Fréttablaðið - 09.12.2017, Page 41

Fréttablaðið - 09.12.2017, Page 41
Kerstin Kristensen og Denise Cresso hafa unnið að rannsóknum á ofbeldi gegn fötluðum konum í Svíþjóð um árabil. Denise og Kerstin hafa unnið saman að málaflokknum í mörg ár. Denise er blind og hefur barist fyrir hagsmuna- málum fatlaðra og Kerstin kemur frá kvennaathvarfshreyfingunni í Svíþjóð. „Ofbeldi gegn fötluðum er ekki frábrugðið öðru ofbeldi í nánum samböndum að því leyti að þú þekkir veiku blettina á þínum nánustu og getur nýtt þá til að beita ofbeldi,“ segir Denise. „Fatl- aðir hafa kannski fleiri og stærri veika bletti en aðrir.“ Kerstin bendir á að fatlaðir séu ekki sjálfkrafa útsettari fyrir ofbeldi en aðrir. „En það er hægt að beita þá ofbeldi á fleiri vegu og með margvíslegri hætti en ófatlaða. Það er til dæmis hægt að endurraða húsgögnunum og þannig gera blindri eða hreyfi- hamlaðri manneskju erfitt um vik að upplifa öryggi heima hjá sér, nokkuð sem ófötluð mann- eskja myndi ekki takast á við með sama hætti. Og þú kvartar ekki til yfirvalda undan því að ein- hver færi til húsgögn.“ Þá nefna þær báðar andlegt ofbeldi sem getur verið erfitt að sanna. „Með því að segja neikvæða og særandi hluti um andlega eða líkamlega getu er hægt að brjóta einstakl- inginn niður og það er erfitt fyrir fatlaðan einstakling að verjast slíku.“ Kerstin segir að konur sem eru andlega fatlaðar hafi oft ekki upplýsingar um hvað telst vera ofbeldi. „Þær halda að það sem gerist sé eðlilegt, að það sé svona sem samlífi annarra er og þær þrá svo heitt venjulegt líf að þær láta ýmislegt yfir sig ganga.“ Fatlaðar konur eiga að sögn Denise og Kerstin enn fremur erfitt með að nýta sér þá hjálp sem stendur til boða. „Fatlaðar konur í nánum samböndum eiga erfitt með að flýja heimilið þar sem kvennaathvörfin bjóða oft ekki upp á aðstöðu fyrir þær,“ segir Kerstin og Denise bætir við: „Þá hafa þær oft ekki upplýsingar um hvað er ofbeldi og eru líka stundum háðar mökum sínum um umönnun. Margir ófatlaðir menn fatlaðra kvenna segja að þeim finnist erfitt að hafa alltaf einhvern inni á heimilinu og kjósa frekar að aðstoða konurnar sínar sjálfir og þá er valdaójafnvægi komið innan sambandsins og sú fatlaða er einangruð. Persónu- legur aðstoðarmaður myndi sjá merki um það ef ekki er allt með felldu og ber ábyrgð á að láta vita af því. En svo verða yfirmenn við- komandi að grípa boltann, ekki bara segja eins og stundum hefur gerst: finnst þér ekki gaman að vera hjá þeim? Viltu láta færa þig annað?“ Fatlaðar konur eru líka í varnar- lausri stöðu gagnvart starfsfólki, mökum, foreldrum, systkinum og svo framvegis. „Þú ert háð öðrum um lyf, hreinlæti, næringu …“ segir Denise og bætir við: „Vanræksla er ein tegund ofbeldis.“ Kerstin tekur fram að þær vilji ekki gera fatlaðar konur að fórnarlömbum. „Margar fatlaðar konur eru í ástríkum sam- böndum og hafa fulla stjórn á lífi sínu. En fötlun þeirra setur þær í meiri hættu.