Fréttablaðið - 09.12.2017, Síða 90
Eftir að hann réðst
á mig líkamlega í
fyrsta skipti hringdi ég í
hann og bað hann afsök-
unar á hvað allt hefði
farið illa hjá okkur!
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir segir meðvirkni vera vísbendingu um óheilbrigt samband. Hún var beitt andlegu of-
beldi í sínu fyrsta sambandi og líkamlegt ofbeldi fylgdi í kjölfarið. mynd/EyÞór
Ég áttaði ég mig engan veginn á hvað var í gangi, krakkar vita ekkert hvað andlegt ofbeldi
er. Sextán ára stelpa vill bara sjá
það besta í þeim sem hún er ást-
fangin af,“ segir Þórhildur Gyða
Arnarsdóttir en hún upplifði and-
legt ofbeldi í sínu fyrsta sambandi.
Líkamlegt ofbeldi fylgdi í kjölfarið.
„Hann notaði klám gegn mér
ef ég vildi ekki hitta hann. Hann
reykti einnig mikið gras og lofaði
að hætta en það voru eintómar
lygar. Hann kenndi mér um reyk-
ingarnar, ég væri svo erfið. Líkam-
lega ofbeldið hófst eftir að við
hættum saman,“ segir Þórhildur.
„Ég var alltaf manneskja sem stóð
með sjálfri sér en þessum einstakl-
ingi tókst að brjóta mig niður á
mjög skömmum tíma. Ég var alveg
heilaþvegin og fannst allt vera mér
að kenna. Sjálfsmyndin bara hvarf.
Eftir að hann réðst á mig líkamlega
í fyrsta skipti hringdi ég í hann og
bað hann afsökunar á hvað allt
hefði farið illa hjá okkur! Hann
leit á mig sem eign, vissi alltaf hvar
ég var, hvað ég var að gera. Hann
sendi mér skilaboð nánast daglega
með illum orðum um mig.“
Eftir að sambandinu lauk var
Þórhildi nauðgað af öðrum manni.
Hún segir það til marks um það
hversu mikið tangarhald fyrr-
verandi kærastinn hafði á henni
að hann var sá sem hún trúði
fyrst fyrir því. „Hann sendi mér þá
skilaboð um að ég ætti bara ekki
að klæða mig alltaf eins og ég vildi
láta sofa hjá mér. Ég sökk ofan í
þunglyndi og allt fór í rúst,“ segir
Þórhildur. Hún leitaði til Stíga-
móta og í viðtölunum rann upp
fyrir henni hversu mikið andlega
ofbeldið hafði brotið hana niður.
Krakkar þurfi miklu meiri fræðslu.
„Ég var í afneitun, maður vill
ekki að fyrsta manneskjan sem
maður elskar hagi sér svona. Við
kunnum ekkert á andlegt ofbeldi.
Í grunnskóla fór ég í eitthvað sem
kallaðist lífsleikni, sem ég man
ekkert eftir, var svo ómerkilegt. Svo
er einhver klukkutíma kynfræðsla
um hvernig á að setja smokk
á banana! Það þarf að tala um
ofbeldi við krakka og unglinga og
í hvaða myndum það getur verið.
Það á ekki að segja við stelpu að
strákur sé skotinn í henni ef hann
er að stríða henni eða ýtir henni
á leikvellinum og öfugt ef stelpur
eru að stríða strákum. Það þarf
að fræða þau um ofbeldishegðun.
Meðvirknin myndi ég segja að væri
fyrsta viðvörunarbjallan um að
það sé andlegt ofbeldi til staðar.
Ef þú ert farinn að hugsa allt út frá
einhverjum öðrum en sjálfum þér,
þá er ekki allt í lagi.“
Sjálfsmyndin varð að engu
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir var sex-
tán ára í sambandi með strák sem
beitti hana andlegu ofbeldi og líkam-
legu. Hún segir unglingsstúlkur gera
sér rósrauðar hugmyndir um fyrsta
sambandið. Tala þurfi um ofbeldi við
börn og unglinga.
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, ráðgjafi hjá Stígamótum. mynd/EyÞór
Margt ungt fólk verður fyrir ofbeldi í samböndum sem byrjar langoftast með
andlegu ofbeldi. Við hjá Stíga-
mótum stöndum fyrir átaki gegn
ofbeldi meðal ungs fólks í kringum
Valentínusardaginn en sá dagur
snýst um ástina og kærustupör,“
segir Steinunn Gyðu- og Guðjóns-
dóttir, ráðgjafi hjá Stígamótum.
