Fréttablaðið - 09.12.2017, Síða 34
lög,“ segir Jökull. Móðir hans rifjar
þetta nákvæmar upp.
„Jökull byrjaði í Tónlistarskóla
Mosfellsbæjar fimm ára, svo fórum
við austur og þar lærði hann hjá
Sigjóni Bjarnasyni í Tónlistarskóla
Hornafjarðar. En 12 til 14 ára var
hann ekkert í tónlist, þá bjuggum við
í Danmörku. Þegar hann kom heim
fór hann í FÍH og þá að læra á djass-
píanó en svo var honum gefinn gítar
í jólagjöf og þá missti hann algerlega
áhuga á píanóinu og kenndi sér í
raun sjálfur á gítarinn. Síðan hefur
hann verið rokkari.
Arnar kveðst hvorki hafa sungið
né spilað á hljóðfæri fyrr en hann
var 12 ára. „Ég var aldrei settur í tón-
listarskóla sem barn heldur kom það
algjörlega frá mér sjálfum. Upphaf-
lega ætlaði ég að læra á píanó hjá
Snorra Sigfúsi Birgissyni en þegar
kom í ljós að allt var uppbókað hjá
honum ákvað ég að láta reyna á
klassískan gítar í staðinn og var hjá
Kristni H. Árnasyni, Páli Eyjólfssyni
og pabba. Ég var í því námi í um 10 ár
með hléum en keypti mér rafmagns-
gítar í 7. bekk og fiktaði við að spila
á hann heima. Í 9. bekk stofnaði ég
svo hljómsveitina Afstætt hugtak
með æskuvinum mínum og samdi
þar mín fyrstu lög. Ári síðar varð
Mammút til og þangað beindi ég
öllum mínum tónlistarkröftum og
geri enn í dag.“
Sigurlaug, móðir hans, bætir því
við að Arnar hafi líka verið í Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð í tvö
ár og sú reynsla hafi einnig haft sitt
að segja. „Svo var ég framkvæmda-
stjóri Sumartónleika í Skálholts-
kirkju í fimm sumur, Arnar var alltaf
með mér þar og fór á eina tónleika
um hverja tónleikahelgi. Það tók
hann bara upp hjá sjálfum sér. En við
vorum þarna innan um mjög marga
afbragðs tónlistarmenn þessar fimm
vikur í fimm sumur.“
Áhrifavaldar í tónlistinni
Báðir segjast piltarnir hafa fengið
mikinn stuðning heima. „Mamma
hvatti mig til að byrja að æfa á
píanó og sá til þess að píanó væri
til á heimilinu og gerir enn,“ segir
Jökull. „Þau mamma og stjúpi minn
borguðu fyrir mig tónlistarnámið,
meðal annars í FÍH, og hafa síðan
ásamt pabba stutt rækilega við bakið
á mér síðustu ár og reynst mér ótrú-
legt bakland.“
Arnar segir bæði blóð- og stjúp-
foreldra sína ýmist gítarleikara
eða mikla tónlistarunnendur svo
umhverfið hafi verið uppbyggilegt.
„Ég hef alltaf verið í miklum mótþróa
gegn því að greina hvaðan áhrif í tón-
list koma því mér hefur aldrei fund-
ist það skipta neinu máli og auk þess
er erfitt að setja fingur á það. Um
daginn var ég að koma úr tónleika-
ferðalagi með Mammút og setti á
tónleikaupptöku af Nirvana, þá allt
í einu fattaði ég hvað sú hljómsveit
hefur haft mikil áhrif á mig. Það er
einhver kraftur í henni sem ég get
ekki skilgreint og hann tekur alveg
yfir. Þegar ég hlusta þá langar mig að
fara beint að semja tónlist sjálfur.“
Þórlaug bendir á að íslenska nátt-
úran gegni stóru hlutverki í mynd-
böndum Kaleo. „Ég er viss um að hún
hefur áhrif á tónlistina líka. Jöklarnir,
fjöllin og hafið, þetta er allt svo stór-
brotið.“ Jökull segir áhrifavalda sína
ótrúlega marga, meðal annars í klass-
ískri tónlist, rokktónlist, blústónlist
og djasstónlist „Eins og ég segi þá
hef ég alltaf verið alæta á tónlist og
sjaldan fókuserað á einhvern einn
listamann eða eina tónlistarstefnu.
Það sem er mér kannski mikilvægast
er að koma úr því umhverfi sem ég
er og hafa stuðning til að hafa fullt
frelsi. Það gerir það að verkum að ég
er óhræddur við að skapa og að gera
það sem hentar mér og minni tón-
list. Því á ég móður minni mikið að
þakka og það er ómetanlegt.“
Mömmurnar mæta á tónleika
Mæðurnar kannast alveg við að hafa
sýnt drengjunum áhuga og því sem
þeir hafa verið að fást við. En eru
þær aldrei hræddar um þá?
