Fréttablaðið - 09.12.2017, Blaðsíða 40
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Sstígamót Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Sjálfshjálparhópar hafa verið partur af starfsemi Stígamóta frá stofnun þess. Ár hvert eru
allt upp í 15 hópar starfræktir. Erla,
félagsráðgjafi á Stígamótum, hefur
sl. tvö ár lagt sérstaka áherslu á að
vinna með yngsta hóp kvenna á
Stígamótum. Hún segir að hlutverk
leiðbeinanda sé margþætt.
„Fyrir utan að halda þennan
„praktíska“ ramma sem er nauð-
synlegur til að skapa öryggi, þá er
mikilvægt að sjá til þess að allir í
hópnum fái rými til að vinna úr
sinni reynslu og á sínum forsend-
um,“ segir Erla. „Leiðbeinandi þarf
því að vera styðjandi og hvetjandi
en með mörkin á hreinu. Einnig að
geta leitt hópinn inn í umræðuefni
hvers tíma, sem getur oft á tíðum
verið ansi þungt. Til þess þarf að
deila eigin reynslu eða þekkingu,
vera skapandi og sýna styrk og inn-
sýn í aðstæður hverju sinni. Leið-
beinandi þarf einnig að geta tekist
á við erfiðar aðstæður og geta leitt
hópinn í gegnum þær.“
Reynsla Erlu er sú að mikil sam-
heldni myndast innan hópsins og
með því að deila erfiðri reynslu
verður tenging á milli brotaþola
sem getur verið ómetanleg.
Hlutverk leiðbeinenda í sjálfshjálparhópum
Stígamót er staður fyrir fólk sem beitt hefur verið kyn-ferðisofbeldi og aðstandend-
ur þeirra. Meginviðfangsefnin eru
nauðganir, sifjaspell, kynferðisleg
áreitni, stafrænt ofbeldi, klám,
vændi og mansal. Boðið er upp á
einstaklingsráðgjöf og þátttöku
í lokuðum sjálfshjálparhópum.
Einnig er boðið upp á almenna
upplýsingagjöf til fagfólks, hópa og
til almennings.
Starfshópurinn hefur fjölbreytta
menntun, en býður ekki upp á
eiginlega meðferð, heldur er boðið
upp á hjálp til sjálfshjálpar. Öll
þjónusta við brotaþola er ókeypis
og algjörum trúnaði er heitið með
þeim undantekningum sem lög
kveða á um. Til að fá viðtal hjá
ráðgjafa er pantaður tími í síma
562 6868 eða á stigamot@stigamot.
is. Einnig er boðið upp á netspjall
og stutta símaráðgjöf. Stígamót eru
til húsa á Laugavegi 170, 2. hæð.
Inga Vildís Bjarnadóttir gerði
mat á árangri ráðgjafarinnar árið
2010 og í ljós kom að eftir a.m.k
fjögur viðtöl á Stígamótum minnk-
aði þunglyndi, kvíði og streita
marktækt á meðan sjálfsvirðing
jókst. Það er því eftir nokkru að
sækjast að leita sér hjálpar.
Um Stígamót
Þær Árdís, Elísa, Viktoría og Elín Hulda eru sammála um að þeim hafi létt við að geta talað um reynslu sína við konur sem höfðu líka upplifað kynferðisofbeldi.
að grafa niður. Á sama tíma
var hver einasti tími óskaplega
gefandi og ég hefði ekki getað
verið heppnari með stelpurnar
sem lentu með mér í hópnum,“
segir Elín Hulda.
Erfiðast hafi verið að mæta í
fyrsta tímann. „Mér fannst afar
erfitt að opna mig, gráta og leyfa
mér að finna til. Fyrir mig var líka
mjög erfitt að treysta og tala upp-
hátt um lífsreynslu mína, en líka
að hlusta á reynslu stelpnanna. Þó
fann ég strax mikinn létti að koma
þessu frá mér.“
Undir þetta tekur Árdís. „Mér
fannst erfiðast að heyra hvað
nákvæmlega kom fyrir þessar
yndislegu stelpur og hvernig
afleiðingarnar fyrir þær voru því
það á enginn skilið að brotið sé
svona á þeim.“
Það reyndi mest á Viktoríu
Dögg að tala opinberlega um
ofbeldið við hinar og heyra sögur
þeirra í smáatriðum.
„Að tala upphátt og ítarlega um
það sem kom fyrir mig var rosa-
lega erfitt. Áður hafði ég bara gefið
skýrslu til að kæra viðkomandi.
En ellegar hefði ég bara getað
skrifað á blað allan hryllinginn
sem hann gerði mér, sem voru já
heilar ellefu blaðsíður.“
Léttir að mega segja allt
Árdís var einnig í einstaklings-
viðtölum um vandamál sín og
afleiðingar ofbeldisins sem hún
varð fyrir.
„Í sjálfshjálparhópnum var hins
vegar farið skipulega yfir ýmsa
þætti sem tengdust afleiðingum
ofbeldisins, skref í átt að bata og
fleira gagnlegt. Þar heyrði ég hinar
stelpurnar líka tala um reynslu
sína og tilfinningar sem ég gat
tengt við en hafði ekki talað um
áður. Sumt af því vissi ég hreinlega
ekki að ég væri að díla við, né að
væri að hrjá mig, en svo var líka
sumt sem ég hafði ekki þorað að
tala um vegna mikillar skammar.
Að heyra aðra tala um um það var
mikill léttir,“ segir Árdís.
