Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Side 4
4 Helgarblað 10. nóvember 2017fréttir
N
ýir rekstraraðilar hafa tekið
við hinu fornfræga menn-
ingarhúsi Iðnó og er mark-
mið þeirra að búa til list-
rænt og samfélagslegt rými sem
er opið öllum Reykvíkingum og
vegfarendum. „Húsið er í eigu
borgarinnar og borgarbúar ættu
að upplifa þetta sem sitt rými,“
segir René Boonekamp, nýr fram-
kvæmdastjóri Iðnó. Fjölbreytt
dagskrá viðburða verður í Iðnó
auk veitingahúss og vinnurýmis
fyrir fólk í skapandi greinum.
Lifandi staður
Frá því að Iðnó var byggt af
Iðnaðar mannafélagi Reykjavíkur
árið 1896 hefur það sinnt mikil-
vægi hlutverki í reykvísku menn-
ingar- og samkvæmislífi. Það var
lengi vel eitt helsta samkomuhús
borgarinnar, auk þess sem Leik-
félag Reykjavíkur hafði aðsetur í
húsinu til ársins 1989. Frá því að
Reykjavík eignaðist húsið hef-
ur rekstur hússins verið boðinn
út á fjögurra ára fresti, en í útboði
borgarinnar fyrr á þessu ári voru
René og Þórir Bergsson veitinga-
maður hlutskarpastir. Þórir hefur
rekið veitingastaði undir merkjum
Bergsson undanfarin ár en René
hefur staðið fyrir fjölda menn-
ingar- og samfélagsverkefna bæði
í heimalandi sínu, Hollandi, og
á Íslandi. Má þar nefna eftirtekt-
arvert verkefni þar sem niðurnítt
verksmiðjuhverfi í Keilewerf í
Rotterdam var breytt í lifandi vett-
vang fyrir skapandi fólk, vinnu-
stofur, markaði og viðburðarými.
René segir að helsta markmið
nýrra rekstraraðila sé að gera Iðnó
að lifandi húsi þar sem almenn-
ingur upplifi sig ávallt velkominn.
„Við ætlum að reyna að gera Iðnó
að opnara húsi en það hefur verið,
meðal annars með því að reka
kaffihús á jarðhæðinni. Við höfum
fært barinn í anddyrið þannig að
hann taki betur á móti fólki. Þar
getur fólk fengið sér morgunmat,
hádegismat eða kaffi, bara vafrað
inn án erindis og forvitnast um
hvað sé að gerast þann daginn,“
segir René.
„Við munum nota bæði að-
alsalinn og efri hæðina sem
viðburðarými. Við munum
ennþá leigja rýmin út fyrir einka-
samkvæmi, en viljum ekki að þau
verði of fyrirferðarmikil. Utanað-
komandi aðilar geta einnig sótt um
að fá að nýta salina fyrir viðburði,
og svo munum við einnig skipu-
leggja okkar eigin viðburði. Þannig
ættu rýmin að vera fullnýtt og alltaf
eitthvað um að vera í húsinu.
Hugmyndin er svo að á efstu
hæðinni, á háaloftinu, verði mið-
stöð fyrir skapandi fólk. Annars
vegar verða þar vinnurými sem
hægt verður að leigja til skemmri
eða lengri tíma og hins vegar eru
uppi hugmyndir um að koma þar
upp hljóðupptökuveri. Hér get-
ur skapandi Reykjavík því komið
saman og vonandi mun afrakstur-
inn svo seytla niður eftir húsinu.“
Ráðgjafanefnd stýrir
dagskránni
Tilboð þeirra René og Þóris hljóð-
aði upp á 600 þúsund króna leigu
til borgarinnar á mánuði, en það
er næstum tvöfalt meira en síðasti
leigjandi bauðst til að greiða fyrir
áframhaldandi rekstur hússins.
