Fréttablaðið - 09.12.2017, Blaðsíða 30
Glerártorgi - Kringlunni - Smáratorgi - www.lindesign.is
Mýkt, hlýja og vellíðan
fyrir alla fjölskylduna
Nýjar
Jólavörur
legs eða líkamlegs ástands og 20 pró-
sent hafi ýmist ekki áhuga á að vinna
eða hafi enn ekki fengið vinnu.
„En þetta er síbreytilegt. Sumar
vikur koma kannski þrír til fjórir
fangar til okkar og kannski er enga
vinnu að fá fyrstu vikuna og næstu
vikuna komast kannski tveir þeirra í
vinnu og þannig mjatlast þetta svona
inn hjá okkur,“ segir Halldór.
Þegar við röltum yfir á trésmíða-
verkstæðið spyrjum við Halldór hver
séu draumaverkefnin fyrir fangelsið.
„Best er að fá verkefni sem væru
ekki unnin nema af því að þau koma
til okkar,“ segir Halldór. „Til dæmis
verkefni með einhvern samfélags-
legan tilgang eins og endurnýtingu
eða endurvinnslu þar sem er svona
samfélagslegur ávinningur af. Það
er mjög skemmtilegt að geta verið í
slíkum verkefnum,“ segir Halldór og
bendir á að kostur slíkra verkefna
fyrir fangelsin sé að þau megi vinna á
lengri tíma án tímapressu. „Þetta eru
verkefni sem eru í rauninni háð frum-
kvæði utan úr samfélaginu. Eitthvað
sem menn eru að gera inni á vinnu-
stöðum og finnst sárt að horfa upp á
einhverja sóun til dæmis. Þá viljum
við láta hugsa til okkar,“ segir Halldór.
„Einu sinni duttu okkur til dæmis
í hug öll óskilahjólin sem lögreglan
safnar saman, að við gætum tekið
við þeim, lagað þau og selt svo á
hærra verði og ágóðinn færi þá í ein-
hver svona jákvæð útgjöld einhvers
staðar.“ Halldór bendir þó á þann
vanda að svona verkefni krefjist þess
að farmi sé ekið austur til þeirra auk
þess sem þau krefjist þess að fangelsið
hafi gott geymslupláss.
Halldór segir okkur einnig frá vef-
síðu sem er í vinnslu; sölusíðu fyrir
ýmsan varning sem unninn er í
fangelsunum. Halldór hefur miklar
væntingar til síðunnar og bendir á
að ný verkefni gætu beinlínis orðið
til í kringum síðuna. „Við fengjum
kannski fanga til okkar sem er lag-
hentur og með einhverja góða hug-
mynd eins og þennan litla bíl til
dæmis og svo færi bara að rigna inn
fyrirspurnum um þennan bíl og þá
værum við komin með litla leikfanga-
verslun,“ segir Halldór um bíl sem
starfsmaður á trésmíðaverkstæðinu
sýnir okkur. Bíllinn var hannaður af
nema við Listaháskóla Íslands.
Meðal þess sem fangarnir fram-
leiða eru garðbekkir sem hafa rok-
selst hingað og þangað til vegasjoppa
og annarra fyrirtækja og stofnana.
Halldór segir vefsíðuna sem er í
vinnslu algert lykilatriði í þessu og
virðist spenntur að taka hana í gagn-
ið. „Hún getur auðvitað líka skapað
sjálfstæða vinnu fyrir fanga til dæmis
við að útbúa sendingar, pakka inn og
þess háttar tengd störf.“ Halldór segir
undirbúning vefverslunar fanga langt
kominn. „Vefsíðan er í vinnslu og við
erum að leysa tæknileg atriði eins og
reikningakerfi og slíkt. Þannig að hún
er bara á þröskuldinum.“
Önnur framleiðsluvara á Litla-
Hrauni eru jólaskilti sem sveitarfélög
í nágrenni fangelsisins hafa keypt.
„Svo hafa einhverjir einstaklingar líka
séð þetta og rakið sig með það hingað
og komið og keypt nokkra
kalla,“ segir Halldór.
Halldór segir að
greiðslur fyrir
verkefni, sem
utanaðkom-
andi aðilar
kaupa, fari
í þóknanir
f a n g a n n a
og annan
kostnað af
atvinnustarf-
seminni; tæki,
verkfæri efnis-
kostnað og þess
háttar.
Svipaða sögu er að
segja um bónstöðina á
Litla-Hrauni. Viðskiptavinir
bónstöðvarinnar eru helst fólk úr
nágrenninu; ekki síst eldri borgarar
af Suðurlandinu og margir þeirra
fastakúnnar.
Það eru ekki ný sannindi að bestu
betrunarmöguleikar fanga eru í
gegnum nám og starf. Það er því til
mikils að vinna að vel sé búið að allri
starfsemi í kringum nám og starf í
fangelsum. Meðal þess sem skiptir
mestu máli er fjöldi og samsetning
starfsfólks fangelsa.
Fangelsismálastofnun auglýsir eftir fjölbreyttri vinnu á Hólmsheiði.
Konur og karlar vinna saman við ýmis pökkunarverkefni á Hólmsheiði. Samstarfið er yfirleitt farsælt segja verðirnir.
Á Litla-Hrauni eru margir litlir
vinnustaðir sem allir krefjast viðveru
fangavarðar og verkstjórnar.
„Því erfiðari sem fangahópurinn er
hvað samsetningu varðar og þar sem
menn hafa litla reynslu af vinnu eða
litla starfsgetu þeim mun færri vinnu-
hópa er hægt að hafa,“ segir Halldór.
