Fréttablaðið - 09.12.2017, Síða 4
Ingibjörg Þorsteinsdóttir
nýr formaður Dómarafélags Íslands
kvaðst sammála
því að ómögu
legt væri að
dómskerfið
svaraði ekki
málefnalegri
gagnrýni. Hún
sagði að kannski
hefðu dómarar verið of ragir við að
taka virkan þátt í hinni almennu
umræðu. Í Danmörku væri til
dæmis dómari sem bloggaði um
dómarastarfið.
Björn Þorri Viktorsson
lögmaður
sagði það ekki
hafa verið
mistök að beita
lýðræðislegum
og stjórnar
skrárvörðum
réttindum til að
mótmæla og tjá hug sinn vegna
mótmæla fyrir utan heimili Stein
unnar Valdísar Óskarsdóttur vorið
2010. Steinunn var þá þingmaður
Samfylkingarinnar og var mót
mælt vegna styrkja sem hún þáði
2006 og 2007. Björn Þorri var einn
þeirra sem þátt tóku í mótmæl
unum.
Róbert Ísak Jónsson
sundmaður
varð heimsmeist
ari í 200 m fjór
sundi í flokki
S 14 á heims
meistaramóti
fatlaðra í sundi í
Mexíkóborg. Þetta
eru önnur verðlaun
Róberts á HM. Hann vann silfur í
100 m bringusundi. Thelma Björg
Björnsdóttir og Sonja Sigurðar
dóttir hafa unnið bronsverðlaun.
Þrjú í fréttum
Dómarar,
mótmæli og
heimsmeistari
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
ÁRA5ÁBYRGÐ
- 400.00
0 kr. - 890.00
0 kr.
BJÓÐUM ÚRVAL AF FIAT, JEEP, DODGE OG FIAT ATVINNUBÍLUM
Á TILBOÐSVERÐI. KOMDU OG REYNSLUAKTU.
OPIÐ Í DAG LAUGARDAG FRÁ 12-16.
- 1.000.
000 kr.
JÓLADAGAR ÍS-BAND - RÝMUM TIL!
Tilboðin gilda til 31. desember
®
Umhverfismál „Þetta er langtíma
verkefni og hefur tekið meira en 20
ár,“ segir Tómas Jóhannesson, fag
stjóri á sviði jöklafræði hjá Veður
stofu Íslands.“
Árið 1996 var hafist handa við að
reisa varnarvirki við byggðarlög til
að verja þau fyrir ofanflóðum. Síðan
þá hefur 18 milljörðum verið varið í
verkefnið.
Tómas segir að verkefnið hafi verið
framlengt til ársins 2020, en líklegt
sé að það muni taka enn lengri tíma.
Það þykir þó líklegt að hægt sé að
ljúka því innan fárra ára. „Markmið
þessa verkefnis er að verja öll sér
svæði í þéttbýli, að það verði hvergi
bæjarhverfi, á þeim stöðum þar sem
hættan var talin mest, í hættu fyrir
ofanflóði.“
Snjóflóðavarnargarðurinn á Flat
eyri sannaði gildi sitt í lok nóvember
þegar stórt snjóflóð féll úr InnraBæj
argili og lenti á væng ytri garðsins.
„Ofanflóð eru lang mannskæðasta
náttúruváin sem við glímum við
hér á landi og það verkefni að verja
byggðarlög fyrir þeim var sett í for
gang á sínum tíma og menn vilja ein
dregið að það verði klárað.“
Tómas segir að ferlið frá því að
hættan sé metin þangað til að
varnar garður sé reistur sé langt. Þetta
getið jafnvel tekið mörg ár.
„Þetta eru umfangsmiklar fram
kvæmdir, það verður mikið rask
og það þarf að fara mjög varlega og
hugsa um að þarna er verið að móta
útivistarsvæði fyrir fólk til langs
tíma.“
Verið er að prófa nýja útfærslu af
ofanflóðavörn á Patreksfirði sem
ekki hefur verið reist áður til að verja
byggð á Íslandi að sögn Tómasar.
„Um er að ræða svokallaðar snjó
söfnunargrindur. Þær draga úr snjó
söfnun fyrir neðan fjallsbrúnina en
grindurnar eru reistar uppi á fjallinu.
Þær safna snjónum þannig að hann
staðnæmist þar og berst ekki í skaf
renningi fram af brúninni.“
Grindurnar koma ekki í stað
varnargarða, þær eru hluti af stærri
varnaraðgerðum á Patreksfirði.
Grindurnar eru hugsaðar til að draga
úr tíðni snjóflóða á þessu svæði, en
aðalvörnin mun verða varnargarður.
Óliver Hilmarsson, sérfræðingur
á snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands,
sá ummerkin af snjóflóðinu sem féll
á varnargarðinn við Flateyri í lok
nóvember.
„Það féllu tvö snjóflóð á þessum
tíma, eitt á varnargarðinn og annað
innan við bæinn á veg þar. Það má
ekki vanmeta eyðileggingarkraftinn
í svona löguðu, það fylgdu þessu svo
kölluð flóðagrjót. Það er algengt að
flóðin rífi með sér heilu björgin og
þarna voru stærstu flóðasteinarnir
um það bil 1,5 metrar, grettistak sem
maður loftar ekkert.“
Óliver segir að varnargarðurinn á
Flateyri hafi sannað gildi sitt. „Það
hafa fallið yfir tíu flóð frá því að
hann var byggður og einhver fleiri
hafa fallið meðfram honum. Það
hefði þurft að rýma á Flateyri ef hann
væri ekki til staðar en það þurfti ekki
að hugsa um það þar sem þorpið er
varið.“ aroningi@frettabladid.is
Átján milljörðum króna varið í
snjóflóðavarnir síðustu 20 árin
Tekið hefur meira en 20 ár að byggja upp snjóflóðavarnargarða við byggðarlög. Upphaflega stóð til að
verkinu lyki 2010. Átján milljörðum hefur verið varið í snjóflóðavarnir frá 1996. Snjóflóðavarnargarðurinn
á Flateyri sannaði gildi sitt í nóvember þegar stórt snjóflóð féll úr Innra-Bæjargili og lenti á ytri garðinum.
Varnargarður var reistur á Ísafirði árið 2015. Slíkir varnargarðar hafa heldur betur sannað gildi sitt. Fréttablaðið/Pjetur
viKAN 03.12.2017 til 09.12.2017
1,5
milljarðar er upp-
hæðin sem IKEA
seldi veitingar
fyrir á síðasta
rekstrarári.
79
prósent barna-
bóka sem koma
út fyrir jólin eru
prentuð erlendis.
prósenta sam-
dráttur hefur
orðið í sykur-
neyslu frá
áramótum.
26,1
prósent laun-
þega á Íslandi
vann vakta-
vinnu í fyrra.
Er það níunda
hæsta hlutfallið
í Evrópu og 7,6
prósentustigum
yfir meðaltali
Evrópusam-
bandsríkjanna.
180
tonn af
jarðarberjum
voru flutt
til lands-
ins í júní,
saman-
borið við
53 tonn
í fyrra. Íslenskir
bændur framleiða um
það bil 50 tonn af jarðarberjum
á ári. Þeir þurftu að fleygja
nokkrum tonnum í sumar.
alþjóðleg verð-
laun hefur kvik-
myndin Hjarta-
steinn hlotið, auk
níu Edduverð-
launa í febrúar á
þessu ári.
45
20
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 l A U G A r d A G U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-3
5
8
C
1
E
7
0
-3
4
5
0
1
E
7
0
-3
3
1
4
1
E
7
0
-3
1
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K