René segist þó vera viss um að
reksturinn muni standa vel und-
ir þessari hækkuðu leigu án þess
að listamenn og skipuleggjendur
opinna viðburða þurfi að greiða
meira en áður fyrir notkun á hús-
inu.
„Við viljum að megininnkoman
verði áfram frá einkaviðburðum
og því verður verðlistinn mjög skýr
og ósveigjanlegur – en sanngjarn.
Þegar kemur að opnum viðburð-
um sem eru skipulagðir fyrir al-
menning erum við hins vegar til í
að skoða ýmiss konar samstarf eða
samninga, enda vitum við að slíkir
viðburðir standa misvel undir sér
fjárhagslega. Þetta tökum við inn í
myndina þegar við skipuleggjum
dagskrána, sem við viljum að sé
sem fjölbreyttust,“ segir René.
Hann segir að til að tryggja
metnaðarfulla og fjölbreytta dag-
skrá þar sem ólíkar raddir fá að
heyrast sé stefnt á að koma upp
síbreytilegri ráðgjafanefnd sem
muni fara yfir umsóknir þeirra
sem vilja nýta húsið undir opna
viðburði. Listrænt og samfélags-
legt gildi þeirra verður metið
og hvernig þeir passi inn í dag-
skrá hússins: „Við erum ennþá að
skoða réttu útfærsluna á þessu, en
við stefnum á að koma slíkri nefnd
á koppinn á næstunni.“
Saga og andrými
Aðeins mánuði eftir að nýju
rekstraraðilarnir tóku við húsinu
var fyrsti viðburðurinn haldinn
og líf er óðum að færst í hús-
ið á ný. René segir ekki hafa gef-
ist mikill tími í miklar breytingar
innanhúss, en þó hafi veggir ver-
ið málaðir og skipt um gólf í há-
tíðarsalnum. Gólfefnið hafi svo
verið endurnýtt í húsgögn í and-
dyrið. „Á þennan hátt viljum við
halda í sögu hússins en setja hana
í nýtt samhengi. Sagan er merki-
leg en það verður að viðurkennast
að hún gerir okkur einnig svolítið
erfitt fyrir. Það má varla breyta
neinu – ekki einu sinni litunum á
veggjunum.“
Frá því að Iðnó var opnað á
ný í byrjun nóvember hafa farið
fram fjölbreyttir viðburðir á borð
við kosningakaffi, Iceland Airwa-
ves, fyrirlestra og Hönnunar-
verðlaun Íslands. Á döfinni eru
svo uppistand Guðna Ágústs-
sonar, Reykjavík Dance Festival,
barnaleiksýningar, tónleikar og
fleira. Nokkra daga í viku fyrstu
mánuðina mun svo Andrými vera
starfrækt á efri hæðinni, en það
er róttækt félagsrými sem hvetur
til þátttöku ýmiss konar minni-
hluta- og jaðarsettra hópa. „Þetta
rímar mjög vel við markmið okk-
ar, svo við erum mjög opin fyrir
frumkvæði þess konar hópa,“ seg-
ir René.
„Við finnum strax fyrir miklum
áhuga frá fólki og spennu fyrir
því að nýta húsið. Við erum mjög
áhugasöm að heyra frá fólki
hvernig það getur hugsað sér að
nota þetta rými og erum opin fyrir
ýmiss konar samstarfi.“ n
Iðnó hefur opnað dyr sínar á
ný eftir að nýir rekstraraðil-
ar tóku við húsinu
„Húsið er í eigu
borgarinnar og
borgarbúar ættu að upp-
lifa þetta sem sitt rými.
SamfélagSleg
meNNiNgarmiðStöð
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
n Nýir rekstraraðilar með nýjar áherslur n iðnó opnað að nýju
Mikill áhugi René Boonekamp,
framkvæmdastjóri Iðnó, segir nýja
rekstraraðila menningarhússins finna
fyrir miklum áhuga frá fólki. MyndiR bRynja