Hún segir veruleika ungs fólks
flókinn. Erfitt geti reynst að fóta sig
í stafrænum samskiptum og átta
sig á hvar mörk liggja.
„Dægurmenning ýtir undir alls
konar hugmyndir, að afbrýðisemi
sé merki um ást, að strákar eigi að
ganga á eftir stelpum og helst ekki
láta þær í friði fyrr en þær gefa
eftir. Stafrænn veruleiki ungs fólks
er einnig flókinn og ungir krakkar
í kærustuparasamböndum geta
fylgst afar náið hvort með öðru.
Læra þarf hvernig á að haga sam-
skiptum gegnum síma og tölvur,“
segir Steinunn.
„Við viljum einnig tala um það
að læra að þekkja sín eigin mörk
og virða mörk annarra. Margt
ungt fólk, sérstaklega strákar,
fær ýmsar hugmyndir um kynlíf
úr klámi. Ein afleiðing þess er að
stelpur koma til okkar á Stígamót
þar sem ítrekað hefur verið farið
yfir þeirra mörk og þrýst á þær að
taka þátt í kynlífsathöfnum sem
þær vildu ekki. Ungmenni þurfa
að fá tækifæri til að velta þessum
hlutum fyrir sér og læra að þekkja
einkenni heilbrigðra sambanda,
óheilbrigðra samband og ofbeldis-
sambanda,“ segir Steinunn.
„Við munum opna fræðsluvef
og birta myndbandaherferð á
samfélagsmiðlum. Okkur langar
einnig til að virkja ungt fólk í
framhaldsskólum og grunnskólum
til að standa fyrir uppákomum í
kringum Valentínusardaginn, t.d. í
félagsmiðstöðvum og í skólunum
sínum, og tala um hvað þarf til að
vera í heilbrigðu sambandi.“
Átak gegn ofbeldi meðal ungs fólks
rannveig Ágústa Guðjónsdóttir.
Helstu niðurstöður rann-sóknar minnar um reynslu kvenna sem upplifðu kyn-
ferðisofbeldi í nánu sambandi sem
unglingar benda til þess að ber-
skjöldun, sem felst í ungum aldri,
lítilli reynslu af samböndum og
skorti á kynfræðslu, geti gert brota-
þolum á unglingsaldri sérstaklega
erfitt fyrir að koma auga á að um
ofbeldi sé að ræða. En berskjöldun
kvennanna sem ég ræddi við átti
þátt í því að þeim þótti upplifun sín
jafnvel eðlilegur hluti þess að vera
í nánu sambandi og héldu margar
að svona ætti þetta bara að vera.“
Þetta segir Rannveig Ásta Guðjóns-
dóttir en mastersverkefni hennar
í kynjafræði við HÍ fjallaði um
reynslu kvenna af kynferðisofbeldi
í sambandi á unglingsárum.
djúpstæð áhrif
„Niðurstöður rannsóknarinnar
sýna að afleiðingar þess að verða
fyrir kynferðisofbeldi í nánu
sambandi sem unglingur höfðu
djúpstæð áhrif á konurnar.
Afleiðingarnar voru samfléttaðar
og höfðu þannig áhrif á ýmsa
þætti í lífi kvennanna, þar á meðal
skólagöngu þeirra. Afleiðingar af
kynferðisofbeldi í nánu sambandi
voru kvíði, þunglyndi, félagsleg
einangrun og sjálfskaðandi hegðun
og áttu þátt í að gera konunum
erfitt með að stunda nám. Ungl-
ingar hafa ákveðna sérstöðu þegar
kemur að áhrifum ofbeldis í nánum
samböndum á skólagöngu. Sú sér-
staða er fólgin í því að unglingar eru
ýmist á skólaskyldualdri eða á þeim
aldri þar sem gert er ráð fyrir að
þeir séu í skóla. Ofbeldið hafði áhrif
á skólagöngu allra kvennanna sem
rætt var við og helmingur þeirra
hætti alveg námi í kjölfarið.“
Reynsluleysi gerir unglinga
berskjaldaða
Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir skoðaði reynslu kvenna
sem urðu fyrir kynferðisofbeldi sem unglingar í masters-
ritgerð sinni í kynjafræði við Háskóla Íslands 2016.
8 StíGAmót 9 . d E S E m b E r 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
0
-A
7
1
C
1
E
7
0
-A
5
E
0
1
E
7
0
-A
4
A
4
1
E
7
0
-A
3
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K