Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2017, Síða 24
24 fólk - viðtal Helgarblað 10. nóvember 2017
Á
heimili Hrefnu Rósu
Sætran í Litla Skerjafirði er
verið að breyta. Hrefna og
maðurinn hennar, Björn
Árnason ljósmyndari, hafa búið
á neðri hæð hússins síðan árið
2011 en keyptu nýverið efri hæð-
ina líka. Björn er fjarverandi en
dóttir þeirra, Hrafnhildur, og
kötturinn Mía eru heima ásamt
húsfreyjunni. Hrefna er nýkomin
frá Lundúnum þar sem nokkrum
starfsmönnum hennar var boðið
í ferð. „Við gerum þetta stundum.
Bjóðum fólki til útlanda þar sem
við förum á fína veitingastaði.“
Hrefna er einn þekktasti
kokkur og veitingastaðareigandi
landsins. Hún hefur verið á
skjáum landsmanna með mat-
reiðsluþætti, gefið út bækur og
matarlínur, keppt fyrir Íslands
hönd með kokkalandsliðinu og
rekið tvo fyrirmyndarveitinga-
staði. Alltaf er nóg að gera hjá
Hrefnu, bæði í starfi og einkalífi,
og nú er stefnt að opnun þriðja
veitingastaðarins.
Vídeóspólur með Sigga Hall
Hrefna er fædd árið 1980 og hef-
ur ávallt búið í Reykjavík. Hún er
dóttir Sigrúnar Sætran, myndlist-
arkennara á BUGL, og Jóhanns
Traustasonar, eiganda tískuvöru-
verslunarinnar Mótor, og alin
upp í Breiðholtinu. Þegar hún var
fjögurra ára hóf hún að æfa dans
og seinna meir átti hún eftir að
vinna fjölda Íslandsmeistaratitla í
greininni. „Ég var í öllum tegund-
um af dansi, samkvæmisdönsum,
rokki, ballett, gömlu dönsunum
og steppi.“
Hún og Daníel Traustason,
dansfélagi hennar, lentu oft á síð-
um blaðanna, bæði eftir keppni
hér heima og erlendis. En fann
hún ekki fyrir pressu? „Þegar ég lít
til baka sé ég að pressan var mik-
il í þessu umhverfi, sérstaklega frá
foreldrum margra keppenda. Sjálf
upplifði ég hins vegar ekki mikla
pressu frá mínum foreldrum. En
ég var mjög ung og þurfti að fara
ein í keppnis- og æfingaferðir til
Bretlands og Danmerkur sem var
mikið ævintýri og lærdómur.“
Þegar Hrefna varð ungling-
ur hætti dansinn að þykja flottur
í vinahópnum og einnig tók
hann of mikinn tíma. Hún þurfti
að velja milli þess að æfa fram á
kvöld alla daga eða sinna félags-
lífinu og valdi hún seinni kostinn.
Hrefna dansar enn við og við en
fylgist ekki með keppnum leng-
ur. Hún segist þó ekki dansa við
eiginmann sinn. „Ef maður hittir
einhvern sem var í dansi, til dæm-
is í brúðkaupi, þá dansar maður.“
Á sama tíma og hún byrjaði í
dansinum fór hún að hafa mik-
inn áhuga á matreiðslu. „Mjög
lítil var ég farin að spá í hvern-
ig allt var á bragðið. Ég var tölu-
vert með ömmu minni og afa sem
voru nokkuð öldruð og elduðu
ekki mikið sjálf. Við fórum því
mikið út að borða og sérstaklega
á fína staði sem mér fannst mjög
spennandi. Ég elskaði lax með
sítrónu ofan á, sennilega hafa
ekki margir fjögurra ára krakkar
verið að spá í þessa hluti.“
Þegar jafnaldrar Hrefnu horfðu
á teiknimyndir í sjónvarpinu
horfði hún á uppteknar vídeó-
spólur af matreiðsluþáttum Sigga
Hall. „Ég var alltaf í veitinga-
staðaleik og var stanslaust að út-
búa eitthvað handa vinum mín-
um og fjölskyldu, mjólkurhristing
eða samlokur. Ég áttaði mig hins
vegar ekki á því að ég gæti orðið
kokkur. Mig langaði til að verða
lögga, fjölmiðlafræðingur og á
unglingsárunum var skammlífur
draumur að verða flugfreyja.“ Að-
spurð hvernig unglingur hún var
segir Hrefna: „Ég hef ábyggilega
ekki alltaf verið þægileg, senni-
„Ég þurfti
að sanna
mig til þess að
geta verið ein
af strákunum“
„Við höfum
verið að
vinna að opnun nýs
staðar í þrjú ár og
stefnum á að opna
næsta sumar.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Hrefna Sætran, eigandi Fiskmarkaðarins og Grillmarkaðarins,
hefur verið einn mest áberandi kokkur Íslands um nokkurt skeið.
Kristinn H. Guðnason hitti Hrefnu og ræddi við hana um kokkastarfið,
veitingareksturinn, áhugamálin og einkalífið.