“ Denise bendir líka á að fatlaðar konur séu ekki alltaf teknar alvarlega sem kynverur. „Það snýst um ósýnileika. Ef þú hefur fyrirframákveðnar hug- myndir um að fatlaðar konur séu ekki kynverur þá spyrðu ekki um kynlíf, kynferðisofbeldi eða sam- bönd. Staðreyndin er sú að konur eru beittar ofbeldi, hvort sem þær eru fatlaðar eða ekki. Og fatlaðir karlar eru líklegri til að vera beittir kynferðisofbeldi en ófatlaðir.“ Þær segja það stöðugt koma meira upp á yfirborðið hvað kyn- ferðisofbeldi er alvarlegt vanda- mál meðal fatlaðra. „Þetta er erfitt viðureignar því að margir vilja ekki horfast í augu við vandann,“ segir Denise. „Einangrun og ósýnileiki eru aðaláhættuþætt- irnir. Fatlaðir missa oft af fræðslu í almenna skólakerfinu og ef náinn aðstandandi er kannski gerand- inn, jafnvel sá sami og stjórnar aðgangi hins fatlaða að umheim- inum, er það jarðvegur þar sem misnotkun getur þrifist.“ Kerstin samsinnir þessu og bætir við: „Það er mikilvægt að fatlað fólk sé sýnilegt á sem flestum vettvangi, í auglýsinga- herferðum, á sjónvarpsskjánum, ef fatlað fólk er sýnilegt alls staðar þá verður viðteknara að hugsa um það sem venjulegt fólk með vonir og þrár sem sannarlega getur líka orðið fyrir alls kyns ofbeldi.“ Þær benda líka á að ofbeldi geti þrifist þar sem báðir aðilar eru fatlaðir. „Þetta er eitt dæmi um ósýnileika. Það reiknar enginn með því að maður í hjólastól lemji konuna sína og þess vegna eru þau ekki spurð,“ segir Denise. „Við þekkjum dæmi þar sem konan var alltaf með marbletti og maðurinn hennar sem líka var í hjólastól sagði að hún væri alltaf að detta úr stólum. En eftir að hann dó hurfu marblettirnir af henni. Og þá fyrst datt umönn- unaraðilum í hug að kannski væri ástæðan fyrir áverkunum sú að hann beitti hana ofbeldi. En þá var auðvitað orðið allt of seint að gera nokkuð.“ Kerstin bendir á að fatlaðir séu fjölbreyttur hópur og því ekki hægt að beina sömu upplýsingum og spurningum til allra. „Rann- sóknir sýna að fólk vill tala ef það er spurt. Ef það er hins vegar fjarri spyrjandanum að viðkomandi sé kynvera vegna fötlunar eða að enginn geti fundið það í sér að vera vondur við fatlaðan einstak- ling þá spyrðu ekki einu sinni og ef þú spyrð ekki þá segir enginn neitt. Það þarf að spyrja. Fatlaðir fá mikla þjónustu frá sveitarfélögum og þar eru margir möguleikar til að spyrja um ofbeldi en það er ekki gert. Þess vegna eru fatlaðir enn þá ósýnilegur hluti þeirra sem verða fyrir kynferðisofbeldi.“ Svo mikilvægt að spyrja Denise Cresso og Kerstin Kristensen hafa í mörg ár unnið að rannsóknum á ofbeldi gegn fötluðu fólki í Svíþjóð. Þær komu til landsins í byrjun september til að halda námskeið og miðla Stígamót- um og fulltrúum hagsmunasamtaka fatlaðs fólks af reynslu sinni og þekkingu varðandi aðstæður fatlaðra kvenna og afleiðingar ofbeldis á fatlaðar konur. Jóhanna Lind Jónsdóttir, ráðgjafi og listmeðferðafræðingur. MYND/ANTON BRINK Listmeðferð er meðferðarform þar sem notast er við listsköp-un, ásamt samtalsmeðferð, við úrvinnslu áfalla eða erfiðrar reynslu. Listsköpunin getur veitt fólki tæki- færi til að tjá