Fréttablaðið - 09.12.2017, Page 108
Blekhylki.is • s. 517 0150 • 2. hæð Smáralind
Ódýr blekhylki
og tónerar!
Stemningin verður hátíðleg í jólaskreyttri Hallgrímskirkju um helgina,“ segir Katrín
Sverrisdóttir, nýr formaður Mót-
ettukórs Hallgrímskirkju, en hinir
árlegu jólatónleikar kórsins verða
haldnir í dag klukkan 17 og aftur á
morgun á sama tíma. Einsöngvari
er Elmar Gilbertsson tenór, Björn
Steinar Sólbergsson leikur á orgel
og Hörður Áskelsson stjórnar.
Yfirskriftin að þessu sinni er O
magnum mysterium eða Hið mikla
undur. Efnisskráin endurspeglar
það. Þar eru ýmsar jólalagaperlur
sem Katrín segir langt síðan kórinn
hafi sungið.
„Við gerðum þetta þannig núna
að kórfélagar máttu koma með sín
óskalög, hugmyndir og tillögur.
Svo var valið úr þeim, Hörður hafði
umsjón með því. Við ákváðum
líka að biðja hann Elmar að vera
með okkur, hann hefur gert það
áður. Bæði syngur hann með okkur
nokkur lög, eða öllu heldur við
með honum því hann er þar í aðal-
hlutverki en við tökum undir í við-
lögunum, og svo syngur hann líka
einn.“ – gun
Óskalög Mótettukórsins
Félagar í Mótettukórnum lögðu hugmyndir í púkk sem Hörður valdi úr.
Bækur
Perlan: Meint skinkuvæðing ís-
lensku kvenþjóðarinnar í kjölfar
efnahagshrunsins
HHHHH
Birna Anna Björnsdóttir
Útgefandi: Bjartur
Kápa: Ragnar Helgi Ólafsson
Prentun: Bookwell Digital, Finnlandi
215 blaðsíður
Það voru undarlegir tímar sem tóku við á Íslandi í kjölfar efna-hagshrunsins. Það var spenna í
andrúmsloftinu enda voru það ekki
aðeins bankarnir sem hrundu heldur
ekki síður hin karllæga hugmynda-
fræði um að græða á daginn og grilla
kvöldin. Gildismat sem setur peninga
öllu ofar í samfélagi þar sem allt er
réttlætanlegt í krafti þess að græða
meiri pening án tillits til mögulegra
afleiðinga þess fyrir aðra.
Þetta er andrúmsloftið sem ríkir
á Íslandi þegar Perla, aðalpersóna
skáldsögunnar Perlan: Meint skinku-
væðing íslensku kvenþjóðarinnar í
kjölfar efnahagshrunsins, ákveður að
taka sig upp í kjölfar sambandsslita
og flytja til New York. Perla flytur að
einhverju leyti þennan þankagang
með sér en þegar spariféð þrýtur við
NY dvölina grípur hún til þess ráðs
að reyna að slá í gegn sem lífsstíls-
bloggari. Lífsstíllinn gengur aðallega
út á næturlífið og Perla slær auðvitað
ekki í gegn í stórborginni en verður
þó að skemmti- og afþreyingarefni
fyrir íslenska fjölmiðla um nokkurt
skeið. Þegar nafn Perlu dúkkar upp
að nýju einhverjum árum síðar, en þá
á vitnalista í tengslum við stríðsglæpi
eftir áralanga þögn, kviknar áhugi
fjölmiðla að nýju
sem leiðir til þess að
Perla þarf að skoða
fortíðina.
Þessi flétta er
skemmtileg hug-
mynd þar sem hún
gefur færi á því að
skoða ákveðinn
hugmyndaheim,
bæði einstaklings
og samfélags, á
gjörólíkum tímum
þó ekki líði nema
örfá ár þar á milli.
Rannsóknin sem
Birna Anna leggst
í innan þessarar
sögu er forvitnileg
femínísk könnun á samfélagi þar
sem konur eru léttvægt viðfang fjöl-
miðla og samfélagsmiðla. Könnun á
eðli þessa samfélags, valdastrúktúr
og verðmætamati og þessi skoðun
er um margt afar forvitnileg lesning.
Það er í raun þannig að þessi sam-
félagslega skoðun er sterkasti þáttur
bókarinnar því þar koma fram ýmsar
spurningar varðandi stöðu kvenna í
nútíma samfélagi, hugmyndir sam-
félagsins um þær og þannig mætti
áfram telja. Allt pælingar sem tala
beint inn í samtíma okkar, ekki síst
út frá umræðunni um stöðu kvenna
sem hefur vonandi ekki farið fram
hjá nokkurri hugsandi manneskju
síðustu misserin.
En það er vandratað á milli þessara
samfélagslegu pælinga og að skapa á
sama tíma sterkt og gott
bókmenntaverk. Þar
hefði höfundi getað
tekist betur upp því
það eru ákveðnir
gallar á verkinu í bók-
menntalegu tilliti. Frá-
sögnin er á stundum
helst til langdregin og
hefði öll mátt vera í
senn þéttari og léttari.
Rétt eins og stíllinn sem
skortir dálítið upp á
snerpu og lipurð. Það er
alls ekki svo að þetta sé
alslæmt – langt frá því en
tilfinningin við lesturinn
segir manni að þetta sé
kannski helst spurning
um þjálfun sem kæmi til með að efla
stílfærni og snerpu. Vandinn er að
hugmyndafræðileg nálgun er nefni-
lega dálítið öðruvísi, sem er vissu-
lega jákvætt því fjölbreytnin er af
hinu góða, en það þarf að gæta að
textanum sjálfum. Ef höfundur nær
að framleiða betri bókmenntatexta
þá mun hugmyndafræðin skila sér
enn betur.
Magnús Guðmundsson
Niðurstaða: Hugmyndafræðilega
forvitnilegt verk sem hefði notið góðs
af þéttari frásögn og snarpari stíl.
Samfélagsrýni sem saknar snerpu og stíls
9 . d e s e M B e r 2 0 1 7 L a u G a r d a G u r56 M e N N i N G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
menning
0
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:0
3
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
0
-4
E
3
C
1
E
7
0
-4
D
0
0
1
E
7
0
-4
B
C
4
1
E
7
0
-4
A
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K