Morgunblaðið - 13.07.2017, Blaðsíða 25
asta dægurlag um bílstjóra í
íslensku útvarpi var að vísu um
Bjössa á mjólkurbílnum og það
voru fleiri tegundir af bílstjórum,
svo sem hljómsveitarbílstjórar.
Þessir menn gegndu alveg sér-
stöku hlutverki varðandi ferðir
tónlistarfólks og skemmtikrafta
um landið. Nú er einn þeirra
kominn á endastöð í jarðlífinu og
á aðeins eftir eina bílferð, í svart-
gljáða vagninum. Á tímum hér-
aðsmótanna og síðar Sumargleð-
innar létu margir þessara
bílstjóra hressilega til sín taka og
urðu eins konar goðsagnir. Í lag-
inu „Á ferðalagi“ er nafnið Jón
hrópað tvisvar, fyrst í hvatning-
unni „stattu’ hann, Jón“, og gæti
það bæði átti við Jón T. Ágústs-
son sem ók Sumargleðirútunni á
fyrri hlutanum af starfsemi henn-
ar og Jón R. Ragnarsson rall-
kappa sem ók henni á síðari árum
hennar. Hinn fyrrnefndi Jón fékk
snemma viðurefnið Gustur, og er
það skrifað hér með stórum staf,
af því að þannig skrifa vinir og
vandamenn það. Í rúman áratug
fyrir daga Sumargleðinnar ók
Gusturinn ýmsum hljómsveitum,
yfirleitt þeim vinsælustu. Það var
engin furða að Jón yrði alþekkt-
ur, því að með ólíkindum var
dugnaður, hressleiki og óþrjót-
andi lísgleði og lífsnautn þeirrar
ógleymanlegu hamhleypu og
húmorista sem hann var. Hann
þurfti ekki aðeins að aka rútunni,
ferma hana og afferma með
hljómsveitarmönnum, heldur líka
að sjá um samskipti við umráða-
menn samkomuhúsanna, sjá um
miðasölu og uppgjör og brottför í
lok dansleiks eða skemmtunar.
Eins og þetta hefði ekki verið
hverjum manni meira en nóg, var
Jón þar að auki yfir og allt um
kring í því mikla fjöri, sem ríkti í
kringum þetta einstæða tímabil
samkomuhalds á Íslandi, – það
gustaði að honum og viðurnefnið
lýsti því vel. Í lok lagsins „Á
ferðalagi“ er kallað. „Gefðu’ hon-
um, Gustur!“ og ekki fer á milli
mála við hvern er átt. Jón var
einn ógleymanlegasti persónu-
leiki sem ég hef kynnst, og eru
þeir þó orðnir margir. Með orð-
unum „Alltaf er bílstjórinn jafn
brattur og hress / og brunar um
landið kruss og þvers“ er reynt
að lýsa þessum árum, þegar
vegakerfið var ennþá að stærst-
um hluta mjóir, hlykkjóttir og
holóttir malarvegir og þurfti
menn með úthald og óþrjótandi
orku á borð við Jón til að standast
álag starfsins. Úr varð vináttu-
samfélag ferðafélaga þar sem
þurfti að takast sameiginlega á
við verkefnin í blíðu og stríðu og
bindast tryggðaböndum á grunni
ógleymanlegra ferðalaga. „Gefðu
honum, Gustur!“ var líkt og ákall
sem Jón T. Ágústsson hlýddi af
þvílíkum ákafa að hann gekk
nærri sér með árunum og heils-
unni hrakaði. En alltaf var húm-
orinn næstur honum alveg fram á
síðasta eldsneytisdropa jarðlífs-
ins. Með þökk og snortnum huga
bið ég hans nánustu blessunar
þegar ég kveð þennan ótrúlega
mann, sem lýsti svo oft upp um-
hverfi á einstakan hátt.
Nú er Gusturinn genginn / og
Gustinum líktist enginn.
