Fréttablaðið - 09.12.2017, Blaðsíða 16
Öll Jól
- SÍÐAN 1952 -
V
E
R
T
8
0
5
9
hjálparstarf „Börnin eru í hræði-
legu ástandi. Miklu verra en við
héldum. Þau eru kannski búin að
labba í fimm daga án matar og án
vatns. Þau eru kannski bara búin
að vera að drekka vatn úr skítugum
pollum.“ Þetta segir Erna Kristín
Blöndal, framkvæmdastjóri Nordic
Institute for Migration og stjórnar-
maður hjá UNICEF á Íslandi. Hún
fór til Bangladess til að kynna sér
aðstæður Róhingja í flóttamanna-
búðunum þar. Flóttamannabúð-
irnar eru starfræktar af yfirvöldum
í Bangladess, sem veita svo alþjóð-
legum samtökum eins og UNICEF
aðgang að þeim. Í Bangladess eru
nokkrar flóttamannabúðir fyrir
Róhingja en Erna heimsótti þær
stærstu, Kutupalong-búðirnar í
Cox’s Bazar héraði. Hún fór þang-
að þann 27. nóvember og kom heim
3. desember.
Flóttinn yfir til Bangladess er
erfiður og getur tekið allt að fimm
dögum. Leiðin liggur í gegnum
frumskóga og yfir fen og hæðir.
Fyrir stutta fætur getur gangan
tekið verulega á. „Mörg barnanna
eru fylgdarlaus, að minnsta kosti 29
þúsund svo vitað sé. Og mörg, sem
okkur finnst vera mjög ung, bera
ábyrgð á og sjá um önnur börn, lítil
systkini sín eða önnur. Alls staðar
eru börn að hugsa um börn. Dag-
inn sem við komum fréttum við af
einum 8 ára sem hafði komið yfir
landamærin með þrjú systkini sín,
illa farinn og úrvinda,“ segir Erna
Kristín.
Í búðunum er í byrjun reynt að
sinna algerum grunnþörfum flótta-
mannanna, en mörg barnanna sem
koma þangað eru alvarlega van-
nærð og þjást af miklum vítamín-
skorti. „Mjög mörg sem koma eru
Meirihluti Róhingja á flótta eru börn
UNICEF starfrækir svo-
kölluð barnvæn svæði í
flóttamannabúðunum
þar sem börnin hafa
aðgang að sálfélags-
legri þjónustu. „Þessi
svæði eru vernduð
og aðeins börn hafa
aðgang að þeim. Þar er
reynt að koma börnum
í skilning um að þau
séu komin í skjól og
orðin örugg, að það sé
ekki hægt að beita þau
ofbeldi lengur,“ segir
Erna Kristín.
Hér má sjá mynd sem stúlka teiknaði á barnvænu svæði UNICEF. „Þetta eru karlarnir í þorpinu, þeim var raðað í
hring inn í miðjuna, þar sem var fullt af hermönnum og svo voru þeir allir drepnir á meðan þau hlupu í burtu, krakk-
arnir. Hún bara teiknaði þessa mynd fyrir framan okkur. Hún er ekki farin að brosa aftur,“ segir Erna Kristín.
MyNd/ErNa KrIstíN BlöNdal
„Eins og alls staðar
annars staðar fara
konur á blæð-
ingar í flóttamanna-
búðum og blæðir
eftir barnsburð.
aðstæður eins og
konurnar búa við
í þessum búðum
gera það ekki auð-
velt. UNICEF er að
vinna að verkefni
sem á að efla ungar
stúlkur og vinna í
þeim málum sem
varða konur og
stúlkur sérstaklega.“
1,2 milljónir Róhingja
eru í flóttamanna-
búðum í Bangladess. 720
þúsund þeirra eru börn.
Erna Kristín Blöndal fór
og kynnti sér aðstæður
barnanna. „Börnin eru
í hræðilegu ástandi.
Miklu verra en við
héldum. Þau er kannski
búin að labba í fimm
daga, án matar og án
vatns.“
á alvarlegasta stigi vannæringar og
þá eru þau að deyja úr til dæmis
öndunarfærasjúkdómum. Ónæmis-
kerfið er svo veikt að þau ná ekki að
berjast við neitt. Um leið og þau
eru orðin vannærð þola þau illa
alla erfiðleika,“ segir Erna Kristín.
Sökum þess að þau hafa ekki haft
aðgengi að heilbrigðisþjónustu í
Mjanmar eru fæst börnin bólusett
og því hefur UNICEF lagt mikla
áherslu á að bólusetja öll börn gegn
mislingum auk kóleru. Slíkir sjúk-
dómar eru líklegir til að geisa þegar
fólk býr svo þröngt, deilir vatni og
hreinlæti er af skornum skammti.
Flóttamenn sem komist hafa
yfir landamærin til Bangladess
hafa sagt frá grófu ofbeldi af hálfu
hers og almennings í Mjanmar
gegn sér. Þar eru framin fjölda-
morð og hópnauðganir á konum
og börnum. Erna segist hafa verið
algerlega slegin yfir sögunum sem
hún heyrði af nauðgunum, af því
þegar fólk væri brennt lifandi og
öðru ofbeldi. Slíkar sögur heyrði
hún bæði frá fullorðnum og litlum
börnum. „Ég tel að það eigi eftir að
koma í ljós að ofbeldið sem hefur
verið beitt í Mjanmar hefur verið
miklu skipulagðara og alvarlegra
en greint hefur verið frá í fjöl-
miðlum. Miðað við það sem við
sáum í búðunum og sögurnar sem
við heyrðum. Aðeins lítill hluti
þeirra sem lifðu af eru karlmenn.
Þeir virðast hafa verið teknir af lífi
með skipulögðum hætti og það
kom skýrt fram í sögum sem börn-
in sögðu okkur. Karlmönnunum,
pöbbunum og stóru bræðrunum,
var safnað saman og þeir myrtir,“
segir Erna Kristín.
Þann 2. október sendi UNICEF út
alþjóðlegt neyðarákall fyrir nauð-
synlegri mannúðaraðstoð fyrir
börn sem flúið hafa til Bangla-
dess og þau sem enn eru í Mjan-
mar. Samtals gerir UNICEF ráð
fyrir að þurfa nærri 80 milljónir
Bandaríkjadala, eða 838 milljónir
íslenskra króna. Aðeins hefur náðst
að fjármagna tæplega 35 prósent
þess sem óskað er eftir. Hægt er
að styðja neyðarsöfnun UNICEF
á Íslandi með því að senda SMS-
ið UNICEF í númerið 1900 en það
kostar 1.500 krónur.
Mikilvægar tölur
l 1,2 milljónir Róhingja
l 720.000 þeirra eru börn
l 60% eru konur
l 10% eru annaðhvort óléttar
eða með barn á brjósti
l 29.000 barna eru fylgdarlaus
l 21% barna þjáist af vannæringu
l Eitt klósett á hvert hundrað
Lovísa
Arnardóttir
lovisaa@frettabladid.is
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 l a U G a r d a G U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-1
C
D
C
1
E
7
0
-1
B
A
0
1
E
7
0
-1
A
6
4
1
E
7
0
-1
9
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K