Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Side 14
14 Helgarblað 10. nóvember 2017fréttir
Í
gær, fimmtudag, féll dómur
Hæstaréttar í máli Áslaugar
Ýrar Hjartardóttur gegn íslenska
ríkinu og Samskiptamiðstöð
heyrnarlausra og heyrnarskertra
(SHH). Í málinu féllst Hæstiréttur
á það sjónarmið ríkisins að heim-
ilt og málefnalegt hefði verið að
synja Áslaugu um gjaldfrjálsa túlk-
unarþjónustu á þeim grundvelli
að SHH hefði úr of litlu fjármagni
að spila.
Barátta systra
Áslaug og systir hennar, Snædís
Rán, hafa síðustu misserin átt í
deilum við ríkið og SHH um rétt
þeirra til að njóta gjaldfrjálsrar
táknmálstúlkaþjónustu. Systurnar,
sem báðar eru á þrítugsaldri, eru
með sama arfgenga taugahrörn-
unarsjúkdóminn sem gerði fyrst
vart við sig á barnsaldri beggja.
Þær eru báðar heyrnarlausar, með
skerta sjón og þurfa að notast við
hjólastól. Þær hafa báðar þrátt fyrir
fötlun sína verið virkar í námi og
félagslífi en hafa lengi gagnrýnt ís-
lenska ríkið fyrir að veita þeim ekki
þá túlkaþjónustu sem þær þurfa til
að sinna daglegu lífi.
Synjað um
túlkaþjónustu erlendis
Dómsmálið snerist um ferð Ás-
laugar síðastliðið sumar til Sví-
þjóðar í sumarbúðir fyrir dauf-
blind ungmenni á Norðurlöndum.
Áslaug óskaði eftir fá gjaldfrjálsa
túlkaþjónustu frá SHH vegna
ferðarinnar en var synjað þar sem
túlkaþjónusta gæti aðeins verið
gjaldfrjáls innanlands. Síðar kom
í ljós að forsvarsmenn sumarbúð-
anna væru reiðubúnir að greiða
allan ferða- og dvalarkostnað túlk-
anna. Áslaug óskaði því aftur eftir
þjónustunni frá SHH en var synj-
að á nýjan leik, þá af fjárhagsleg-
um ástæðum þar sem sjóðir SHH
hefðu þá að sögn tæmst. Þó að Ás-
laug hafi ekki sætt sig við þá niður-
stöðu þá tók hún lán til að greiða
fyrir túlkaþjónustu og fór í ferðina.
Hún stefndi svo SHH og ríkinu
og krafðist ógildingar ákvarðana
SHH og miskabóta sér til handa.
Engar reglur og engir peningar
Áslaug byggði mál sitt fyrst og
fremst á 1. mgr. 76. gr. stjórnar-
skrárinnar þar sem segir m.a.
að öllum, sem þess þurfa, skuli
tryggður í lögum réttur til aðstoð-
ar vegna sjúkleika, örorku og sam-
bærilegra atvika. Benti Áslaug á
að ríkið hafi ekki sinnt því að setja
sérstök lög eða ramma utan um
réttindi ákvæðisins, hvorki hversu
rúm þau séu né hvernig þau skuli
takmörkuð. Þar að auki væri
hvergi að finna skráðar reglur eða
viðmið hjá SHH um í hvaða tilvik-
um einstaklingar eigi rétt á endur-
gjaldslausri þjónustu, til dæmis
hvort þjónusta veitt erlendis gæti
verið gjaldfrjáls. Áslaug taldi að á
meðan ekki væru til skýrar reglur,
skilgreiningar eða takmarkanir á
rétti hennar samkvæmt stjórnar-
skrá þá gæti henni ekki verið synj-
að um gjaldfrjálsa þjónustu til að
geta átt í samskiptum við annað
fólk og stunda félagslíf og tóm-
stundir til jafns við aðra. Þá taldi
Áslaug að ekki væri unnt að hrófla
við stjórnarskrárvörðum réttind-
um hennar á þeim grundvelli að
of lítið hefði verið skammtað til
SHH í fjárlögum.
