Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Síða 20
20 sport Helgarblað 10. nóvember 2017
Þ
að er ljóst að Pepsi-deild
karla á í vandræðum með
að fá fólk til að mæta á
völlinn og styðja sín lið.
Mætingin á leiki í efstu deild karla
í sumar var sú versta frá árinu 1998
ef skoðað er meðaltal áhorfenda á
hvern leik. Ljóst er að vandamál-
in eru mörg en áhorfendum fækk-
aði mikið árið 2016 og enn frekar í
ár. Snúa þarf við taflinu til þess að
fótboltinn haldi vinsældum sínum
hér á landi.
Aðstaða á völlunum
Aðstaða við vellina er misjöfn en
á flestum stöðum er mörgu ábóta-
vant, þar þurfa mörg félög að gera
betur. Nærtækt dæmi er aðstaða
á KR-vellinum þar sem litlu hefur
verið bætt við síðustu ár, salernis-
aðstaða og vandi við bílastæði er
mikill á KR-vellinum. Hjá Breiða-
bliki er hlaupabraut sem skemm-
ir upplifunina af leiknum og hjá
Fjölni er aðstaðan líklega sú allra
versta í efstu deild karla og hefur
verið í mörg ár. Ekki er nein yfir-
byggð stúka, langt er frá inngangi
að stúku og aðstöðu fjölmiðla er
ábótavant. Aðstæður eru held-
ur ekki til fyrirmyndar hjá Vík-
ingi R og Grindavík svo dæmi séu
tekin. Aðstaðan er líklega best í
Kaplakrika þar sem menn hafa
vandað til verka.
Hækkað miðaverð
Miðaverð á leiki deildarinnar var
hækkað úr 1.500 krónum í 2.000
krónur fyrir liðna leiktíð, það
var ekki til að hjálpa til. ÍTF (Ís-
lenskur toppfótbolti) og þeir sem
standa að deildinni létu blekkj-
ast, þeir töldu að fækkun áhorf-
enda árið 2016 mætti að mestu
leyti skrifast á Evrópumótið í
knattspyrnu sem fram fór í Frakk-
landi. Héldu flestir að áhugi Ís-
lendinga á Evrópumótinu hefði
átt þar stærstan hlut að máli, en
það reyndist rangt mat. Aðrar
ástæður eru að baki og þurfa ÍTF,
KSÍ og Ölgerðin að setjast yfir
málið og skoða hvað sé til ráða.
Beinar útsendingar
Stöð2 Sport hefur aldrei sýnt
fleiri leiki í beinni útsendingu
en á síðustu leiktíð og er ljóst að
allar þessar beinu útsendingar
geta haft áhrif, sérstaklega þegar
upplifunin við að fara á völlinn
er ekki meiri en hún er. Margir
knattspyrnuáhugamenn sem DV
ræddi við voru á því að sú stað-
reynd að fjöldi leikja í beinni út-
sendingu hafi áhrif á mætingu
þeirra á völlinn. Oft var hægt
að horfa á tvo leiki í beinni út-
sendingu og svo Pepsi- mörkin
sama daginn. Á meðan félögin
Af hverju er fólk hætt
að mæta á völlinn?
n Ekki færri áhorfendur á efstu deild karla síðan 1998 n 30% fækkun frá 2010
Ö
lgerðin hefur mikið að
segja um hvernig deildin
er sett upp og hvernig
markaðsstarf er í kringum
hana. Ölgerðin hefur unnið gott
starf í kringum deildina. Sand-
ra Björg Helgadóttir er vöru-
merkjastjóri hjá Ölgerðinni og
hefur síðustu ár stýrt því sem
gerist í kringum Pepsi-deildina.
„Okkur finnst þetta áhyggjuefni
en við erum svolítið beggja megin
við borðið. Við viljum fjölga bein-
um útsendingum og fá almenn-
an áhuga á fótboltanum. Það er
kannski að skila sér í færri áhorf-
endum á völlinn, við erum að
sama skapi mjög ánægð með alla
umfjöllun um deildina og áhug-
ann á henni,“ sagði Sandra þegar
DV leitaði viðbragða hjá henni.
Herferðin í ár skilaði ekki sínu
Herferð Pepsi-deildarinnar í ár
var með slagorðið „Koma svo“.
Átti það að ýta undir fólk að
mæta á völlinn en miðað við
tölurnar gekk sú herferð ekki
upp. „Herferð okkar í sumar
snerist að mestu leyti um það að
fá fólk á völlinn, slagorðið okk-
ar var „Koma svo“. Það átti að
vera hvetjandi fyrir fólk að koma
á völlinn og hvetja sitt lið áfram.
Við herjuðum á útvarpsauglýs-
ingar þar sem leikirnir voru aug-
lýstir með því slagorði. Við hugs-
um okkar markaðssetningu út frá
því að fá fólk á völlinn.“
Áttan leikur stórt hlutverk
Sumir hafa gagnrýnt að Ölgerðin
sé að setja of mikla ábyrgð og
fjármuni af sínu markaðsstarfi
í Áttuna, krakkarnir þar ná
meira til yngri markhóps sem
er kannski ekki að borga sig inn
á völlinn. „Við erum búnir að fá
þá til að sjá um Pepsi-deildar
Snapchat-ið, þeir mæta á einn
leik í hverri umferð í karla og
kvenna deildinni. Það var hugs-
að til að sýna stemminguna á
vellinum þar sem fólk er að fá
sér hamborgara eða kaffi. Sýna
hverjir væru í stúkunni og þannig
hluti. Þegar þeir mæta og það er
kannski enginn í stúkunni getur
það haft öfug áhrif. Við höfum
notað mikið fjármagn í birtingar
hjá 365 miðlum,“ sagði Sand-
ra en vörumerkið Pepsi hefur
styrkst mikið frá því að samstarf-
ið við deildina hófst.
Hvað segir Ölgerðin?
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
sofa á verðinum er erfitt að sann-
færa fólk um að mæta á völlinn í
stað þess að horfa á leikina í sjón-
varpinu. Með veraldarvefnum eru
svo margir sem stela þjónustunni
og horfa á leikina frítt á streym-
isveitum sem bjóða upp á slíkt,
það er stórt vandamál. Þar er í dag
hægt að sjá alla leiki.
GríðarleG
fækkun
Áhorfendur 2010 að meðaltali:
KR - 1893
FH - 1.773
Breiðablik - 1.544
Valur - 1.112
Grindavík - 904
Stjarnan - 886
ÍBV - 868
Áhorfendur 2017 að meðaltali:
KR - 1.123
FH - 1.060
Breiðablik - 1.096
Valur - 977
Grindavík - 594
Stjarnan - 953
ÍBV - 640
Áhorfendur að meðaltali í heild
yfir Pepsi-deild karla:
2017 - 838
2016 - 975
2015 - 1.107
2014 - 923
2013 - 1.057
2012 - 1.034
2011 - 1.122
2010 - 1.205
Tóm stúka Valsmenn
unnu Pepsi-deild karla í
ár. Mynd SigTryggur Ari