Fréttablaðið - 09.12.2017, Qupperneq 104
Jólaföndur
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
279
Getur þú
fundið hvað
a
fimmhyrnin
gur er
ekki eins og
neinn annar
?
?
?
?
A
E
H
K
N
B
F
I
L
O
D
G
J
M
P
„Þessi gáta er snúin,“
sagði Kata hugsi.
„Hér stendur, allir
fimmhyrningarnir eru
pör nema einn. Finndu
þann sem er ekki eins og
neinn annar.“
„Við reynum samt,“
sagði Lísaloppa.
„Auðvitað,“ sagði Kata.
„Alltaf að reyna.“
Lausn á gátunni
SVAR: O?
Segja vil ég sögu
af sveinunum þeim,
sem brugðu sér hér forðum
á bæina heim.
Þeir uppi á fjöllum sáust,
– eins og margur veit, –
í langri halarófu
á leið niður í sveit.
Jóhannes úr Kötlum
Grýla var þeirra móðir
og gaf þeim tröllamjólk,
en pabbinn Leppalúði,
– það var leiðindafólk.
Þeir jólasveinar nefndust,
– um jólin birtust þeir.
Og einn og einn þeir komu,
en aldrei tveir og tveir.
Þeir voru þrettán
þessir heiðursmenn,
sem ekki vildu ónáða
allir í senn.
Að dyrunum þeir læddust
og drógu lokuna úr.
Og einna helzt þeir leituðu
í eldhús og búr.
Lævísir á svipinn
þeir leyndust hér og þar,
til óknyttanna vísir,
ef enginn nærri var.
Og eins, þó einhver sæi,
var ekki hikað við
að hrekkja fólk – og trufla
þess heimilisfrið.
Jólakvæðið
Þeir fara að tínast af fjöllum í næstu
viku, sveinarnir.
Hann Finnur Atli Kolbeinsson er
sex ára gamall og er forfallinn fót
boltaáhugamaður, eins og fleiri
strákar. En fyrst þetta:
Í hvaða skóla ertu og hvað finnst
þér skemmtilegast að læra þar?
Ég er í Melaskóla og mér finnst
skemmtilegast að fara í smiðju,
reikna og fara í leiki.
Ertu í tónlist eða íþróttum eftir
skóla – og þá hverjum? Ég spila
fótbolta með KR og svo er ég að
læra á píanó.
Áttu þér uppáhaldslið erlendis?
Manchester United.
Hvaða fótboltamaður er bestur
að þínu mati? Cristiano Ronaldo,
hann var einu sinni í United og það
væri betra ef hann væri enn þá þar.
Ertu byrjaður að æfa jólalög í
skólanum eða heima? Í skólanum
og heima. Snæfinnur snjókarl er
uppáhaldsjólalagið mitt.
Hvernig leikföng leikur þú þér
mest með? Fótbolta, ég er alltaf að
spila fótbolta.
Hvaða bók er best? Cristiano
Ronaldo bókin. Þar sést hvað hann
borðar hollan mat.
Hvað gerir þú helst um helgar? Fer
að spila fótbolta með pabba eða
leika mér með mömmu.
Hvað langar þig að verða þegar
þú verður stór? Fótboltamaður
hjá íslenska landsliðinu og Man
chester United.
Cristiano
Ronaldo
bókin er best
Finnur Atli Kolbeinsson.
Hér má sjá hvers konar skraut gæti verið sniðugt í föndrið.
Það getur verið skemmtilegt að
prófa að skreyta piparkökukarla
og kerlingar á annan máta en með
sykurbráð. Á vefsíðunni www.
mom inspiredlife.com er að finna
skemmtilega hugmynd. Nefnilega þá
að skreyta piparkökukarla og kerl
ingar úr pappa með litríku skrauti.
Þetta þarf til:
l Bylgjupappi
l Skæri
l Piparkökukarlamót
l Blýantur
l Lím
l Skrautsteinar
l Tölur
l Skraut sem má nota fyrir augu
Aðferð:
Notið piparkökumót til að strika
eftir á brúnan pappa. Best er að hafa
hann ekki of þykkan svo það sé létt-
ara verk að klippa eða skera út. Fáið
mömmu eða pabba til að hjálpa til.
Límið augu, tölur og annað
skraut á karlinn.
Pappa-piparkökukarlar
9 . d e s e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r d A G U r52 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
krakkar
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
0
-6
6
E
C
1
E
7
0
-6
5
B
0
1
E
7
0
-6
4
7
4
1
E
7
0
-6
3
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K