Í málatilbúnaði SHH og ríkis-
ins fyrir Hæstarétti kom fram að af
lögum og gjaldskrá SHH megi lesa
að gjaldfrjáls þjónusta verði að-
eins veitt innanlands. Að megin-
stefnu var hins vegar á því byggt í
málinu að samkvæmt lögum væri
ríkinu og stofnunum þess óheim-
ilt að fara fram úr fjárlögum. Var
vísað til þess að ef fallist hefði ver-
ið á að veita Áslaugu þjónustuna
hefðu sjóðir SHH klárast.
Réttindi heyrnarskertra
háð fjárlögum
Það vekur athygli að svo virðist
sem undanfarin ár hafi ítrekað
verið skorað á ríkið og löggjafann,
með beinum og óbeinum hætti,
að setja nánari reglur og skilgrein-
ingar á réttindum heyrnarskertra
hvað þessi málefni varðar. Þannig
benti umboðsmaður Alþingis á
það í áliti árið 2004 að skilgreina
þyrfti réttindi heyrnarskertra sam-
kvæmt stjórnarskránni þannig að
ljóst væri hvaða þjónustu þeir ættu
rétt á að njóta endurgjaldslaust. Þá
má benda á dóm héraðsdóms árið
2015 í máli Snædísar, systur Ás-
laugar, gegn SHH og íslenska ríkinu
þar sem ríkið þurfti að bera hall-
ann af því að hafa ekki sett reglur
um réttindin. Niðurstaða þess máls
var sú að ríkið var talið hafa brotið
gegn stjórnarskrárvörðum rétti
Snædísar með því að synja henni
um gjaldfrjálsa túlkaþjónustu við
félagsstörf. Byggði niðurstaðan
fyrst og fremst á því að ríkið hefði
vanrækt að skilgreina réttindi
heyrnarskertra nánar í lögum eða
reglum. Án slíkra regla giltu al-
menn réttindi heyrnarskertra sam-
kvæmt stjórnarskránni og sá réttur
gengi framar sjónarmiðum ríkis-
ins um fjárskort. Hafði Snædís því
betur í því máli og fékk dæmdar
miskabætur frá ríkinu. Ríkið undi
þeim dómi og áfrýjaði honum ekki
til Hæstaréttar. Mál Áslaugar, systur
hennar, var um margt svipað en
niðurstaða Hæstaréttar á fimmtu-
dag var þveröfug við héraðsdóm
árið 2015, því Hæstiréttur telur að
sjónarmið ríkisins um fjárskort séu
málefnaleg.
„76. gr. stjórnar-
skrárinnar dó í dag“
DV leitaði eftir viðbrögðum lög-
manns Áslaugar við niðurstöðunni
og vísaði hann til færslu á Facebook-
síðu sinni. Þar tilkynnti hann „með
miklum trega“ að 76. gr. stjórnar-
skrárinnar hafi dáið með dóminum.
Ákvæðið hafi um stund tryggt sam-
félaginu rétt til lágmarksaðstoðar
í veikindum og fátækt en að nú sé
endanlega ljóst að ákvæðið sé merk-
ingarlaust. Þannig tryggi ákvæðið
í dag hvorki rétt borgaranna til að-
stoðar né til þess að settar séu reglur
um mögulegan rétt þeirra. n
„76. grein stjórnar-
skrárinnar dó í dag“
n Áslaugu Ýri synjað um túlkaþjónustu vegna fjárskorts n Tapaði í Hæstarétti
Sigurvin Ólafsson
sigurvin@dv.is 30 milljónir
króna fyrir 200
einstaklinga
Á ári hverju úthlutar ríkið fé til SHH
sem miðstöðin skal nýta til að veita
endurgjaldslausa túlkaþjónustu vegna
daglegs lífs heyrnarskertra. Árið 2017
eru rúmlega 30 milljónir króna til
ráðstöfunar í því skyni en gert er ráð fyrir
að um 200 einstaklingar þurfi að nýta
þjónustuna. Samkvæmt gjaldskrá SHH
kostar ein klukkustund af táknmálstúlk-
un um 10 þús. kr. sem þýðir að hver not-
andi getur að meðaltali nýtt sér 15 klst.
af gjaldfrjálsri túlkaþjónustu á árinu.
Áslaug Ýr
Hjartardóttir
Hæstiréttur
Íslands
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð