Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Page 4
4 Helgarblað 10. nóvember 2017fréttir N ýir rekstraraðilar hafa tekið við hinu fornfræga menn- ingarhúsi Iðnó og er mark- mið þeirra að búa til list- rænt og samfélagslegt rými sem er opið öllum Reykvíkingum og vegfarendum. „Húsið er í eigu borgarinnar og borgarbúar ættu að upplifa þetta sem sitt rými,“ segir René Boonekamp, nýr fram- kvæmdastjóri Iðnó. Fjölbreytt dagskrá viðburða verður í Iðnó auk veitingahúss og vinnurýmis fyrir fólk í skapandi greinum. Lifandi staður Frá því að Iðnó var byggt af Iðnaðar mannafélagi Reykjavíkur árið 1896 hefur það sinnt mikil- vægi hlutverki í reykvísku menn- ingar- og samkvæmislífi. Það var lengi vel eitt helsta samkomuhús borgarinnar, auk þess sem Leik- félag Reykjavíkur hafði aðsetur í húsinu til ársins 1989. Frá því að Reykjavík eignaðist húsið hef- ur rekstur hússins verið boðinn út á fjögurra ára fresti, en í útboði borgarinnar fyrr á þessu ári voru René og Þórir Bergsson veitinga- maður hlutskarpastir. Þórir hefur rekið veitingastaði undir merkjum Bergsson undanfarin ár en René hefur staðið fyrir fjölda menn- ingar- og samfélagsverkefna bæði í heimalandi sínu, Hollandi, og á Íslandi. Má þar nefna eftirtekt- arvert verkefni þar sem niðurnítt verksmiðjuhverfi í Keilewerf í Rotterdam var breytt í lifandi vett- vang fyrir skapandi fólk, vinnu- stofur, markaði og viðburðarými. René segir að helsta markmið nýrra rekstraraðila sé að gera Iðnó að lifandi húsi þar sem almenn- ingur upplifi sig ávallt velkominn. „Við ætlum að reyna að gera Iðnó að opnara húsi en það hefur verið, meðal annars með því að reka kaffihús á jarðhæðinni. Við höfum fært barinn í anddyrið þannig að hann taki betur á móti fólki. Þar getur fólk fengið sér morgunmat, hádegismat eða kaffi, bara vafrað inn án erindis og forvitnast um hvað sé að gerast þann daginn,“ segir René. „Við munum nota bæði að- alsalinn og efri hæðina sem viðburðarými. Við munum ennþá leigja rýmin út fyrir einka- samkvæmi, en viljum ekki að þau verði of fyrirferðarmikil. Utanað- komandi aðilar geta einnig sótt um að fá að nýta salina fyrir viðburði, og svo munum við einnig skipu- leggja okkar eigin viðburði. Þannig ættu rýmin að vera fullnýtt og alltaf eitthvað um að vera í húsinu. Hugmyndin er svo að á efstu hæðinni, á háaloftinu, verði mið- stöð fyrir skapandi fólk. Annars vegar verða þar vinnurými sem hægt verður að leigja til skemmri eða lengri tíma og hins vegar eru uppi hugmyndir um að koma þar upp hljóðupptökuveri. Hér get- ur skapandi Reykjavík því komið saman og vonandi mun afrakstur- inn svo seytla niður eftir húsinu.“ Ráðgjafanefnd stýrir dagskránni Tilboð þeirra René og Þóris hljóð- aði upp á 600 þúsund króna leigu til borgarinnar á mánuði, en það er næstum tvöfalt meira en síðasti leigjandi bauðst til að greiða fyrir áframhaldandi rekstur hússins. René segist þó vera viss um að reksturinn muni standa vel und- ir þessari hækkuðu leigu án þess að listamenn og skipuleggjendur opinna viðburða þurfi að greiða meira en áður fyrir notkun á hús- inu. „Við viljum að megininnkoman verði áfram frá einkaviðburðum og því verður verðlistinn mjög skýr og ósveigjanlegur – en sanngjarn. Þegar kemur að opnum viðburð- um sem eru skipulagðir fyrir al- menning erum við hins vegar til í að skoða ýmiss konar samstarf eða samninga, enda vitum við að slíkir viðburðir standa misvel undir sér fjárhagslega. Þetta tökum við inn í myndina þegar við skipuleggjum dagskrána, sem við viljum að sé sem fjölbreyttust,“ segir René. Hann segir að til að tryggja metnaðarfulla og fjölbreytta dag- skrá þar sem ólíkar raddir fá að heyrast sé stefnt á að koma upp síbreytilegri ráðgjafanefnd sem muni fara yfir umsóknir þeirra sem vilja nýta húsið undir opna viðburði. Listrænt og samfélags- legt gildi þeirra verður metið og hvernig þeir passi inn í dag- skrá hússins: „Við erum ennþá að skoða réttu útfærsluna á þessu, en við stefnum á að koma slíkri nefnd á koppinn á næstunni.“ Saga og andrými Aðeins mánuði eftir að nýju rekstraraðilarnir tóku við húsinu var fyrsti viðburðurinn haldinn og líf er óðum að færst í hús- ið á ný. René segir ekki hafa gef- ist mikill tími í miklar breytingar innanhúss, en þó hafi veggir ver- ið málaðir og skipt um gólf í há- tíðarsalnum. Gólfefnið hafi svo verið endurnýtt í húsgögn í and- dyrið. „Á þennan hátt viljum við halda í sögu hússins en setja hana í nýtt samhengi. Sagan er merki- leg en það verður að viðurkennast að hún gerir okkur einnig svolítið erfitt fyrir. Það má varla breyta neinu – ekki einu sinni litunum á veggjunum.“ Frá því að Iðnó var opnað á ný í byrjun nóvember hafa farið fram fjölbreyttir viðburðir á borð við kosningakaffi, Iceland Airwa- ves, fyrirlestra og Hönnunar- verðlaun Íslands. Á döfinni eru svo uppistand Guðna Ágústs- sonar, Reykjavík Dance Festival, barnaleiksýningar, tónleikar og fleira. Nokkra daga í viku fyrstu mánuðina mun svo Andrými vera starfrækt á efri hæðinni, en það er róttækt félagsrými sem hvetur til þátttöku ýmiss konar minni- hluta- og jaðarsettra hópa. „Þetta rímar mjög vel við markmið okk- ar, svo við erum mjög opin fyrir frumkvæði þess konar hópa,“ seg- ir René. „Við finnum strax fyrir miklum áhuga frá fólki og spennu fyrir því að nýta húsið. Við erum mjög áhugasöm að heyra frá fólki hvernig það getur hugsað sér að nota þetta rými og erum opin fyrir ýmiss konar samstarfi.“ n Iðnó hefur opnað dyr sínar á ný eftir að nýir rekstraraðil- ar tóku við húsinu „Húsið er í eigu borgarinnar og borgarbúar ættu að upp- lifa þetta sem sitt rými. SamfélagSleg meNNiNgarmiðStöð Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is n Nýir rekstraraðilar með nýjar áherslur n iðnó opnað að nýju Mikill áhugi René Boonekamp, framkvæmdastjóri Iðnó, segir nýja rekstraraðila menningarhússins finna fyrir miklum áhuga frá fólki. MyndiR bRynja

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.