„Ef við miðum við þá sem eiga gott
með að vinna og geta unnið nokkuð
sjálfstætt þá erum við með mannskap
í það en um leið og við ætlum að fara
að sinna þessu eitthvað meira verður
það strax erfiðara.“
Halldór dreymir um að geta hagað
atvinnustarfseminni eins og
á vernduðum vinnu-
stað. „Okkar draum-
ur hefur verið að
hafa til dæmis
iðjuþjálfa með
o k ku r o g
líta á þetta
meira eins
og verndaða
vinnustaði .“
Aðspurður segir
Halldór stofnunina
reglulega herja eftir
fjölgun stöðugilda, en þá þurfi
líka að velja hvaða bardaga eigi að
taka. „Við vorum nú alsæl með það á
sínum tíma að ná fleiri stöðugildum
meðferðarfulltrúa. En við getum
endalaust bætt við okkur og fjölgað
fólki í verkstjórn, meðferðarstarfi og
svo framvegis.
Halldór bendir á að fangelsiskerfið
sé engan veginn samanburðarhæft
við Norðurlöndin í þessum efnum.
„Við erum bara hálfdrættingur á
við fangelsiskerfin á Norðurlönd-
unum sem eru sum hver með allt að
heilt stöðugildi á hvert fangapláss. Ef
við tökum íslenska fangelsiskerfið þá
erum við að tala um svona 50 prósent
eða í kringum hálft stöðugildi á hvern
fanga.
Starfsmenn hinna ýmsu vinnu-
staða eru að tínast inn í mat þegar við
kveðjum Litla-Hraun undir hádegi.
Þegar við komum á Hólmsheiði er
vinna í fullum gangi í vinnusalnum.
Ólíkt vinnustöðum Litla-Hrauns,
þar sem einungis karlar afplána, sitja
konur og karlar saman hér við pökk-
un á kærleiksspjöldum; verkefni frá
Kirkjuhúsinu.
Fangahópurinn á Hólmsheiði er
að mörgu leyti mjög ólíkur hópnum
á Litla-Hrauni. Í fangelsinu er sérstök
kvennaálma og konurnar eru í raun-
inni einu fangarnir á Hólmsheiði sem
eru í langtímavist. Aðrir fangar eru
þar til skemmri tíma enda fangelsið
hugsað sem móttökufangelsi. Betr-
unarstarf á Hólmsheiði er því hugsað
með öðrum hætti en í öðrum fang-
elsum landsins. „Við erum ekki með
nein verkstæði hér eins og á Litla-
Hrauni. Við erum bara með þennan
vinnusal þar sem er hægt að vinna
það sem við köllum smáverkefni eða
samsetningarverkefni,“ segir Guð-
mundur Gíslason, forstöðumaður á
Hólmsheiði.
„Við erum til dæmis með smáverk-
efni frá Kirkjuhúsinu og svo pökkum
við tímaritinu Glamour. Það er fast
verkefni. Og það er stórt upplag sem
kemur á vörubrettum með sendi-
ferðabíl og tekur smá tíma.“ Guð-
mundur segir alla, bæði fanga og
starfsmenn, vera ánægða með öll þau
verkefni sem fangelsið hafi fengið.
„Þessi verkefni sem við höfum fengið
hafa öll tekist mjög vel.“
Atvinnuþátttakan á Hólmsheiði er
svipuð og á Litla-Hrauni, í kringum 70
prósent.
Aðspurður bendir Guðmundur á
að margir séu í mjög slæmu ástandi
þegar þeir koma á Hólmsheiði, sem
er fyrsti viðkomustaður flestra sem
koma til afplánunar. „Hér er náttúru-
lega töluvert hátt hlutfall af föngum
sem eru nýkomnir inn og hafa verið
í vondum málum og jafnvel mikilli
neyslu. Þeir þurfa bara að byrja á að
koma hausnum á sér í lag,“ segir Guð-
mundur.
Vel virðist fara á með starfsmönn-
um í vinnusalnum á Hólmsheiði
en um það bil sem ljósmyndari og
blaðamaður Fréttablaðsins hugsa sér
til hreyfings, stendur einn fanganna
upp frá vinnunni og kveður félagana;
segist hafa lokið afplánun. Samfangar
kveðja með virktum. „Sjáumst síðar.“
Frá Afstöðu
Afstaða, félag fanga fagnar því
að Fangelsismálastofnun auglýsi
eftir atvinnutækifærum fyrir
fanga. „Það er ekkert eins niður-
drepandi fyrir fanga og að hafa
ekkert við að vera. Öflugasta
betrunarstarfið felst í námi og
starfi,“ segir Guðmundur Ingi
Þóroddsson, formaður Afstöðu.
„Við í Afstöðu höfum margoft
bent á að það þurfi sérstakan
starfsmann hjá Fangelsismála-
stofnun í þennan málaflokk.
Einhvern sem er bara í því að
finna atvinnutækifæri, námskeið
og aðra eflandi starfsemi inni
í fangelsin,“ segir Guðmundur
og bendir einnig á að efla megi
hvers kyns samstarf um þessi
mál. Ekki aðeins við Afstöðu
heldur einnig við atvinnulífið og
samtök þess.
Jólaskiltin sem
framleidd eru á
Litla-Hrauni.
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r30 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-3
A
7
C
1
E
7
0
-3
9
4
0
1
E
7
0
-3
8
0
4
1
E
7
0
-3
6
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K