Sigurlaug bendir á að þeir séu
nú orðnir fullorðnir menn. „En
ég man að þegar Mammút var að
byrja og vann Músíktilraunir 2004
þá vorum við foreldrarnir pínulítið
hræddir um að krakkarnir mundu
bara lenda í einhverju rugli. Svo var
engin ástæða til að hafa áhyggjur.“
Þær segjast fylgjast með sonunum
gegnum símtöl, SMS og smáskilaboð
og fara líka á tónleika stundum. „Það
skiptir þá miklu máli að einhver úr
fjölskyldunni sjái út á hvað líf þeirra
gengur og auðvitað er það dýrmætt
fyrir okkur líka,“ segir Sigurlaug. „Ég
fór einmitt til Bandaríkjanna núna
nýlega, þá var Mammút að spila
í Brooklyn í New York. Foreldrar
Kötu söngkonu fóru líka. Það var
rosa gaman.“
Jökull segir systur sína hafa túrað
með Kaleo í Bandaríkjunum í tíu
daga um daginn og fleiri í fjölskyld-
unni séu duglegir að koma og styðja
við bakið á honum. „Mamma verður
með mér úti í nokkra daga núna í
desember, meðal annars á mínum
eigin tónleikum í Aþenu í Grikk-
landi.“ Hann kveðst ekki hafa tölu
á því lengur hversu mörg lönd hann
hafi heimsótt. „Síðan í ágúst hef ég
líklega spilað í 20 til 25 löndum.“
Arnar hefur svipaða sögu að
segja, giskar á að hann hafi spilað í
22 löndum í allt og 10 til 20 sinnum
í mörgum þeirra. „Mammút hefur
margoft ferðast um Evrópu þvera
og endilanga og nú í seinni tíð verið
töluvert í bæði Norður- og Suður-
Ameríku. Næst langar mig að spila
í Kína,“ segir hann.
Jólatónleikar á morgun
Ekki verður mömmunum svo
sleppt úr viðtalinu að þær segi ekki
aðeins frá sinni tónlistariðkun.
Báðar eru kórakonur en Sigurlaug
hefur vinninginn með bakgrunn úr
Hamrahlíðarkórunum og Mótettu-
kór Hallgrímskirkju.
Nú snýst allt um að undirbúa
aðventutónleika Söngfjelagsins sem
verða í Langholtskirkju á morgun,
sunnudaginn 10. desember, bæði
klukkan 16 og 20. „Þetta eru þriðju
og síðustu aðventutónleikarnir í röð
sem eru með írsk-keltnesku þema,“
lýsir Sigurlaug. „Á þessa tónleika
fáum við erlenda gesti, mjög flott
fólk, eins konar rokkstjörnur írsk-
keltnesku tónlistarhefðarinnar
og auk söngsins verður meðal
annars leikið á írska hörpu, fiðlu
og hljóðfæri sem heitir „uilleann
pipes“. Þannig hefur þetta verið
líka tvö síðustu ár en það hafa aldrei
komið eins margir að utan og núna.
Það er ekki oft sem við eigum þess
kost að hlusta á Íra flytja þessa tón-
list hér á Íslandi svo þetta er einstakt
tækifæri.“
Þórlaug segir alltaf líflegt á
æfingum með Söngfjelaginu og svo
toppi tónleikar kórsins stemning-
una, bæði á aðventunni og síðasta
vetrardag.
„Við erum kringum sextíu í
kórnum og á aðventutónleikunum
á morgun ætlum við að flytja nýtt
verk eftir Daníel Þorsteinsson sem
heitir Himinn yfir, við texta eftir
Stefán frá Hvítadal. Kórinn mun svo
einnig syngja lögin sem við frum-
fluttum á aðventutónleikunum í
fyrra og hitteðfyrra en þau voru
eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur og
Hjörleif Hjartarson sem eru bæði
í kórnum. Þannig að þetta verður
keltnesk-írsk-íslensk stemning. Svo
er stjórnandinn okkar, hann Hilmar
Agnar Hilmarsson, kraftmikill og
skemmtilegur, það er sko aldrei nein
lognmolla í kringum hann.“
Ég keypti lítið hljóm-
borð með heyrnar-
tólum og Ég vissi ekki
af drengnum. hann
sat bara aftur í með
hljómborðið, alger-
lega í eigin heimi.
Þórlaug
Mömmurnar eru á fullu að undirbúa jólatónleikana með Söngfjelaginu á morgun.
↣
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r34 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
0
-7
0
C
C
1
E
7
0
-6
F
9
0
1
E
7
0
-6
E
5
4
1
E
7
0
-6
D
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K