sig með öðrum hætti en með orðum og því gefið aðra og dýpri innsýn í tilfinningalíf við- komandi á þann hátt sem samtal getur ekki veitt, að sögn Jóhönnu Lindar Jónsdóttur, sem starfar sem ráðgjafi og listmeðferðarfræðingur hjá Stígamótum. Hún segir listmeðferð geta gagnast fólki sem lent hefur í kyn- ferðislegu ofbeldi. Yfirleitt sé mjög erfitt að ræða ofbeldið og afleiðingar þess en listin geti veitt öruggari leið sem er fjarlægari einstaklingnum heldur en ef hann segi frá í fyrstu persónu. „Minningar og hugsanir sem tengjast ofbeldinu geta oft á tíðum verið svo yfirþyrmandi að einstaklingurinn lokar á þær. Þegar kemur að úrvinnslu getur verið erfitt að opna aftur á slíkan sársauka. Listsköpun getur veitt greiðari leið fyrir viðkomandi að slíkum minn- ingum og hugsunum heldur en ef um samtal væri að ræða. Einnig getur listmeðferð veitt annars konar aðgang að lokuðum minningum þar sem unnið er í efnivið sem örvar skynfæri, t.d. með lykt, áferð og hljóðum.“ Einstaklingur sem á erfitt með að tjá sig á hefðbundinn hátt getur þannig nýtt sér listmeðferð til tján- ingar á erfiðum og sársaukafullum upplifunum, líkt og kynferðisofbeldi er, segir Jóhanna. „Það fellur þá í hlut listmeðferðarfræðingsins að mynda samband við manneskjuna og veita henni öruggt rými til að opna á við- komandi áföll og lífsreynslu. Um leið er mikilvægt að hafa í huga að ekki þarf þekkingu á listsköpun eða ein- hverja sérstaka hæfileika á því sviði til að nýta sér listmeðferð.“ Jóhanna útskrifaðist úr uppeldis- og menntunarfræði og sálfræði frá Háskóla Íslands eftir að hafa lokið fornámi í Myndlistaskóla Reykja- víkur. Þaðan lá leið hennar til New York þar sem hún lærði listmeðferð í NYU háskólanum. „Eftir meistara- námið starfaði ég úti með einhverf- um börnum í tæp tvö ár og síðan á Stuðlum eftir að ég kom heim. Ég er ótrúlega þakklát Stígamótum fyrir að gefa mér tækifæri til að starfa á þessum vettvangi með fullorðnum einstaklingum.“ Listin getur veitt öruggari leið Einstaklingar sem eiga erfitt með að tjá sig á hefðbundinn hátt geta nýtt sér listmeðferð til árangursríkari tjáningar STígAMóT 3 L AU g A R DAg U R 9 . D E S E m b E r 2 0 1 7 Um ofbeldi gegn fötluðu fólki Ofbeldi gegn fötluðu fólki hefur fleiri birtingarmyndir en ofbeldi gegn öðrum hópum. Á síðasta ári sögðust 109 einstaklingar af þeim 338 sem leituðu til Stígamóta í fyrsta sinn vera með einhvers konar skerðingar, þar af var 41 metinn til örorku. Algengastar voru hvers kyns geðraskanir, en einnig nefndi fólk þroskahömlun, hreyfi- hömlun, blindu eða sjónskerðingu, einhverfu og heyrnarleysi eða heyrnarskerðingu. Aðgengi fyrir fatlaða er gott á Stígamótum, en því fólki sem af ólíkum ástæðum getur alls ekki komist í viðtöl er boðið upp á heimsóknir heim eða inn á stofn- anir. 0 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :0 3 F B 1 2 8 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 0 -A C 0 C 1 E 7 0 -A A D 0 1 E 7 0 -A 9 9 4 1 E 7 0 -A 8 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.