Fréttablaðið - 09.12.2017, Blaðsíða 2
Veður
Norðvestan 8-15 m/s austan til
á landinu í dag, en hægari vindur
um landið vestanvert. Skýjað og
úrkomulítið um landið norðaustan-
vert, en léttir til í öðrum lands-
hlutum. sjá síðu 54
Litadýrðin á hitaveitutönkum Orkuveitunnar í Öskjuhlíð lætur engan ósnortinn sem hana augum lítur. Hún og jólaljósin sem sjá má hvarvetna um
borgina ylja fólki í svartasta skammdeginu. Í dag er 9. desember og einungis tólf dagar þar til daginn tekur að lengja á ný. Fréttablaðið/Vilhelm
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS
Ef þú vinnur um
helgi áttu aldrei að
fá borgað fyrir færri
en 4 klukkustundir
- þó að þú vinnir
skemur
skipulag „Ég ætla bara að láta
hrekja mig í burtu,“ segir Jón Þor-
geir Ragnarsson, íbúi á Skálará við
Vatnsveituveg í Elliðaárdal. Reykja-
víkurborg veitti fyrir helgi vilyrði
til fyrirtækisins Spor í sandinn fyrir
lóð undir stórt gróðurhús í Elliðaár-
dalnum. Um er að ræða 12.500 fer-
metra lóð en á henni stendur til að
byggja 12 til 13 metra há mannvirki.
Lóðin sem um ræðir, eins og hún
birtist í gögnum umhverfis- og
skipulagssviðs borgarinnar, nær
yfir Skálará. Ef áformin verða að
veruleika virðist ljóst að Jón Þorgeir
þarf að víkja, en hann hefur um ára-
bil fóðrað kanínur, endur og gæsir
við húsið.
Jón hafði skömmu áður en Frétta-
blaðið ræddi við hann haft veður
af þessari ákvörðun. „Þeir ætla að
byggja gróðurhús þar sem gróður-
inn er,“ segir hann hneykslaður.
Hann segir að framkvæmdirnar
muni hrekja í burtu allt fuglalíf á
svæðinu og muni eyða mýrinni, sem
sé undirstaða fuglalífs á svæðinu.
Jón segir að Reykjavíkurborg eigi
lóðina sem húsið stendur á, eins
og húsið sjálft. Hann leigir húsið af
borginni. Í samtali við Fréttablaðið
segir Jón Þorgeir að honum hafi ekki
verið tilkynnt um ákvörðunina, þó
að hann hafi búið þarna í 30 ár. „Ég
sagði við bróður minn, þegar hann
sagði mér þetta í morgun, að ég
nennti ekki að pæla í þessu. En svo
er ég ekki búinn að hugsa um neitt
annað síðan,“ segir hann.
Jón Þorgeir segir að margir leggi
leið sína á svæðið til að fylgjast með
dýrunum eða gefa þeim að éta.
Langflestir séu yndislegt fólk sem
komi þarna með börnin sín. Hann
hafi þó oft orðið vitni að hrottaskap
í garð dýranna.
Hann segist gefa dýrunum um það
bil eitt tonn af mat á viku en tekur
fram að skepnurnar séu ekki háðar
honum á neinn hátt. Þeim vegni
vel þegar hann fer í frí. Þær eigi sig
sjálfar og hann hafi ekki flutt þangað
eina einustu kanínu. „Dýrin bjarga
sér sjálf. Þau eiga sig sjálf,“ segir
hann. Aðspurður segist hann telja
að kanínurnar séu um eitt hundrað
talsins. baldurg@frettabladid.is
Kanínubóndinn víkur
fyrir nýju gróðurhúsi
Reykjavíkurborg hefur veitt vilyrði fyrir 12 þúsund fermetra lóð undir gróður-
hús. Lóðin nær út fyrir Skálará, þar sem Jón Þorgeir Ragnarsson hefur fóðrað
kanínur um árabil. Hann telur að kanínurnar séu orðnar um eitt hundrað.
margir leggja leið sína að Skálará í elliðaárdal til að berja kanínur og fugla
augum. til stendur að nýta lóðina undir annað. Fréttablaðið/SteFán KarlSSon
Ég sagði við bróður
minn, þegar hann
sagði mér þetta í morgun, að
ég nennti ekki að pæla í
þessu. En svo er ég ekki
búinn að hugsa um neitt
annað síðan.
Jón Þorgeir Ragnarsson, íbúi á Skálará
í Elliðaárdal
Fögur er hlíðin
trúfélög Kvennaathvarfið fékk í
gær eina milljón króna í styrk frá
trúfélaginu Zuism. „Styrkurinn er
hluti af þeirri upphæð meðlima
Zuism sem völdu að láta sóknar-
gjöld sín renna til góðra málefna,“
segir í tilkynningu frá almanna-
tengli félagsins.
„Þessi styrkur mun fara í að bæta
lífsgæði þeirra kvenna sem hingað
leita og auka sérfræðiþjónustu sem
er mjög mikilvægt,“ er haft eftir
Sigþrúði Guðmundsdóttur, fram-
kvæmdastýru Kvennaathvarfsins.
Áður hefur Zuism styrkt Barna-
spítala Hringsins um 1,1 milljón og
UNICEF um 300 þúsund krónur. – gar
Gáfu milljón til
kvennaathvarfs
lögreglumál Annar mannanna sem
voru stungnir með hnífi á Austur velli
um síðustu helgi er látinn.
Karlmaður á þrítugsaldri situr
í gæsluvarðhaldi grunaður um að
bera ábyrgð á verknaðinum. Lög-
regla segir að rannsókn málsins
miði vel. Hinn maðurinn, sem var
stunginn með hnífi á sama stað
og var sömuleiðis fluttur slasaður
á bráðamóttökuna, hefur verið
útskrifaður af Landspítalanum.
Fréttablaðið hefur greint frá
því að vitni gátu gefið lýsingu sem
leiddi til handtöku hins grunaða í
Garðabæ nokkrum stundum eftir
að árásin var gerð.
Stuðst hefur verið við mynd-
bandsupptökur við rannsókn
málsins en lögreglan hefur beinan
aðgang að myndavélum á Austur-
velli. Þá hefur einnig verið stuðst við
upptökur úr myndavélum veitinga-
staða á svæðinu. – jhh
Látinn eftir árás
á Austurvelli
Styrkurinn afhentur í gær.
Velferðarmál Barnaverndarnefnd
Kópavogs telur að Barnaverndar-
stofa hafi sinnt eftirlitshlutverki
sínu vel. Engu að síður sé það and-
stætt góðri stjórnsýslu að Barna-
verndarstofa gegni tvíþættu hlut-
verki; annars vegar leiðbeinandi
hlutverki fyrir barnaverndarstarf í
landinu og rekstri úrræða og hins
vegar eftirliti með starfi barna-
verndarnefnda. Þetta var bókað á
fundi nefndarinnar í gær. Nefndin
tekur þannig undir sjónarmið fag-
deildar félagsráðgjafa í barnavernd
sem hafa ályktað að aðskilja beri
þessi tvö meginhlutverk. – jhh
Segja hlutverkin
ósamrýmanleg
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 l a u g a r d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-2
1
C
C
1
E
7
0
-2
0
9
0
1
E
7
0
-1
F
5
4
1
E
7
0
-1
E
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K