Elísa lærði að treysta öðrum
fyrir sjálfri sér og reynslu sinni í
sjálfshjálparhópi Stígamóta.
„Ég fékk staðfestingu á því að ég
væri ekki ein að glíma við afleið-
ingar ofbeldis. Bati okkar allra
varð mjög samstíga; við gátum
sagt hvað sem er og þá var alltaf
einhver í hópnum sem tengdi.“
Viktoría Dögg var líka í einstakl-
ingsviðtölum og sjálfshjálpar hóp
því henni þótti þægilegra að geta
bæði verið ein með sínum ráð-
gjafa og svo með stelpunum.
„Í einstaklingsviðtölum var
einblínt á mig eina, bataferil minn
og uppbyggingu á sjálfri mér, en
í hópnum vorum við að hjálpa
hver annarri að læra að lifa með
þessu og þeirri staðreynd að þetta
gerðist. Þar gat ég alltaf rætt við
aðrar stelpur sem höfðu líka upp-
lifað kynferðisofbeldi. Sem hópur
munum við alltaf vera til staðar
hver fyrir aðra; ef eitthvað amar að
eða angrar mann.“
Sjálfshjálparhópurinn hjálp-
aði Elínu Huldu að vinna með
afleiðingar áfalla.
„Það er skrýtið hvernig maður
tengir við sögur og reynslu hinna
í hópnum. Stundum segir ein
eitthvað um það sem hún er að
upplifa og gæti allt eins verið
að tala út frá manns eigin huga.
Maður nær að spegla sig í hinum
stelpunum. Við það myndast
ótrúlega mikið traust og tenging
á milli allra í hópnum. Það er allt
annað að sitja einn með ráðgjafa
sínum en að sitja með fjórum
öðrum stelpum og tveimur leið-
beinendum að tala um ákveðið
þema í hverjum tíma.“
Kæra sendir skýr skilaboð
Viktoría Dögg er sem fyrr segir
yngst í sjálfshjálparhópnum. Hún
vildi kæra gerandann í kynferðis-
brotamáli sínu til að ná fram rétt-
læti fyrir sína hönd.
„Hann tók frá mér verðmætan
tíma, vináttu og lífsviljann; allan
þann tíma sem fór, og fer enn, í
að byggja mig upp á ný til að geta
elskað mig sjálfa aftur. Ég vildi að
hann þyrfti að horfast í augu við
það sem hann gerði mér. Það var
talið að mál mitt væri sterkt vegna
þess hversu ung ég var, og að eitt-
hvað yrði gert í þessu máli, en það
var fellt niður.“
Elín Hulda kærði seinni
nauðgun af tveimur sem hún varð
fyrir.
„Það sat alltaf í mér að hafa ekki
kært fyrri nauðgunina. Hvað hefði
gerst ef ég hefði kært? Ég ákvað
því að standa upp fyrir sjálfri mér
og kæra seinni nauðgunina. Ég
ætlaði ekki að leyfa honum að
gera fleiri stelpum þetta og vildi
senda honum skýr skilaboð um
það sem hann gerði mér og hversu
rangt það væri.“
Árdís var undir lögaldri þegar
fyrra kynferðisofbeldið komst
upp og Barnavernd kærði mann-
inn.
„Þegar seinna ofbeldið komst
upp var ég nýorðin sjálfráða og
ákvað að kæra það ekki. Málið
var það flókið og ég svo ung að ég
gerði það ekki.“
Elísa kærði fyrrverandi sam-
býlismann sinn fyrir andlegt,
líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi.
„Hann braut hrikalega á mér og
ætti að þurfa að taka út refsingu
fyrir það. Horfast í augu við sjálf-
an sig vitandi að hann getur ekki
hagað sér svona án afleiðinga.
Svona ómenni þarf hreinlega að
taka úr umferð. Lendi önnur kona
í sömu reynslu og ég gerði með
þessum manni mun alltaf vera til
á skrá hvað hann gerði mér, og
vonandi mun það hjálpa þeirri
konu að stíga fram og kæra.“
Um sjálfshjálparhópana
Starfræksla sjálfshjálparhópa er
mikilvægur þáttur í starfi Stígamóta
og hófst fimm árum fyrir formlega
stofnun. Þátttaka í hópastarfinu
er að sjálfsögðu valfrjáls og aðeins
hluti af Stígamótafólki velur að taka
þátt í starfinu.
Hóparnir skipta orðið hund r
uðum og hafa þróast í áranna rás.
Nauðgunarhópar, sifjaspellshópar,
sjálfsstyrkingarhópar, karlahópar,
Svanahópar, hópar fyrir ungar
stúlkur og hópar fyrir aðstand
endur eru dæmi um hópana.
Hóparnir eru leiddir af þjálfuðum
leiðbeinendum. Þeir eru lokaðir og
þátttakendur skuldbinda sig til þess
að mæta í fimmtán skipti þar sem
farið er skipulega yfir ýmsa þætti
sem tengjast ofbeldinu.
Erla Björg Kristjánsdóttir.
Fyrir utan að halda
þennan „prakt-
íska“ ramma sem er
nauðsynlegur til að skapa
öryggi, þá er mikilvægt að
sjá til þess að allir í hópn-
um fái rými til að vinna
úr sinni reynslu og á
sínum forsendum.
Framhald af forsíðu ➛
2 StígamÓt 9 . d E S E m B E r 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-A
C
0
C
1
E
7
0
-A
A
D
0
1
E
7
0
-A
9
9
4
1
E
7
0
-A
8
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K