Ómar Ragnarsson.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 2017
Atvinnuauglýsingar 569 1100
BLÖNDUÓSBÆR
Hnjúkabyggð 33 | 540 Blönduós | Sími 455 4700
Blönduósbær auglýsir laust starf leikskólastjóra
á leikskólanum Barnabæ til eins árs
Barnabær er fjögurra deilda leikskóli og að jafnaði dvelja
þar um 55-65 börn frá 9 mánaða aldri. Elsti hópurinn
er staðsettur í öðru húsnæði þar sem samstarf við
grunnskólann er mjög gott og fer hópurinn einn dag í viku
og tekur þátt í starfi grunnskólans með 1. bekk.
Leikskólastjóri stjórnar daglegri starfsemi og ber ábyrgð
á faglegu starfi og rekstri leikskólans. Hann ber ábyrgð
á skipulagi skólastarfs í samstarfi við foreldra, starfsfólk
skólans og skólayfirvöld. Hann ber jafnframt ábyrgð á
mannauðsmálum svo sem ráðningum, vinnutilhögun og
starfsþróun. Um tímabundna ráðningu er að ræða vegna
árs leyfis.
Starfshlutfall er 100%. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
í ágúst nk.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Leyfisbréf leikskólakennara er skilyrði
• Framhaldsmenntun og kennslureynsla á leikskólastigi
er æskileg.
• Leiðtoga- og skipulagshæfni er æskileg
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði í starfi og hæfni til samstarfs er nauðsynleg
• Þekking og/eða reynsla á rekstri og áætlanagerð er
skilyrði
• Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
Umsóknafrestur er til 28. júlí næstkomandi.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi
sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir
hæfni í starfið skulu berast til Arnars Þórs Sævarssonar
sveitastjóra á netfangið arnar@blonduos.is. Upplýsingar
í síma 455-4700 eða á netfangið arnar@blonduos.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags
stjórnenda leikskóla. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til
að sækja um starfið.
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðar/útskurður með leiðb. kl. 9-16. Handavinna með
leiðb. kl. 12.30-16. Félagsstarfið er með opið í sumar frá kl. 8.30-15.45.
Hádegismatur, spaghetti bolognese, frá kl. 11.40-12.45. Kaffiveitingar
á vægu verði kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Allir
velkomnir nær og fjær.
Dalbraut 18-20 Morgunsopi og dagblöð kl. 9, hádegismatur 11.30.
Garðabæ Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá
09.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara í síma 617-
1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 14-15.45. Gönguhópur
fer frá Jónshúsi kl. 10. Handvinnuhorn í Jónshúsi kl. 13.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 10-14. Heitt á könnunni, allir
velkomnir.
Gjábakki kl. 9 Handavinna.
Gullsmári Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, handavinna 13,
hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir!
Hvassaleiti 56 -58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, boccia kl. 10, matur kl. 11.30. Spiluð félagsvist kl. 13.15, kaffisala
í hléi, allir velkomnir.
Hæðargarður 31 Sumaropnun Félagsmiðstöðin er opin frá 10-14 í
júlímánuði nánar í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness kl. 7.15. Kaffi-
spjall í króknum kl.10.30. Félagsvist á Skólabraut kl. 13.30. Nikkuballið
árlega verður haldið eftir viku, þann 20. júlí við smábátahöfnina á
Seltjarnarnesinu.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mb
Atvinnuhúsnæði
Gott skrifstofuhúsnæði til leigu.
Til leigu er 197 ferm. skrifstofu-
húsnæði við Bíldshöfða. Skiptist í
móttöku, fimm stór skrifstofuher-
bergi, eldhús og geymslu. Ágæt
vinnuaðstaða fyrir allt að 12 starfs-
menn Sameiginlegar snyrtingar eru á
hæðinni. Vsk. innheimtist ekki af
leigunni og hentar húsnæðið því vel
aðilum sem eru í vsk. lausri starf-
semi. Beiðni um frekari
upplýsingar sendist í tölvupósti
til dogdleiga@gmail.com.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á
augl@mbl.is eða hafðu
samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast
bæði í Mogganum
og ámbl.is
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr.
Minningargreinar