. Svo sem
verið hefur í gegnum tíðina er það á lands-
mótsárum sem tala endursýndra hrossa
hækkar til muna. Fyrst og fremst er það
vegna hrossa sem menn telja mögulegt að
komist á landsmót en hafa ekki náð lág-
mörkum við fyrri sýningar.
Héraðssýningar voru haldnar vítt og breitt
um landið, auk landsmóts á Gaddstaðaflöt-
um. Alls voru sýningarnar fjórtán talsins en
Búnaðarsamböndin hafa sýningarhaldið á
sinni könnu.
Tafla 3. Útflutningur á lífhrossum 2004
Fjöldi Verðmæti þús. kr. fob
Svíþjóð* 388 84.161
Danmörk 233 42.909
Þýskaiand 224 62.849
Noregur 113 25.948
Bandaríkin 95 36.230
Sviss 86 25.491
Önnur lönd 140 52.246
Samtals 1352 329.834
Heimild: Hagstofa (slands,
*Leiðréttar tölur frá því sem birt er í
töflum yfir utanríkisverslun.
Tafla 4 Útflutningur lífhrossa
2000-2004
Útflutt lífhross fjöldi Útflutnings- verðm. fob þús. kr. Meðalverð kr.
2000 1.714 315.064 183.818
2001 1.623 320.064 197.205
2002 1.365 318.474 233.314
2003 1.337 329.447 246.408
2004 1.352 329.834 243.960
Heimild: Hagstofa íslands
FRAMLEIÐSLA OG SALA
Árið 2004 voru flutt út 1.352 hross og nam
verðmæti þeirra 329 millj. kr. en árið 2003
voru flutt út 1.337 hross, samtals að verð-
mæti 329 milljónir króna (fob). Stærsti
markaðurinn er í Svíþjóð en þangað voru
alls flutt 388 hross árið 2004. Danmörk og
Þýskaland koma þar á eftir. Tafla 3 sýnir út-
flutning lífhrossa árið 2004 eftir löndum
samkvæmt tölum Hagstofunnar. Tafla 4
sýnir útflutning lífhrossa árin 2000-2004.
Framleiðsla hrossakjöts árið 2004 dróst
saman um 2,5% frá fyrra ári. Miðað við árið
2000 hefur framleiðsla hrossakjöts dregist
saman um 217 tonn eða 20%.
Sala á hrossakjöti árið 2004 jókst um
19% frá fyrra ári og nam 579 tonnum. Á
tímabilinu 2000 til 2004 hefur neysla
hrossakjöts aukist úr 1,7 kg á íbúa í 2,0 kg.
Tafla 5 sýnir framleiðslu og sölu hrossakjöts
árin 2000-2004.
Útflutningur hrossakjöts hefur dregist
saman á undanförnum árum. Meðalverð
fob var 144 kr/kg. árið 2004 en 159 krónur
á kg. árið 2003. Skýringa virðist einkum að
leita í hækkandi gengi íslensku krónunnar.
Að magni til var mest flutt út til Rússlands,
Tafla 5. Framleiðsla og sala
hrossakjöts 2000-2004
Fram- leiðsla kg. Sala kg. Útflutn- ingur kg. Sala á íbúa kg.
2000 1.100.269 485.648 560.819 1,7
2001 1.055.147 527.667 605.447 1,9
2002 1.019.114 472.672 548.907 1,6
2003 906.171 485.654 367.746 1,7
2004 883.109 579.456 300.410 2,0
Heimild: Bændasamtök (slands
eða rösklega 100 tonn, en næstmest var
flutt út til Ítalíu, 86 tonn, sem er mikilvæg-
asti markaðurinn þegar litið er á verðmæti.
Heildarverðmæti hrossakjötsútflutnings var
um 29 millj. kr. og af því eru um 15 millj. kr.
verðmæti (talíumarkaðar.
FREYR 10 2005
39