Fréttablaðið - 09.12.2017, Blaðsíða 32
Við mælum okkur mót á kaffihúsi, Sigurlaug Lövdahl og sonur hennar, Arnar Pét-ursson gítarleikari í Mammút, Þórlaug
Sveinsdóttir og hennar sonur, Jökull
Júlíusson söngvari og gítarleikari í
Kaleo, og ég. Það má kallast krafta-
verk að ná þessum mæðginum
saman því sakir vinsælda hljóm-
sveita strákanna eru þeir á stöð-
ugum tónleikaferðum um veröldina
og tylla sjaldan niður tám samtímis
á landinu. Arnar var að ljúka löngum
túr með Mammút um Ameríku og
Evrópu. Jökull er í smástoppi heima
eftir að hafa komið fram með Kaleo
í Moskvu og St. Pétursborg og endar
fjögurra mánaða túr í Grikklandi 16.
desember. „Þetta er rosalegt úthald,“
segir Sigurlaug en bendir á að báðir
verði heima um jólin.
„Já, ég var með hugmyndir um að
fjölskyldan héldi bara jólin einhvers
staðar í útlöndum. Nei, takk. Jökull
tók það ekki í mál. Allt á að vera eins
og venjulega, jólamúsíkin, steikin,
laufabrauðið. Hefðirnar virðast dýr-
mætari en flest annað,“ segir Þórlaug
hlæjandi. Sigurlaug kannast vel við
það. „Á jólunum höfum við spilað
sömu diskana alveg frá því Arnar
var lítill, það er miðaldajólamúsík og
ekta barokk og þetta verður hann að
hlusta á á hverjum einustu jólum.“
Það eru einmitt svona sögur úr
bakgrunni strákanna sem ég er að
sækjast eftir. Mæðurnar eru báðar
söngfuglar í kór en taka ekkert sér-
staklega undir þá fullyrðingu mína
að strákarnir hljóti að hafa fengið
tónlistarhæfileika með móðurmjólk-
inni. „Eða úr umhverfinu,“ segir
Sigurlaug. „Þeim jarðvegi sem orðið
hefur til fyrir þessa kynslóð í tón-
listinni. Þar á ég við Músíktilraunir,
Samfés, Airwaves, að ógleymdum
tónlistarskólunum. Þetta hefur allt
ratað í sama pottinn, gerjast þar og
upp spretta þessar flottu hljóm-
sveitir sem eru að gera það gott.“
Þórlaug tekur undir það. „Til
dæmis í Mosó, heimasveit strákanna
í Kaleo, höfðu þeir frítt aðgengi að
æfingahúsnæði í mörg ár í skúr á
skólalóðinni. Voru með lykil og gátu
geymt hljóðfærin sín þar. Síðan tóku
foreldrar Davíðs trommara við að
hýsa þá í bílskúrnum í tvö ár. Það
var ómetanlegt.“
„Þessi skilningur er svo mikil-
vægur,“ segir Sigurlaug. „Krakkarnir
í Mammút fengu einmitt að æfa í bíl-
skúrnum hjá Andra trommara. Það
er svo margt sem stuðlar að tónlistar-
uppeldinu hjá þessari kynslóð.“ Þær
geta þess að báðir eigi ungu menn-
irnir músíkalska feður, faðir Arnars
er Pétur Jónasson og Jökuls Júlíus
Hjörleifsson.
Hlustuðu mikið á músík
Fyrsta minning Arnars tengd tónlist
er einmitt um pabba hans að spila á
gítar. „Pabbi er klassískur gítarleikari
og æfði sig mikið heima. Ég man líka
eftir tónlistarmyndbandi sem var oft
spilað á RÚV snemma á 10. áratugn-
um. Í því var lítill strákur sem söng
held ég á grænlensku og dansaði og
svo voru alls konar litir úti um allt. Ég
var alveg óður í þetta lag og þetta var
mikið rætt á leikskólanum. Síðan hef
ég leitað að þessu lagi en ekki tekist
að finna það. Ef einhver veit hvað
þetta er má sá hinn sami senda mér
skilaboð á Facebook.“
„Jökull var músíkalskur frá fæð-
ingu og drakk allt í sig, bæði lög
og texta,“ rifjar Þórlaug upp. „Sem
krakki spilaði hann kasettur eins og
Barnabros, Tunglið, tunglið taktu
mig, Olgu Guðrúnu og fleira íslenskt
efni. Pabbi hans spilar líka á gítar og
þeir syngja mikið saman. Stína Maja,
sem er með okkur í Söngfjelaginu,
passaði Jökul í fyrsta skipti sem ég
fór af landi brott eftir að hann fædd-
ist, þegar hann var 18 mánaða. Það
var píanó heima hjá henni og hún
sagði: „Ég þurfti ekkert að hafa fyrir
honum, setti hann bara við píanóið.“
Svo fluttum við á Höfn þegar hann
var sex ára og það tekur fimm, sex
tíma að keyra á milli Reykjavíkur og
Hafnar. Ég keypti lítið hljómborð
með heyrnartólum og ég vissi ekki
af drengnum. Hann sat bara aftur í
með hljómborðið, algerlega í eigin
heimi.“ Jökull minnist leikhús- og
bíóferða að sjá Dýrin í Hálsaskógi
og Lion King sem hann kveðst hafa
eignast síðar á VHS. „Myndin og tón-
listin hafði mikil áhrif á mig á þeim
tíma og svo átti mamma geisladisk-
inn sem var oft spilaður í bílnum.“
Arnar segir sitt fyrsta uppáhalds-
lag hafa verið Bamboleo með Gipsy
Kings. „Pabbi átti það á kasettu sem
var alltaf í bílnum og ég bað hann
að spila það aftur og aftur þegar við
vorum á rúntinum. Það er ennþá eitt
af mínum uppáhaldslögum.“
En hvaða tónlist muna þeir eftir
að mæður þeirra hafi hlustað á þegar
þeir voru litlir? „Mamma hlustaði á
fjölbreytta tónlist, bæði íslenska og
erlenda,“ svarar Jökull. „Ég kunni að
meta nánast allt sem hún hlustaði á
nema kannski fusion-djass.“
Arnar á svipaðar minningar. Efst
í hans huga af lista móður hans eru
KK, Bubbi, U2, R.E.M. og svo seinna
það sem stundum er kallað heims-
tónlist eins og Buena Vista Social
Club og Cecaria Evora. „Ég man eftir
að hafa ekki skilið erlendu textana
og oft búið til mína eigin út frá því
hvernig orðin hljómuðu. Lagið
„Sangue de Beirona“ með Cecaria
Evora varð til dæmis að „Í sandi með
Óla“!“
Jökull kveðst ekki hafa átt eitthvert
eitt goð í tónlistinni þegar hann var
yngri. „Ég hef alltaf verið alæta á tón-
list og var duglegur að hlusta á bara
sem mest og flest,“ segir hann.
Arnar byrjaði snemma að hlusta
á Bítlana, að eigin sögn. „Ég ákvað
strax að Paul McCartney væri minn
maður. Það var samt aðallega af því
að allir aðrir héldu mest upp á John
Lennon og ég vildi vera öðruvísi.
Næst á eftir því datt ég í rappið og þá
tóku Tupac og Puff Daddy við. Enn
síðar varð ég forfallinn Nirvana-
aðdáandi og fannst Kurt Cobain
flottasti gaur sem uppi hafði verið.“
Fóru sínar eigin leiðir
Eitt af því sem fram kemur í þessu
spjalli er að Arnar er menntaður
húsgagnasmiður og nemandi í heim-
speki. En hvernig var tónlistar námi
háttað hjá þessum herramönnum?
„Ég var mjög ungur í kór á leikskól-
anum á Reykjalundi og svo byrjaði ég
í klassísku námi á píanó um átta, níu
ára aldur. Það þróaðist síðan hratt
yfir í að spila eftir eyranu og semja
Fíla tónlistarsmekk mæðranna
Þær Sigurlaug Lövdahl, skrifstofustjóri í HÍ, og Þórlaug Sveinsdóttir sjúkraþjálfari eiga það sameiginlegt að syngja
báðar í hinum magnaða kór Söngfjelaginu og vera mæður tónlistarsnillinga sem með sínum sveitum vekja athygli
víða um heim. Þeir eru Arnar Pétursson, gítarleikari í Mammút, og Jökull Júlíusson, söngvari og gítarleikari Kaleo.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Sigurlaug, Arnar, Jökull og Þórlaug. Þó að strákarnir séu á þéttum tónleikaferðum ætla báðir að vera heima um jólin. „Hefðirnar virðast dýrmætari en flest annað,“ segir Þórlaug. FréttAblAðið/Ernir
Ég man líka eftir tón-
listarmyndbandi
sem var oft spilað á
rúv snemma á 10. ára-
tugnum. í því var lítill
strákur sem söng held
Ég á grænlensku og
dansaði og svo voru
alls konar litir út um
allt. Ég var alveg óður
í þetta lag.
Arnar
↣
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r32 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-2
6
B
C
1
E
7
0
-2
5
8
0
1
E
7
0
-2
4
4
4
1
E
7
0
-2
3
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K